Morgunblaðið - 19.08.2011, Síða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011
Í hinum gamla, göfga
minjasal
þú geymir Skálholt,
Þingvöll, Haukadal
Því segir Ísland: Sjá
við háborð mitt er
sæti þitt.
Þannig lýsir Eirík-
ur Einarsson frá
Hæli sýn á stöðu
Þingvalla í einu erindi
í hinu þekkta ljóði,
Árnesþing – Vísur gamals Árnes-
ings. Það eru engar ýkjur að í
huga margra eru Þingvellir
fremstir þegar skipað er til sætis
við háborð náttúru og sögu lands-
ins okkar. Enda er staðurinn á
lista UNESCO yfir heimsminjar.
Hugmyndasamkeppni um
uppbyggingu þjóðgarðsins
Í fyrra voru 80 ár frá stofnun
þjóðgarðsins á Þingvöllum. Af því
tilefni ákvað Þingvallanefnd að
fram færi einskonar hugmynda-
samkeppni meðal þjóðarinnar um
hvernig uppbyggingu og starfsemi
þjóðin vill á Þingvöllum. Nú er
tími samkeppninnar að renna út.
Hinn 22. ágúst næstkomandi er
síðasti dagur til að skila tillögum
og hugmyndum um uppbyggingu
eða aðrar þær hugmyndir stórar
sem smáar sem menn vilja koma á
framfæri. Skila á til Alþingis-
Skála, Kirkjustræti, 150 Reykja-
vík, og merkja Hugmyndaleit. Ég
hvet Íslendinga alla til að velta
fyrir sér hvernig þeir vilja sjá
Þingvelli þróast og verða í huga
og hjarta hvers
manns sá staður sem
lýst er svo fagurlega í
Vísum gamals Árnes-
ings.
Hvaða sýn
hefur þú?
Margir hafa
ákveðnar skoðanir á
hvað eigi að vera inn-
an þjóðgarðsins og
hvað ekki. Sjálfur hef
ég verið þeirrar skoð-
unar að byggja eigi
upp aðstöðu til veit-
inga og jafnvel gistingar í stað
Valhallar sem brann. Hvort og þá
hvar nákvæmlega sú uppbygging
á að vera er m.a. eitt það sem
hver og einn getur haft um að
segja með þátttöku í hug-
myndaleitinni. Einnig hafa verið
uppi tillögur um víkingaþorp, lif-
andi söguleika svo eitthvað sé
nefnt. Hvað skal t.a.m. gera við
stíginn niður í Almannagjá og
holuhrunið sem þar varð í vor?
Siglingar á Þingvallavatni, hvernig
skal nýta gamla Þingvallabæinn
og fleira má nefna.
Hvernig tökum við á móti stig-
vaxandi fjölda innlendra sem og
erlendra ferðamanna á næstu ár-
um svo sómi verði af. Spáð er að
innan nokkurra ára verði fjöldi er-
lendra ferðamanna orðinn meiri
en ein milljón manns.
Hlið inn í þjóðgarðinn nýtt
hlutverk héraðsskólans á
Laugarvatni
Með vaxandi ferðamanna-
straumi er nauðsynlegt að dreifa
álaginu á stærra svæði og fleiri
staði. Í því sambandi hef ég lagt
til að nýta Héraðsskólahúsið á
Laugarvatni sem eina af starfs-
stöðum Þingvallaþjóðgarðar. Það
fallega hús er nú nýlega uppgert
og mikil staðarprýði. Myndi starf-
semi Þingvalla sóma sér vel í hús-
inu. Hugmyndin byggist á þekktri
fyrirmynd úr öðrum þjóðgörðum,
m.a. frá þjóðgarði Skota þar sem
eru þrjú megin„hlið“ inn á svæðið
og starfsemi á öllum þremur stöð-
unum. Slíkt starfsemi á Laug-
arvatni myndi styðja við meg-
instarfsemina á Þingvöllum
sjálfum á Hakinu og í upplýsinga-
miðstöðinni og saman mynda heild
sem Þingvöllum væri sómi að. Til
að byrja með væri fyrst og fremst
um að ræða upplýsingagjöf,
fræðslu og tengda starfsemi. En í
framtíðinni gæti Héraðsskólahúsið
hæglega orðið stjórnsýsluhús
þjóðgarðsins og aðsetur fræða og
rannsókna. Þannig er hægt að slá
tvær flugur í einu höggi, dreifa
álagi vaxandi ferðamannastraums
og koma mjög viðeigandi starf-
semi í hið glæsilega skólahús á
Laugarvatni.
