Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.08.2011, Blaðsíða 22
ÚR BÆJARLÍFINU Gunnar Kristjánsson Grundarfjörður „Við bryggjuna bátur vaggar hljótt“ segir í alkunnu vinsælu dægurlagi eftir Bubba, og þessar ljóðlínur koma upp í hugann á lygn- um ágústmorgni í Grundarfirði þeg- ar horft er yfir strandveiðiflotann sem nú hefur lokið sínu sum- arúthaldi. Hvað sem segja má um þá ákvörðun að hefja slíkar strandveið- ar er ljóst að lifnað hefur yfir smá- bátahöfninni á ný. Reyndar svo mjög að hafnaryfirvöld sáu sig knúin til að bæta aðstöðuna og eru fram- kvæmdir hafnar við stækkun viðleg- upláss fyrir smábátana. Sú stækkun lofar góðu fyrir sístækkandi strand- veiðiflota sem gerir út yfir sum- armánuðina frá Grundarfirði.    Á hafskipabryggjunni sem einu sinni hét Stórabryggja hefur verið óvenjumikið líf undanfarnar vikur, auk skemmtiferðaskipanna sem leggjast upp að af og til hafa togarar af öllum stærðum verið þar á ferð. Má þar nefna frystiskipin Málmey og Örvar sem landað hafa frosnum makríl til geymslu í Frysti- hótelinu. Einnig hefur hinn þýsk- flaggaði togari Baldvin landað hér nokkrum sinnum þorski af Græn- landsmiðum og fiskinum verið ekið sem leið liggur til vinnslu í fiskverk- unarhúsum Samherja á Norður- landi. Þá hafa skip eins og Þórunn Sveinsdóttir átt hér viðkomu auk fleiri skipa. Allt er þetta til hagsbóta fyrir hafnarsjóð en leiðir einnig til aukinnar veltu hjá þjónustufyrir- tækjum og verslunum.    Tvíburaveiðar á makríl eru stundaðar annað árið í röð hjá fisk- vinnslu Grun hf. Það eru togarar fyrirtækisins, Helgi og Runólfur, sem stunda þessar veiðar en mak- ríllinn sem þeir koma með að landi er síðan unninn í fiskvinnslu fyrir- tækisins þar sem unnið er allan sólarhringinn á vöktum.    „Ferðamenn út um allt,“ segja sumir Grundfirðingar en það má til sans vegar færa að óvenjumikið hef- ur verið um ferðamenn í Grund- arfirði á þessu sumri. Á tjaldsvæð- inu var rólegt framan af en þegar kom fram í júlí hófst vertíðin þar og ekkert lát þar á. Þá hefur Farfugla- heimili Grundarfjarðar aukið veru- lega gistirými sitt auk þess sem að- sókn hjá Gamla Pósthúsinu, sem innréttað var sem gistiheimili á síð- asta ári, hefur verið sívaxandi. Þá daga sem skemmtiferðaskip eiga hér viðkomu er oft fjölmennt á göt- unum og tungumál af ýmsum toga heyrast töluð. Lífið er fiskur og ferðamenn! Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Logn Strandveiðiflotinn á Grundarfirði speglar sig eftir sumarið. 22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 „Í ár voru tæp 60% eða 49 fálkaóðul af 83 í Þingeyj- arsýslu í ábúð. Fálkastofninn hefur nokkuð látið á sjá í ár. Rjúpnahámark var í fyrra en það líða 10 til 11 ár á milli rjúpnahámarka,“ segir Ólafur Karl Nielsen, vist- fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, en um 80 fálkaóðul eru heimsótt á ári hverju og fálkavarp skoðað en það gefur vísbendingu um stærð stofnsins á svæðinu. „Við höfum verið að telja síðan 1981 þannig að við höfum samanburð aftur í tímann,“ segir Ólafur. Segir Ólafur fálkastofninn sveiflast og að stærð hans ráðist af stærð rjúpnastofnsins enda sé rjúpan aðalfæða fálkans allt árið um kring. Fálkinn taki þó aðra fæðu gerist þess þörf og geti étið hvaða lifandi dýr sem er, en hann er mjög sérhæfð rjúpnaæta. Hann étur til dæmis lund- ann þegar líður á sumarið og rjúpurnar eru komnar í feluliti sína. Ólafur segir fálkavarp vera viðkvæmt fyrir tíðarfari og það hafi endurspeglast á þessu ári. Maímánuður hafi verið erfiður í ár með miklum snjó og miklar rigningar hafi verið í júní. Það hafi valdið lélegum varpárangri en þó ekki með afbrigðum lélegum miðað við fyrri ár. „Síðasta fálkahámark var í fyrra og næsta hámark verður líklega 2021 til 2022. Á næstu árum mun rjúpum fækka þannig að aukning þeirra mun ekki byrja fyrr en á árunum 2015 til 2018.“ Ólafur segir að náttúrulegar sveiflur stjórni sveiflum í rjúpnastofninum en það hafi vafist fyrir mönnum hvað nákvæmlega veldur. Talið er að það geti verið samspil fálkans og rjúpunnar eða áhrif geislunar sólarinnar á norðurhveli en breytingar í geislun sólar sveiflist líka á 11 ára tímabilum. Þetta séu náttúrulegar sveiflur sem hafi verið við lýði öldum saman og séu þekktar hjá öðr- um grasbítum á norðurhveli jarðar. „Áhrif rjúpnaveiða er alveg fyrir utan. Þær hafa áhrif á hvernig við sjáum sveifluna en þær eru ekki þáttur sem knýr hana.