Morgunblaðið - 03.03.2011, Page 40
Hamar úr Hveragerði vann
sinn fyrsta titil í körfubolt-
anum í gærkvöld þegar liðið
stóð uppi sem sigurvegari í
úrvalsdeild kvenna. Það
gerðist þrátt fyrir ósigur
gegn KR á heimavelli því
Keflavík, eina liðið sem gat
komist upp fyrir Hamars-
konur, tapaði á sama
tíma fyrir Haukum.
Hamar er því með
heimaleikjarétt í allri
úrslitakeppninni. »3
„Það er að sjálfsögðu rosalega gam-
an að vinna eitt af sterkustu liðum
heims, sérstaklega vegna þess að
Svíarnir tefldu fram sínu besta liði á
móti okkur,“ sagði Katrín Jónsdóttir,
fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins í knattspyrnu,
við Morgunblaðið í gær. Hún
skoraði sigurmarkið gegn Sví-
um, 2:1, í Portúgal. »1, 4
Gaman að vinna eitt
sterkasta lið heims
FIMMTUDAGUR 3. MARS 62. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Thor Vilhjálmsson látinn
2. Segist hafa sofið hjá kennaranum
3. Ferguson æfur út í dómgæsluna
4. Sheen missir forræði
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Í dag eru slétt tuttugu og fimm ár
síðan Metallica gaf út plötuna Master
of Puppets, sem margir telja vera
hennar meistaraverk. Orri Páll Orm-
arsson fór í þungarokksrannsóknir af
tilefninu. »35
Þrekvirki
þungarokksins
Skráning í Mús-
íktilaunir þetta
árið hófst síðasta
mánudag. Hver
hljómsveit eða
einstaklingur skil-
ar tveimur demó-
upptökum á mp3-
formi inn á
www.musiktil-
raunir.is, ásamt mynd í góðri upp-
lausn og stuttri lýsingu. Skráningu
lýkur 13. mars. Sigurvegari í fyrra var
hljómsveitin Of monsters and men.
Skráning í Músíktil-
raunir yfirstandandi
Blúshátíð verður haldin 16. til 20.
apríl næstkomandi og verður að
vanda öllu tjaldað til hvað íslenska
blúsmenningu varðar. Erlendir gest-
ir munu að vanda kíkja í heimsókn
og svo verður sjálfur
Björgvin Halldórsson á
meðal gesta í þetta
sinn. Mun hann
taka lagið með
Blúsmafíunni á
sérstöku
Memphis Ten-
nessee-kvöldi.
Bó með Blúsmafíunni
á blúshátíð
Á föstudag Vestan 8-15 m/s, hvassast nyrst. Hægviðri um kvöldið. Víða dálítil él. Hiti
kringum frostmark.
Á laugardag Suðlæg átt, 10-18 m/s, með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu. Hlýn-
andi í bili.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Skúrir eða él, en úrkomulítið norðaustantil. Vægt frost í inn-
sveitum norðaustanlands til morguns en annars hiti yfirleitt 0 til 5 stig.
VEÐUR
Fyrsti titillinn til
Hamarskvenna
Frjálsíþróttamennirnir Kristinn Torfa-
son og Óðinn Björn Þorsteinsson eru
tilbúnir í slaginn á Evrópumeist-
aramótinu innanhúss sem hefst í
París í fyrramálið. Kristinn keppir í
langstökki og þrístökki og kveðst
aldrei hafa verið í betra formi. Óðinn
Björn keppir í kúluvarpi og setur
stefnuna á að komast í úrslitakeppn-
ina. »2-3
Kristinn og Óðinn eru
klárir í slaginn í París
ÍÞRÓTTIR
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég brotnaði aldrei niður heldur tók
þessu alltaf með ró. Ég held að þetta
sé miklu erfiðara fyrir aðstand-
endur. Konan mín, Sólveig Hrönn
Gunnarsdóttir, er hjúkrunarfræð-
ingur og hún undraðist hversu ró-
lega ég tók þessu öllu,“ segir Gísli
Ragnar Kristjánsson, húsasmiður á
Eyrarbakka, um jákvætt hugarfar
sitt til krabbameinsmeðferðar.