Ég hvet alla til að skila sínum
hugmyndum um hvernig Þingvell-
ir viðhaldi stöðu sinni við háborð
Íslands.
Þingvellir – hugmyndaleit
þjóðarinnar
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson »Ég hvet alla til að
skila hugmyndum
um hvernig Þingvellir
viðhaldi stöðu sinni við
háborð Íslands.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Höfundur er alþingismaður og situr í
Þingvallanefnd.
Lögreglan í
Reykjavík hefur und-
anfarið talið sitt
helsta verkefni að
skrifa sektarmiða á
bíla fótboltaáhuga-
manna sem mæta á
leiki félaga sinna. Ég
hef haft nokkra sam-
úð með þessu nýja
áhugamáli lögregl-
unnar, því á stundum
hefur verið þrengt að
nágrönnum sem hafa átt í erf-
iðleikum með að komast ferða
sinna. Á því hefur þurft að taka.
En það virðist ekki vera í huga
lögreglunnar í Reykjavík.
Ég var heldur seinn fyrir á leik
með félagi mínu, Víkingi, í Foss-
vogi í vikunni. Mætti í hálfleik og
kom þá að tveimur löggum í fullum
skrúða í leðurjúniformi með
hjálma á höfði og tungu út í munn-
vikum, pírandi í skrifblokkir skrif-
andi sektarmiða á um 40 bíla norð-
ur af Bjarkarási við Bústaðaveg.
Ég varð afar hissa því ég hafði tal-
ið sjálfsagt að leggja á þessu auða
malarsvæði, ganga nokkur hundr-
uð meta og þannig minnka álagið
inn í hverfinu. Ég spurði því kapp-
ana hverju sætti en þeir kváðust
vera að framfylgja skipunum
Hverfisgötu.
Mér fannst lítið fara fyrir köpp-
unum enda hreint og klárt áreiti.
Hinum megin Bústaðavegar er
sams konar opið malarsvæði og ég
spurði því hvort ég mætti leggja
þar; nei, aldeilis ekki. Ég yrði að
leggja við Sprengisand. Þar hins
vegar er einkastæði Grillhússins.
Hefur lögreglan leyfi til þess að
vísa bílum þangað?
Ég bara spyr sisona.
Þessi framganga lögreglu er al-
gerlega óásættanleg og engu lík-
ara en baunateljarar séu við völd
við Hverfisgötu. Heiðursmennirnir
Bjarki Elíasson og Óskar Ólason
hefðu aldrei látið svona vitleysu
viðgangast meðan þeir stýrðu lið-
inu. Sérstaklega munu hinir svart-
klæddu hafa verið iðnir við að
áreita Víking, að mér skilst. Menn
hafa furðað sig á þessu nýja
áhugamáli lögreglunnar. Sumir
telja þessa sektargleði lið í skatta-
gleði fjármálaráð-
herra. Það kann vel að
vera enda Steingrímur
Joð hugvitssamur með
afbrigðum þegar kem-
ur að sköttum og álög-
um.
Hvað sem því líður
virðist lögregla leggja
meiri áherslu á að
áreita heiðvirða borg-
ara en stöðva flæði
fíkniefna um borg og
bí. Nú er veisla hjá
fíkniefnasölum en sem kunnugt er
er engin löggæsla í landhelgi Ís-
lands. Bláar Evrópustjörnur hafa
verið málaðar á varðskipin og þau
send til að slökkva ófriðarelda í
Miðarhafi. Smyglarar sigla óáreitt-
ir í alsælu yfir hafið færandi varn-
inginn heim. Og þar sem fíkniefnin
flæða um götur Reykjavíkur er þá
ekki ráð að setja kíkinn fyrir
blinda augað og hrella í staðinn
saklausa borgara til þess að halda
sýnileika?
Maður spyr sig.
Hver sem ástæðan er þá verður
að þessu áreiti lögreglu að linna.
