Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011
✝ Elísa Sól Sonju-dóttir fæddist á
Akureyri 10. nóv-
ember 1998. Hún
lést í faðmi fjöl-
skyldu sinnar að
heimili sínu 11.
ágúst 2011.
Foreldrar Elísu
Sólar eru Sonja
Björk Elíasdóttir, f.
21. júlí 1975 og
Tómas Þór Eiríks-
son, f. 10. apríl 1977. Börn
þeirra eru Sandra Ýrr, f. 27. júní
1994, Lúkas Nói, f. 13. júní 2007,
Karítas Ylfa, f. 25. apríl 2010.
Foreldrar Sonju eru Sig-
urbjörg Kristjánsdóttir f.
24.júní 1952 og Elías Þor-
steinsson f. 16. ágúst 1952 búsett
á Akureyri. Bræður Sonju eru
Unnar, f. 16. nóvember 1972,
giftur Hannah Sterling, f. 27.
apríl 1965, Arnar, f. 1. apríl
1980, í sambúð með Guðfinnu
Árnadóttur, f. 26. júlí 1985, þau
eiga tvær dætur, Heiðar, f. 24.
júlí 1982, d. 9. september 2001,
Örvar, f. 28. október 1988, í
sambúð með Mörtu Dögg Valdi-
marsdóttur f. 26.
október 1991. For-
eldrar Tómasar eru
Margrét Gunn-
arsdóttir, f. 17. júlí
1952 búsett í
Garðabæ og Eirík-
ur Tómasson, f. 17.
maí 1953, í sambúð
með Katrínu Sig-
urðardóttur, f. 21.
ágúst 1963, búsett í
Grindavík. Bræður
Tómasar eru Heiðar Hrafn, f.
27. september 1974, í sambúð
með Berglindi Björk Guðmunds-
dóttur, f. 21. desember 1977,
þau eiga fimm börn, Gunn-
laugur, f. 7. apríl 1982, í sambúð
með Helgu Jakobsdóttur, f. 23.
september 1983, þau eiga tvo
syni, Gunnar, f. 10. október
1988.
Blóðfaðir Elísu Sólar er Pétur
Gunnarsson, foreldrar hans eru
Heiða Björk Pétursdóttir og
Gunnar Steinþórsson.
Elísa Sól verður jarðsungin í
Hafnarfjarðarkirkju í dag, 19.
ágúst 2011, og hefst athöfnin kl.
13.
Elsku fallega, góða, yndislega
Sólin okkar er farin frá okkur. Þeg-
ar við hugsum til þín þá hellast
minningarnar og sorgin yfir okkur.
Það hafa verið forréttindi að eiga
þig, elskan okkar. Barátta þín og
æðruleysi hefur kennt okkur svo
ótrúlega mikið. Foreldrar eiga að
kenna börnum sínum á lífið en sú
lífsreynsla að hafa þig hjá okkur á
þessari stuttu lífsleið þinni hefur
gert okkur að betri manneskjum.
Þrátt fyrir erfiða og langa baráttu
þá var nú alltaf stutt í þinn ein-
staka húmor og þitt frábæra bros
sem bræddi hjörtu okkar.
Þegar við rifjum upp þær
mörgu og góðu minningar sem við
eigum með þér, elsku stelpan okk-
ar, þá er ofarlega í huga okkar
ferðin sem við fjölskyldan fórum
saman til Flórída 2005. Þar naust
þú þín í botn og ferðin var í alla
staði eitt sólskinsbros.
Það er ótrúlegt hvað mikið var
lagt á einn lítinn líkama með stóra
og hlýja sál. Alltaf stóðst þú þig
með eindæmum frábærlega og
erfitt að lýsa því með orðum hvað
við vorum og erum stolt af þér og
hvernig þú fórst áfram á barátt-
unni, hógværðinni, seiglunni,
æðruleysinu og fallegu þrjóskunni
þinni.
Þrátt fyrir þinn erfiða sjúkdóm
þá máttir þú ekkert aumt sjá hjá
öðrum og fannst til með öllum
þeim sem áttu um sárt að binda.
Við erum innilega þakklát öll-
um þeim sem hafa stutt þig og
okkur í þessari löngu baráttu.
