Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 23
✝ RagnheiðurMalmquist Hjartardóttir fædd- ist á Lækjamóti, Fá- skrúðsfirði, 21. mars 1936. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 8. ágúst 2011. Foreldrar Ragn- heiðar voru Hjörtur Guðmundsson, f. 12. ágúst 1907, d. 6. október 1986 og Guðrún Sigríður Bjarnadóttir, f. 5. apríl 1913, d. 15. febrúar 2005. Systur Ragnheiðar eru Sigríður. f. 29. mars 1937, d. 5. ágúst 1993, Guðbjörg, f. 29. mars 1937, d. 18. júlí 2009, Lára, f. 15. júlí 1938, Aðalbjörg Hrefna, f. 27. júní 1940, d. 19. febrúar 1941, Aðal- björg Rafnhildur, f. 18. júlí 1942 og Birna Valdís, f. 10. maí 1946, d. 25. ágúst 1999. Fóstursystkini Ragnheiðar voru Jóhann Malm- quist, Ragnar Malmquist og Birna Fanney Óskarsdóttir. Ragnheiður eignaðist fimm börn. Þau eru 1) Ingvar Hjörtur Harðarson, f. 26. júlí 1955; 2) Ei- ríkur Hreinsson, f. 27. nóvember 1957. Maki hans er Þórunn G. Þorsteinsdóttir og eiga þau tvö börn; 3) Steinar Hreins- son, f. 26. ágúst 1960, d. 30. sept- ember 1961; 4) Sig- rún Helga Hreins- dóttir, f. 29. júlí 1962. Maki hennar er Héðinn Ólafsson og eiga þau þrjú börn og fjögur barnabörn; 5) Valdimar Másson, f. 17. desember 1968. Stjúpdóttir Ragnheiðar er Margrét Helena Másdóttir og á hún fimm börn og sjö barnabörn. Ragnheiður lauk gagnfræða- prófi frá Eiðum. Hún flutti ung að heiman og starfaði lengi sem verkakona við ýmis störf. Ragn- heiður giftist Hreini Eiríkssyni og bjuggu þau á Hornafirði. Seinna giftist hún Ágústi Má Valdimarssyni og bjuggu þau á Seyðisfirði og Grindavík lengi vel en fluttust til Hafnarfjarðar árið 1985. Útför Ragnheiðar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Það er erfitt fyrir okkur syst- urnar að kveðja hana ömmu okk- ar, hún var svo stór hluti af lífi okkar, hún hefur alltaf haft djúp áhrif á daglegt líf okkar og við telj- umst lánsamar ef við líkjumst henni á einhvern hátt. Hvernig er best að lýsa henni ömmu okkar? Hún var harðdug- leg, handlagin, hlý og góð við alla, gerði allt sem hún gat fyrir börnin sín, barnabörn og barnabarna- börn og aðra vandamenn. Við systurnar vorum svo heppnar að hafa ömmu okkar ná- lægt okkur alla okkar ævi. Við eyddum miklum tíma hjá henni og nutum þess að hlusta á sögurnar um æsku hennar, fjölbreytta ævi og hve lífið var öðruvísi í hennar ungdómi en okkar. Þegar hún var að rifja upp gamla tíma var hún iðulega með prjóna við höndina; alltaf að útbúa eitthvað fallegt á barnabörnin og barnabarnabörn- in. Hún var sannur handavinnu- snillingur, prjónaði heil ósköp og gat saumað allt frá rúmfötum til fallegra íþróttagalla og kjóla, en einnig kunni hún vel til verka með heklunál. Það var ekkert sem hún gat ekki gert – nema keyra bíl, en hún lærði það aldrei en hefði hún gert það hefði hún mjög líklega verið fyrirmyndar ökumaður. Hún var mikill gestgjafi og bauð alla velkomna sem þurftu á gistingu að halda. Ættingjar sem bjuggu í órafjarlægð komu alltaf að hlýju og góðu heimili fullu af kræsingum og vel uppábúnum rúmum. Það var sama hversu margir voru í heimili, það var allt- af hægt að finna pláss fyrir fólkið hennar ömmu. Amma var án efa mesta hörku- kvendi sem við þekktum og það má með sanni segja að Guð býr ekki til margar konur eins og hana. Það voru allir ríkari af því að hafa þekkt hana. Við söknum hennar gríðarlega mikið alla daga, hún verður ofar- lega í huga okkar um ókomna tíð og við getum vonandi lifað eftir góðum ráðum hennar og gert hana stolta. Barnabörnin, Anna Heiða, Birna Dögg og Fjóla Rut. Elsku systir, mig langar að minnast þín í örfáum orðum. Mér