Morgunblaðið - 15.03.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. MARS 2011
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Eygló Harðardóttir, alþingismaður
úr röðum framsóknarmanna, er
ósátt við þau ummæli Þórsteins
Ragnarssonar,
forstjóra Kirkju-
garða Reykjavík-
ur, í Morgun-
blaðinu sl.
miðvikudag að
fljótaskrift sé á
frumvarpi henn-
ar um umhverfis-
vænni og fjöl-
breyttari
greftranir. Hún
segir meðal ann-
ars að alrangt sé hjá Þórsteini að
hætt hafi verið við að bjóða upp á
svonefnda þurrfrystingu líkamsleifa
(promission) í Svíþjóð, áfram sé
unnið að því enda þótt sænska þjóð-
kirkjan hafi dregið sig út úr verk-
efninu. Einnig fullyrðir Þórsteinn
að sumt af því sem lagt er til í
frumvarpinu sé óþarft þar sem
ákvæði af sama tagi séu þegar í
gildi. En Þórsteinn vitni þar í frum-
varp sem hafi tvisvar dagað uppi á
þingi.
Markmiðið með þurrfrystingu er
m.a. að tryggja að ýmis aðskotaefni,
þ. á m. kvikasilfur í tönnum, berist
ekki út í umhverfi grafreita og valdi
mengun.
„Verið er að vinna að því að bjóða
upp á promission í Bretlandi, Hol-
landi, S-Kóreu og Suður-Afríku,
lagaumhverfið þarf að vera tilbúið
til að hægt sé að bjóða upp á þessa
aðferð,“ segir Eygló. „Ég setti inn á
vefinn hjá mér link með opinberri
úttekt hjá sænska ríkinu frá 2009
þar sem einmitt er verið að leggja
til að lögum um greftrun verði
breytt þannig að opnað verði fyrir
aðrar aðferðir en þær hefðbundnu,
það er greftrun og brennslu.“
Lagt er til í frumvarpi Eyglóar
að aukið tillit verði tekið til annarra
trúfélaga en kristinna, teknir verði
frá ákveðnir reitir fyrir tiltekin
trúarbrögð og einnig þá sem vilja
hvíla í óvígðum reit. Hún segir að
menn hafi um hríð nýtt sér ákveðin
heimildarákvæði varðandi slíka
reiti. En ekki hafi verið gert að
skyldu í sambandi við stofnun nýrra
kirkjugarða að tryggja slík réttindi.
Sams konar ákvæði
og í frumvarpi sem sofnaði
„Þegar Þórsteinn var sjálfur for-
maður nefndar sem vann fyrir fyrr-
verandi dómsmálaráðaherra lagði
hann til þessa breytingu á lögum
um kirkjugarða og líka að það yrði
sett inn heimildarákvæði fyrir trú-
félög um að þau mættu búa um
hinn látna samkvæmt eigin hefð-
um,“ segir Eygló. „Ákvæði um
þetta í mínu frumvarpi eru sam-
hljóða ákvæðum í því sem hann
vann að. Ég verð að vona að ekki
hafi verið fljótaskrift á þeirri vinnu
sem hann annaðist þá fyrir dóms-
málaráðuneytið!“
Eygló spyr sig hvort hagsmuna-
gæsla hafi áhrif á skoðanir manna á
málinu. „Það hefur verið reynslan í
Svíþjóð að þar hefur verið mikil
tregða hjá fulltrúum kirkjugarða og
líkbrennslustofnana til að opna fyrir
aðrar greftrunaraðferðir. Ég spyr
mig hvort Þórsteinn svari þeirri
spurningu ekki sjálfur í viðtalinu
við Morgunblaðið þegar hann bend-
ir á þann mikla kostnað sem felst í
því að setja á stofn líkbrennslu-
stofnun eða ofn.“
Morgunblaðið/Kristinn
Friður Leiði í Gufuneskirkjugarði í
Grafarvogshverfinu í Reykjavík.
Hafnar ásökun
um fljótaskrift
Þingmaður vill breytt kirkjugarðslög
Eygló
Harðardóttir
Vertu velkomin að kynnast
þessu magnaða augnkremi
frá la prairie
í Hygeu Kringlunni
á morgun miðvikudaginn
16. mars kl. 13-17
Bjóðum 10%
kynningarafslátt
og kaupauka Kringlan, sími 533 4533Smáralind, sími 554 3960
Nýjasta & virkasta
augnkremið frá la prairie
Sólskálar
Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær
Sími: 554 4300 | www.solskalar.is
hf
-sælureitur innan seilingar!
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Nýjar vörur
Str. 38-54
Bonito ehf. | Friendtex | Faxafen 10 | 108 Reykjavík
sími 568 2870 | www.friendtex.is
Kíktu, það
borgar sig
Lagersala
út þessa viku
Opið: þriðjud. - föstud. kl. 11:00-18:00, laugard. 11:00-16:00
• Leðurjakkar kr. 15.900
• Leðurbuxur kr. 14.900
• Ullarjakkar kr. 8.900
• Allar peysur
kr. 2.000 - 3.000 - 5.000
Ótrúleg
verð
Mikið úrval
af fatnaði á 1.000 • 2.000 • 3.000
www.birkiaska.is
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
Minnistöflur
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðaðu Basic bæklinginn á www.laxdal.is
VIKUTILBOÐ
15-30% AFSLÁTTUR
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ
BASIC DRAGTIN
Mörg snið • Stærðir 36-48
Verslaðu glæsilegan fatnað
þar sem gæði og þjónusta
skipta máli
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Tvær flíkur
í einni
Verð 7.900 kr. - 4 litir