Gísli Ragnar greindist með
krabbamein í vinstra eista í nóv-
ember 2005 og er nú að eigin sögn
„algóður“. Hann dró að fara í ítar-
lega skoðun hjá lækni og hvetur
aðra karla til að falla ekki í sömu
gildru og hann, að hugsa sér að ekk-
ert geti nú verið að þeim sjálfum.
En batahorfur karla sem greinast
með eistnakrabbamein eru um 90%.
Gat ekki gengið
„Það var rétt fyrir fæðingu yngsta
stráksins míns í desember 2004 sem
ég fann fyrst til í eistanu. Ég var á
gangi og fann þá fyrir miklum
eymslum. Eitt skiptið var ég á verk-
stæðinu og gat þá ekki gengið. Ég
kvartaði við konuna og hún sendi
mig rakleitt til heimilislæknis.
Læknirinn skoðaði mig og þreifaði
eistað en ómskoðaði mig ekki. Hon-
um taldist til að þetta væri bólga í
eistnalyppum og lét mig hafa sýkla-
lyf. Það sló á einkennin um hríð. Ég
fann síðan aðeins til en var
ekki að velta því mikið
fyrir mér,“ segir
Gísli Ragnar og
kveðst sjá eftir
því að ekki hafa
hlustað á
hvatningarorð konu
sinnar um að fara í
ítarlega skoðun.
„Síðan liðu 11
mánuðir og á þeim
tíma fann ég öðru
hverju til í eistanu.
Það var ekki fyrr en í nóvember
2005 að ég fór að tala um þetta við
konuna. Þá pantaði hún tíma án
minnar vitundar og ég fór til læknis.
Ég var skoðaður og fór í viðtal hjá
sérfræðingi. Hann greindi mig strax
og sagði að það væru 90% líkur á að
þetta væri æxli í eistanu.“
Lífið er mikil gjöf
Daginn eftir fór Gísli Ragnar í
skurðaðgerð þar sem vinstra eistað
var fjarlægt. Nokkrum vikum síðar
tók svo við lyfjameðferð sem stóð
fram á vor. Þá tók við frí og undir-
búningur undir dagleg störf.
Gísli Ragnar tók fram hamarinn á
ný í ágústlok og var fljótlega kominn
í fullan gang sem sjálfstætt starf-
andi smiður. Reglubundnu eftirliti
hjá lækni er að ljúka og við blasir
heilbrigt líf á ný. Það er þakklátur
maður sem kveður blaðamann. „Er
lífið ekki yndislegt?“
„Er lífið ekki yndislegt?“
Smiður hvetur
karla til árvekni
verki þá í eistu
Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson
Með mottu Gísli Ragnar Kristjánsson horfir nú glaðbeittur fram á veginn eftir erfiða baráttu við krabbamein.
„Þegar ég fór á bráðamóttökuna
fyrst og var greindur með
krabbamein í vinstra eista var ég
í pínulitlu herbergi. Þar
var hópur af sérfræð-
ingum sem höfðu snert
mig allan og rannsakað í
bak og fyrir. Þá bar svo við að
mér var boðið sílíkon í stað eist-
ans sem átti að fjarlægja. Ég
sagði bara já við því,“ segir Gísli
Ragnar og hlær innilega að minn-
ingunni. Hann viðurkennir þó að
suma daga hafi lífið ekki verið
dans á rósum.
„Þetta var erfitt. Ég skal játa
það. Maður var búinn að fá alls-
kyns lyf og var orðinn hárlaus um
allan líkamann og útblásinn af
sterum og allur úr sér genginn.
Fyrstu dagana eftir lyfjameðferð
var ég rúmliggjandi. Ég var svo
slappur að ég gat varla gengið á
klósettið. Það var sigur að kom-
ast þangað. Síðan gat maður að-
eins farið að ganga um. Ég hélt
mér að öðru leyti ótrúlega vel,
hafði alltaf matarlyst. Þar var
mikið af töflum sem maður þurfti
að éta og harðlífið var alveg
skelfilegt,“ segir Gísli Ragnar og
hlær aftur dátt.
Hörkutól með sílíkon
LAUSN LÆKNAVÍSINDANNA