Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Laugavegi 13, 101 Reykjavík sími 515 5800, rannis@rannis.is www.rannis.is Í samræmi við lög nr. 152/2009 með áorðnum breytingum er fyrirtækjum sem stunda rannsóknar- og þróunarstarf gefinn kostur á að sækja um skattfrádrátt af tekjuskatti í tengslum við slík verkefni. Fyrirtæki sem ekki greiða tekjuskatt fá samsvarandi endurgreiðslu. Rannís leggur mat á hvort umsóknir uppfylli skilyrði laganna og tilkynnir viðkomandi fyrirtækjum um niðurstöðuna auk tilkynningar til Ríkisskattstjóra. Sótt er um á slóðinni http://rannis.is/sjodir/skattivilnun/ „Rafræn skráning umsóknar“. Á heimasíðu Rannís er handbók með leiðbeiningum og upplýsingum um umsóknar- ferlið, en þar má einnig finna fyrrgreind lög auk reglugerðar. Frekari upplýsingar veita starfsmenn Rannís í síma 515 5800. Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd stefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis vísinda- og tæknisamfélagsins og hefur umsjón með opinberum samkeppnissjóðum s.s. Rannsóknasjóði og Tækniþróunarsjóði. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og nýsköpun og gerir áhrif þeirra á þjóðarhag sýnileg. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og tæknisamfélagsins. Umsóknarfrestur til 1. september Skattfrádráttur rannsóknar- og þróunarkostnaðar H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n María Ólafsdóttir maria@mbl.is Skokkhópur almennings-íþróttadeildar Hauka varstofnaður haustið 2007.Fyrsta veturinn mátti sjá stofnanda Skokkhópsins oft einan á æfingum, en nú rétt um fjórum árum síðar eru ósjaldan um 70 manns á æfingu og allt upp í 100 manns. Þess má geta að í árs- byrjun 2011 var Skokkhópur Hauka fjölmennasti skokkhópur landsins og á vefsíðunni hlaup.com má sjá að Skokkhópur Hauka átti fjöldamet flesta mánuði ársins 2010. Stuðst við ýmis prógrömm Byrjendahópur frá því í apríl síðastliðnum hóf æfingar á göngu og skokki og er nú rúmum fjórum mánuðum síðar reiðubúinn í 10 km hlaup í Reykjavíkurmaraþoninu. „Til að ná góðum árangri á stuttum tíma er mælt með að fólk æfi mjög markvisst og áhersla lögð á að fólk hreyfi sig ekki sjaldnar en þrisvar í viku. Engir launaðir þjálfarar starfa með hópnum held- ur eru tveir fyrirliðar og stjórn sem stýra æfingum. Við höfum stuðst við ýmis hlaupaprógrömm, til að mynda byrjendaprógrömm úr hlaupahandbókinni hans Gunn- ars Páls Jóakimssonar. Þar er mið- að við að fólk byrji á þriggja mín- útna skokki og fimm mínútna göngu og mæti þrisvar í viku með hópnum. Við höfum síðan hnoðað þetta saman eftir því sem hentar hópunum,“ segir Sigríður Krist- jánsdóttir, stofnandi hópsins. Hver á sínum hraða Mikil breidd er í hlaupahópn- um, allt frá manni sem dreif sig Fjöldamet hjá skokkhópi Hauka Skokkhópur almenningsíþróttadeildar Hauka hefur vaxið og dafnað mikið. En alls hlupu 100 manns með hópnum á æfingu í vikunni. Hópurinn er opinn öllum þeim sem vilja stunda hlaup eða göngur í góðum félagsskap. Hlaupararnir stefna nú flestir hverjir á Reykjavíkurmarþonið 20. ágúst næstkomandi. Fyrirliðarnir Sigríður Kristjánsdóttir og Anton Magnússon. Dugnaður Þessi byrjuðu að hlaupa í apríl og hlaupa 10 km í maraþoninu. Elle Decor er eitt virtasta og vandað- asta tímaritið um innanhússhönnun. Vefsíða tímaritsins er mjög góð og gerir efni blaðsins góð skil, fjallar um það sem koma skal og það sem þegar hefur birst en passar sig á að birta ekki allar myndir eða greinar í heild sinni, þannig að vilji maður vita meira þá þarf maður að kaupa tímaritið. Áhugaverðust á síðunni eru innlitin á heimili frægs fólks, því hver hefur ekki eilítinn áhuga á að sjá hvernig stjörnurnar búa? Til dæmis er hægt að skoða myndir af heimili leikkon- unnar Courtney Cox í Malibu í Kali- forníu, af íbúð í Greenwich Village í New York sem Jennifer Aniston festi nýverið kaup á, sjá heimili leikstjór- ans Michael Bay, Donatellu Versace, Ralph Lauren, Yves Saint Laurent og sumarhús Söruh Jessicu Parker. Vefsíðan www.elledecor.com Smart Innlit á heimili fræga fólksins vekur forvitni margra. Allt um fallega hönnun Annað kvöld kl. 20 halda söngva- skáldin Uni og Jón Tryggvi tónleika á heimili sínu Merkigili á Eyrarbakka. Í tilefni af 100 ára afmælisári Odd- geirs Kristjánssonar alþýðutónskálds frá Vestmannaeyjum verða valin lög hans flutt af Jóni Gunnari Biering Margeirssyni gítarleikara, Ingólfi Magnússyni bassaleikara og Haf- steini Þórólfssyni söngvara en Haf- steinn er langafabarn Oddgeirs. Á dagskrá tónleikanna verða helstu perlur hans fluttar ásamt því lögum sem eru síður þekkt. Í bland við flutninginn verða sagðar sögur af verkum hans. Endilega ... ... farðu á tónleika á Eyrarbakka Söngvaskáld Jón Tryggvi Unnarsson syngur á Eyrarbakka ásamt Uni. Í dag verður mikið um að vera í fé- lagsheimilinu Aratungu en það verð- ur 50 ára, sem eru söguleg tímamót í sveitinni. Margir komu að því að byggja þetta glæsilega hús á sínum tíma og hefur starfsemi þess verið fjölþætt í gegnum tíðina Auk þess að vera ein allsherjar félagsmiðstöð fyrir sveitungana muna margir sveitaböllin og fá blik í auga þegar þeir minnast þeirra gömlu góðu daga. Á afmælisárinu verður bryddað upp á mörgu skemmtilegu og er dag- skráin í Aratungu í dag fyrsti liður hátíðahaldanna. Verður gamli góði ungmennafélagsandinn hafður að leiðarljósi og keppt bæði í Aratungu- leikunum í frjálsum íþróttum og Ís- landsmeistaramótinu í gúrkuáti. Um kvöldið verður slegið upp stórdans- leik með Karma og Sumargleðinni en hún hélt landsfræg böll í Aratungu þegar hún var upp á sitt besta. Tímamót Sumargleðin spilar á 50 ára afmælishátíð í Aratungu Vinsæl Sumargleðin stígur á stokk á ný og spilar á balli í Aratungu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.