Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 14
Samtals verður hlaupið 1.323 kíló-
metra fyrir UNICEF í Reykjavík-
urmaraþoninu. Aldrei hafa fleiri
hlaupið til styrktar UNICEF á Ís-
landi, en um það bil sex sinnum
fleiri hafa skráð sig fyrir stofn-
unina í ár en í fyrra.
„UNICEF veitir mikla og sam-
hæfða aðstoð á svæðinu öllu sem nú
er í vanda vegna mestu þurrka í sex
áratugi. Það sem af er þessari viku
hafa samtökin sem dæmi komið
nægum hjálpargögnum til Mogad-
ishu og suðurhluta Sómalíu til að
meðhöndla 4.300 lífshættulega van-
nærð börn. Öll áheit sem safnast af
hlaupinu renna til neyðaraðgerða
UNICEF á þurrkasvæðunum í aust-
urhluta Afríku. Framlögum til
hjálparstarfs UNICEF verður með-
al annars varið til að útvega lífs-
nauðsynleg bóluefni, lyf, hreint
vatn og sérstakt vítamínbætt jarð-
hnetumauk fyrir alvarlega van-
nærð börn.“ segir í tilkynningu frá
samtökunum á Íslandi. Hægt er að
leggja málefninu lið á vefsíðunni
hlaupastyrkur.is.
Þakklæti Starfsmenn UNICEF í flóttamannabúðunum í Dadaab í Keníu eru gríðarlega
þakklátir fyrir stuðning Íslendinga. Í Dadaab eru stærstu flóttamannabúðir í heimi.
Hringvegurinn hlaupinn fyrir UNICEF í
Reykjavíkurmaraþoninu á morgun
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011
Jákvæður Andri fer 10 km í hjólastól.
Andri Valgeirsson ætlar að fara 10
km í Reykjavíkurmaraþoninu á
morgun. Andri, sem er bundinn við
hjólastól, safnar áheitum fyrir
Sjálfsbjörg, Landssamband fatlaðra.
,,Með þessu vil ég vekja athygli á
málefnum hreyfihamlaðra og sýna
jafnfram fram á að við erum ekki öll
einhverjir fýlupúkar, vælandi yfir of
lágum bótum. Við getum gert það
sem hugurinn ber okkur og viljum
við sýna það í jákvæðu ljósi,“ segir
Andri.
10 km á hjólastól
Guðmundur Felix Grétarsson, 39
ára rafveituvirki, missti báða hand-
leggina þegar hann fékk ellefu þús-
und volta rafstraum í gegnum sig
og féll átta metra niður á frosna
jörð fyrir rúmum 13 árum. Á
heimasvæði hans á hlaupastyrk.is
segir: ,,Ég hef verið að vinna að því
undanfarin fjögur ár að komast í
handaágræðslu í Frakklandi. Þó að
ekkert sé afráðið með það hvort af
aðgerðinni verður (en það verður
ákveðið 9. sept.) hefur fylgt rann-
sóknaferlinu gríðarlegur kostn-
aður. Það er von mín að með þessu
hlaupi geti ég fengið einhvern
stuðning við að axla þær byrðar.“
Hann hefur tvívegis á þessu ári
haldið utan í rannsóknir og hefur
sjúkrahúskostnaður og kostnaður-
inn við ferðalög og annað, hlaupið á
milljónum króna. Þar sem aðgerðir
á borð við þessa flokkast undir til-
raunaaðgerðir tekur Trygg-
ingastofnun ekki þátt í kostn-
aðinum. Guðmundur hleypur 10
kílómetra á morgun til styrktar
handa-hlaupi.
Ákveðinn Guðmundur Felix Grétarsson
hleypur til styrktar handa-hlaupi.
