Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
Það hvarflar ým-
islegt að huganum
þegar litið er á skrá
um tekjuhæstu Ís-
lendingana og veit
maður þó að fleiri
munu finnast sem
ekki lifa sultarlífi og
víða eru faldar tekjur
einnig. Það læðist að
manni sú hugsun
hvers konar sælu-
tilfinning hljóti að
fylgja svo háum launum, því varla
er rakað svo saman fé að ekki sé
einhver æðri og göfugri tilgangur
að baki – eða hvað. Í þanka kem-
ur gömul klisja þegar ég var á
þingi og fjölmiðlungar og fólk al-
mennt blöskraðist yfir þing-
mannslaunum er oft voru þá við-
miðunin fyrir ofurlaun. Aldrei
komst maður þó með tærnar þar
sem þeir höfðu hælana sem þá
voru á toppnum, hvað þá eitthvað
í líkingu við þessa hæstu nú, þótt
ríflega sé framreiknað. En auðvit-
að var ekki yfir að kvarta. Ég sé
það líka að þingmenn nú eru ekki
fyrirferðarmiklir á toppnum, finn-
ast þar reyndar alls ekki. Það
hefur meira að segja hvarflað að
mér að hluti skýringarinnar á lít-
illi virðingu á Alþingi og alþing-
ismönnum sé hvað þeir eru aumir
gagnvart hinum sanna, göfuga of-
urlaunalýð, sem enginn kvartar
undan. Mér þykir þessi tekjubirt-
ing sjálfsögð, en ekki er ég hissa
á Heimdellingunum litlu sem þrá
það eitt að komast á þennan topp,
þótt þeir séu andvígir þessum
„hræðilegu persónunjósnum“,
enda ætla þeir sér að
verða verndarar ofur-
launalýðsins, þegar
þeir komast á jötuna.
En um leið og
þessar hugsanir
sækja að þá er and-
hverfan enn ríkari í
huga, það fólk sem
lifir á sannkölluðum
sultarlaunum, skrimt-
ir, en ekkert meira
en það. Margir eru
skuldugir eftir hrunið
og þá á ég ekki við þá
mörgu, sem enga samúð eiga, sem
ofurskuldsettu sig eins og allt vit
væri frá þeim horfið, heldur er ég
að tala um það fólk sem tók eðli-
leg lán sem hrunið gerði að
ókleifum múr. Öryrkjarnir eiga
hér sérstaklega erfitt með sína
fötlun á ýmsan veg og þ.a.l. minni
möguleika á að bjarga sér, þótt
fjölmargir gjöri það aðdáanlega.
Að þessu fólki á að hlúa sér-
staklega svo og þeim atvinnu-
lausu. Þar er skylda stjórnvalda
mest umfram allar björgunar-
aðgerðir fjármálastofnana sem
hafa farið offari og veitt ofurlið-
inu óafturkallanleg lán sem þetta
lið braskar svo með enn í dag.
Og enn læðist að huganum ljót-
ur þanki um þá sem svíkja sam-
félag sitt með svartri vinnu,
stinga í eigin vasa því sem vel-
ferðarkerfið ætti að fá, en einmitt
þeir sömu sem þessi afbrot
fremja eru heimtufrekastir á að-
stoð þessa sama velferðarkerfis ef
eitthvað bjátar á og jafnvel án
þess. Þessum mönnum hæfir and-
styggðin ein. Og hneykslun minni
veldur sú kenning að þetta geri
menn vegna skattakerfisins, sem
sagt þess vegna í lagi. En gamall
þingmaður að austan hefir svo
sem nógan tíma til umþenkingar
um svo margt og efst í huga hans
nú ofar öllu þessu eru Odds-
skarðsgöngin, ekki bara þessi
gömlu sem svo sannarlega eru
barn síns tíma, enda nær 35 ára
gömul, heldur enn frekar þessi
nýju sem eru knýjandi nauðsyn,
reyndar fyrir margt löngu. Ég
minnist aðdragandans að þeim
sem nú eru og þess að ekki fékkst
fjármagn eða jafnvel vilji til að
hafa þessi göng enn neðar, svo
sem þeir Eysteinn Jónsson og
Lúðvík Jósepsson vildu svo gjarn-
an. En það er önnur saga. Þegar
ég horfi á hina forljótu og fok-
dýru Hörpu þá fer ég ætíð að
hugsa um forgangsröðun í fram-
kvæmdum og einhvern veginn
rímar hún ekki í mínum huga við
almenna skynsemi, hvað þá hag-
kvæmni, að ekki sé talað um líf
og limi fólks. Nú skora ég á Ög-
mund vin minn að finna mat-
arholu til að gera Norðfjarð-
argöng, af eintómri illgirni (eða
hvað) eftir að hafa lesið tekju-
blaðið, þá legg ég til sérstakan
aukaskatt á þetta lið sem þarna
trónir á toppnum. Þar eru nú
matarholur í lagi.
