Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 17

Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 FRÉTTASKÝRING Önundur Páll Ragnarsson onundur@mbl.is Í vor veitti Alþingi einstaklingi ríkisborg- ararétt með lögum, þrátt fyrir að vita ekki hver hann er. Viðkomandi uppfyllti ekki það skilyrði laga um íslenskan ríkisborgararétt, nr. 100 frá 1952, að hafa sannað með full- nægjandi hætti hver hann sé. Það kemur fram í 1. tölulið 9. greinar laganna. Í svari Útlendingastofnunar við fyrirspurn Morg- unblaðsins, um hversu margir þeirra sem hlutu í vor ríkisborgararétt með lögum, upp- fylltu ekki hvert og eitt skilyrði laganna, kemur fram að einn umsækjandi hafi ekki uppfyllt þetta skilyrði. Stofnunin svaraði fyrirspurninni aðeins hvað varðar þau lagaskilyrði sem hún kann- ar, en vísaði að öðru leyti á aðrar stofnanir. Fyrirspurnin var einnig send á allsherj- arnefnd Alþingis, innanríkisráðuneytið og embætti ríkislögreglustjóra, sem neituðu að veita upplýsingar um málið, nema innanrík- isráðuneytið upplýsti að 55 sóttu um rík- isborgararétt hjá Alþingi í vor og að þar af fengu fimmtíu. Útlendingastofnun hefur veitt 295 umsagnir á þessu ári, þar af 55 vegna umsókna til Alþingis í maí síðastliðnum. Af þessum 55 fullnægðu 30 ekki almennum skil- yrðum um búsetu, sem tilgreind eru í 8. gr. laganna. Þ.e. þeir höfðu ekki búið hér nógu lengi til að ráðherra gæti veitt þeim réttinn. Vekur spurningar um jafnræði Tekið skal fram að Morgunblaðið hefur engar heimildir fyrir því að viðkomandi um- sækjandi eigi sér vafasama fortíð, eða að ekki hafi verið réttlætanlegt að veita honum ríkisborgararétt. Engu að síður er vitneskja um uppruna fólks forsenda þess að annað sé hægt að vita um fortíð þess, svo sem um sak- arskrá, skattaskuldir, fjölskyldu- eða fé- lagstengsl og fleira. Málið vekur því spurn- ingar um jafnræði, þar sem á Íslandi býr nokkur fjöldi fólks sem ekki nýtur fullra réttinda, einmitt af þeirri ástæðu að það get- ur ekki sannað uppruna sinn. Þar er sér- staklega átt við hælisleitendur. Skemmst er að minnast máls hælisleitanda sem hótaði í örvæntingu að kveikja í sér á skrifstofu Rauða krossins í Reykjavík, eftir að hafa beðið úrlausnar sinna mála í sex ár. Lítil stjórnsýsla svona málum Einföld lagaskilyrði eins og þau í lögum um ríkisborgararétt geta ekki fyrirfram tekið fullkomlega á öllum tilvikum sem koma upp. Sum tilvik liggja einfaldlega á mörkunum og þau þarf að meta sérstaklega. Meginregla laganna er sú að Alþingi sjái um veitinguna og gilda þá engin sérstök skilyrði. Til þess að ráðherra geti veitt réttinn þurfa fyrrnefnd skilyrði hins vegar að vera uppfyllt. Fólk sendir þó yfirleitt ekki umsóknir sín- ar til Alþingis fyrr en eftir að reynt hefur verið að fá ríkisborgararétt frá ráðuneytinu. Því má halda því fram að í framkvæmd sé meginreglan sú að ráðuneytið veiti ríkisborg- ararétt, en Alþingi skeri úr um marka- tilvikin. Hefð er fyrir því að þrír þingmenn í alls- herjarnefnd fjalli um þessi mál í eins konar undirnefnd, en aðrir þingmenn treysti mati þeirra. Yfirleitt er það einn úr hvorum stjórnarflokki og einn úr stjórnarandstöðu. Í vor voru það Róbert Marshall, formaður alls- herjarnefndar, Samfylkingu, Þráinn Bertels- son, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði, og Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki, sem fjölluðu um málið, út frá umsögnum fyrr- nefndra stofnana. Segja má að ákvörðun í málinu hafi legið hjá þeim, þó svo að formlega hafi Alþingi samþykkt frumvarpið. Umræður um um- sóknir voru engar í þingsal. Frumvarpi nefndarinnar fylgdi engin greinargerð, þótt þingskapalög kveði á um skyldu til þess. Ekkert nefndarálit leit dagsins ljós. Op- inber málsmeðferð á vettvangi þingsins var engin. Þar að auki var listi með nöfnum umsækjenda borinn undir atkvæði í heild sinni í einni og sömu grein. Alþingi tók því ekki afstöðu til hvers umsækjanda