Handalaus maður
fer í handa-hlaup
Það málefni sem hefur náð hvað mestum áheitum
hingað til er Styrktarsjóður Susie Rutar. Sjóðurinn var
settur á laggirnar eftir sviplegt andlát Susie Rutar
sumarið 2007. Á heimasíðu sjóðsins segir að sjóðurinn
hafi unnið að verkefnum sem annars vegar snúa að að-
gerðum opinberra aðila á sviði varna gegn fíkniefnum
og hinsvegar að forvarnarverkefnum. Sjóðurinn hefur
meðal annars verið með forvarnarauglýsingar í sjón-
varpi, sem vekja á fólk til umhugsunar um fíkniefni og
afmá ranga staðalímynd af þeim sem lenda í klóm
fíkniefna. Systir Susie Rutar, hún Diljá Mist Einars-
dóttir, hleypur fyrir sjóðinn en hún hefur safnað í
kringum 750.000 kr.
,,Ég er að vonast til þess að vekja frekari athygli á sjóðnum, en að
mínu mati eru fíkniefnaforvarnir eitt helsta velferðarmálið sem snýr að
ungu fólki. Susie Rut var og er einstök manneskja og systir, og það er
heiður að fá að hlaupa til styrktar minningu hennar.“
Styrktarsjóður Susie Rutar
Diljá Mist
Einarsdóttir
Gunnar Ármannsson hleypur á
morgun í Reykjavíkurmaraþoninu,
fimmta og jafnframt síðasta hlaup-
ið sitt í áheitahlauparöðinni til
styrktar Krabbameinsfélaginu und-
ir slagorðinu ,,Ég hleyp af því ég
get það“.
Fyrir fimm árum lauk Gunnar
við krabbameinslyfjameðferð sína
vegna hvítblæðis og í tilefni þess
ákvað hann að hlaupa fimm lang-
hlaup til styrktar Krabbameins-
félaginu. Það fyrsta var Parísar-
maraþonið (42,2 km) og svo hljóp
hann á Meistaramóti Íslands (100
km). Þriðja hlaupið var Laugaveg-
urinn (55 km), fjórða hlaupið var
Jökulsárhlaup (32,7 km) og Reykja-
víkurmaraþonið er svo síðasta
hlaupið hans í þessari hlauparöð.
Síðasta hlaupið
Róbert B. Róbertsson
robert@mbl.is
Reykjavíkurmaraþon fer fram í 28.
sinn á morgun, laugardaginn 20.
ágúst. Fyrsta hlaupið fór fram árið
1984 og þá tóku 250 hlauparar þátt,
en keppninni hefur vaxið fiskur um
hrygg síðan þá og hefur fjölgunin á
síðustu árum verið mikil, en í fyrra
tóku 10.444 hlauparar þátt. Þátttak-
endur eru fólk á öllum aldri; þeir
yngstu innan við árs gamlir og taka
þátt í Latabæjarhlaupinu, en elsti
skráði þátttakandinn er 85 ára og
hleypur hann maraþon.
Forskráningu í hlaupið er lokið og
eru forskráðir hlauparar 9.788 tals-
ins, sem er tæplega 30% aukning frá
því í fyrra. Mest er aukningin í 21
km hlaupinu, en þar er 44% aukning
á milli ára. Í 3 km hlaupinu er 27%
aukning, í 10 km hlaupinu er 25%
aukning og í maraþoninu er 16%
aukning.
,,Það hafa aldrei skráð sig jafn-
margir í forskráningu,“ segir Svava
Oddný Ásgeirsdóttir, hlaupstjóri
Reykjavíkurmaraþonsins. ,,Við
reynum meðvitað að fá fólk til þess
að skrá sig fyrr, en það stefnir í met-
þátttöku í öllum vegalengdum. Met-
þátttakan er um 11 þúsund manns
og við erum komin í 10 þúsund núna,
svo við erum að reikna með í kring-
um 12 þúsund þegar uppi er staðið.“
Aukning erlendra keppenda
Athygli vekur fjöldi erlendra þátt-
takenda sem hefur skráð sig, en er-
lendir þátttakendur eru í kringum
1.300 talsins frá 58 löndum og er það
einnig aukning frá fyrri árum.
