Morgunblaðið - 13.08.2011, Qupperneq 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011
Amma mín var
stórkostleg og yndisleg kona. Hún
tók alltaf vel á móti mér og mínum
vinum, meira að segja hundarnir
fundu fyrir hlýjunni og gestrisn-
inni. Hún passaði alltaf að til væri
nammi fyrir þá og sendi mig jafn-
vel með nesti fyrir þá.
Gamlir nemendur hennar
sögðu mér að þeir hefðu verið svo
hræddir við ömmu því hún hefði
verið svo ströng. Aldrei gat ég
skilið þetta því ég mátti gera allt
hjá henni og hún brosti alltaf bara
til mín.
Mér leið svo vel hjá henni og
oftar en ekki sofnaði ég í sófanum
og þá breiddi hún teppið yfir mig
og leyfði mér að sofa. Ég hálf-
skammaðist mín fyrir þetta en
amma brosti bara og sagði að það
væri svo gott að hafa mig hvort
sem ég væri sofandi eða vakandi.
Við amma vorum eins að því
leyti að okkur fannst gott að vaka
langt fram eftir nóttu og horfa á
sjónvarpið í stað þess að fara að
sofa. Þegar ég gisti hjá henni var
alltaf vídeókvöld og lágum við
saman og horfðum á myndir löngu
eftir háttatíma.
Amma dekraði mikið við mig
þegar ég var í pössun hjá henni og
mamma og pabbi voru erlendis.
Þá fór hún með mig í Húsdýra-
garðinn á hverjum degi því ég
vildi sjá stóra svínið og svo fórum
við í sund og vorum þar megnið af
deginum.
Amma hjálpaði mér í gegnum
nánast allt sem ég hef gengið í
gegnum og fullvissaði mig alltaf
um að ég gæti treyst henni fyrir
öllu og það gerði ég. Við gátum
setið og talað langtímum saman,
bæði slúðrað og talað um lífið og
tilveruna. Þegar ég var fyrir norð-
an hringdi ég í hana og alltaf lifn-
aði yfir henni þegar hún heyrði
röddina mína. Hún var pínu-sár
yfir því að hafa frétt það frá pabba
að ég væri komin með kærasta.
Það breyttist fljótt og vildi hún
vita allt um þennan unga mann.
Þegar ég mætti svo með Snævar
tók hún á móti honum opnum
örmum, faðmaði hann og var hann
þá formlega kominn í fjölskyld-
una.
Hún fylgdist vel með öllu. Þeg-
ar ég kom í nýjum fötum tók hún
strax eftir því og sagði álit sitt á
þeim og vildi vita hvaðan þau
væru. Hún þekkti fræga fólkið og
hafði oft sterkar skoðanir á því og
vorum við nú oftast sammála um
ágæti þess.
Hún sagði alltaf að ég hefði erft
þessa óstjórnlegu forvitni frá
henni en fyrir vikið vissum við
bara ýmislegt og því væri þetta
bara alls ekki svo slæmt.
Elsku besta amma mín, mikið á
ég eftir að sakna þín, þú varst svo
stór hluti af mínu lífi og ein af mín-
um bestu vinkonum. Það var lang-
skemmtilegast að slúðra með þér
yfir nokkrum kókglösum, Sunn-
eva átti alltaf fullt í fangi með að
fylgjast með slúðrinu okkar.
Nú ertu komin til Dóru og þið
eruð eflaust að prakkarast og
hlæja saman. Við Arna Sif munum
Þórunn H. Felixdóttir
✝ Þórunn HelgaFelixdóttir
fæddist í Reykjavík
21. júlí 1935. Hún
andaðist á Landspít-
alanum 6. ágúst
2011.
Útför Þórunnar
var gerð frá Dóm-
kirkjunni í Reykja-
vík 12. ágúst 2011.
alltaf heiðra vinskap
ykkar og halda hon-
um á lofti.
Minningarnar
um þig eru svo
margar og munu
alltaf fylgja mér og
gleðja. Takk fyrir
allt sem þú kenndir
mér, allar stundir
sem við áttum sam-
an og alla hjálpina í
gegnum tíðina.
Mig langar að kveðja þig með
bæninni sem þú kenndir mér:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar
saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum)
Þitt englabarn,
Áslaug.
Nafn Þórunnar Felixdóttur er
órjúfanlega tengt Verzlunarskóla
Íslands. Þangað sótti hún mennt-
un sína og ávann sér sæti meðal
dúxa. Hún réðst til starfa á skrif-
stofu skólans og Verslunarráðs Ís-
lands að loknu námi. Hún var
lengi vélritunarkennari með af-
burða árangri og lauk störfum
með því að taka að sér forvarn-
arstarf og námsráðgjöf við nem-
endur skólans og mótaði það starf
sem þá var að hefjast.
Undirritaður kynntist Þórunni
þegar hann var framkvæmda-
stjóri Verslunarráðsins, ekki þó
beint heldur þannig að þegar mik-
ið lá við var hringt í Þórunni og
hún beðin að útvega góðan vélrit-
ara. Það brást ekki að þeir sem
hún sendi reyndust allir afburða
fólk.
Síðar kynntist ég Þórunni bet-
ur og sá hvernig hún fór að því að
hefja kennslu í vélritun til þeirrar
virðingar sem raun var á í Versló.
Vélritun er ekki námsgrein sem
nemendur vilja endilega leggja sig
fram við að læra. En það gerðu
þeir hjá Þórunni og aðferð hennar
við kennsluna var skýr og einföld.
Það lá ljóst fyrir í upphafi vetrar
hvað nemendur áttu að gera og
hverju þeir áttu að skila. Ef ein-
hver skilaði ekki sínu var strax
kallað eftir því. Nemendur vissu
hvernig gefið var fyrir og þekktu
þá einkunn sem þeir voru færir
um að ná og voru ekki í neinum
vafa um að ef þeir vildu hækka
yrði það einungis gert með því að
æfa sig betur.
Það hjálpaði til við kennsluna
að Þórunn var hlý að eðlisfari og
átti auðvelt með að láta nemendur
finna velvilja sinn í þeirra garð
enda þótt hún kynni einnig að
virðast hvöss og ákveðin.
Nemendur reyndu stundum að
kvarta undan álaginu sem fylgdi
vélrituninni en gekk það illa, því
öllum var ljóst, að álag á þá var að-
eins brot af því sem Þórunn lagði á
sjálfa sig með því að lesa yfir hvert
einasta vinnubókarblað sem allur
sá mikli nemendafjöldi sem hún
kenndi framleiddi og skilaði. Það
brást hins vegar ekki þegar í há-
skóla kom að nemendur fundu til
þess og höfðu gjarnan orð á að vél-
ritunarkunnáttan væri það sem
þeir vildu síst án vera. Hún væri
forsenda afkasta allrar vinnu.
Á þessum árum var gaman að
ganga um skólann á vorin meðan
próf stóðu yfir og sjá atvinnuaug-
lýsingar frá alls konar fyrirtækj-
um hanga uppi. Nýútskrifaðir
nemendur með verslunarpróf áttu
margra kosta völ, vildu þeir fara
að vinna. Þórunn var einn þeirra
kennara sem skópu þessa sterku
stöðu verslunarprófsins. Sú staða
er nú breytt, ekki vegna þess að
skólinn hafi breyst heldur vegna
þess að nemendur vilja nú læra til
stúdentsprófs en láta sér ekki
lengur nægja verslunarprófið.
Þegar tölvur héldu innreið sína
hlutu áherslur að breytast í
kennslunni. Þórunn sá það en
kaus að eftirláta öðrum að fylgja
þeim breytingum eftir. Sjálf hafði
hún fengið meiri áhuga á að að-
stoða nemendur sem áttu við
námserfiðleika að stríða. Einkum
var henni hugleikið að fást við
áfengisvandamál nemenda og náði
oft góðum árangri á því sviði, en
þar um var lítið hægt að ræða og
fáir hafa því frétt af þeim störfum.
Það er við hæfi að þakka Þór-
unni fyrir hennar mikilvægu og
árangursríku störf í þágu Verzl-
unarskólans og nemenda hans. Ég
veit að mikill fjöldi nemenda
minnist hennar með þakklæti og
af hlýjum hug fyrir að hafa fært
þeim beitt vopn í lífsbaráttunni.
Við Inga Rósa þökkum Þórunni
vináttuna og hlýjuna sem hún
sýndi okkur alla tíð og vottum að-
standendum hennar samúð okkar.
Þorvarður Elíasson.
Við hlógum oft að því við Tóta
frænka þegar við rifjuðum upp
fyrsta vélritunartímann minn í
Verzló. Margir nemendur hrædd-
ust strangan vélritunarkennarann
enda þoldi hún ekki leti, óheiðar-
leika eða sérhlífni. En ég þekkti
hjartagæskuna sem hún föður-
systir mín bjó yfir. Þegar bekkjar-
félagar mínir gengu skjálfandi á
beinunum inn í vélritunarstofuna
gekk ég beint að kennaraborðinu
og smellti kossi á kinnina á Þór-
unni frænku. Þetta var dramatískt
andartak en frænka brosti breitt
og byrjaði svo að píska okkur
áfram við ritvélarnar. Betri kenn-
ari en Þórunn Felixdóttir var
vandfundinn.
Þórunn frænka mín kom sem
gestur minn á 20 ára útskriftaraf-
mælið mitt. Hún ljómaði það kvöld
og hver nemandinn á fætur öðrum
kom til hennar, heilsaði upp á
hana og þakkaði henni allt sem
hún hafði gert fyrir Verzlunar-
skólann. Þórunn var nefnilega
fyrst og síðast Verzlingur. Hún
vann þar alla sína starfsævi og síð-
ari hluta tímans var hún orðin
námsráðgjafi eftir að hafa sótt sér
framhaldsmenntun. Hún vildi
hjálpa nemendum og naut sín við
það.
Minningar mínar um Þórunni
eru margar. Fyrst man ég eftir
henni á Unnarbrautinni á Sel-
tjarnarnesi og þótt ég hafi ekki
verið nema nokkurra ára gamall
man ég eftir og skynjaði baráttu
hennar við Bakkus. Síðar var hún
flutt á Flyðrugranda okkur Þóri
bróður til mikillar gleði. Ekkert
var betra eftir æfingu í KR en að
fá að fara til Tótu frænku, fá
skinkusamloku og kók og láta
dekra við sig. Hún var svo góð við
okkur, talaði við okkur um lífsins
gagn og nauðsynjar, sýndi lífi okk-
ar raunverulegan áhuga. Síðar
flutti svo frænka í Kópavoginn og
bjó þar til æviloka.
Þórunn frænka mín var bar-
áttukona sem tókst á við erfiðleik-
ana í lífi sínu. Það hefur ekki verið
auðvelt að vera einstæð móðir í
Reykjavík á sjötta áratugnum og
ekki hefur verið auðveldara að
horfast í augu við heiminn sem
alkóhólisti löngu áður en það varð
viðurkenndur sjúkdómur. Síðar á
lífsleiðinni þurfti hún að glíma við
erfið veikindi en hún hætti aldrei
að berjast. Það er sárt að kveðja
en samt svo gott. Hvíldin getur
líka verið góð og tíminn hennar
Tótu frænku var kominn.
Það er vel við hæfi að hún Þór-
unn frænka mín skyldi kveðja
sama dag og við fögnuðum fjöl-
breytileikanum á götum Reykja-
víkur á Hinsegin dögum. Þórunn
hafði alltaf stutt málstaðinn með
eldmóði þess sem fylgir réttlætinu
og skilur baráttu þeirra undirok-
uðu. Hún var sem klettur í lífi
mínu, alltaf til staðar og alltaf
tilbúin að skilja. Ég græt af sökn-
uði en ég veit að hún trúði því að
við myndum hittast aftur. Ég óska
þess heitt að hún hafi rétt fyrir
sér.
Við Baldur vottum Felix
frænda, Þórunni, Millu, Begga og
Áslaugu, auk annarra aðstand-
enda, innilega samúð. Einnig
elsku pabba og mömmu sem
sinntu Þórunni svo vel og fallega
alla tíð.
Minningin um fallega, góða og
gáfaða konu lifir. Hvíl í friði elsku
Tóta.
Felix Bergsson.
Þegar ég sest niður og fer að
minnast Þórunnar frænku minn-
ar, eða Tótu frænku eins og við
kölluðum hana, þá man ég einna
helst eftir samræðum. Tóta talaði
alltaf við mig eins og fullorðna
manneskju. Ein minning sem
kemur í hugann er að sitja við
borðstofuborðið á Furugrund með
kók í glasi dragandi tarot-spil til
að athuga hvort ekki fari að bóla á
draumaprinsinum. „Sjáðu þarna
er hann, hár og myndarlegur,
hann er bara á næsta leiti,“ sagði
hún og glotti út í annað eins og
henni var einni lagið. Við gátum
setið tímunum saman og alltaf
haft um nóg að tala. Síðast í vetur
sat ég í upp undir þrjá tíma á
Borgarspítalanum og átti yndis-
lega stund þar sem við ræddum
lífið og tilveruna og fjölskylduna,
sérstaklega ömmu Sigurþóru og
afa Felix. Stærsta sorgin í lífi Þór-
unnar var að missa föður sinn að-
eins 15 ára gömul. Hún var mikil
pabbastelpa og leit upp til föður
síns sem fyrirmyndar og tákn-
myndar alls þess góða í lífinu.
Þessi missir markaði allt hennar
líf og afstöðu.
Fyrir mig sem barn var Þórunn
svolítið spennandi og framandi.
Bjó ein og átti svo flott konudót og
vellyktandi krem. Svo átti hún
fullt af vinum, ég man sérstaklega
eftir Freeport-fólkinu sem talaði
allt öðruvísi en það fullorðna fólk
sem ég þekkti og allir keðju-
reyktu. Það var skemmtilegt að
koma í heimsókn, fá að horfa á
Tomma og Jenna úr Beta-tækinu
sem var á Flyðrugranda og alltaf
var til kók og nammi.
Tóta var kona hátíða, elskaði
jólin og elskaði að fá og gefa gjafir.
Hún var alveg hrikalega forvitin,
hafði áhuga á öllu fólki og sýndi
öðrum umhyggju og áhuga. Hún
talaði með stolti og ást um Felix
son sinn, sonardæturnar Þórunni
og Áslaugu og börn Ragnheiðar
þau Millu og Bergsvein.
Tóta frænka var mikilvæg fyr-
irmynd fyrir mig. Sjálfstæð kona
sem ekki var háð öðrum, fljót að
átta sig á nýjungum og kona sem
framkvæmdi hlutina. Þegar vant-
aði almennilegt námsefni í vélrit-
un og þá skrifaði hún bara
kennslubækur. Seinna fór hún í
nám í námsráðgjöf og starfaði sem
slík í Versló, það var starf sem
hentaði henni einstaklega vel. Í
því var hún líka frumkvöðull í að
leggja fyrir áhugasviðspróf. Hún
var feministi sem hamraði inn í
mig mikilvægi sjálfstæðis, að við
konur ættum að mennta okkur og
þyrftum ekki karlmenn til að sjá
fyrir okkur. Hún vildi kenna mér
að ég gæti allt og ætti ekki að gera
málamiðlanir.