fyrir sig, heldur greiddi atkvæði um að samþykkja eða hafna öllum. Skv. upplýsingum frá skrifstofu Alþing- is hafa þingmenn aðgang að sömu upplýsingum og allsherjarnefnd, vilji þeir kynna sér þær. Almennt er ekki algengt að þingmenn geri það en einhver dæmi eru þess þó í sögu svona frumvarpa. Óþekktur hlaut ríkisborgararétt  Einn af þeim 50 sem hlutu ríkisborgararétt með lögum í vor hafði ekki sýnt fram á hver hann væri  Fimmtíu og fimm manns sóttu um ríkisborgararétt hjá Alþingi í vor og þar af fengu hann fimmtíu Róbert Marshall, formaður allsherjar- nefndar, vildi engar upplýsingar veita um umsækjendur um ríkisborgararétt frá því í vor, á þeirri forsendu að tölu- legar upplýsingar gætu reynst per- sónugreinanlegar vegna þess hversu fámennur hópurinn var. Nefndin er bundin trúnaði og er ekki undir gild- issviði upplýsingalaga. Hann segir yfirferðina á umsóknum vandaða. Undirnefndin fari yfir papp- írana með fulltrúa frá ríkislögreglu- stjóra, innanríkisráðherra og útlend- ingastofnun hjá sér. Yfirferðin þar sé mikil og djúp. „Síðan hafa allir nefnd- armenn í allsherjarnefnd aðgang að öll- um þessum upplýsingum skriflega og geta óskað eftir viðbótarupplýs- ingum,“ segir Róbert. Spurður út í verklagið í þinginu sjálfu, hvernig allur listinn er kynntur Alþingi án þingumræðu, grein- argerðar eða nefndarálits sagði Róbert að þetta væri eins og með önnur mál í þinginu. „Að maður treystir fé- lögum sínum í öðrum þingnefndum til þess að fara jafnvel yfir mál og maður hefði sjálfur gert. Því maður hefur ekki tíma til að fara yfir þau öll.“ Djúp yfirferð TRÚNAÐUR Í ALLSHERJARNEFND Róbert Marshall Samkvæmt 66. grein stjórnarskrár lýðveldisins er útlendingum veittur ríkisborgararéttur á Íslandi sam- kvæmt lögum. Þannig var það einn- ig í stjórnarskránni frá 1920. Fyrsti maðurinn sem hlaut ríkisborgara- rétt sérstaklega með lögum var kaþólski presturinn Jóhann Martin Meulenberg, hinn 27. júní árið 1921. Síðan þá hefur sá háttur verið hafður á reglulega og viðtakendum réttarins hverju sinni fjölgað með árunum. Fyrir fullveldi Íslands voru hér í gildi almenn lög danska ríkisins um „rjett innborinna manna“ og síðar um ríkisborgararétt. Eftir fullveldi voru sett lög árið 1919 um mála- flokkinn og svo ný árið 1926, sem breytt var 1935. Svo voru ný heild- arlög sett árið 1952 sem enn eru í gildi með síðar tilkomnum breyt- ingum. Sú löggjöf er því talsvert komin til ára sinna að grunni til. Þótt Alþingi sé ekki bundið af þessum eldri lögum, hverju sinni sem það setur lög um veitingu rík- isborgararéttar til nafngreindra einstaklinga, starfar allsherjar- nefnd ekki í tómarúmi. Hún setti sér reglur um meðferð þessara mála árið 1994, sem eru mjög keim- líkar þeim reglum sem fram koma í almennu lögunum, hvað varðar bú- setuskilyrðin, þau eru efnislega nánast eins og í lögunum. Ólíkar reglur Sá munur er þó meðal annars á að í reglum allsherjarnefndar er ekki gerð krafa um að umsækjandi hafi sannað hver hann er og að í ákvæði um flóttamenn er gefin heimild til að láta hið sama gilda, eins og um þá, um fólk sem hefur réttarstöðu sem „jafna má til flótta- manna“ að mati nefndarinnar. Ekki er gerð krafa um að hafa staðist íslenskupróf eins og í lög- unum og í ákvæðinu um að umsækj- andi skuli hafa óflekkað mannorð segir að sektir fyrir minniháttar brot hindri ekki veitingu rík- isfangs, ólíkt því sem segir í lög- unum. Í lögunum hindra slík brot veitingu ríkisfangs í eitt ár. Allsherjarnefnd með sínar reglur  Alþingi veitti fyrst ríkisfang 1921 Morgunblaðið/Golli Í þingsalnum Alþingi veitir ríkisborgararétt með lögum en allsherjarnefnd sér alfarið um málsmeðferðina. Alþingi kýs um lista umsækjenda í einu lagi. Morgunblaðið/Golli Passi Ríkisborgarar hafa íslensk vegabréf. HERRAKRINGLAN /DÖMU & HERRASMÁRALIND Nýjar haustvörur Leðurjakki 19,900 facebook.com/Selected Iceland

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.