Við munum aldrei gleyma þér
og þínu viðhorfi til lífsins og mun-
um halda uppi minningum um þig,
elsku Sólin okkar. Við munum
passa það að systkinin þín munu
minnast þín og þekkja þig enda
líta þau upp til þín og sakna þín
mjög mikið. Við vitum það og finn-
um að þú ert frjáls og þér líður vel.
Það vantar stórt púsl í fjöl-
skyldu okkar núna en við vitum að
þú ert alltaf með okkur, elsku Sól-
in okkar.
Við elskum þig að eilífu.
Mamma og pabbi.
Elsku fallega systir mín.
Takk fyrir allar æðislegu
stundirnar okkar saman, ég á eftir
að sakna þín alveg óendanlega
mikið en það sem mun hjálpa mér
í gegnum þennan erfiða tíma er að
vita hversu vel þér líður núna.
Þú varst alltaf svo fyndin og
skemmtileg þrátt fyrir allt það
erfiða sem þú þurftir að ganga í
gegnum.
Ég gleymi því ekki þegar þú
vaktir mig snemma um morgun-
inn og sagðir að ég hefði sofið yfir
mig og ég þyrfti að drífa mig á
fætur því við værum að fara til
Akureyrar. Ég stökk á fætur og
fékk mér að borða og hafði mig til
í hvelli, en svo beið ég bara og leit
svo á þig, þú glottir bara og fékkst
svo hláturskast og segir að klukk-
an sé bara 7 og þá voru nokkrir
klukkutímar þangað til að við átt-
um að leggja af stað, þér fannst
þetta sko fyndið.
Þú varst alveg með húmorinn í
lagi og í rauninni varstu bara æð-
isleg í alla staði, elsku stelpan mín,
ég vildi að ég gæti tekið utan um
þig núna og sagt hversu mikið ég
elska þig. Ég veit að þú ert með
mér alla daga og allar nætur, þú
og minningarnar um þig munu lifa
í hjarta mínu þar til ég hitti þig
aftur, elsku Elísa Sól mín.
Þín stóra systir,
Sandra Ýrr.
Elísa Sól kom inní líf mitt og
minnar fjölskyldu á fyrstu árum
ævi sinnar.
Hún var kröftug og lífsglöð
stelpa, sem hreif alla með sér.
Það var ekki á neinn hátt hægt að
sjá að hún bæri í sér banvænan
sjúkdóm.
Það eru fjölmargar og góðar
minningar, sem koma upp í hug-
ann nú, þegar að leiðarlokum er
komið í hennar jarðneska lífi.
Minningar um barn sem var
lífsglatt og fjörugt, með mikinn
viljastyrk og baráttuhug. Barn
og síðan unga stúlku sem bjó yfir
miklu raunsæi.
Uppgjöf var ekki til hjá henni,
þó svo að tilfinningar væru henni
oft erfiðar þegar hún varð eldri
og skynjaði og skildi að hún bæri
í sér sjúkdóm. Hún yfirvann allt-
af þessar tilfinningar og tók gleði
sína á ný.
Ég á minningu um okkur sam-
an, sem kemur oft upp í hugann
núna. Það var þegar við fórum
með barnabörnin í bíó, en það er
varla hægt að segja að það sé ár-
legur viðburður að ég fari í bíó.
Við Elísa Sól áttum það sam-
eiginlegt að hafa aldrei séð mynd
í þrívídd áður.
Í myndinni voru einhver kvik-
indi sem sífellt skutust að okkur,
og hún var hrædd við þetta og
vildi fara heim í hléi.
Ég sagði henni að sitja hjá
mér og við skyldum bara setja
hnefann á loft gegn þessum kvik-
indum þegar þau skytust að okk-
ur, og þá yrðu þau hrædd og
myndu flýja. Við sátum síðan
saman sífellt með hnefann á lofti,
og kvikindin hörfuðu, og hún var
farin að hlæja eftir nokkrar mín-
útur.
Svona minning um góða stund
saman er dýrmæt.
Elísa Sól átti marga vini, og
hún var örugg í framkomu, og
ófeimin. Hún var okkur öllum
fyrirmynd. Hún barðist við örlög-
in af ákveðni og viljastyrk.
Hún ákvað í sumarbyrjun að
hún vildi fermast sem fyrst, og
fylgdi því eftir af þeim viljastyrk
sem hún hafði alltaf til að bera.