finnst ekki tímabært að þú sért horfin frá okkur en við ráðum víst engu í þessu lífi. Það var samt ósköp gott að þú þyrftir ekki að berjast lengur við þennan íllvíga sjúkdóm en aldrei kvartaðir þú, sagðir alltaf allt gott. Það er skrýt- ið og tómlegt að hugsa til þess að fá þig ekki oftar í heimsókn aust- ur. Við vorum mjög nánar systur og ég hlakkaði alltaf svo til þegar þú varst að koma, þá gerðum við svo margt skemmtilegt, t.d að fara í berjamó út í Hrútasund þegar þú vildir alls ekki fara heim fyrr en við værum búnar að finna hrúta- ber og lengi var leitað en engin fundum við berin. Svo ógleyman- legu bíltúrana okkar út um allt. Einnig er ég mjög þakklát fyrir allar ánægjulegu stundirnar sem við áttum saman í sveitinni þegar við vorum litlar, þá var margt skemmtilegt gert. Ég hef notið þess að fá að hafa strákana þína hér fyrir austan og hef ég alltaf átt svolítið í þeim, að mér finnst. Nú ertu komin til Más og Steinars litla og allra hinna ættingjanna. Ég vil þakka fyrir allt gott á liðnum árum, elsku Ragnheiður mín, og senda börnunum þínum og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur. Lára systir. Ragnheiður Malm- quist Hjartardóttir✝ Stefán Jónssonfæddist í Reykjavík 6. janúar 1931. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sóltúni 8. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Stef- áns voru Pála Krist- jánsdóttir fædd í Reykjavík 1. feb. 1911, d. 22. des. 1995 og Jón Ingvar Guðmundsson bakari f. 17. okt. 1908, d. 18. jan. 1938. Fósturfaðir Stefáns var Gunnar B. Einarsson f. 26. mars 1909, starfsmaður Mjólkursamsölunnar, d. 8. okt. 1997. Systir Stefáns og samfeðra var Jóna Pála Wissmar f. 1938, d. 11. okt. 1991. Bræður Stefáns eru Þórir Gunnarsson f. 1941, Kristján Gunnarsson f. 1950. Ár- ið 1954 kvæntist Stefán Evu Ósk- arsdóttur og eignuðust þau 4 börn. Margrét Stefánsdóttir f. 1954 snyrtisérfræðingur, gift Ingvari J. Karlssyni lækni. Börn Margrétar eru Eva María Sig- urðardóttir f. 1976, d. 19. ágúst 2001. Jón Stefán Sigurðsson f. 1980. Ingvar Stefánsson f. 1958, pípulagningameistari, giftur Ás- laugu Hartmannsdóttur sér- birgðastöðvar í Hvalfirði, íþróttahúsið á varnarsvæðinu og hans síðasta verkefni var ný hita- veitulagning á Vesturlandsvegi 1998. Hann var einnig formaður starfsmannafélags ÍAV í mörg ár. Hann gekk í frímúrararegl- una í stúkuna Eddu 14.1. 1958 og síðar í Helgafell 3. feb. 1965. Þar vann hann mörg embættisstörf og var sæmdur heiðursmerki 1976. Hann var formaður Meist- arafélags pípulagningameistara í mörg ár og var gerður að heið- ursfélaga eftir störf sín þar. Var félagi í Iðnaðarmanna- félagi Reykjavíkur. Félagi í Lagnafélagi Íslands og var þar í viðurkenningarnefnd til 2008. Félagi í Kiwanisklúbbnum Brú á Keflavíkurflugvelli. Stefán bjó lengst af í Vogahverfinu í Reykjavík og var einn af stofn- endum foreldrafélags Vogaskóla og fyrsti formaður. Stefán var mikill sjálfstæð- ismaður og virkur í hverfafélagi sínu, starfaði einnig í kjörnefnd á tímabili. Stefáni var margt til lista lagt. Gerði ófáa listmuni og nytjahluti úr smíðajárni. Einnig var hann góður teiknari og mál- ari. Hann elskaði að smíða, Hvað sem var, sumarbústaðir, hús- gögn, kassabílar, leikföng, bílar, allt lék í höndum hans. Útför Stefáns fer fram frá Langholtskirkju í dag, 19. ágúst, og hefst athöfnin kl.13. kennara. Börn þeirra eru Kristín Ósk f. 1984 og Hart- mann f. 1989. Ásta Edda Stefánsdóttir innfl.stjóri, f. 1962, gift Birgi Björg- vinssyni Börn þeirra eru Andri Björn f. 1988 og Brynja Dóra f. 1995. Ellert Krist- ján Stefánsson f. 