Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 4
FRÉTTASKÝRING
Hjalti Geir Erlendsson
hjaltigeir@mbl.is
Það sem af er ári hafa 175 fasteignir
verið seldar á lokasölu á nauðungar-
uppboði hjá sýslumanninum í Reykja-
vík. Embættið hefur nú til meðferðar
1.821 uppboðsmál vegna fasteigna.
Þar af eru 580 mál vegna greiðsluað-
lögunar.
Sigríður Eysteinsdóttir, deildar-
stjóri fullnustudeildar hjá sýslumann-
inum í Reykjavík, segir erfitt að spá
fyrir um fjölda fasteigna sem seldar
verði á lokauppboði á næstu mánuð-
um þar sem meirihluti uppboðsbeiðna
sé afturkallaður. Hún segir um 690
mál bíða fyrstu fyrirtöku en uppboð
séu að hefjast á 539 málum. Fram-
haldssala hafi þó aðeins verið áveðin í
22 málum. Samkvæmt sýslumannin-
um í Reykjavík eru ekki til sambæri-
legar tölur um stöðuna eins og hún
var á sama tíma fyrir ári.
Nauðungasala er oftast sala eða
ráðstöfun á eign til innlausnar á verð-
mæti hennar til greiðslu á skuldum
sem á henni hvíla. Erfitt er að segja til
um hve stór hluti seldra fasteigna á
nauðungaruppboðum eru heimili.
Uppboðskerfi sýslumanna gefur ekki
kost á sundurliðun eigna þ.e. hvort
um sé að ræða fasteignir í eigu ein-
staklinga eða lögaðila þ.e. fyrirtækja.
Þá taka tölurnar bæði til íbúðar- og
atvinnuhúsnæðis.
Innanríkisráðuneytið hefur tekið
saman nauðungarsölur um allt land
fyrir árið 2010. Samkvæmt því voru
flest nauðungarsölumál á heimilum
eða alls 2.754. Þar af voru 412 heimili
seld á uppboði. Algengast er að veð-
hafar verði hæstbjóðendur á nauð-
ungaruppboði. Þeir eru oftast bankar
eða Íbúðalánasjóður. Þá hafa lífeyr-
issjóðir sömuleiðis keypt talsvert af
eignum. Íbúðalánasjóður er lang-
stærsti kaupandi eigna á nauðungar-
sölum en í fyrra var sjóðurinn hæst-
bjóðandi á 1.733 nauðungar-
uppboðum.
Ekki er eins algengt að aðrir lög-
aðilar eða einstaklingar séu hæst-
bjóðendur. Íslandsbanki hefur keypt
53 íbúðir á nauðungarsölu það sem af
er ári. Íbúðirnar eru oftast settar
beint í sölu, en gerðarþola, þ.e. þeim
sem átti eignina, gefst oft kostur á að
leigja íbúðina í eitt ár frá uppboði. Ar-
ion banki hefur aðeins keypt 4 íbúðir
á nauðungaruppboði á árinu. Þær eru
settar í söluferli um leið og fyrrum
eigandi er fluttur út.
Aðdragandi nauðungarsölu er sá
að sá sem fer fram á nauðungarsölu
vegna vanskila sendir sýslumanni
beiðni um nauðungarsölu á tiltekinni
eign. Algengustu uppboðsheimildir
eru fjárnám og skuldabréf sem upp-
fylla ákveðin skilyrði. Gerðarþola
gefst kostur á að koma fram mótmæl-
um gegn beiðninni við fyrirtöku hjá
sýslumanni
Fjöldi fasteigna
sleginn á uppboði
580 uppboðsmál vegna greiðsluaðlögunar 175 í lokasölu
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík Mörg nauðungarsölumál eru til meðferðar hjá sýslumanninum í Reykjavík. Fæst þeirra enda þó með
nauðungaruppboði. Sum eru felld niður og oft ná skuldarar að greiða skuldina áður en til uppboðs kemur.