,,Það hafa aldrei verið svona
margir erlendir keppendur áður, en
þeir hafa oft verið í kringum 1.000
manns. Þessir hlauparar koma með
fjölskyldu og vini með sér og eru
jafnvel á Íslandi í marga daga og eru
ótrúlega ánægðir með Ísland, svo
þetta er ferðamálaviðburður líka,“
segir Svava.
Hægt að fylgjast með hlaupinu á
netinu
Hægt verður að fylgjast með
gangi hlaupara í 10 km, 21 km og 42
km vegalengdum á heimasíðu
Reykjavíkurmaraþonsins, maraþon-
.is. Hlauparar í þessum vegalengd-
um fá sérstaka tímatökuflögu, sem
fest er í skóreimar keppenda. Tíma-
tökutækin eru svo staðsett á fjórum
stöðum úti á brautinni og senda upp-
lýsingar með símkortum á netið.
,,Þetta hefur verið partur af
hlaupinu síðastliðin 3 ár. Við þetta
bætist að hægt verður að rýna í
tímatökurnar og úrslitin á netinu.
Til dæmis verður hægt að sjá nálægt
hverjum keppendur voru á vissum
tímapunkti og hverjir fóru fram úr
þeim á öðrum, o.s.frv. Þannig að það
er eiginlega hægt að upplifa hlaupið
aftur og velta sér upp úr því,“ segir
Svava.
Hraðastjórar
Í ár býðst hlaupurum í 10 km,
hálfmaraþoni og maraþoni aðstoð
við að ná hraðamarkmiðum sínum,
en þessar vegalengdir munu hraða-
stjórar hlaupa á áveðnum jöfnum
hraða. Þeir verða í merktum vestum
og með blöðrur til að hlauparar geti
fylgt þeim. ,,Það var fyrst boðið upp
á þetta í 10 km hlaupinu árið 2009.
Það gafst vel og þetta var svo end-
urtekið í fyrra í 10 km og hálf-
maraþoni, en í ár bætist maraþonið
við. Á ákveðnum tímapunkti í hlaup-
inu segir maður við sjálfan sig: ,,Æ,
þetta er svo erfitt!“ en ef maður er
búinn að hengja sig á hlaupastjóra
þá er það hvatning að halda í við
hann og það rekur mann áfram,“
segir Svava.
Lokað hefur verið fyrir forskrán-
ingu á netinu, en möguleiki er á að
skrá sig á skráningarhátíðinni sem
fram fer í dag, föstudag, milli klukk-
an 10 og 19 í Laugardalshöll.
Morgunblaðið/Eggert
Maraþon Allt bendir til þess að metþátttaka verði í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun.
Stefnir í metþátttöku í
Reykjavíkurmaraþoni
Ofurkona Amy Palmiero - Winters ætlar að hlaupa tvöfalt maraþon.
9.788 búnir að skrá sig Tæplega 30% aukning frá í fyrra
Ofurkonan Amy Palmiero-Winters
verður væntanlega fyrst aflimaðra
kvenna til þess að hlaupa heilt
maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu
á morgun. Amy mun ekki láta það
nægja heldur ætlar að hlaupa tvö-
falt maraþon, 84 km. Hún mun
leggja af stað klukkan 4:00 í nótt
og ætlar að vera búin með mara-
þon þegar Reykjavíkurmaraþonið
byrjar klukkan 8:40 í fyrramálið.
Amy lenti í alvarlegu mótorhjóla-
slysi árið 1994 sem varð til þess
að aflima þurfti hana á vinstri
fæti. Hingað er hún komin á veg-
um stoðtækjafyrirtækisins Öss-
urar og ætlar hún ásamt nokkrum
starfsmönnum fyrirtækisins að
hlaupa til styrktar Íþrótta-
sambandi fatlaðra.
Amy er alls enginn nýliði í grein-
inni, en hún hefur tekið þátt í
fjöldamörgum maraþonum. Hún
var t.d. fyrst kvenna til þess að
ljúka hinni miklu þrekraun: Badwa-
ter Ultra-maraþoninu, sem er 217
km langt hlaup og fór hún þessa
vegalengd á 41 klukkustund.
84 km á annarri löppinni
OFURKONAN AMY PALMIERO-WINTERS