Morgunblaðið - 13.08.2011, Page 46

Morgunblaðið - 13.08.2011, Page 46
B irt m eð fy rir va ra um p re nt vi llu r. H ei m sf er ð ir ás ki lja sé r ré tt til le ið ré tt in g a á sl ík u. A th .a ð ve rð g et ur b re ys t án fy rir va ra . E N N E M M / S IA TYRKLAND 27. ágúst í 11 nætur frá aðeins 124.900 kr. – með öllu inniföldu Tyrkland í ágúst í 11 nætur Verð frá 124.900 kr. Heimsferðir bjóða frábær tilboð á allra síðustu sætunum í 11 nátta ferð til Tyrklands þann 27. ágúst. Í boði er m.a. frábært sértilboð á Hotel L´Ambiance ***+ með öllu inniföldu á ótrúlegum kjörum. Einnig önnur sértilboð í boði. Aðeins örfá herbergi í boði - bókaðu strax! Skógarhlíð 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • Akureyri sími: 461 1099 • www.heimsferdir.is m.v. tvo fullorðna og tvö börn, 2-11 ára, í herbergi á L´Ambiance ***+ í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst í 11 nætur. Verð 149.700 kr. m.v. tvo í herbergi á L´Ambiance ***+ í Bodrum með allt innifalið, 27. ágúst í 11 nætur Beint flug með Icelandair 46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST 2011 Hátíðastemning Pönk á Patró Í dag, laugardaginn 13. ágúst, verður tónlistarhátíðin Pönk á Patró haldin í þriðja sinn á Pat- reksfirði. Hljómsveitin Dikta kem- ur fram á hátíðinni og heldur tvenna tónleika í Eldsmiðju Sjón- ræningjahússins á Patreksfirði, annars vegar klukkan 15:00 fyrir börn og unglinga og hins vegar klukkan 21:00 fyrir fullorðna. Berjadagar í Ólafsfirði Dagana 12.-15. ágúst standa Ólafsfirðingar fyrir tónlistarhátíð- inni Berjadögum. Í dag munu listamenn bæjarins opna vinnu- stofur sínar fyrir gesti og gang- andi og svo í kvöld flytur kamm- erkórinn Hymnodia íslenska kórtónlist undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar. Annað kvöld klukkan 20:30 mun svo Guð- mundur Ólafsson tenór halda tón- leika í Tjarnarborg. Guðmundur heldur svo aukatónleika á mánu- dagskvöldið á sama stað klukkan 20:30. Kántrídagar á Skagaströnd Kántrídagar eru haldnir um helgina 12.-14. ágúst á Skaga- strönd. Í dag klukkan 17:00 verða haldnir óperutónleikar þar sem Davíð Ólafsson bassi og Stefán Ís- landi tenór fara á kostum ásamt Þorsteini Eggertssyni. Klukkan 20:30 hefjast svo tónleikar í hátíð- artjaldi og þar koma fram Kántrý- sveitin Klaufar, Pollapönk, Guð- laugur Ómar og Sara Rut og Lára Rúnarsdóttir og hljómsveit. Eftir tónleikana verður slegið upp balli í Kántríbæ þar sem kántrísveitin Klaufar skemmtir gestum. Blómstrandi dagar í Hveragerði. Nú standa yfir Blómstrandi dag- ar í Hveragerði, en hátíðinni lýkur á sunnudaginn. Í lystigarðinum í kvöld hefst kvöldvaka klukkan 21:00. Þar koma fram Jarli úr Eyj- um, Magni, Guðjón Óskar, Berg- lind Guðnadóttir og Sigurjón og Berglind María og Dagný Sif. Klukkan 23:30 hefst dansleikur á Hótel Örk þar sem hljómsveitin Á móti sól treður upp.  Það verða marg- víslegar skemmtanir haldnar um helgina Morgunblaðið/Eggert Flottur Magni og mögnuð hljóm- sveit hans, Á móti sól, verða á fjölskylduhátíðinni Blómstrandi dögum í Hveragerði um helgina. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Kjartan F. Ólafsson, hljómborðs- leikari Ampop, sendi frá sér lagið Quantum Leap í vikunni undir nafn- inu KJARR en það er byrjunin á sólóferli hans. Fyrstu plötu KJARR má vænta í haust. Kjartan hefur ver- ið að vinna að plötunni með millibil- um undanfarin ár. Grunnarnir fyrir plötuna voru teknir upp fyrir rúmu ári í Hljóðrita í Hafnarfirði en söng- ur og hvers kyns viðbótarupptökur fóru fram á heimili Kjartans í Reykjavík og Glasgow. „Lagið heitir Quantum Leap, eins og sjónvarps- þættirnir, en vísa ekkert endilega til þeirra,“ segir Kjartan hress. „Um er að ræða ævintýralegt popplag með vísunum í sólskinspopp 7. og 8. ára- tugarins, kryddað með nútíma- áhrifum“. Leaves meðlimir hjálpa Eftir að Ampop lagði hljóðfærin á hilluna hefur Kjartan verið að spila með hljómsveitinni Leaves. „Ég gekk í það band árið 2009 en Leaves hafa líka verið að taka upp plötu,“ segir Kjartan. „Ég hef notið full- tingis félaga minna þar á minni plötu. Nói [Nói Steinn Ein- arsson] og Arnar [Arnar Guð- jónsson] laufagosar eru þarna með mér á tromm- um og bassa en ég spila á píanó, kassagítar, þerem- ín og fleira skemmtilegt á plötunni,“ en Kjartan syngur einnig sjálfur inn á plötuna. En hvernig kom það til að hann ákvað að fara út í sólóið? „Bara til þess að gera eitthvað,“ segir hann og hlær. „Það var nú þannig að mað- ur hefur alltaf verið að gera lög og svona. En ég fór kannski út í þetta aðallega af því að það var kannski einhver þreyta í Ampop eða eitthvað svoleiðis. Ég og Biggi [Birgir Hilmarsson, gítarleik- ari og söngvari Ampop] vorum alltaf að semja lögin fyrir Ampop en við höfum ekki búið í sama landi síðan 2004, svo það var orðið svolítið erfitt að vinna saman,“ segir Kjartan. Hann segir verkefnið vera ögrandi og gaman sé að gera eitthvað upp á eigin spýtur. Kjartan býr í Glasgow í Skotlandi. Aðspurður um útgáfutónleika hér á landi svarar hann því jákvætt. „Jú, ég vona að maður geti kíkt eitthvað aðeins, flaggað og kynnt okkur svona fyrir jólin,“ segir Kjartan en hann hefur komið upp grúppu með skosku og íslensku tónlistarfólki til að spila af plötunni og segir að eitt skref sé tekið í einu. Fjölhæfur Kjartan F. Ólafsson gefur út sína fyrstu sólóplötu í haust undir nafninu KJARR. Á plötunni spilar hann meðal annars á píanó, kassagítar, þeremín og fleira skemmtilegt en hann fer einnig með sönginn.  Hljómborðsleikari Ampop, Kjartan F. Ólafsson, byrjar sólóferilinn vel  Nýtt lag komið í spilun og plata kemur út með haustinu  Skemmtilegt að gera eitthvað nýtt og upp á eigin spýtur Hljómsveitin Ampop var stofn- uð í kringum aldamótin og var upphaflega tveggja manna band þangað til trommara var bætt við árið 2004. Meðlimir eru Birgir Hilmarsson, gít- arleikari og söngvari, Jón Geir Jóhannsson, trommuleikari, og Kjartan F. Ólafsson á hljóm- borð. Tónlist sveitarinnar má ein- kenna sem nokkurs konar sveimtónlist í bland við popp- músík. Plata þeirra My Delu- sions naut mikilla vinsælda en hún kom út árið 2005. Hljóm- sveitin er nú í góðri pásu en hefur ekki fest endurkomu sína né afskrifað hana. Þríeykið vinsæla AMPOP Ögrandi að vera einsamall

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.