Fermingin og fermingarveislan
var á fallegum sumardegi, marg-
menn, mjög hátíðleg og skemmti-
leg. Þarna fengu vinir og ættingj-
ar að njóta samvista við hana, og
það geislaði af henni ánægjan og
öryggið. Það var ekki hægt að sjá
þá að við myndum aftur koma
saman eftir nokkrar vikur, og þá
til að kveðja hana.
Það er mér mikils virði að hafa
náð að kveðja hana og vera hjá
fjölskyldunni síðustu stundir
hennar.
Sonja og Tómas, þið hafið
staðið ykkur frábærlega síðustu
árin. Aldrei gefið neitt eftir, svo
sjá mætti. Þið hafið sýnt vilja-
styrk og getu sem er til fyrir-
myndar. Ég veit að þessi vilja-
styrkur, geta og samhygð mun
fleyta ykkur áfram og hjálpa
ykkur að takast á við sorgina og
tómleikann sem óneitanlega
fylgir þeirri miklu breytingu á lífi
ykkar og barnanna ykkar við að
missa Sólina okkar. Guð geymi
þig, Elísa Sól, og varðveiti í eilífð-
inni.
Afi Eiríkur.
Elsku Elísa Sól, stundum er
erfitt að koma tilfinningum í orð
og setningar. Sérstaklega öllum
tilfinningunum sem ég finn fyrir
núna. Þú veist að ég var að missa
uppáhalds söngvarann minn. Mun
alltaf muna þegar þú varst í
Huldugilinu að syngja „Dúkkan
hennar Dóru“, tala nú ekki um
dansinn.
Þú ert litla frænka mín en ekki
bara það, þú ert gordjössið mitt.
Stoltur er ég af þér, fullur af ást
og aðdáun, elska þig.
Þinn uppáhaldsfrændi,
Örvar.
Elsku Elísa Sól, ég man þegar
ég flutti utan þegar þú varst rétt
að verða eins árs gömul og ég
hugsaði að tími minn með þér yrði
takmarkaður og hafði ég nokkrar
efasemdir um ákvörðun mína að
flytja úr landi. En þrátt fyrir tak-
markaðan tíma með þér þá hefur
þú svo sannarlega skilið eftir stór
spor í hjarta mínu. Ég man daginn
sem ég fékk fréttirnar um sjúk-
dómsgreininguna þína, ég grét
alla nóttina og bað til guðs um að
setja verndarvæng sinn yfir þig,
fylgja þér og gefa þér styrk fyrir
þessa löngu göngu. Þegar ég hitti
þig eftir þessar fréttir þá var ég
mjög lítill í mér en það breyttist
um leið og ég sá þig, þú varst svo
brosandi og glöð.
Við höfum einungis hist í
nokkra daga á hverju ári síðustu
10 árin og með hverju ári hefur
sjúkdómur þinn beðið um meira
og meira af þér en þú hefur svo
sannarlega boðið honum birginn.
Þrátt fyrir allt þá varstu alltaf
brosandi með blá glitrandi augu
þegar ég kom í heimsókn og alltaf
var ég jafn hreykinn af þér og á
sama tíma fannst mér lífið vera sí-
fellt ósanngjarnara.
Það að hafa ekki of miklar
áhyggjur af því sem kemur á
morgun, heldur að njóta þess sem
maður hefur í dag er sú tilfinning
sem ég fékk frá þér í hvert skipti
sem ég náði að eyða tíma með þér
í þessum veraldlega heimi.
Þú hefur náð svo langt vegna
endalausrar baráttu, þrjósku og
umfram allt hugrekkis. Við öll höf-
um lært svo mikið af þér og þá
sérstaklega að maður getur náð
langt ef maður leggur sig fram við
það og er tilbúinn að berjast fyrir
því. Lífið hér á jörð er nú svo
stuttur kafli í sögu okkar að mað-
ur verður að njóta þess tíma sem
maður hefur með fjölskyldu sinni
og gera hlutina saman, hlæja,
gráta, elska, faðmast, sakna, sýna
umhyggju, föndra, spila og um-
fram allt hafa gaman saman og ég
þakka guði fyrir þann tíma sem
við náðum að eyða saman og sjá
þig vaxa úr grasi í að verða lista-
maðurinn sem þú ert.
