Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 25

Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 25
þegar við stóðum öll á blístri eftir kvöldmatinn þá varst þú nú ekki alveg til í að hætta, og baðst um að fá ís til að kæla þig niður eftir allt átið. Við vorum svo lánsöm að búa í sömu götu og hitta þig nánast daglega. Mikill samgangur hefur verið á milli fjölskyldnanna og eyddum við saman síðustu versl- unarmannahelgi uppi í bústað hjá ömmu Möggu. Það var yndislegt að fá að spila við þig og fylgjast með þegar þú varst að syngja fyrir Jakob Daða honum til mik- illar gleði. Við þökkum hvað þú varst góð við strákana okkar og leyfðir Marinó Breka að aðstoða þig, því hann var alltaf svo forvit- inn um það sem var að gerast. Það verður skrýtið að koma við heima hjá þér og sjá þig ekki að púsla eða spila við eldhúsborð- ið. Eftir situr minningin um húm- oristann, púslarann og brosmildu stúlkuna, við þökkum fyrir allar yndislegu stundirnar sem við átt- um með þér og munum sakna þín. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Kæra fjölskylda, megi guð veita ykkur styrk á þessum erf- iðu tímum. Gunnlaugur, Helga, Marinó Breki og Jakob Daði. Elsku Elísa Sól mín, nú ertu komin á friðsælan og fallegan stað þar sem þú ert frjáls frá veikindum þínum, elsku stelpa, og það eitt gefur mér hugarró. Ég veit að nú ertu fallegur engill sem vakir yfir þínu fólki. Það er svo margt sem þú og fjölskylda þín hefur kennt mér i gegnum lif- ið og þá sérstaklega þú sem ert og verður alltaf hetjan mín. Ég er svo stolt af því að hafa verið skyld þér og náð að kynnast þér og ég á eftir að sakna að fá ekki að gefa þér fleiri tásunudd og fá þig í heimsókn í búðina mína. Ég verð þér afar þakklát alla mína ævi því þú kenndir mér það, elsku barn, án þess að hafa hugmynd um það og það er að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur i lífinu, taka því sem höndum ber og gera það besta úr öllu og það eitt er mikilvægasti lærdómur sem maður getur öðl- ast á lífsleiðinni. Þú ert hetjan mín, hetjan sem ég ber ómælda virðingu fyrir og ég mun oft hugsa til þín. Megi guðs englar vaka yfir þér og fjöl- skyldu þinni, elsku Elísa mín. Ég kveð þig með söknuði. Þín frænka, Anna María Ragnarsdóttir. Elskuleg frænka mín, Elísa Sól, er dáin, aðeins 12 ára gömul. Ég man að þegar hún fæddist fannst móður minni afmælisdag- ur hennar svo flottur og sagði: „10.11., það er svo létt að muna það“ sem og mér reyndist líka. Elísa Sól var mjög greind og það var gaman að fylgjast með henni þegar hún var einungis nokkurra ára að leggja saman tölur og ann- að í þeim dúr sem þarfnaðist dá- lítillar hugsunar. Ég er svo viss um að hún hefði glansað í gegn- um lífið ef hún hefði fengið að vera heilbrigð. Því miður greind- ist hún mjög ung með alvarlegan hrörnunarsjúkdóm sem ekkert varð við ráðið. Það voru ekki reglulegar ferðir eða heimsóknir á milli okkar en ég reyndi oftast að koma í heimsókn þegar ég var í Reykjavík. Eitt er þó víst að hugur minn og fjölskyldu minnar var oft hjá Elísu og hennar fjöl- skyldu. Mér er mjög minnisstætt þegar þau komu í fermingu sonar míns fyrir þremur árum og Elísa þá komin í hjólastól. Gott var að geta leyft henni að fara á hestbak sem hún hafði svo gaman af. Í al- búminu mínu á ég góðar myndir af henni á baki sem voru teknar ári síðar. Ég sakna þess að hún gat ekki komið í sumar eins og við ræddum um í vetur. Okkur er það mikils virði að hafa farið í ferm- inguna hennar Elísu fyrir rétt um þremur vikum og getað átt með henni og fjölskyldu hennar falleg- an dag sem bar upp á afmælisdag látins frænda hennar. Það er mikið búið að leggja á fjölskylduna í gegnum árin og hef- ur hún sinnt Elísu eins vel og hægt hefur verið. Vil ég þá sér- staklega nefna móður hennar, Sonju, sem sinnti dóttur sinni af mikilli alúð og dugnaði. Það er nokkuð ljóst að mikil breyting verður hjá fjölskyldunni en ég hef trú á að hún sé sterk og taki á sorginni af æðruleysi og skyn- semi. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar, Elísa mín, ég vona innilega að þér líði vel núna, laus við veikindi og þrautir. Við þökkum þér stund- irnar sem við áttum saman og höldum áfram að hugsa til þín eins og við höfum alltaf gert. Hulda frænka á Búvöllum og fjölskylda. Elsku Elísa Sól, litla hetjan okkar. Lífið er ekki alltaf sann- gjarnt þar sem misþungar byrðar eru lagðar á hvert og eitt okkar. Þú, Elísa Sól, litla sæta frænka okkar, fékkst svo sannarlega þinn skerf af erfiðleikum í veikindum þínum. Það hvarflaði ekki að okkur þegar þú varst í pössun hjá okkur í nokkra mánuði í kringum eins árs aldurinn þinn að þú ættir eftir að verða svo veik sem raunin varð. Ónæmiskerfi þitt var kannski ekki upp á það allra besta en að þú ætt- ir eftir að greinast með þann ill- víga sjúkdóm sem herjaði á litla líkamann þinn síðar meir var óhugsandi. Við munum eftir þér svo glað- legri, brosmildri og duglegri að takast á við áskoranir lífsins eins og að læra að ganga, að tala, að þekkja dýrin í sundur með hjálp bóka sem þú hafðir yndi af að skoða og ég tala nú ekki um að læra að deila leikföngum með frændsystkinum þínum svo þið gátuð leikið vel og lengi saman. Þetta voru yndislegar stundir og lítum við svo á að það hafi verið viss forréttindi að fá að kynnast þér svo vel og náið eins og raunin varð. Í kjölfarið fengum við að fylgjast með þér vaxa og dafna eftir því sem árin liðu þar sem þú lést aldrei deigan síga í baráttu þinni við veikindin. Hélst ætíð gleði þinni og jákvæðni þar sem dugnaðarkraftur þinn og orka hjálpuðu þér yfir marga erfiða hjalla. Lífsbarátta þín var hörð en með styrk þínum og þrautseigju gerðir þú ætíð þitt allra besta þar til að lokum þú þurftir að láta und- an ofurefli veikindanna. Við minnumst þín með hlýhug og söknuði og erum innilega þakk- lát fyrir að hafa eytt með þér ynd- islegum fermingardegi þínum fyrr í sumar. Þann dag geislaði af þér og þú varst virkilega stolt og flott stúlka og áttir virkilega góð- an dag. Við vitum að þér á eftir að líða vel í heimi englanna nú þegar þú ert laus úr viðjum þjakaðs lík- ama. Þú átt eftir að hlaupa um, brosa, hlæja og skemmta þér með hinum englunum. Þú munt alltaf verða litla hetjan okkar. Farðu í guðs friði, litla frænka. Elsku Sonja, Tómas, Sandra, Lúkas og Karítas, ömmur og afar og aðrir nátengdir megi guð styrkja ykkur í sorg ykkar og söknuði. Minningin um ljúfa, góða stelpu mun lifa í hjörtum okkar allra um ókomin ár. Svala Ýrr, Brynja María, Dofri, Thelma og Bragi. Elsku litla ljúfan, nú er komið að kveðjustund. Það eru blendnar tilfinningar sem bærast í brjósti mér, sorg, gleði og þakklæti. Sorg að falleg sál eins og þú þurfir að kveðja allt of snemma, gleði að þú þurfir ekki að þjást lengur og þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast þér svona vel. Þú snertir marga með nærveru þinni og ávallt var talað um hvað þú værir dugleg og æðrulaus og ef maður sjálfur hefði brotabrot af þínu æðruleysi þá væri maður betri manneskja. Þú skilur eftir þig sæg af fallegum og góðum minn- ingum sem ég mun ávallt geyma í hjarta mér og þær hugga mig. Ljúfar voru stundir er áttum við saman. Þakka ber Drottni allt það gaman. Skiljast nú leiðir og farin ert þú. Við hittast munum aftur, það er mín trú. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (Maren Jakobsdóttir) Elsku Sonja, Tómas, Sandra Ýrr, Lúkas Nói og Karítas Ylfa, ég bið góðan Guð að hjálpa ykkur út úr sorginni og söknuðinum, Guð veri með ykkur. Sofðu rótt, elsku Elísa Sól mín. Þín Berglind (Begga). Elísa Sól kom inn í líf okkar geislandi og hlý líkt og nafn henn- ar gefur til kynna fyrir 11 árum síðan þegar við urðum stuðnings- fjölskylda hennar. Dvaldi hún hjá okkur eina helgi í mánuði næstu sex árin og stundum lengur. Tengslin sem mynduðust milli hennar og fjölskyldumeðlima er ekki hægt að útskýra nema á þann hátt að hún var eins og fjórða dótt- irin á heimilinu, hún aðlagaðist okkar fjölskyldulífi fljótt og vel enda áttu stelpurnar ýmis sameig- inleg áhugamál svo sem föndur, perl, piparkökubakstur og önnur huggulegheit heimavið. Einnig eru minnistæðar ferðirnar á Velli, í sveitina og sumarbústað. Hvað sem við gerðum eða hvert sem við fórum heillaði Elísa Sól alla, jafnt ömmur og afa, frændfólk og vini. Einstaka sinnum gerðist það að óvenju langur tími leið á milli heimsókna og þá var það ævinlega þannig að heimilisfólkið var farið að spyrja húsmóðirina, sem á öll- um þráðum hélt, um hvenær Elísa Sól eiginlega kæmi næst, það vantaði hreinlega eitthvað í hina venjulegu rútínu. Elísa Sól var ótrúlegur töffari í öllum sínum veikindum og það sem á hana var lagt, kvartaði aldr- ei, afar þrautseig og dugleg. Eftir að hún flutti suður yfir heiðar með fjölskyldu sinni þá urðu samveru- stundirnar vissulega færri en í huga okkar var hún ávallt. Þegar við heimsóttum hana voru búðar- ferðir og leikhús oft fyrir valinu, það var hennar uppáhald, ekki hvað síst búðarápið. Hittum við Elísu Sól síðast í fermingunni hennar fyrir nokkrum vikum síð- an, fallega og stolta. Athöfnin og veislan gleymist aldrei, þvílík reisn, dugnaður og töffaraskapur. Elísa Sól mun ávallt eiga stóran part í hjörtum okkar enda gaf hún okkur meira en við gátum nokk- urn tímann gefið henni. Eftirsjáin er mikil en við trúum því nú þegar hún er laus við verki og þjáningar að henni líði vel með öllum hinum englunum. Elsku Sonja, Tómas, Sandra Ýrr, Lúkas Nói og Karitas Ylfa, mikið höfum við dáðst að sam- heldni ykkar og dugnaði í veikind- um Elísu Sólar, þið eruð einstök. Missir ykkar er mikill en minn- ingin um yndislega stúlku lifir. Kæra fjölskylda og aðrir ástvinir, okkar innilegustu samúðarkveðj- ur á erfiðum stundum. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Harpa, Vignir, Sandra, Gunnur og Magnea. Í dag kveðjum við Elísu Sól sem var nemandi okkar í Hraun- vallaskóla. Bjartsýni og þor eru þau orð sem koma upp í hugann þegar við hugsum til hennar. El- ísa Sól var einstaklega jákvæður og duglegur nemandi sem hafði góða nærveru. Það var alltaf stutt í brosið hjá henni og hún lét fátt stöðva sig. Það var sama hvernig viðraði, alltaf kom hún sjálf á „bílnum“ sínum í skólann. Hún lét sig aldrei vanta í vettvangsferðir með skólafélögum sínum og eft- irminnileg er 5 daga ferð í skóla- búðir að Reykjum í Hrútafirði í mars síðastliðnum. Þar skemmti Elísa Sól sér vel í hópi skólafélaga. Hún hafði yndi af því að elda mat, syngja og spila og beið slíkra stunda með eftirvæntingu. Hún notaði óspart þau tækifæri sem gáfust til að syngja og koma fram í skólanum. Um leið og við kveðjum Elísu Sól þökkum við henni fyrir allt sem hún, með æðruleysi sínu og lífsgleði, kenndi okkur á leið okkar til aukins þroska. Nemend- ur og starfsfólk Hraunvallaskóla senda fjölskyldu Elísu Sólar og ástvinum öllum innilegar samúð- arkveðjur. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Minning Elísu Sólar er ljós í lífi okkar. Björk, