Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 3. Á G Ú S T 2 0 1 1  Stofnað 1913  188. tölublað  99. árgangur  REYKVÍKINGAR 1910 BÓK UM SÖGU OG LÍF ALLRA REYKVÍKINGA Á ÁRINU 1910, ALLT FRÁ RÁÐHERRA TIL VATNSBERA. UMFANGSMIKIÐ VERK UM FÓLKIÐ SEM BREYTTI REYKJAVÍK ÚR BÆ Í BORG Morgunblaðið/Ernir Bílslys Bifreiðin endaði á húsvegg og þrír voru fluttir á slysadeild í kjölfarið.  Þrír voru fluttir á sjúkrahús, þar af einn alvarlega slasaður, eftir bíl- slys við mót Geirsgötu og Tryggva- götu á tíunda tímanum í gærkvöld. Ökumaður missti stjórn á bílnum sem hafnaði á vegg gömlu Hafn- arbúðarinnar. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins leikur grun- ur á að um hraðakstur hafi verið að ræða en málið er í rannsókn. Árið 2007 missti ökumaður stjórn á bifreið sem var á ferð á miklum hraða í vesturátt eftir Geirsgötu. Bíllinn hafnaði þá á Hamborg- arabúllunni. Einn alvarlega slas- aður eftir að bíll hafnaði á húsvegg Baldur Arnarson baldura@mbl.is Húsaleiga á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað jafnt og þétt á árinu og er nú svo komið að margir hafa ekki orðið ráð á leigunni. Herdís Brynjarsdóttir, starfsmað- ur hjá leigumiðluninni Leigulistan- um, segir nýja stöðu komna upp á leigumarkaðnum. Margir hafi ekki lengur efni á að leigja húsnæði af þeirri stærð og í þeim borgarhluta sem þeir óski sér. „Leigan virðist komin langt yfir afborganir húsnæð- islána,“ segir Herdís og nefnir sem dæmi að fjögurra herbergja, 80 fer- metra íbúð í 101 Reykjavík sé nú auglýst á 180.000 kr. á mánuði, alls 2,16 milljónir kr. á ári. Of dýrt fyrir landsbyggðarfólk Rebekka Sigurðardóttir, upplýs- ingafulltrúi hjá Félagsstofnun stúd- enta, tekur undir að húsaleiga sé orðin mörgum of þungur baggi. „Við vitum að margir eiga í vand- ræðum og ljóst er að námsmenn ráða illa við háa húsaleigu á almennum markaði á höfuðborgarsvæðinu.“ Guðmundur Magnússon, formað- ur Öryrkjabandalags Íslands, tekur í sama streng og kveðst aldrei hafa séð jafnerfiðan markað. Friðrik Á. Ólafsson, forstöðumað- ur meistaradeildar hjá Samtökum iðnaðarins, segir að byggja þurfi nýj- ar og smærri íbúðir til að mæta eft- irspurn. Verði ekki byggt geti það ýtt undir þenslu á markaði síðar. Ráða ekki við húsaleiguna  Segir sífellt færri einstaklinga ráða við að leigja  Leigan hærri en afborganir  4 herbergja íbúðir nálgast 200.000 kr. á mánuði  Gæti reynst undanfari þenslu MLeigan hækkar og hækkar »23 Morgunblaðið/Sigurgeir S. Bændur Óvíst er hvort skepnurnar vilja hey sem orðið hefur fyrir gosösku. Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Bændur á þeim svæðum sem urðu verst úti vegna eldgossins í Gríms- vötnum í lok maí hafa allajafna lítið getað heyjað í sumar vegna ösku sem enn er í túnunum hjá þeim. Fyrir vikið hafa þeir þurft að kaupa hey frá öðrum og margir reiða sig að mestu á aðkeypt hey. Sumir hafa ákveðið að slá túnin, þrátt fyrir öskuna, en mikil óvissa er um hvort skepnurnar muni vilja heyið. Bjargráðasjóður kemur til móts við bændur sem þurfa að kaupa hey af þessum ástæðum, en að sögn Björns Helga Snorrasonar, bónda á Kálfafelli í Fljótshverfi, liggur ekki fyrir hvort sjóðurinn bæti allt það hey sem keypt yrði og einnig hvort tekið yrði tillit til þess að kostnaður hefur aukist töluvert frá því fyrir ári þegar Eyjafjallajökull tók upp á því að gjósa. »24-25 Þurfa að kaupa megnið af heyinu  Segir ekki ljóst hvort tekið verður tillit til kostnaðarhækkana á milli ára Það var líf og fjör hjá Örnu Dís og félögum henn- ar á sumarhátíð Vesturhlíðar, frístundaheimilis fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í Öskjuhlíð- arskóla, sem haldin var í blíðskaparveðri í gær- dag. Krakkarnir sýndu skemmtiatriði, Vinir Sjonna komu og tóku nokkur lög og jafnframt voru töfrabrögð sýnd. Ein vika er eftir af frí- stundastarfi í Vesturhlíð. Um 60 börn hafa tekið þátt í starfinu þar í sumar. Sumarhátíð haldin í veðurblíðunni Morgunblaðið/Eggert  Gunnar And- ersen, forstjóri FME, segir um gagnrýni á stjórnarsetu hans í tveimur aflandsfélögum Landsbankans 2001-2002 að stigs- og eðl- ismunur sé á ger- endum og áhorf- endum í öllum málum. „Það fer svo eftir eðli hvers máls og hverju sinni hvort menn teljast gerendur eða ekki.“ Í athugun, sem gerð var fyrir stjórn Fjármálaeftirlitsins á atrið- um er vörðuðu hæfi Gunnars And- ersen, forstjóra FME, kemur fram að Gunnar telur sig hafa verið óvirkan stjórnarmann í félögunum tveimur. »26 Munur á gerendum og áhorfendum Gunnar Þ. Andersen  „Við pælum lít- ið í því hvað við erum að sam- þykkja með því að vera á Face- book og það lifir í krafti þess fjölda sem þrífst þar,“ segir Bjarki Valtýsson doktor í boð- skipta- og menningarfræðum. Hann segir það oft gleymast að Fa- cebook er einkafyrirtæki sem lifir á því að sem flestir séu inni á miðl- unum og deili sem mestu. „Þeir búa til umhverfið, við fyllum það af innihaldi og þeir fá allan pening- inn.“ »8 Facebook lifir í krafti fjöldans Bjarki Valtýsson Alls hafa 175 fasteignir verið seldar á lokasölu á nauðungar- uppboði hjá sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Annríki er hjá sýslumanni vegna fasteigna en þar er nú 1.821 uppboðsmál vegna þeirra til meðferðar. »4 175 slegnar UPPBOÐ Í REYKJAVÍK Í ÁR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.