Aðrar minningar um þig verð
ég að læra af sögum annarra og
hef ég heyrt að það er nóg af þeim,
þú hefur snert hjörtu og huga
fleiri en ég mun kynnast á minni
lífstíð.
Með fjarlægðina á milli okkar
hef ég eytt miklum tíma með þér í
mínum eigin hugarheimi og það er
kannski við hæfi að hafa hér ljóð
sem kom upp í huga mínum eitt
kvöldið.
Enginn veit hvert þín leið liggur um
þennan heim
Áttavilltur ég var, en í hjarta mínu beið.
Stutta lífsleið … þér gefin var
þennan dag.
Fyrstu ungu árin þín þú geislar eins og
sól.
Ég sé veginn, sem drottinn hann þér fól
vonarneisti um alla tíð
með mér býr
Seinni ára þrautir þú barist hefur við.
Í margra mílna fjarlægð ég hugann leiði
að þér.
Mér finnst það sárt að sjá þig þjást
innra með þér.
Fjölskylda og samheldni það mikilvæga
er.
Gleði og hamingju ég sé í augum þér
þegar spilin eru á borðinu
og fjölskyldan með.
Styrkur og hugur þinn hefur komið þér
svo langt.
Hönd í hönd við lifum öll í sátt.
Því veginn göngum öll fram á við,
þér við hlið.
Elsku Elísa Sól, ég sakna þín
og mun varðveita þig í hjarta mínu
þangað til við sjáumst næst.
Þinn frændi,
Unnar.
Fyrstu minningar mínar um
Elísu Sól eru þegar ég heimsótti
Ísland í fyrsta skipti. Það var vet-
urinn 2004, Unnar og ég vorum
mjög spennt að hitta Sonju systur
hans og hina ungu fjölskyldu
hennar, Söndru Ýrr, Elísu Sól og
maka hennar Tómas. Við heilsuð-
um hvert öðru með stórum faðm-
lögum og kossum og spjallið hófst.
Á leiðinni frá flugvellinum sát-
um við Elísa hlið við hlið, gláptum
og brostum til hvor annarrar, hún
hafði glitrandi prakkaraglampa í
augum sínum og frá þeim degi
vissi ég að hún væri sérstök og að
við myndum verða góðir vinir. Í
seinni heimsóknum kallaði hún
alltaf á mig eða ég fór til hennar til
að eiga góðar stundir saman, það
var að spila eða að lesa, á íslensku
auðvitað. Það var Elísa sem
kenndi mér að telja upp í 10 á ís-
lensku sem var mikið afrek fyrir
mig. Þökk sé Elísu að ég fékk
meiri áhuga á að tala tungumálið.
Ég veit að Elísa var mjög hæfi-
leikaríkur unglingur, hún elskaði
allt listatengt, teikna, mála og
föndra og hún hefur afrekað mikið
á sínum stutta tíma á jörðu. Hún
snerti fleiri hjörtu en ég og þú
munum þekkja á okkar lífstíð,
sem er mikið afrek í ljósi þess sem
hún hefur gengið í gegnum. Á
slæmum dögum meðhöndlaði hún
veikindi sín með mikilli reisn. Ef
ekkert annað, héldumst við í
hendur og alltaf bauð hún þér sitt
fallega bros.
Elísa elskaði lífið, var skemmti-
leg og ég elskaði að vera í kring-
um hana. Hún nálgaðist lífið með
reisn, sjálfstrausti og ákveðni, hún
var ákveðin en sanngjörn, hún
hafði mikinn vilja og vissi sinn eig-
in hug. Hún var pottþétt leiðtogi,
ekki fylgjandi.
Ég mun sakna Elísu sárt ... þar
til við hittumst aftur.
Hannah Sterling.
Elsku stelpan okkar hún Elísa
Sól, hefur nú kvatt okkur og mikið
er það stórt, skarðið í hjörtum
okkar allra sem elska þig.
Kannski er það vegna þess að stór
hjörtu eins og þú hafðir, gleymast
seint. Það eru svo mörg orð sem
lýsa þér, listræn, brosmild, fynd-
in, litrík, viljasterk, góðhjörtuð og
gefandi. Þú gafst öllum miklu
meira en orð fá lýst og fékkst
mann til að hugsa um lífið á allt
annan hátt. Þú hefur gert okkur
að betri manneskjum.
