Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Lára Hilmarsdóttir larah@mbl.is Ferðamönnum fjölgar ört á Íslandi að því er fram kemur í nýlegri skýrslu frá Ferðamálastofu. Í júlí fóru tæplega 100 þúsund ferðamenn frá landinu, sem er um 14 þúsund fleiri en í júlí á síðasta ári. Aukning er því 17,9 prósent milli ára. Ekki er þar með allt upptalið því aukning milli ára á þeim mánuðum, sem liðnir eru á þessu ári, nemur 19,6 prósent- um. Ferðamenn sem farið hafa frá landinu á þessu ári eru næstum jafn margir og Íslendingar, ríflega 300 þúsund, það er 50 þúsund fleiri en á sömu mánuðum í fyrra. Banda- ríkjamönnum hefur fjölgað ört eða um 59 prósent og eru þeir ásamt Þjóðverjum helstu þjóðirnar sem sækja til lands- ins. Náttúra Íslands virðist vera það sem dregur flesta ferða- menn til landsins. Þórsmörk, Landmannalaugar og Gullni hringurinn eru meðal vinsælustu ferðamannastaðanna. Ferðaþjónusta á Íslandi verður hinsvegar fjölbreyttari ár frá ári, til að mynda má tala um náttúru-, heilsu-, og æv- intýraferðamennsku hérlendis. Í ljósi náttúruhamfara má einnig tala um tilkomu svokallaðrar „hamfara-ferðaþjón- ustu“ en þar fór Eyjafjallajökull án efa með aðalhlutverkið. Morgunblaðið/Eggert Blómstrandi Ferðamenn setja vissulega svip sinn á Reykjavík á sumrin og síðustu vikurnar hafa þeir líklega verið í aðalhlutverki í miðborg Reykjavíkur á meðal sólþyrstra Íslendinga. Ferðaþjónusta blómstrar Wim frá Suður-Afríku og, Bart og Jonas frá Belgíu voru í óða önn að pakka í bakpokana sína í gær því þá lögðu þeir af stað til Þórsmerkur. „Næstu fjóra daga ætlum við svo að ganga Laugaveginn,“ segja þeir og þaðan mun leiðin liggja um há- lendið. „Þú getur ekki upplifað slíka náttúru annars staðar en á Íslandi,“ segja þremenningarnir en það er helsta ástæða þess að þeir hafa lagt leið sína hingað. Sögusagnir um fallegt kvenfólk hafa heldur ekki skemmt fyrir. Þeir taka svo allir undir að „hérna er meira að segja betra veður en í Belgíu!“ Wim van de Wijgaert, Bart Buelen og Jonas Windey Einstök náttúrufegurð heillar og veðrið betra en í Belgíu „Vinur minn á Akureyri lánaði mér bílinn sinn og við höfum verið að keyra um og skoða Ísland,“ segir Hasse en hann er í fríi hér með kærustunni sinni, Nönnu frá Danmörku. Þeim fannst Ísland í dýrari kantinum því vanalega halda þau suður á bóginn í sólarlandafrí. Þau sjá hinsvegar ekki eftir því að hafa komið til Íslands og prófað eitthvað nýtt. Hálendið segja þau hafa verið hápunkt ferðarinnar. Að sögn Nönnu hefur veðrið verið mjög gott. „Einstaka skúrir inn á milli en þá vorum við alltaf í bílnum eða tjaldinu, svo við vorum heppin með veður.“ Nanna Hovkjar Lassen og Hasse Fensmann Morgunblaðið/Kristinn Hálendið var hápunkturinn og heppni með veður „Það var sólskin í morgun,“ segir Andreas um fyrstu kynnin af Íslandi en hann og konan hans, Yvonne, eru frá Þýskalandi og komu hingað til þess að fara í jógaferð í Þórsmörk. „Það verður hugleitt á morgnana og á kvöldin og síðan er gengið og náttúran skoðuð á daginn,“ segir Yvonne, en ferðin er alls sex dagar. Ferðin er skipulögð af íslenskum samtökum og tengist alþjóðlegri jógahreyfingu. „Loftið er æðislegt, það er það fyrsta sem ég tók eftir þegar ég steig út úr Leifsstöð. Það er salt og ferskt,“ segir Yvonne brosandi. Yvonne og Andreas Schmek Morgunblaðið/Kristinn „Loftið það fyrsta sem ég tók eftir, það er salt og ferskt“ „Við höfum verið á ferðalagi á vegum skólans á Grænlandi með viðkomu á Íslandi,“ segir Martina frá Þýskalandi en hún og Stefan ákváðu að vera tíu dögum lengur á Íslandi eftir að þau komu til landsins. Ætlunin er að taka góðan tíma, eða átta daga, í að ganga Laugaveginn og njóta náttúrunnar. „Fyrir Þjóðverja er Ísland heldur dýrt, sérstaklega að fara út að borða og slíkt,“ segir Martina og telur að þau muni ekki versla mikið né fara út að borða. Martina Hodrius og Stefan Knopp Ákváðu að bæta tíu dögum við Íslandsferðina „Vinur vinar míns rekur fyrirtæki sem skipuleggur hreni- dýraveiðar á Eskifirði og með honum fór ég í veiði í fyrra,“ seg- ir Lars frá Svíþjóð en þetta er þriðja skiptið sem hann kemur til Íslands í veiðiferð. Nú voru Nils og Alexander, einnig Svíar, með í veiðiferðinni sem hefur gengið ágætlega. Þeir fengu bæði bleikju og urriða í veiði í Laxá í Aðaldal og í Minnivallalæk á Suðurlandi. „Ekki einn regndropi hefur fallið á okkur og veðrið hefur verið æðislegt,“ segja þeir. Ísland segja þeir almennt ódýrara heldur en Svíþjóð þó veiðileyfið hafi ekki verið gefins. Lars Lindgren, Nils Eklund og Alexander Värdling Ísland ódýrara en Svíþjóð þótt veiðileyfi hafi ekki verið gefins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.