Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum RAFSTÖÐVAR Arges einfasa Rafstöð HD6500 Bensín m/rafstarti 5,2KW 98.900,- Arges einfasa Rafstöð HD3800 Bensín m/rafstarti 3,2KW 87.900,- Fyrrverandi forseti fram-kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, Jacques Delors, einn helsti hugmyndafræðingur „evr- ópuhugsjónarinnar“, sagði í sam- tali við belgíska dagblaðið Le Soir í gær að sambandið stæði á barmi hengiflugs og til þess að falla ekki fram af yrðu ríki þess að framselja meira af fullveldi sínu til Brussel:    Opnið augu ykk-ar, evran og ESB standa á brún hengiflugs,“ segir Delors í viðtalinu.    Svo ótrúlega sem það hljómarþá virðist Delors ekki hafa lesið grein Péturs J. Eiríkssonar um að allt tal um þörf og vilja til aukinnar miðstýringar í Brussel sé séríslenskur misskilningur.    En hitt er þó enn ótrúlegra aðþað skuli ekki hafa róað De- lors nóg að lesa hugleiðingar Sig- ríðar Ingadóttur alþingismanns um að óróinn í kringum evruna sé einungis taugakippir á mark- aði.    Auðvitað hlýtur hann einnig aðhafa heyrt skýringar hagvís- indamanna Samfylkingarinnar, þeirra Björgvins Sigurðssonar og leiðtoga hans Össurar Skarphéð- inssonar um að fréttir um evruna væru uppörvandi en ekki óttaleg- ar. Aðrir eins menn og þessir tveir fara ekki með neitt fleipur.    Hafi Delors fengið slíkar skýr-ingar frá þeim sem best þekkja til, hvers vegna talar hann svona? Maður bara spyr. Jacques Delors Skilur hann ekkert? STAKSTEINAR Össur Skarphéðinsson Veður víða um heim 18.8., kl. 18.00 Reykjavík 13 léttskýjað Bolungarvík 7 alskýjað Akureyri 9 skýjað Kirkjubæjarkl. 12 skýjað Vestmannaeyjar 11 léttskýjað Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 13 skýjað Ósló 20 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 21 léttskýjað Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 28 heiðskírt Brussel 17 þrumuveður Dublin 12 skúrir Glasgow 16 léttskýjað London 13 skýjað París 23 skýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 20 heiðskírt Berlín 27 heiðskírt Vín 30 léttskýjað Moskva 17 skúrir Algarve 25 heiðskírt Madríd 36 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 33 heiðskírt Róm 31 léttskýjað Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 27 léttskýjað Montreal 26 léttskýjað New York 21 heiðskírt Chicago 26 léttskýjað Orlando 30 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 19. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:31 21:33 ÍSAFJÖRÐUR 5:24 21:50 SIGLUFJÖRÐUR 5:06 21:33 DJÚPIVOGUR 4:58 21:05 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þorsteinn Pálsson, samninganefndarmaður í samn- inganefnd Íslands í aðildarviðræðum við Evrópu- sambandið, segir að það fari ekki framhjá nokkrum manni að ágreiningur sé á milli stjórnarflokkanna um hvernig viðræðum við ESB um landbúnaðarmál sé háttað. „Ég lít á þetta sem ágreining milli stjórnarflokk- anna, en ekki tveggja ráðherra. En ég þekki vit- anlega ekki til innanbúðarmála í ríkisstjórninni. Ágreiningurinn hefur komið skýrast fram varðandi landbúnaðarmálin og vitanlega hefur sá ágreiningur áhrif á framgang viðræðna,“ sagði Þorsteinn þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. „Það er hverjum og einum ljóst að ágreiningur stjórnarflokkanna hefur tafið viðræðurnar og veikir að mínu mati stöðu Íslands í viðræðunum. Ég hef frá upphafi haft ákveðnar efasemdir um að þessir tveir flokkar gætu lokið málinu, þó þeir gætu hafið það,“ sagði Þorsteinn. Þorsteinn var spurður hvort það væri þá ekkert að gerast í viðræðum við ESB: „Það er nú kannski ekki alveg að marka það, því það hafa verið sumarfrí að undanförnu, bæði hér á landi og hjá Evrópusambandinu. En það hefur komið fram áður, að Jón Bjarnason skýrði samninganefndinni frá því í vor sem leið, að það væri óheimilt að semja um nokkuð annað en fulla og óbreytta tollvernd og það væri óheimilt að leggja fram nokkrar áætlanir um breytingar á stofnana- kerfi landbúnaðarins. Ég hef því litið svo á að landbúnaðarráðherra hafi stöðvað viðræður á þessu sviði,“ sagði Þorsteinn. Ágreiningur veikir stöðu Íslands  Þorsteinn Pálsson segist frá upphafi hafa efast um að stjórnarflokkarnir gætu lokið aðildarviðræðum við ESB Þorsteinn Pálsson Í fundargerð samninganefndarinnar, frá því 19. maí sl. segir m.a.: „Fram kom í máli formanns að umboð fulltrúa sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis væri takmarkað að því er varðar skoðun á öðrum kostum en tollvernd auk þess sem ekki væri til staðar umboð til að vinna að áætlanagerð. Fulltrúar í samninganefnd lýstu áhyggj- um af þessum takmörkunum á umboði og töldu mikilvægt að leitað yrði lausna þar á. Einn samninganefndarmanna taldi að líta mætti svo á að með slíkri yfirlýsingu væri verið að stöðva viðræðurnar.“ Er að stöðva viðræður ÚR FUNDARGERÐ Laugardaginn 20. ágúst verður Inn- djúpsdagur haldinn í fyrsta skipti en þá verður efnt til fjölskylduhátíðar með miðaldaívafi við innanvert Ísa- fjarðardjúp. Inndjúpsdagurinn er samstarfs- verkefni fræðimanna sem starfað hafa við fornleifauppgröft í Vatns- firði, aðila í ferðaþjónustu við inn- anvert Ísafjarðardjúp og Súðavík- urhrepps. Hægt verður að fræðast um forna frægð Vatnsfjarðar undir leiðsögn fræðimanna og staðkunnugra og í Heydal verður miðaldadagskrá og hirðdansleikur í anda Björns Jór- salafara sem bjó í Vatnsfirði á 14. og 15. öld með hirð sinni. Vatnsfjörður við Ísafjarðardjúp er einn af merkustu sögustöðum landsins en allt frá landnámsöld og fram yfir siðaskipti var Vatnsfjörður stórbýli og höfðingjasetur. Und- anfarin 8 ár hafa farið fram um- fangsmiklar fornleifarannsóknir í Vatnsfirði og frá árinu 2005 hefur verið starfræktur þar alþjóða-forn- leifaskóli samhliða uppgreftrinum. Boðið verður upp á ókeypis leiðsögn um fornleifaleitarsvæðið í Vatnsfirði laugardaginn 20. ágúst kl. 13 og 15 og kl. 11 sunnudaginn 21. ágúst. Í Heydal við Mjóafjörð, skammt frá Vatnsfirði, verður efnt til mið- aldadagskrár á Inndjúpsdeginum í anda Björns Jórsalafara. Meðal ann- ars verður fluttur frumsaminn leik- þáttur um Björn Jórsalafara kl. 17, laugardaginn 20. ágúst, og lesnir upp valdir kaflar úr Sögu Vatns- fjarðar, en ritun sögunnar er nýlega lokið og verður hún gefin út á næstu misserum. Á laugardagskvöldinu verður boð- ið upp á hlaðborð með miðaldaívafi í Heydal og að því loknu verður efnt til hirðdansleiks þar sem meðal ann- ars verða kynntir miðaldadansar. Dansleikur í anda Björns Jórsalafara  Inndjúpsdagur haldinn í fyrsta skipti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.