Ég var formaður í Víkingi fyrir 15
árum. Við lögðum þunga áherslu á
að tryggja aðgengi að Víkinni og
fjölga bílastæðum. Við því fengum
við engin viðbrögð. Félagar mínir,
sem við kyndlinum hafa tekið, hafa
mætt sama áhugaleysi. Meðan yf-
irvöld sitja aðgerðalaus er fráleitt
að lögregla mæti á félagssvæði og
áreiti heiðvirt fólk .
Því beini ég þeirri frómu ósk til
yfirvalda að þau láti af þessari vit-
leysu og þeirri spurningu hvar
leggja megi bílum við Víkina.
Svar óskast.
Löggur í lögguleik
áreita fólk
Eftir Hall Hallsson
Hallur Hallsson
»Ég beini þeirri
frómu ósk til yf-
irvalda að þau láti af
þessari vitleysu og
þeirri spurningu hvar
leggja megi bílum við
Víkina. Svar óskast.
Höfundur er blaðamaður og rithöf-
undur og er fyrrverandi formaður
Víkings.
Aðsúgurinn að Gunnari í Krossinum
sætir nokkurri furðu. Á yfirborðinu
virðist tilgangurinn vera að hrekja
Gunnar úr hlutverki leiðtoga í
Krossinum. A.m.k. er það nið-
urstaðan í ákæruskjali, sem nýlega
birtist á netinu, dómstóli alþýð-
unnar. Það á að heita svo að Gunnar
sé hættulegur konum og þurfi því
að láta af embætti.
Hvers vegna komu þessar ásak-
anir ekki fram fyrr, ef þær eiga við
rök að styðjast? Gunnar hefur verið
forstöðumaður í Krossinum áratug-
um saman án þess að nokkuð hafi
heyrst um meint afbrot hans meðal
safnaðarkvenna. Blasti það ekki við
ákærendum hans að hann væri
hættulegur maður allan þennan
tíma? Enginn virðist hafa verið lát-
inn vita af þessum meintu afbrotum
fyrr en nú. Og hafi einhver verið lát-
inn vita er sá hinn sami þá ekki
skaðabótaskyldur? Eins og bisk-
upinn? Hvað hélt aftur af konunum,
svo að þær hylmdu yfir hina meintu
glæpi Gunnars? Og hvaða hindrun,
ef einhver var, var rutt úr vegi fyrir
opinberunum þeirra þegar þær
komu fram?
Hvað getur hafa gerst í lífi þess-
ara kvenna sem verður þess
valdandi að þær stíga skyndilega
þetta skref eftir öll þessi ár? Um
þetta getur áhorfandi úti í bæ auð-
vitað lítið sagt, því hann fylgist ekki
svo grannt með þessum konum.
Þær eru ekki opinberar persónur.
Öðru máli gegnir um Gunnar,
sem er þjóðþekktur. Það varð að
fjölmiðlamáli að hann skildi við eig-
inkonu sína til margra ára. Einnig
var mikið skrifað samband hans við
Jónínu Benediktsdóttur athafna-
konu. Vill síðan svo merkilega til að
ásakanirnar koma beint í kjölfarið á
brúðkaupi þeirra. Þá var allt í einu
lag. Eftir marga áratugi. Var
kannski eftir allt saman ekki neinn
áhugi á hinum meintu afbrotum
Gunnars? Nei, beindist kannski
áhuginn frekar að því að gera líf
Jónínu Benediktsdóttur að óbæri-
legu helvíti? Það skyldi þó ekki
vera.
BALDUR PÁLSSON,
kerfisfræðingur.
Þá var lag
Frá Baldri Pálssyni
Bréf til blaðsins
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
Föstudaginn 26. ágúst kemur út glæsilegt
sérblað um heilsu og lífsstíl semmun
fylgjaMorgunblaðinu þann dag
–– Meira fyrir lesendur
SÉ
R
B
LA
Ð
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 22. ágúst
Katrín Theódórsdóttir
kata@mbl.is
Sími: 569-1105
MEÐAL EFNIS:
Andleg vellíðan.
Afslöppun.
Dekur.
Svefn og þreyta.
Mataræði.
Fljótlegar og hollar
uppskriftir.
Ný og spennandi
námskeið
í heilsuræktarstöðvum.
Hreyfing og líkamsrækt.
Hvað þarf að hafa í ræktina.
Hollir safar.
Skaðsemi reykinga.
Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi efni.
Heilsa & lífsstíllHeilsa og lífsstíll