“ Ólafur segir engin tengsl vera á milli fálkans og arn- arins. Örninn éti það margar dýrategundir að þeir lendi nánast aldrei í fæðuþurrð enda séu þeir mjög fáir á landinu. mep@mbl.is „Fálkastofninn hefur nokkuð látið á sjá“ Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Fálki Glorsoltinn fálki rífur í sig stokkandarstegg.  Fálkavarp var lélegt sök- um snjós og kulda í vor Fastanúmer 204-4091 og 201-4091 Um er að ræða húsnæði sem byggt var á árinu 1968 auk glerskála sem byggður var 2007. Samtals 1618,6 fm atvinnuhúsnæði á besta stað í Elliðaárdal í Reykjavík. Húsið er á 2 hæðum auk kjallara og 200 fm glerskála. Lóðin er samtals 8.400 fm og er hún sameiginleg með Fornbílaklúbbnum. Auðvelt er að skipta húsinu upp í nokkra rekstrareiningar. Húseignin verður til afhendingar nýjum eiganda 15. september 2011. Kvaðir eru á lóðinni um lagnir, strengi og búnað OR. Kauptilboðsblað og sölulýsingu er hægt að sækja á vefsíðu Orkuveitunnar http://www.or.is/UmOR/Eignasala/ Húsnæðið verður til sýnis áhugasömum kaupendum eftir samkomulagi. Nánari upplýsingar gefa eftirfarandi starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur: Hannes Frímann Sigurðsson í síma 516-6690 Ólafur Þór Leifsson í síma 516-6334 Framlengdur tilboðsfrestur Kauptilboðum skal skila á móttökuborð í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík fyrir kl. 12.00 miðvikudaginn 31. ágúst 2011. Ef viðunandi tilboð fæst: TIL SÖLU Rafstöðvarvegur 9 í Elliðaárdal ORES-2011-05-01. frestur: Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is Þríhnúkar ehf. hafa lagt fram tillögu að mati á umhverfisáhrifum fram- kvæmda við Þríhnúkagíg til Skipu- lagsstofnunar. Til stendur að gera Þríhnúkagíg aðgengilegan almenn- ingi. Framkvæmdin felur í sér að reisa byggingu í grennd við gíginn og bora 340 metra löng göng frá henni inn í hann. Þar er gert ráð fyrir að verði útsýnissvalir sem um 100 manns geti verið á í einu. Gígurinn er rúmlega 1.000 ára og um 200 metrar að dýpt. Þríhnúkar efh. munu síðar leggja fram aðra matsskýrslu þegar allar athugasemdir og ábendingar hafa borist Skipulagsstofnun. Búist er við að endanlegur úrskurður Skipulags- stofnunar um framkvæmdina liggi fyrir í byrjun næsta árs. Enn er hins vegar óljóst um fjár- mögnun verkefnisins sem talið er að muni kosta um einn og hálfan millj- arð króna, fái það grænt ljós frá Skipulagsstofnun. Árni B. Stefánsson, einn eiganda Þríhnúka efh. og fyrsti maðurinn til að síga ofan í gíginn árið 1974, segir að í burðarliðnum sé að auka við hlutafé félagsins og inn í það komi Icelandair, Reykjavíkurborg og Kópavogsbær. „Þetta snýst um verndun og varð- veislu þessa náttúruundurs. Það verður ekki varðveitt með því að gera ekki neitt. Gígurinn er hérna rétt við bæjardyrnar hjá okkur og fólk gengur þarna um og leitast við að skoða gíginn,“ segir Árni. Tillaga um mat á gígnum Morgunblaðið/Eyþór Gígur Ætlunin er að bæta aðgengið.  Óljóst um fjár- mögnun verkefnis við Þríhnúkagíg Nítján ára gamall mennta- skólapiltur liggur nú á spítala á Benidorm á Spáni en hann slasaðist töluvert á hrygg aðfaranótt mið- vikudags. Hann er þar í svonefndri þriðjubekkjarferð með skóla- félögum sínum í Menntaskólanum á Ísafirði. Að sögn móður piltsins var hann á leið upp á hótel ásamt félögum sínum þegar hann gekk fram af háum bakka og var fallhæðin lík- lega um fimm metrar. Á vef Bæj- arsins besta kemur fram að enginn skaði hafi orðið á mænu piltsins. Hann þarf að dvelja á sjúkrahúsi í nokkra daga og skýrist eftir helgi hvenær hann verður fluttur til Ís- lands. Móðir hans sagði í samtali við Morgunblaðið að allt hefði gengið eins vel og kostur væri á og kvaðst hún í góðu sambandi við fararstjóra hópsins. runarp@mbl.is Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sól Hópurinn er í útskriftarferð. Slasaðist illa við fall á Benidorm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.