Eftir Helgi Seljan
» Og enn læðist að
huganum ljótur
þanki um þá sem svíkja
samfélag sitt með
svartri vinnu...
Helgi Seljan
Höfundur er fv. þingmaður.
Litast um á líðandi stund
Í maí 2010 sigldi
svokallaður „frið-
arfloti“ með 6 skipum
áleiðis til Gazastrand-
arinnar undir því yf-
irskini að færa Palest-
ínuaröbum
nauðsynjar. Ísraelar
stoppuðu þá tilraun en
skipuleggjendur leið-
angursins voru m.a.
tyrknesku samtökin
IHH. IHH hafa verið gagnrýnd fyr-
ir að vera islömsk öfgasamtök sem
fela sig undir formerkjum mann-
úðasamtaka. Hermennirnir sem
mættu vopnaðri árás á einum
bátanna fengu auka-liðsstyrk í að-
gerðina og felldu 9 hryðjuverka-
menn.
Íslenskir ráðamenn þremur
skrefum á undan sér
Án þess að vita nokkuð af viti um
málið þustu Össur Skarphéðinsson
og Ögmundur Jónasson í viðtöl á ís-
lensku fjölmiðlunum nokkrum
klukkustundum eftir að atburðirnir
áttu sér stað og fordæmdu Ísraels-
menn harðlega fyrir atlögu þeirra
að „friðarsinnunum“. Þeir gengu
svo langt að kalla á aukafund í
ríkisstjórn í hádeginu daginn eftir
til að ræða framferði Ísraela og það
mitt í efnahagshruninu á Íslandi
þar sem vandamálin heima við voru
óteljandi. Nú þegar öll kurl eru
komin til grafar þá er ljóst að Ísr-
aelar voru í fullum rétti til að stöðva
bátalestina.
Skipunum var siglt til Ashdod-
hafnar í Ísrael, „friðarsinnar“ og
áhafnir sendar úr landi. Í skipunum
var varningur sem fór á 20 trukkum
yfir til Gazastrandarinnar og þar á
meðal lyf sem voru útrunnin og því
einskis nýt. Tilgangur leiðangursins
var að ögra Ísraelum og koma óorði
á þá í alþjóðasamfélaginu.
Eldflaugum rignir frá landinu
sem var afhent fyrir frið
Á árunum 2000-2008 skutu
hryðjuverkamenn á Gazaströndinni
12.000 eldflaugum yfir á Ísrael.
Tæp milljón Ísraelar búa á því
svæði þar sem eldflaugunum rignir
yfir til dagsins í dag. Ógnina sem
stafar af þessum árásum þarf vart
að nefna og truflun á daglegu lífi
fólks er mikil.
27. desember 2008 ákváðu Ísrael-
ar að fara í aðgerðir til að stöðva
þessar gegndarlausu árásir eftir að
hafa margoft varað Hamas við. Ari
Tryggvason gagnrýnir þessa aðgerð
í grein í Morgunblaðinu hinn 29. júlí
síðastliðinn. Hann segir Ísraela
hafa fellt 1.400 íbúa og þar af 400
undir 18 ára aldri. Þessar tölur hef-
ur hann frá norska lækninum Mads
Gilbert. Gilbert láðist að nefna að
Al-Shifa sjúkrahúsið á Gaza, þar
sem hann starfaði, var notað í hern-
aðarlegum tilgangi af Hamas en
forsætisráðherra Hamas og aðrir
stjórnendur tóku undir sig heila
deild á þessu sjúkrahúsinu í stríð-
inu. Tölur um fallna fékk Gilbert frá
heilbrigðisráðuneyti Gaza sem er
stjórnað af hryðjuverkasamtökum
Hamas. Ísraelsmenn tóku saman
nöfn fallinna og fengu þær tölur að
1.166 Palestínuarabar hefðu fallið,
þar af 709 Hamasliðar, 89 manns
undir 16 ára aldri, 49 konur og rest-
in var karlmenn sem ekki voru
skráðir í nein samtök. Hvað sem því
líður er talan auðvitað alltof há en
við skulum skoða hvað
er á bakvið þessar töl-
ur.
