Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 12

Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 12
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Það var einn kippur og svo rauk laxinn út yfir ána og síðan lengst niðureftir. Ég þurfti að hlaupa eftir honum, en svo sneri laxinn við og fór uppeftir. Hann fór aftur á tökustað- inn og þar náði ég að landa honum,“ segir Stefán Ernir Þorsteinsson um viðureignina við 103 cm hæng sem hann landaði í Laxá í Aðaldal í vik- unni. Laxinn tók rauðan Frigga á Hagabökkum og miðað við viðmið- unarkvarða Veiðimálastofnunar hef- ur hann vegið tæp 22 pund. „Ég var ekkert sérstaklega lengi að þreyta laxinn, kannski í rúmlega korter,“ bætir Stefán við en hann er 16 ára gamall og var að veiða í fjórða skipti í ánni ásamt eldri bræðrum sínum, Jóni og Vilhelm. Þeir fengu alls níu laxa, þar á meðal einn 96 cm, annan 88 cm og tvo 85 cm, en sá stóri var eini laxinn sem Stefán landaði. Hann segist hafa fengið þrjá eða fjóra í fyrri ferðum sínum í ána en þetta sé sá lang- stærsti. Hann hafi eitt sinn náð ein- um 93 cm löngum. Þá hafi ekki verið slæmt að fá stærri fisk en bræð- urnir. „Það var mjög skemmtilegt,“ seg- ir hann lukkulegur og bætir við að þetta sé næststærsti lax sem veiði- menn í fjölskyldunni hafi landað. Frændi hans einn hafi stærst fengið 110 cm lax, einnig í Laxá í Aðaldal. Flestir laxanna tóku sömu túpu- fluguna hjá þeim bræðrum, rauðan Frigga, eins og hálfs tommu. „Frigginn var skæður. Svo tóku tveir svarta Frances og einn Laxá gula.“ Sjö af löxunum níu voru stórlaxar, yfir 70 cm langir, en laxveiðimenn um land allt segja smálaxagöngur hafa verið lélegar í sumar. Nítján á vaktinni Eins og sjá má á nýjum tölum Landssambands veiðifélaga um afla- hæstu laxveiðiárnar, á vefnum ang- ling.is, þá er Eystri-Rangá á mikilli siglingu og að sigla framúr öðrum. Þar veiddust 660 laxar í liðinni viku. Fínar göngur eru enn í Rangánum báðum. Til að mynda veiddust 80 laxar í fyrradag í Ytri-Rangá, mikið til lúsugir nýrenningar, og þegar blaðamann bar að garði við Eystri- Rangá hitti hann lukkulega veiði- menn sem voru að koma af neðsta svæðinu og höfðu fengið 19 laxa á stöngina um morguninn, á spúninn, og sögðu mikið af laxi vera þar á svæðinu. Veiðin í Laxá í Dölum hefur verið afspyrnudræm, er komin í aðeins 210 laxa á sex stangir. Áin er við- kvæm fyrir vatnsleysi en engu að síður veiðist þar yfirleitt mun meira en þetta; á sama tíma í fyrra höfðu veiðst um 630 laxar, 605 árið 2009 og um 1.000 á sama tíma sumarið 2008. Veiðimenn sem voru í ánni í síð- ustu viku sögðu lítið af laxi í ánni, nema þá helst í Þegjanda og Lambastaðakvörn, þar sem lax var linnulítið á lofti. Síðustu daga hefur veiðin loks tekið kipp, því sam- kvæmt fréttavef SVFR fékk síðasta holl tæpa 50 laxa. Nú er orðið leyfi- legt að beita maðki í ánni og má gera ráð fyrir að aflatölur stígi um- talsvert. „Það var einn kippur og svo rauk laxinn út yfir ána“  Sextán ára piltur veiddi 103 cm lax í Aðaldal  Góður gangur í Eystri-Rangá Stórlax Stefán Ernir Þorsteinsson með 103 cm hæng sem hann veiddi við Hagabakka í Laxá í Aðaldal. „Ég var ekk- ert sérstaklega lengi að þreyta laxinn, kannski í rúmlega korter,“ segir hann um viðureignina við sinn stærsta lax. Aflahæstu árnar Eystri-Rangá (18) Ytri-Rangá og Hólsá (20) Norðurá (14) Blanda (16) Þverá-Kjarrá (14) Miðfjarðará (10) Selá í Vopnafirði (7) Haffjarðará (6) Langá (12) Elliðaárnar (6) Grímsá og Tunguá (8) Laxá í Aðaldal (18) Laxá í Kjós (10) Breiðdalsá (8) Laxá í Leirársveit (6) Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði Staðan 17. ágúst 2011 Heimild: www.angling.is Á sama tíma í fyrra 3.116 3.117 1.897 2.739 3.107 2.125 1.468 1.502 1.205 1.060 1.434 1.005 850 529 812 Veiðin 10. ágúst 1.897 1.711 1.892 1.708 1.441 1.208 1.273 1.160 997 944 824 668 728 580 580 2.557 2.160 1.950 1.817 1.528 1.504 1.404 1.245 1.207 1.020 916 782 754 692 639 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Undanfarnar