Næst þegar við hittumst þá
getum við leikið okkur saman,
hlegið að þínum einstaka og
þroskaða húmor, spilað á spil og
sungið eins og þér fannst svo gam-
an. En þangað til munum við
sakna þín gífurlega. Þú lifir í
hjörtum okkar.
Þinn frændi,
Arnar og fjölskylda.
Elsku Elísa Sól.
Það er sárt að þurfa að kveðja
þig en um leið er gott að vita að þú
hefur fengið frelsið og friðinn.
Þrátt fyrir erfið veikindin heyrð-
um við þig aldrei kvarta og dáð-
umst oft að því hvað þú varst róleg
og yfirveguð í þinni baráttu.
Þegar við fórum að rifja upp
tímann okkar saman er sterkt í
minningunni þegar þú og Sandra
Ýrr komuð og voruð hjá okkur í
Glaðheimum. Við borðuðum á
okkur gat af nammi og mat. En
Elísa Sól
Sonjudóttir
HINSTA KVEÐJA
Þeir segja mig látinn, ég lifi samt
og í ljósinu fæ ég að dafna.
Því ljósi var úthlutað öllum jafnt
og engum bar þar að hafna.
Frá hjarta mínu berst falleg rós,
því lífið ég þurfti að kveðja.
Í sorg og í gleði ég senda mun ljós,
sem ykkur er ætlað að gleðja.
(Höf. ók.)
Kæra vinir, guð gefi ykk-
ur styrk á erfiðum tímum.
Unnur Ósk.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
BERGÞÓRA KRISTINSDÓTTIR,
Skjóli,
áður til heimilis Eyjabakka 5,
Reykjavík,
lést á Landspítalanum Fossvogi aðfaranótt
laugardagsins 13. ágúst.
Útförin fer fram frá Áskirkju Reykjavík þriðjudaginn 23. ágúst
kl. 13.00.
Kristinn Jónsson,
Rakel Hugrún Eyvindardóttir,
Kristrún Kristinsdóttir.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
HALLDÓRA HELGA MAGNÚSDÓTTIR,
áður til heimilis að
Bólstaðarhlíð 16,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk að
morgni fimmtudagsins 11. ágúst.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fyrir einstaka alúð og hlýju færum við starfsfólki
á hjúkrunarheimilinu Mörk, 3. hæð suður.
Fyrir hönd aðstandenda,
Svala Guðmundsdóttir, Már Hólm Einarsson,
Magnea Sigríður Guðmundsdóttir, Jóhann Gilbertsson.
✝
Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARGRÉT LOFTSDÓTTIR,
Hjaltabakka 14,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 7. ágúst, verður jarð-
sungin frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn
23. ágúst kl. 13.00.
Ólöf Hjálmarsdóttir,
Ólöf Leifsdóttir, Atli Bragason,
Loftur Ólafur Leifsson, Júlíana Hauksdóttir,
Ingibjörg Leifsdóttir, Halldór Jón Theodórsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Hjartkær eiginkona, móðir, dóttir, systir,
mágkona og tengdadóttir,
HANNA LILJA VALSDÓTTIR,
Sogavegi 22,
Reykjavík,
lést af barnsförum á Landspítalanum í Foss-
vogi sunnudaginn 14. ágúst.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fjölskyldan þakkar fyrir hlýhug og samúðarkveðjur.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Gísli Kr. Björnsson,
Þorkell Valur Gíslason, Guðrún Filippía Gísladóttir,
Valgerður Lilja Gísladóttir, Sigríður Hanna Gísladóttir,
Valur Steinn Þorvaldsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Sigríður Þóra Valsdóttir, Ingólfur Kristján Guðmundsson,
Sigurður Már Valsson, Dröfn Helgadóttir,
Anna Filippía Sigurðardóttir, Björn Ottó Halldórsson,
Kristbjörn Helgi Björnsson, Steinunn Steinsen
Katrín Ellý Björnsdóttir, Kristinn Halldórsson
Björn Ragnar Björnsson, Guðrún Árnadóttir
Birgir Magnús Björnsson, Unnur Hlíðberg
Fanney Ósk Þórisdóttir.