Morgunblaðið - 13.08.2011, Side 44

Morgunblaðið - 13.08.2011, Side 44
44 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand VELKOMIN Í KATTASKEMMTIÞÁTTINN „HVAÐ DRAP SNÚÐUR?” EN ÁÐUR EN ÞIÐ REYNIÐ AÐ SVARA SPURNINGUNNI ÞÁ ÆTLAR SNÚÐUR AÐ GEFA YKKUR SMÁ VÍSBENDINGU ÞETTA HLÝTUR AÐ VERA STARRI ÉG SKIL ÞETTA EKKI HVERNIG FERÐU EIGINLEGA AÐ ÞVÍ AÐ VERÐA SVONA SKÍTUGUR? ÉG VEIT ÞAÐ EIGINLEGA EKKI ÆTLI ÞAÐ SÉ EKKI EINN AF LEYNDARDÓMUM LÍFSINS ÉG ER AÐ LEITA AÐ ÁHÖFN SEM HLÆR AÐ HÆTTUM, HLÆR AÐ ÞVÍ ÞEGAR ÓVINIRNIR ERU STERKARI EN ÞEIR, ÁHÖFN SEM HLÆR AÐ ÞVÍ AÐ VERA ÁN MATAR EÐA DRYKKJAR SVO DÖGUM SKIPTIR SVO VIRÐIST SEM ÞEIR HAFI EKKI MIKIÐ SKOPSKYN DAGURINN SEM STÉTTARFÉLAG TANNÁLFA FÉKK NÓG ÉG VIÐURKENNI AÐ ÉG VAR AÐ REYKJA. RAJIV GAF MÉR NOKKRA KÚBANSKA VINDLA EN AF HVERJUSAGÐIRÐU MÉR ÞAÐ EKKI BARA? VEGNA ÞESS AÐ ÉG VEIT HVERSU ILLA ÞÉR ER VIÐ VINDLA ÉG GLEYMDI AÐ HUGSA ÚT Í ÞAÐ MÉR ER VISSULEGA ILLA VIÐ VINDLA EN MÉR ER VERR VIÐ ÞAÐ AÐ ÞÚ LJÚGIR AÐ MÉR! LOKAÐ Í DAG ÉG VERÐ AÐ BJARGA HENNI JAFN- VEL ÞÓ AÐ FÓLK KOMIST AÐ ÞVÍ HVER ÉG ER BÚNINGAVERSLUN, EINMITT ÞAÐ SEM MIG VANTAÐI Málarinn góði Ég þarf að ná sam- bandi við málarann góða sem sparslaði og málaði fyrir okkur alla íbúðina í Neðsta- leiti árið 1998. Ég get því miður ekki munað nafnið hans. Vildi gjarnan fá hann til að mála aftur. Vinsam- lega hafðu samband við Steinar bóksala eða Elsu í síma 893 2887. Verðmerkingar á kjötvörum Eins og alkunna er datt einhverju gáfumenninu hjá Neytendastofu það í hug nýverið að hætta skyldi að verðmerkja kjötvöru. Halda mætti að starfsfólkið hjá þessari ríkis- stofnun teldi að almenningur væri upp til hópa einhverjir miðlar sem gætu fund- ið út hvað viðkomandi kjötvara kostar. Sú spurning vaknar hvort þetta starfsfólk hafi ekkert þarfara að gera en að setja svona fáránlegar reglur? Það ylli almenningi minni vandræðum með því að naga blýanta í vinnutímanum en að vera með slíka ákvarð- anatöku. Veit þetta fólk ekki að það þiggur laun af almannafé og að það á að vinna í þágu almennings en ekki gegn honum? Sigurður Guðjón Haraldsson. Ást er… … að vera á réttum stað á réttum tíma. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Á 6. áratugnum hittumst viðmenntaskólanemendur og stúdentar á Laugavegi 11. Þar var mikið um unga listamenn, skáld, málara og leikara, og þar var Ólafur Friðriksson, sem sagði mér að hrafninn væri greindastur fugla af því að hann væri með stærri heila en aðrir fuglar. Og að grænlenski hrafninn væri greind- ari en sá íslenski af því að heilar fugla færu stækkandi eftir því sem norðar drægi. Þetta var litríkt samfélag. Sum- ir voru samkynhneigðir, aðrir ekki, eins og gengur. Góð vinátta tókst með okkur mörgum. Sér- staklega þykir mér vænt um minn- ingu Elíasar Mar, rithöfundar og skálds. Hann hafði gaman af að leika sér að orðum og formum. Þetta litla ljóð, Mér er í mun, lýsir vel rómantík