Öllum mínum börnum sýndi
hún umhyggju og lét mér og þeim
alltaf líða eins og þau væru einstök
í heiminum. Hún elskaði þau og
þau elskuðu hana.
Nú er hún komin heim í fang
pabba síns, laus við líkamlegar
þrautir.
Þótt form þín hjúpi graflín, granna
mynd,
Og geymi þögul moldin augun blá
Hvar skáldið forðum fegurð himins sá,
– Ó fjarra stjörnublik, ó tæra lind –
(Halldór Laxsness)
✝
Ástkær eiginmaður minn og vinur, faðir
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR ÞÓR ÓLAFSSON,
Eikjuvogi 13,
Reykjavík,
sem andaðist á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi föstudaginn 5. ágúst, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
15. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem vildu
minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Sigríður Haraldsdóttir,
Birgir Þór Gunnarsson, Ásta Karen Rafnsdóttir,
Gerða Gunnarsdóttir, Guðmundur Arnar Jónsson,
Lára Guðrún Gunnarsdóttir,
Gunnar Þór, Íris Ósk, Tara Sif, Arna Rán,
Jón Gunnar og langafabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, dóttir, systir, tengda-
móðir, mágkona, frænka og vinkona,
KATRÍN INGIMARSDÓTTIR,
Bugðulæk 16,
Reykjavík,
andaðist í faðmi fjölskyldu og vina sunnu-
daginn 7. ágúst.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn
17. ágúst kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að heita á börnin hennar sem ætla að
hlaupa til styrktar Líknardeildar Landspítalans í Kópavogi í
Reykjavíkurmaraþoninu (vefsíða: hlaupastyrkur.is, nafn hóps: Í
minningu Katrínar). Allur ágóði rennur til Líknardeildarinnar sem
hefur reynst fjölskyldunni ákaflega vel í veikindum Katrínar.
Ingibjörg Kristín Halldórsdóttir,
V. Ester Straumberg Halldórsdóttir,
Kristinn Ingi Halldórsson,
Ingimar G. Jónsson, Vigdís Ester Eyjólfsdóttir,
systkini, makar og aðrir aðstandendur.
✝
Okkar elskulegi faðir og afi,
MAGNÚS BERGMANN KARLSSON
vélstjóri,
síðast til heimilis að Hlévangi,
Faxabraut 13,
Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn
16. ágúst kl 13.00.
Skúli Þór Magnússon,
Magnús Bergmann Magnússon,
María Magnúsdóttir,
og afabörnin, Helga Heiðdís, Hilmar Rafn,
Hinrik Örn og Hlynur Almar.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir,
RAGNA ÓLAFSDÓTTIR
Tómasarhaga 12,
Reykjavík,
sem lést á Líknardeild Landspítalans
miðvikudaginn 10. ágúst, verður jarðsungin
frá Neskirkju föstudaginn 19. ágúst kl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Helga Ögmundardóttir, Reynir Sigurbjörnsson,
Ólafur Ögmundarson, Vaka Ýr Sævarsdóttir,
Ragna Reynisdóttir,
Þórhildur Helgudóttir,
Ingimar Ólafsson,
Ögmundur Steinar Ólafsson,
Sigurbjörg Ólafsdóttir, Gústaf Berg Pálmason,
Stefán Ólafsson, Ástríður Sveinbjörnsdóttir.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu hlýhug og stuðning í veikindum og við
fráfall,
ÁSTU KARLSDÓTTUR
sjúkraliða,
Árskógum 6,
Reykjavík.
Kærar kveðjur,
Haukur Bergsson,
Bergur Hauksson, Auður Harðardóttir,
Eva Hauksdóttir, Viðar Freyr Sveinbjörnsson,
Ólafur Steinar Hauksson, Bergþóra Hafsteinsdóttir,
Sigurður Hauksson, Kristín Axelsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
• Mikið úrval
• Yfir 40 ára reynsla
• Sendum myndalista
MOSAIK Hamarshöfða 4 110 Rvk
sími 587 1960 www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir