Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 10

Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 70 lítil hjörtu þurfa lækningu á hverju ári Á allra vörum safnar nú fyrir nýju barnahjarta- sónartæki, í samstarfi við Neistann. Vertu með og leggðu hjartveikum börnum lið með því að kaupa Á allra vörum gloss frá Dior! Sjá nánar á www.aallravorum.is. ÞAÐ ÞARF STÓRT HJARTA TIL AÐ BJARGA ÞEIM LITLU Hjartans þakkir: Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is H insegin heimboðið Bakdyramegin er einn af þeim mörgu viðburðum sem verða í boði á Menn- ingarnótt sem fer fram í Reykjavík á morgun. Heimboðið stendur frá klukkan fjögur til ellefu og eru það íbúar að Grettisgötu 45 sem bjóða alla velkomna heim til sín. Þar leiða saman hesta sína listamenn úr hinseginheimum og sýna gest- um og gangandi verk sín. Á dag- skrá verða gjörningar, dansverk, myndlist, grafísk hönnun, tónlist, bókmenntir, ljóð, kvikmyndalist og fleira. „Okkur langaði til að gera eitthvað skemmtilegt á Menning- arnótt. Árni býr þarna og stakk upp á að framkvæma þennan við- burð í léttu Facebook-spjalli. Við þekkjum fullt af ótrúlega hæfi- leikaríku og skemmtilegu fólki úr þessum hinsegin-veruleika og ákváðum að slá margar flugur í einu höggi. Það tóku allir ákaflega vel í það að taka þátt í þessu opna húsi,“ segir Gunnar Helgi Guð- jónsson einn þeirra sem standa að heimboðinu Bakdyramegin. Hinir eru Árni Grétar Jóhannsson íbúi að Grettisgötu og Sigríður Eir Zophoníasardóttir. Listrænir þremenningar „Við erum vinir og vinnum öll saman á Trúnó og Barböru. Við komum líka öll nálægt listum. Árni er leikstjóri, menntaður frá Rose Bruford College í Lundúnum. Sig- ríður Eir stundar nú nám í leiklist- ardeild Listaháskóla Íslands og ég Sýna hæfileika úr hinseginheimum Listamenn úr hinseginheimum leiða saman hesta sína og sýna gestum og gang- andi verk sín á Menningarnótt á morgun. Bakdyramegin nefnist viðburðurinn sem fer fram á Grettisgötu. Boðið verður upp á kaffi og bakkelsi og fjölbreytt at- riði, meðal annars; tónlist, myndlist, leiklist, brúðuleikhús, dans og handahlaup. Fjölhæf Sigríður Eir syngur í dúettinum Gullbrá sem kemur fram á lista- veislunni Bakdyramegin á Grettisgötu 45 á morgun. Listaveisla Vatnslitaverk eftir Gunnar Helga sem sýnir á Grettisgötu. Ástralska tísku- og lífsstílstímaritið Peppermint er prentað á endurunn- inn pappír og gefur sig út fyrir að vera hið eina sanna „græna“ tímarit á vefsíðu sinni. Þar má sjá og skoða ýmsar skemmtilegar greinar tengdar tísku, förðun, listum og fleiru. Í tísku- greinunum má finna frétt um nýjar og fremur óhefðbundnar handtöskur. Þær eru hannaðar af fyrirtækinu Hel- veticus og búnar til úr endurnýttum Swiss army teppum. Hvíta krossinn á rauðum bakgrunni, einkennismerki Swiss army, er að finna á töskunum. Smart hönnun sem hefur vakið mikla athygli um heim allan. Þá er einn undirflokkurinn á vefsíðunni tileink- aður öllu því sem umhverfisvænt og endurunnið er. Það er alltaf gaman að fylgjast með því sem er að gerast í tímaritum svo ekki sé talað um að sjá hvað sé vinsælast hinum megin á hnettinum. Vefsíðan www.peppermintmag.com Smart Taska úr endurunnum Swiss army teppum nýtist vel í ræktina. Hið eina sanna græna tímarit Þið hafið ekki efni á að fara í utan- landsferð fyrir haustið til að kaupa föt, ykkur finnst rassinn of stór eða hárið lufsulegt, þið nennið ekki í vinnuna eða finnst foreldrar ykkar óþolandi. Yfir þessu vælið þið og tuð- ið og látið þessar grunnhyggnu hugs- anir skemma fyrir ykkur dagana. Hvernig væri nú að hætta þessari dramatík og vangaveltum yfir smá- munum? Þakkið frekar fyrir lífið, fyrir að fá að umgangast fjölskylduna og fyrir að hafa vinnu. Elskið ykkur eins og þið eruð, þið verðið ekkert öðru- vísi. Það er staðreynd að lífið er stutt, njótið þess á meðan það varir. Endilega … … hættið þessu væli Reuters Nýtur lífsins Victoria svíaprinsessa „smælar“ framan í heiminn. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Eins og flestir Íslendingarvita, er Reykjavík-urmaraþonið á morgun.Maraþonið er löngu orðið einn af þessum skylduatburðum, at- burðum eins og 17. júní-skemmt- unum og útitónleikum með Elton John. Þar munu fjölmargir hlaup- arar láta ljós sitt skína, og er ég þar engin undantekning. Ef til vill að ljósinu undanskildu. Ég ákvað í vor að ég ætlaði að taka þátt, og þá kom ekkert minna en hálfmaraþon til greina. Bjartsýni? – Já, heldur bet- ur. Þar sem ég tók þessa ákvörðun tiltölulega snemma, gafst góður tími til undirbúnings. Ég hugsaði með mér að ég hefði nú æft íþróttir frá blautu barnsbeini, og því ætti hálf- maraþon að vera „pís of keik“ fyrir mig. Það kom þó annað á dag- inn. Langhlaup er nefni- lega erfitt. Hrikalega erfitt. Ég hóf sum- arið á því að hlaupa stuttar vegalengdir, en vegalengd- irnar jók ég jafnt og þétt og þegar sum- arið var hálfn- að var ég bara orðinn nokkuð góður á því. Þeg- ar síðan kom í mig ferðafiðringur, og ég eyddi nokkrum helgum í röð í það að ferðast innan- lands og slappa af, hugsaði ég með mér að það gerði nú lítið til þótt hlaupaplanið raskaðist lítillega. Þetta kæru- og agaleysi mitt átti þó eftir að koma í bakið á mér, því það er víst ekki hægt að spóla yfir nokkrar vegalengdir án þess að lík- aminn gjaldi fyrir það dýru verði. Fljótlega komst ég að því að hlaupalaga-listinn, hlaupa- playlistinn, skiptir höfuðmáli í hlaupinu. Þetta á ekki síst við þegar maður er farinn að telja hlaupatím- ann í klukkustundum, en þá er eins gott að velja lög í réttu tempói. Quarashi gerir til dæmis gæfumun- inn fyrir mig – Stun Gun klikkar ekki á lokasprettinum. Annað sem skiptir miklu máli þegar maður er að hlaupa svona, er út- búnaðurinn. Ég spyrnti lengi vel við þeirri fá- sinnu, að mér fannst, að hlaupa í buxum sem láta stælt- asta fótbolta- mann (eins og mig sjálfan) líta út eins og Sambó-lakkrís. Þegar ég loks- ins lét undan þrýstingi og smellti mér í leggings- hlaupabux- HeimurRóberts

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.