1969, giftur Helgu Veronicu Gunnarsdóttur. Börn þeirra eru Amanda Sif f. 2002, Ísar Máni f. 2004, Veronica Sif f. 2008. Einnig á Ellert þau Stefán f. 1993 og Rögnu Láru f. 1990. Stefán var pípulagningameist- ari og starfaði lengst af hjá Ís- lenskum aðalverktökum. Hóf störf þar á 6. áratugnum og vann þar til 67 ára aldurs. Hann tók sér þó hlé frá störfum fyrir ÍAV í áratug þegar hann rak fyrirtæki á 7. áratugnum ásamt Þóri bróð- ur sínum. Lögðu þeir pípulagnir m.a. í Frímúrarahúsið, Mennta- skólann við Hamrahlíð og Nor- ræna húsið . Hjá Aðalverktökum vann hann ýmis störf. Hann var bygg- ingastjóri m.a. fyrir olíuhöfnina í Helguvík, endurnýjun olíu- Elsku hjartans pabbi. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Pabbi, þú varst alltaf allt í öllu alls staðar og lékst á als oddi fyrir alla. Glaðværð, jákvæðni, nær- gætni og bjartsýni voru kostir í þínu fari jafnt sem, virðing, þol- inmæði, hugmyndaauðgi, fram- takssemi og áræði. Sannur þús- undþjalasmiður og fjöllistamaður varst þú. Þú hafðir svo margt gott til að bera, þú varst yndislegur faðir og veittir okkur systkinum og móður okkar, öryggi, nærgætni, hjálp- semi, örlæti, gleði og hamingju, svo varst þú líka einstaklega glæsilegur og fallegur maður. Minning þín er ljós í lífi mínu. Þín elskandi dóttir, Margrét. Elsku pabbi , tengdapabbi og afi Stebbi, mörg minningabrot koma upp í hugann á kveðjustund, minningar sem við eigum og veita okkur ánægju og hlýju þegar við hugsum til þín. Um leið og við þökkum þér samfylgdina kveðjum við þig með ljóði afa þíns, Kristjáns Sveinsson- ar frá Hofsstöðum á Mýrum. Það er gott með þér að vera í þessum heimi, Jesú minn. Hvar sem kann eg byrði að bera. beygi eg mig við krossinn þinn. Þar mun eg fá hjálp og hlíf, hérna meðan endist líf. Hvar sem geng eg, úti eða inni, óhætt verður sálu minni. Þegar æfikvöld mitt kemur, kvíði eg ekki þeirri stund. Anda minn ei kvölin kremur, á krossinum rann þér blóðug und. Þar rann blóð á meinin mín, mildi Jesú, náðin þín. Svo í friði eg fengi lifað, fyrir þig er nafn mitt skrifað. Blessuð sé minning þín. Ingvar, Áslaug, Kristín Ósk, Hartmann. Elsku afi minn. Það er með söknuði í hjarta sem ég byrja að skrifa þessi orð. Því þetta eru einungis orð sem eiga svo erfitt með að lýsa því hversu góður maður þú ávallt varst. Ég finn ekki réttu orðin til að lýsa öllum þeim kærleika sem þú barst í brjósti þér og hvernig ég fann alltaf að ég var elskaður í þinni návist. Þú hafðir svo góða nærveru og öllum leið svo vel í kringum þig. Þú varst alltaf traustur, heiðar- legur og einn mesti harðjaxl sem ég hef þekkt. Það var mjög auðvelt að vera vinur þinn, þú gerðir aldrei mun á aldurshópum, allir voru vin- ir þínir því allir vildu vera vinir þín- ir. Þú varst það skemmtilegur kar- akter. Ég á fleiri minningar úr sum- arbústaðnum en ég get talið. Minn- ingar sem eru mér dýrmætar, ekki einungis vegna þess tíma sem við deildum heldur vegna alls þess sem þú kenndir mér, eins og að smíða sverð, naglhreinsa spýtur, pílukast, slá gras á fagmanlegan hátt o.m.fl. Fátt var það sem þú gast ekki miðlað frá þér. Á minni lífsleið hef ég sjaldan hitt jafn klár- an og hæfileikaríkan mann og þig. Ég hef alltaf litið á þig sem höf- uð fjölskyldunnar og eftir að pabbi féll frá fyrir tíu árum, varð sam- band okkar nánara. Þú reyndir alls ekki að ganga mér í föðurstað en ég fann hvernig þú vildir hjálpa mér í öllu því sem þú gast. Það myndaðist góður vinskapur og honum mun ég aldrei gleyma. Þú hefur lifað góðu og fallegu lífi og persónuleiki þinn sýndi það svo sannarlega. Nú kveð ég þig, elsku besti afi minn, og ég skal ávallt gæta þess að lifa mínu lífi eins vel og ég get með ást og umhyggju að leiðarljósi eins og þú gerðir alla þína daga. Bless, elsku besti Stebbi afi. Jón Stefán (Nonni). Stefáni kynntist ég fyrst fyrir rúmum fjörutíu árum. Það sem sit- ur í minningunni síðan þá, er hversu góða nærveru hann hafði. Mörgum árum seinna varð Stefán tengdafaðir minn og þá kynntist ég aftur þessum ljúfa ákveðna manni. Stefáni hrakaði hratt seinni árin vegna lungnaþembu, en var alltaf skýr og áhugasamur. Var oft erfitt að horfa uppá alvarlegan sjúkdóm draga stöðugt af Stefáni. Hann bar sig þó alltaf vel og sýndi enga upp- gjöf. Þrátt fyrir veikindin kom- umst við saman í sveitaferð norður í land og höfðum öll gaman af. Eins og flestum góðum mönnum var Stefáni fjölskyldan allt. Sam- heldnari fjölskyldu er vart að finna. Það er til fyrirmyndar hvernig þau hugsuðu um Stefán þessi veikindaár. Stefán var fé- lagslyndur. Áhugasamur um Frí- múrararegluna og leiddi. Loks kom hvíldin, en ljóst var að lengra varð ekki komist í þessu lífi. Guð blessi þig Stefán. Ingvar J. Karlsson. Hjartkær vinur til hartnær 50 ára hefur nú lagt upp í sína hinstu för. Við vorum svo lánsöm að eign- ast, fyrir löngu síðan, að vinum, hjónin Stefán og Evu. Oft var glatt á hjalla í góða hópnum okkar, sungið og spilað. Þar voru þau Stebbi og Eva kátust allra og héldu uppi fjörinu, þau sungu best og spiluðu best. Farið var í tjald- ferðir og seinna í sumarbústaði eða hist í heimahúsum. Alltaf var jafn gaman að vera með þeim hjónum, hvort sem var í gleðskap eða við merkisatburði í lífi fjöl- skyldna okkar. Stebbi var góður sögumaður og hafði frá mörgu að segja. Hann var alinn upp í Reykjavík og var orð- inn stálpaður strákur á stríðsárun- um. Friðardagurinn 8. maí 1945 var honum minnisstæður. Þá fóru strákarnir niður í bæ til að taka þátt í fagnaðarlátunum, sem eins og kunnugt enduðu með ýfingum milli erlendra hermanna og Ís- lendinga og var eins og bærinn hefði orðið fyrir loftárás þegar upp var staðið. Stefán lærði pípulagnir á unga aldri og varð meistari í iðn sinni. Stebbi var dugandi iðnaðarmaður, vann víða, og kom að byggingu stórhýsa í Reykjavík, m.a. Menntaskólanum við Hamrahlíð og Norræna húsinu í Reykjavík. Stebbi vann við eigin rekstur um árabil og síðar gerðist hann starfs- maður á Keflavíkurflugvelli og vann hann hjá Íslenskum aðal- verktökum. Stebbi var óþreytandi í vinnu að félagsmálum pípulagn- ingameistara og kom að uppbygg- ingu á aðstöðu til útivistar og or- lofsdvalar fyrir fjölskyldur þeirra. Stebbi gekk ungur til liðs við Frímúrararegluna og vann ötul- lega að framgangi reglunnar. Hann tók virkan þátt í uppbygg- ingu stórhýsis reglunnar við Skúlagötu í Reykjavík og var emb- ættismaður og forystumaður í stúkustarfi um langt árabil. Meðal annars vann hann að tengslum milli frímúrabræðra meðal varnar- liðsmanna á Keflavíkurflugvelli og íslenskra frímúrarabræðra. Stebbi og Eva byggðu sér sum- arbústað við Þingvallavatn, og þangað var nú gaman að koma. Eftir að þau seldu hann byggðu þau sér annan bústað vestur á Mýrum. Þar áttum við margar ánægjulegar samverustundir með þeim hjónum og fleiri góðum vin- um. Stebbi hafði góða söngrödd og spilaði listilega vel á gítar. Hann var einnig góður frístundamálari og er ljúft að geta þess, að á okkar síðustu samverustund gaf hann okkur fallega vatnslitamynd. Mikið þótti okkur vænt um það. Þau hjón voru lánsöm í lífinu, áttu hvort annað frá unga aldri og eignuðust fjögur yndisleg börn. Þau áttu miklu barnaláni að fagna. Þó dró dimmt ský