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
FRÉTTASKÝRING
Önundur Páll Ragnarsson
onundur@mbl.is
„Ég get ekki séð annað en að þessi
ríkisstjórn ætli að kollvarpa ein-
yrkjunum í greininni,“ segir Þórður
Rafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri
útgerðarfélagsins Dala-Rafns ehf. í
Vestmannaeyjum. Félagið rekur
einn ísfisktogara með tólf manns í
áhöfn.
Þórður Rafn segir að hjá þeim
myndi fyrirhuguð hækkun upp í
13,30 krónur á þorskígildiskíló leiða
það af sér að útgerðin greiddi um 16
milljónir í veiðigjald á fiskveiðiárinu
og hækkunin myndi nema nærri ein-
um árslaunum háseta.
Þetta eitt og sér muni ekki koll-
varpa útgerðinni, heldur þurfi að
hafa í huga að allur annar kostnaður
hafi nú þegar rokið upp líka og í
ofanálag sé óvissan algjör. Hann tek-
ur í sama streng og viðmælendur
Morgunblaðsins í gær, sem sögðu
veiðigjaldshækkunina koma verst
við minnstu útgerðirnar. „Þetta
heggur ansi nærri mörgum. Og
kvótalitlar útgerðir sem eru að leigja
mikið, þetta gæti riðið baggamuninn
hjá þeim,“ segir Þórður.
Veiðigjald á fullan rétt á sér
Haukur Eiðsson, sem gerir út
línubátinn Karólínu frá Húsavík hjá
fyrirtækinu Doddu ehf., segir að
veiðigjaldið eigi fullan rétt á sér,
enda standi það ritað í lögunum að
fiskurinn í sjónum sé sameign þjóð-
arinnar. Hins vegar sé ekki hægt að
hækka það endalaust og hækkun
sem þessi myndi koma sér mjög illa.
Sérstaklega þegar ekki þurfi allir
sem veiða fiskinn, sameignina, að
borga þetta veiðigjald. „Eins og
strandveiðar þar sem menn fá þús-
undir tonna upp í hendurnar og
þurfa ekki að borga af því neitt gjald.
Strandveiðarnar eru sérhannaðar
fyrir menn sem hafa áður selt sig út
úr kerfinu.“
Skipstjóri, vélstjóri og háseti
Smábátasjómönnum sem rætt var
við í gær bar saman um það í gær að
hækkun veiðigjaldsins kæmi sér afar
illa fyrir þá. „Þetta kemur náttúr-
lega langverst niður á okkur litlu
körlunum. Við höfum ekkert svig-
rúm eins og stóru útgerðirnar sem
eru með fleiri skip og vinnslu í landi
og svona. Þetta kemur bara niður á
útgerðarmanninum sjálfum, sem er
líka skipstjóri, vélstjóri og háseti um
borð í sínum eigin báti,“ sagði einn
þeirra.
Hærra veiði-
gjald verst fyr-
ir litlu karlana
Gæti kollvarpað mörgum einyrkjum
Morgunblaðið/Ernir
Hreint Trillukarl spúlar bátinn sinn
eftir löndun í Reykjavíkurhöfn.
Hækkandi gjald
» Veiðigjaldið hefur verið 6,44
krónur á þorskígildiskílóið á
þessu fiskveiðiári.
» Í vor var ákveðið að hækka
gjaldið í 9,46 krónur á kílóið,
eða sem nemur 13,3% af
reiknaðri framlegð.
» Nú er rætt um að auka þá
hækkun strax fyrir fisk-
veiðiárið sem hefst 1. sept-
ember upp í 13 krónur.
Með því að styðja við nýsköpun og ný fyrirtæki
eflum við atvinnulífið til framtíðar. Landsbankinn
veitir í ár nýsköpunarstyrki í fyrsta sinn úr Sam-
félagssjóði bankans. Umsóknarfrestur er til og
með 16. september 2011.
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
Nýsköpunarstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
175
fasteignir hafa verið seldar á nauð-
ungaruppboði í Reykjavík á árinu
1.821
uppboðsmál vegna fasteigna er nú
til meðferðar
580
mál eru vegna greiðsluaðlögunar
‹ NAUÐUNGARSÖLUR ›
»