Margur fellur fyrir
hálfsannleikanum
Ari Tryggvason talar
um að 1.400 „íbúar“
hafi fallið. Við skulum
ekki gleyma því að 709
manns af þessum svo
kölluðu „íbúum“ voru
Hamas-hryðjuverka-
menn. Í hryðjuverki
virða menn engar reglur. Hryðju-
verkamenn planta sér og vopna-
búrum sínum á meðal almennings, í
íbúðahverfum, á leikvöllum, í skól-
um og moskum svo fátt eitt sé
nefnt. Hamas-samtökin voru með
útsendingar á sjónvarpsstöðinni
sinni „Al-Aqsa“ þar sem þeir hvöttu
börn og almenna borgara til að fara
út og standa á húsþökum bygginga
sem þeir vissu að Ísraelsmenn ætl-
uðu að sprengja. Þeir sendu börn út
á „vígvöll“ til að ná í vopn af líkum
Hamasliða.
Ísraelsmenn
vöruðu almenning við
Ísraelsmenn sendu þúsundir
bréfsnepla úr lofti á Gazaströndina
þar sem þeir vöruðu við árásunum.
Þeir hringdu þúsundir símtala til al-
mennra borgara, þ. á m. í húseig-
endur, og vöruðu þá við áður en
þeir sprengdu byggingar sem þeir
sáu Hamasliða senda eldflaugar úr.
Þannig reyndu þeir m.a. að koma í
veg fyrir dauða saklausra borgara.
Hamasliðar settu sprengjur í íbúð-
arhús og byggingar þar sem þeir
áttu von á að Ísraelarnir færu um
að ógleymdum jarðsprengjum sem
þeir drituðu niður á þéttbýlum
svæðum í von um að fella hermenn,
sem svo þeirra eigin borgarar urðu
fyrir barðinu á. Á meðan á stríðinu
stóð gerðu Ísraelar pásu á hverjum
degi til þess að m.a. að flytja lyf og
aðrar nauðsynjar til Palestínuaraba
og taka til sín særða á ísraelska
spítala. Hamasmenn skutu 44 eld-
flaugum í þessum pásum og réðust
að landamærastöðvum þar sem
flutningar áttu sér stað.
1400 ára hatursboðskapur tek-
ur á sig ógnvænlegar myndir
Ísraelar eru ekki öfundsverðir af
ofstækisfullum nágrönnum sínum í
arabalöndunum hér í kring. Megnið
eru þó almennir borgarar sem eru
fórnarlömbin mitt í þessum harm-
leik. Fleyg eru orð Goldu Meir:
„Þegar arabar fara að elska börnin
sín eins heitt og þeir hata okkur þá
fyrst verður friður“. Ísraelar vita
hvernig hryðjuverkamenn nota
börn í fremstu víglínu. Hryðju-
verkamönnum er ekkert heilagt og
mannslífið einskis vert. Hér er fólk
orðið þreytt og úttaugað á deilunni
sem engan endi sér á. Ég vil benda
fólki á gífurlega dreifingu rang-
hugmynda um Ísrael. Sannleik-
anum er yfirleitt snúið á hvolf.
Eftir Ólöfu
Einarsdóttur
Ólöf Einarsdóttir
» Fimm dag vikunnar
fara 250-280 trukkar
með 6.000 tonn af nauð-
synjum daglega frá Ísr-
ael til Palestínuaraba á
Gazaströndinni
Höfundur er búsett í Ísrael, er í félag-
inu island-israel.is
Móðir svarar
rangfærslum
Palestínuvina
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.iswww.gtyrfingsson.is - S. 568 1410 / 482 1210 - gt@gtbus.isGrænir og góðir síðan 1969
Nýtt á Íslandi
• Langtímaleiga á öllum stærðum af hópferðabílum
• Tilvalin kostur fyrir skólaakstur
• Nýir og góðir bílar 4x2 eða 4x4 af öllum stærðum
• ABS, ASR og ESP
• Þriggja punkta öryggisbelti í öllum sætum