fyrir sólu þegar dótturdóttir og tengdasonur þeirra fórust í hörmulegu slysi. Það áfall varð þeim þyngra en tárum taki. Þau hjónin báru þessa miklu raun af aðdáunarverðu æðruleysi. Nú er komið að leiðarlokum. Það hefur auðgað líf okkar að hafa átt vináttu Stefáns og Evu, öll þessi ár. Vertu sæll, kæri vinur, við þökkum þér fyrir samfylgdina og allar ánægjulegu samverustund- irnar. Við biðjum góðan Guð að styrkja þig, elsku Eva, börnin ykk- ar og alla fjölskylduna. Ragna og Guðmar. Lærimeistari minn Stefán Jóns- son pípulagningameistari er látinn. Hann var einn af þeim sem námu pípulagnir á síðustu öld þegar gíf- urleg breyting var að eiga sér stað í þessu fagi og miklar framfarir. Eiginþyngdarkerfi, kola- og olíu- kyndingar voru við völd. Fagið var erfitt og útheimti hraustmenni. Í raun má líkja þróun í pípulögnum við byltingu, og enn þann dag í dag eru framfarirnar óstöðvandi í efn- um og tækni í þessu áhugaverða fagi. Pípulagnir eru fag þar sem ná- kvæmni og fagmennsku er krafist, það er ferlið með lífsvökvann vatn- ið sem þarf að koma á rétta staði til að auka hreinlæti og vellíðan neyt- andans. Á Íslandi var að hefjast nýr tími, fátæktin var á undanhaldi og mikil þörf á framsýnum og dug- andi iðnaðarmönnum. Það var því ótrúleg heppni fyrir ungan mann sem hafði loks áttað sig á því að eitthvað varð að læra til að komast áfram í lífsins ólgusjó með bú og fjölskyldu. Ég kynntist Stefáni 1964 þar sem ég var í trésmíðavinnu með gömlum vini, hann var þar að vinna í pípulagnaverkefni og sagðist vanta nema í pípulagnir og spurði hvort ég væri til í reynslutíma. Hvað gat hentað betur sveita- manni? hugsaði ég og stökk á til- boðið með bros á vör. Reynslutíminn gerði það að verkum að ég fann mig strax í þessari iðn. Stefán var þýður, til- litssamur og þolinmóður kennari sem upplýsti á þann hátt sem góð- um manni sæmir. Hann lagði mikla áherslu á kurteisi við viðskiptavin- inn, hreinlæti og umfram allt fag- mennsku, það væri lykillinn að vel- gengni í starfi. Á þessum tíma var Stefán stórtækur, rak fyrirtæki með bróður sínum „Stefán og Þór- ir“. Verkefnin voru stór og smá. Hann lét mig fljótt fara að sinna viðgerðavinnu í heimahúsum sem mikil þörf var á þá sem nú, og sagði þar endalausan brunn þekkingar- öflunar og þroska fyrir nemand- ann, ekki síst samskipti við fólk. Allt þetta hefur staðist í tímans rás. Svo voru það stórverkefnin, ein- býlishús, blokkir, Menntaskólinn í Hamrahlíð, Norræna húsið og Frí- múrarahöllin, svo eitthvað sé nefnt. Hann lét mann kynnast öll- um verkþáttum. Stefán var glað- sinna, man aldrei eftir að kastast hafi í kekki milli okkar, hann var góður félagi og vinur. Oft var ég gestur inni á heimili þeirra Stefáns og hans góðu og lífsglöðu konu Evu. Það var alltaf eitthvað skemmtilegt og uppbyggjandi í umræðunni þar á bæ. Þakkir mín- ar til hins frábæra lærimeistara koma beint frá hjartanu, og kannski á Stefán sinn þátt í að enn hlakka ég til að mæta í mína vinnu 47 árum síðar. Innilegar samúðar- kveðjur til eiginkonu barna og ann- ara aðstandenda. Hafið þökk. Hilmar Hjartarson pípulagningameistari. Stefán Jónsson MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Minningargrein á netinu Hafdís Guðrún Hafsteinsdóttir Höfundar: Bryndís, Hafþór, Þorri og Embla. Chris, Dan the man, Jens the english lady. Meira: mbl.is/minningar Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 – www.utforin.is – Allan sólarhringinn Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Jón G. BjarnasonHermann Jónasson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.