Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 16
FERÐALÖG Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Reykjanesskaginn nýtur vaxandi vinsælda meðal innlendra og er- lendra ferðamanna og fyrir því eru ærnar ástæður. Þar er mikil nátt- úrufegurð, jafnt til fjalla og niður við sjó, mannlífið er fjölbreytt, sagan er nánast við hvert fótmál. Átak Suð- urnesjamanna til að efla ferðaþjón- ustu hefur svo sannarlega skilað sér. Af einhverjum ástæðum hefur Reykjanesskaginn verið vanmetinn af mörgum. Hugsanlega er skýringin sú að þegar fólk ekur til og frá Kefla- víkurflugvelli liggur leið þess um til- tölulega sviplítið landslag, a.m.k. ef miðað er við aðra hluta skagans. Ef farið er út fyrir Reykjanesbrautina blasa töfrar svæðisins fljótlega við. Í kaupstöðunum og kauptúnunum er ýmislegt forvitnilegt að sjá og reyna og er hér aðeins drepið á örfáa möguleika. Menning og matur Í Grindavík er t.d. hægt að fara í fyrirtækið Stakkavík og fá að fylgj- ast með fiskvinnslufólki að störfum og ljúka svo heimsókninni með því að gæða sér á ljúffengum sjávarréttum. Þar er líka hægt að leigja fjórhjól eða reiðhjól hjá Fjórhjólaleigunni eða fara í útreiðatúr með Heim- skautahestum – Arctic horses og liggur þá vel við að ríða Hópsnes- hringinn og sjá hvernig ógnarkraftar hafsins hafa þeytt skipsflökum langt upp í land. Veðurspáin fyrir helgina er góð og því þarf enginn að hafa áhyggjur af því að feikistórir brim- skaflar teygi sig marga tugi metra upp á land, rétt á meðan á útreiða- túrnum stendur. Mælt er með heimsóknum í Vík- ingaheima í Njarðvík og Duus-húsin í Keflavík, þar sem má m.a. sjá yfir 100 líkön af bátum. Fái krakkarnir að velja er þó ekki ólíklegt að sumir velji frekar að fara í Skessuhellinn eða í Vatnaveröldina. Í Sandgerði er t.a.m. hægt að heimsækja Háskólasetrið og skoða sýninguna Heimskautin heilla um dr. um Jean-Babtiste Charcot sem fórst með Pourquoi-Pas? árið 1936. Þá mun víst vera nægt tilefni til Suð- urnesjaferðar að ætla sér í skel- fiskveislu í Vitanum í Sandgerði, sem býður upp m.a. á grjótkrabba, eitt veitingahúsa í Evrópu. Kunnugir mæla einnig með ferð í Hafnir þar sem verið er að grafa upp landnámsskála. Eitt er víst: Allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi á Reykjanesskag- anum og hann mun örugglega koma fólki skemmtilega á óvart. Ljósmynd/Ómar Smári Ármannsson Stutt Um 40 mínútur tekur að aka frá Hafnarfirði að Sogunum, ef farin er Djúpavatnsleið. Leiðin er þó styttri en áætlaður ferðatími gefur til kynna því síðasta spölinn þarf að aka varlega, a.m.k. á fólksbílum. Stoppað er við Lækjarvelli, norðan Djúpavatns, en þaðan eru um 800 metrar í Sogin. Þeim er gjarnan lýst sem smækkaðri útgáfu af Landmannalaugum. Ægifegurð innan seilingar  Náttúrufegurð er mikil og fjölbreytt á Reykjanesskaga  Mikil og vaxandi þjónusta við ferðafólk  Í Sogunum má sjá Landmannalaugar í lítilli útgáfu  Mikið af minjum  Bragðgóður grjótkrabbi 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Helgarferðin - Áhugaverðir áfangastaðir Hægt að keyra kringum skagann Íslendingum finnst mörgum fúlt að geta ekki keyrt hring á ferðalögum og finnst stundum hálffúlt ef keyra þarf sömu leið til baka. Þetta vandamál er ekki til staðar á Reykjanesskaga því hægt er að keyra hringinn um hann. Mæla má með því að byrja að keyra Vatns- leysustrandarveginn í staðinn fyrir að fara eftir Reykjanesbrautinni. Síðan er hægt að keyra með strand- lengjunni fyrir skagann og austur í Þorlákshöfn. Mikið munar um nýj- an veg frá Sandgerði út í Hafnir. Morgunblaðið/RAX Nýja tjaldstæðið í Grindavík hefur verið afar vinsælt í sumar enda er aðstaða fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna þar til fyrirmyndar. Í þjónustuhúsinu er góð aðstaða til að elda, fara í sturtu og þvo þvotta. Þorsteinn Gunnarsson, upplýs- inga- og þróunarfulltrúi Grindavík- ur, segir að nú stefni í metfjölda á tjaldstæðinu og að straumur ferða- manna til Grindavíkur hafi aukist í sumar. Sjálfsagt spili hátt bens- ínverð þar inn í en sífellt fleiri átti sig á möguleikum svæðisins. Tjaldstæðið í Grindavík vinsælt Ljósmynd/Grindavíkurbær Reykjanesskaginn er ekki síst fyrir ferðamenn sem spá og spekúlera í umhverfinu. Meðal þess sem þeir geta haft gaman af að skoða er Gunnuhver, stærsti leirhver lands- ins. Hverinn er austur af Reykja- nesvita og er leiðin að honum vel merkt. Eftir jarðskjálftana 2008 var var- að við að vera á ferðinni við hver- inn vegna breytinga á gufuvirkni og leirgosa. Nú er búið að reisa nýj- an útsýnispall til að auka öryggi ferðalanga. Gunnuhver er stærsti leirhverinn Ljósmynd/Ómar Smári ÁrmannssonAlltaf ódýrast á netinu Þú færð alltaf hagstæðara verð á flugfelag.is Skannaðu kóðann til að fá meiri upp- lýsingar. Ómar Smári Ármannsson úti- vistarmaður bendir á að þar sé gríðarmikið af fornminjum, um 600 hellar og ótal þjóðleiðir og gönguleiðir. Aðspurður segir hann að víða megi finna stór bláber og krækiber, sérstaklega uppi í hlíðum, s.s. í Herdísar- fjalli, í Núpshlíðarhálsi og aust- an í Sveifluhálsi. Nýlega var gefið út göngu- leiðarkort af skaganum sem víða má nálgast. Berin tilbúin ÓÞRJÓTANDI MÖGULEIKAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.