þessara ára: Mér er í mun að vita hvort einnig þið hafið komist að raun um það þrátt fyrir allt hversu jörðin er fögur hljómur tungunnar nýr haustið jafnfagurt vori líf og dauði í sátt þegar maður elskar. Auðvitað höfðu þessi ár var- anleg áhrif á mann og maður sleppur ekki frá þeim. Um þetta var ég að hugsa þegar ég hitti karlinn á Laugaveginum. Hann fór að tala um Gleðigönguna og borgarstjórann og Ása-Þór, þegar hann þóttist vera Freyja, en jötunninn Þrymur hafði stolið hamrinum, sem ekki var falur nema hann fengi Freyju sem eig- inkonu: … létu und honum hrynja lukla og kvenvoðir um kné falla en á brjósti breiða steina, og haglega um höfuð typptu. Allt þetta sagði karlinn á Laugaveginum mér og bætti síðan við: Grænn var skór er fætur fól firna stór á refla-sól kliður fór um byggð og ból: Borgarstjóri í nýjum kjól! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Borgarstjórinn í nýjum kjól Forystumenn íslenskra sósíalista,þeir Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarnason, voru tíðir gestir í Moskvu allt frá 1920. Þeir tóku ekki aðeins við fyrirmælum þaðan, heldur líka miklum fjár- munum. Þeir sendu einnig efnilega flokksmenn til þjálfunar í Rúss- landi. Að vonum kynntust Einar og Brynjólfur vel ýmsum mönnum þar eystra. Kunnastur var Arne Munch-Petersen, þingmaður danska kommúnistaflokksins. Einar Olgeirsson hitti hann fyrst í Moskvu 1928. Hafði Munch-Petersen ýmis samskipti við Íslendinga síðar, eins og rakið er í bók Þórs Whiteheads, Sovét-Ísland. Munch-Petersen hvarf í Moskvu í júlí 1937. Annar góðkunningi Íslendinga í Rússlandi var Allan Wallenius, sænskumælandi Finni, sem starfaði á skrifstofu Kominterns, alþjóða- sambands kommúnista. Hann bauð Einari Olgeirssyni heim til sín í Moskvu 1931, kenndi nokkrum Ís- lendingum í þjálfunarbúðum Kom- interns, var leiðsögumaður ís- lenskra sendinefnda um landið og skrifaði grein um Sölku Völku eftir Laxness í sænskt tímarit, og var ís- lensk þýðing birt í Rétti 1935. Wallenius hvarf í Moskvu í febr- úar 1938. Þriðji málvinur þeirra Einars og Brynjólfs var þýski kommúnistinn Willi Mielenz, sem var um skeið for- stöðumaður Norðurlandadeildar Kominterns. Hann hafði starfað í sérdeild þýska kommúnistaflokks- ins, sem sá um að falsa vegabréf og senda leyniskýrslur, og bar þá dul- nefnið Lorenz. Mielenz kom hingað til lands skömmu fyrir Gúttóslaginn í nóvember 1932 og hélt fundi. Mielenz hvarf í Moskvu í október 1938. Venjulega þykja skyndileg mannshvörf dularfull, og leit hefst að hinum horfnu. En svo virðist sem þeir Einar Olgeirsson og Brynjólfur Bjarnason hafi einskis spurt. Nú vitum við, að þessir þrír góðkunn- ingjar þeirra hurfu inn í Gúlagið og dóu þar, Munch-Petersen 1940 og þeir Wallenius og Mielenz 1942. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Dularfull mannshvörf

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.