nætur hafa farið fram stillingar á útilýsingunni á Hörpu- torgi. Verkfræðistofan Verkís sá um lýsingarhönnun og hafa starfs- menn verið að stilla ljósin á torginu fyrir komandi Menningarnótt. Út- færsla lýsingarinnar byggist á því að lýsa gangandi vegfarendum um torgið og um leið að kalla fram stemningu með skuggamyndum af trjám og öldugangi. „Vegfarendum er ætlað að upplifa sig á leiksviði náttúrunnar en um leið er þess gætt að lýsingin valdi ekki truflun eða glýju þegar horft er á Hörpu. Þetta gerir umhverfið að einu stóru leik- sviði þar sem Harpa er miðpunkt- urinn og lýsingin styður við um- hverfi hennar,“ segir í tilkynningu. Hörpuljósin stillt Vetraráætlun Strætó tekur gildi sunnudaginn kemur, 21. ágúst. Tíðni ferða eykst á flestum leiðum og verður svipuð og síðasta vetur, segir í frétt frá Strætó.. Leiðir 1 og 6 munu aka á 15 mínútna fresti frá kl. 6.30 til 18.00 á virkum dögum í stað 30 mínútna í sumar. Leiðir 2, 3, 4, 11, 12, 14 og 15 aka einnig á 15 mínútna fresti, en einungis á annatímum, frá klukk- an 6.30 til 9.00 og 14.00 til 18.00 á virkum dögum. Tíðni ferða á virkum dögum verður aukin töluvert á leið 23 sem ekur um Sjálandshverfi í Garðabæ og Álftanes en ekki verður lengur ekið að Vífils- stöðum. Auk þess mun verða ekið á leið 23 á laugardögum. Vetraráætlun tekur gildi hjá Strætó Nýr sunnlenskur fréttavefur, www.dfs.is, sem er skammstöfun fyrir Dagskráin, fréttablað Suður- lands, er tekinn til starfa. Um er að ræða vef á vegum Prentmets Suð- urlands, sem rekinn verður sam- hliða Dagskránni. Þar verður að finna allar nýjustu sunnlensku fréttirnar, greinaskrif Sunnlend- inga, menningartengt efni, sunn- lenska matgæðinginn og fleira og fleira. Ritstjóri vefsins verður Magnús Hlynur Hreiðarsson en all- ir starfsmenn Prentmets Suður- lands munu koma að vinnu vefsins á einn eða annan hátt. Nýr fréttavefur Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauð- árkrók blása til landbún- aðarsýningar og bændahá- tíðar í Skaga- firði næstkomandi laugardag, 20. ágúst, kl. 10. Þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyr- ir augu manna og má m.a. nefna sveitamarkað, fróðleik um fornar vinnsluaðferðir til sveita, smala- hundasýningu, hrútasýningu, kálfasýningu, vélasýningu, hús- dýragarð, bændafitness og fleira. Aðgangur á sýninguna er ókeyp- is. Nánari dagskrá Sveitasælu er að finna á www.visitskagafjor- dur.is. Sveitasæla í Skagafirði á morgun STUTT ALLIR LITIR RÚV hefur verið tilnefnt til al- þjóðlegra Emmy-verðlauna fyrir fréttaflutning sinn af eldgosinu í Eyjafjallajökli vorið 2010. Tilnefningin er fyrir bestu frétta- umfjöllun, en auk RÚV eru Sky News, TV Globo í Brasilíu, ABS- CBN á Filippseyjum tilnefnd til verðlaunanna í ár. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensk- ur miðill er tilnefndur fyrir frétta- umfjöllun, samkvæmt tilkynningu frá RÚV. Tilkynnt verður um verðlaunin við athöfn í Lincoln Center í New York 26. september. Alþjóðlegu Emmy-verðlaunin eru veitt árlega en aðild að samtökunum sem veita verðlaunin eiga fagmenn úr skemmtanaiðnaði og fréttaheim- inum frá 50 löndum og 500 fyr- irtækjum. RÚV tilnefnt til Emmy-verðlauna fyrir fréttaflutning af gosinu í Eyjafjallajökli Borgarráð samþykkti á fundi sínum í gær að ljós yrði tendrað á Friðarsúlunni í Viðey á sunnudagskvöld. Tilefnið er að stjórnvöld í Noregi hafa ákveðið að sunnudagurinn 21. ágúst skuli til- einkaður minningu þeirra er létust í hryðju- verkaárásunum í Osló og á Úteyju þann 22. júlí síðastliðinn. Reykjavíkurborg vill með þessu senda sam- úðarkveðjur til Norðmanna og minnast þeirra sem létust í árásunum. Að öllu jöfnu er ekki kveikt á Friðarsúlunni fyrr en 9. október ár hvert en í samráði við höfund verksins, Yoko Ono, er nú lagt til að gerð verði á því undan- tekning og að ljós súlunnar fái að loga frá sól- setri 21. ágúst og fram á morgun. Friðarsúlan tendruð á sunnudagskvöld

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.