Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 4

Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 4
BAKSVIÐ Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Félagarnir og ævintýramennirnir Haraldur Sigurðsson, eldfjalla- fræðingur, og Ragnar Axelsson, ljósmyndari, lentu vægast sagt í kröppum dansi þegar eldingu laust niður örfáum metrum frá þeim við gígbrún Eyjafjallajökuls í eldgosinu í fyrra. Atvikið náðist á mynd- band en líklega hefur aldrei fyrr náðst mynd af eldingu svo ná- lægt mönnum. „Það náðist á videó þegar eldingu slær niður rétt fyrir aftan okkur þar sem við höfðum staðið nokkrum sekúndum áður. Við höldum að það hafi aldr- ei gerst fyrr að svona hafi náðst á myndband,“ segir Ragnar. Þeir voru staddir inni í gosmökknum rétt sunnan við Goðastein og gló- andi hraunmolar spýttust út í allar áttir. Glóandi bombur og stórir pyttir „Þegar við gengum inn í mökk- inn var mikið öskufall á okkur og dálítið góðir molar líka. Svo fórum við að sjá stóra pytti þar sem bombur höfðu lent og brætt sig inn í ísinn, svona metri eða hálfur í þvermál. Þá fórum við að hugsa að það væri ekki rétt að fara lengra,“ segir Haraldur í samtali við blaðamann. Andrúmsloftið hafi sannanlega verið rafmagnað og mikil spenna í loftinu þegar eld- ingunni laust niður rétt fyrir aftan þá félaga, þar sem þeir höfðu stað- ið aðeins nokkrum sekúndum áð- ur. „Það var svo mikið rafmagn í loftinu að það stóð á endum á manni hárið. Þegar við vorum að ganga til baka þá allt í einu skall þessi elding bara rétt fyrir aftan okkur. Ég myndi halda að hún væri ekki meira en svona 10 metr- um fyrir aftan okkur.“ Haraldur segir erfitt að lýsa aðstæðum með orðum. „Maður vissi ekkert hvað myndi gerast næst. Við vorum í umhverfi sem við gátum ekk- ert stjórnað.“ Þrátt fyrir nálægðina við eldinguna heyrðust ekki miklar þrumur, né heldur heyrðist mikið í kraft- miklu eldgosinu sem þó var rétt við hæla þeirra. „Allt umhverfið var þrungið af ösku. Maður heyrði ekki mikið því askan í andrúms- loftinu dempar all- an hávaða. Öll hljóð verða að nokkurs konar skrölti og maður heyrir til dæmis engar drunur í sprengingunum,“ segir Haraldur. Tilgangur ferðarinnar að gígn- um var að safna sýnum sem þeir og gerðu þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður. „Við tókum nokkur sýni með okkur og svo fórum við bara út úr mökknum. Þetta var orðið mjög erfitt því við vorum ekki með gasgrímur,“ segir Haraldur. Þörfin til að rannsaka eld- gosið var öðru yfirsterkari Hann segir eldingar mjög al- gengar í sprengigosum líkum því sem varð í Eyjafjallajökli. Ástæð- an sé núningur milli öskukorna í loftinu sem myndi spennu. Þá myndist einnig skammhlaup milli andrúmsloftsins og jarðarinnar. „Það getur verið mikill fjöldi eld- inga í svona gosum, sérstaklega þegar það er mikil gufa í því eins og myndaðist þarna þegar jökull bráðnaði,“ segir Haraldur. Þrátt fyrir að þeir hafi vafalaust verið í lífshættu þá hvarflaði það aldrei að þeim fyrr en síðar. Þörf- in til að skoða og rannsaka var öllu öðru yfirsterkari. Atvikið, þegar eldingunni lýstur niður, má sjá í heimildarmyndinni „Andlit norðursins“ þar sem fylgst er með störfum ljósmyndarans Ragnars Axelsonar á norður- slóðum. Myndin er sýnd í Bíó Paradís við Hverfisgötu. Spennuþrungin stund  Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur og Ragnar Axelsson ljósmyndari voru hætt komnir á Eyjafjallajökli í fyrra  Einstök mynd náðist af eldingu Ljósmynd/Sagafilm Eldingin Það náðist á myndband þegar eldingu laust niður rétt fyrir aftan Harald Sigurðsson og Ragnar Axelsson við gígbrún eldgossins í Eyjafjallajökli í fyrra. 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Mennta- og menningarmálaráðu- neytið hefur komist að þeirri nið- urstöðu að Kvikmyndaskóli Íslands geti ekki uppfyllt skilyrði við- urkenningar um rekstrarhæfi. Mati á rekstr- arhæfi skólans er lokið. Ríkisend- urskoðun tekur undir þetta og telur auk þess rétt að ráðist verði í sérstaka úttekt á því hvernig farið hefur verið með framlag ríkisins til skólans. Í ljósi þessa er skv. tilkynningu frá ráðuneytinu í gær ekki unnt að ganga til samninga við skólann um hækkun á fjárframlögum til hans meðan svo mikil óvissa ríkir um reksturinn. Menntamálaráðherra fundaði með forsvarsmönnum skólans í gær og kynnti þeim þessa niðurstöðu. „Áréttaði ráðherra að skólinn hefði skuldbindingar gagnvart nemendum og óskaði eftir svörum um hvernig hann hygðist standa við þær,“ segir í frétt ráðuneytisins. „Beðið er upplýs- inga um áform skólans um næstu skref og þá með hvaða hætti ráðu- neytið getur komið að þeim skrefum með hagsmuni nemendanna að leið- arljósi.“ Stendur við yfirlýsinguna „Ég sagði einfaldlega að ef ekki yrði fundin sanngjörn lausn á mál- efnum Kvikmyndaskólans myndi ég ekki styðja fjárlögin. Og það stend- ur,“ sagði Þráinn Bertelsson, þing- maður VG í samtali við mbl.is í gær- kvöldi. Þráinn hefur áður lýst þessu yfir. „Þetta er bara þvílík handabaka- vinna og er bara ráðuneytinu og þeim sem þar ráða húsum til mikillar skammar, finnst mér. Ég get ekki sagt annað,“ segir Þráinn um af- greiðslu ráðuneytisins á málinu. Óvissa ríkir um starfsemi Kvik- myndaskólans í vetur en skólinn átti að óbreyttu að hefja starfsemi innan nokkurra daga. „Mér finnst þetta bara vera ótrú- lega sorglegt mál. Og sorglegast af öllu þessu finnst mér vera að það sé fólk úr mínum flokki sem á að stjórna þessu ráðuneyti. Ég hélt að það væri áhugi á menningu í þessum flokki,“ segir Þráinn og kennir um skrifræði í menntamálaráðuneytinu og aðgerða- leysi menntamálaráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Fær ekki hærri framlög Þráinn Bertelsson Kvikmyndaskól- inn ekki talinn rekstrarhæfur Afrakstur ferðarinnar á Eyja- fjallajökul má meðal annars sjá á Eldfjallasafni Haraldar Sigurðs- sonar í Stykkishólmi. Á ferðum sínum um heiminn og í störfum sínum hefur Haraldur komið sér upp miklu safni af efni, ýmiskon- ar listaverkum, rannsóknarefni og bókum sem snerta eldgos og eldvirkni víðsvegar um heiminn. Hluti þeirra sýna, sem hann tók við gígbarminn í Eyjafjallajökli, er til sýnis á safninu. Þar á meðal bombur sem eru allt að metri í þvermál. Sérstök sýning sem fjallar um eldgosið í Eyja- fjallajökli árið 2010 var sett upp í vor. Þar má meðal annars sjá listaverk eftir Ragnar Ax- elsson ljósmyndara af gos- unum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Einnig ljósmyndir eftir Jóhann Ísberg og vatnslitamynd af sprengigosinu í Eyjafjallajökli eftir Vigni Jó- hannsson. Bombur til sýnis ELDFJALLASAFNIÐ Haraldur Sigurðsson Ragnar Axelsson Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is Brátt hverfur síðasta bankaútibúið af Laugaveginum þegar Landsbankinn flytur útibú sitt frá Laugavegi 77 í Borgartún 33. Bankinn lét byggja húsið árið 1961 og hefur verið með starfsemi þar síðan. Útibúið á Laugavegi 77 hefur í nokkurn tíma verið stærsta útibú bankans en fjöl- margir einstaklingar og fyrirtæki eru með viðskipti þar. Fyrr á árum voru fjölmörg bankaútibú á Lauga- vegi og í Bankastræti. Því má segja að brotthvarf Landsbankans marki tímamót í sögu miðbæjarins. Nýja útibúið í Borgartúni tekur til starfa eftir áramót þegar Laugavegsútibú og útibúið í Holtagörðum sameinast að fullu. Breyttir viðskiptahættir „Starfsemi útibúanna hefur þegar verið sameinuð að einhverju leyti. Í augnablikinu er þetta þannig að Holtagarðaútibúið er opið að litlum hluta, þar eru gjaldkerar og einhver þjónusta en allir þjónustufulltrúar og önnur starfsemi er flutt upp á Lauga- veg og verður þar þangað til við för- um í Borgartúnið,“ segir Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Hann segir að öllum viðskiptavinum útibúanna hafi verið gerð grein fyrir flutningunum en ná- kvæm tímasetning liggi ekki fyrir. Breyttir viðskiptahættir og hag- ræðing eru aðalástæða breytinganna en stærstur hluti þjónustu bankans við viðskiptavini fer nú fram í gegn- um tölvu eða síma. „Nú er það þannig að bara 10% af snertingum viðskiptavina við bank- ann fara fram við heimsókn í bank- ann. Hlutverk útibúanna hefur verið að breytast og þau þurfa því ekki að vera eins víða,“ segir Kristján. Landsbankinn var lengst af með allt húsið að Laugavegi 77 undir starfsemi sína en það er í eigu bank- ans. Nú nýtir bankinn aðeins tæp- lega 30% húsnæðisins. Ekki er ljóst hvað tekur við í rýminu sem losnar. Valitor er með stóran hluta hússins á leigu. Óvíst er hvort Landsbankinn selji húsnæðið í bráð. Síðasti bankinn hverfur af Laugaveginum  Landsbankinn sameinar tvö útibú og flytur í Borgartúnið  Breyttir viðskiptahættir og hagræðing eru aðalástæðan Morgunblaðið/Eggert Breytingar Landsbankinn hættir starfsemi við Laugaveg um áramótin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.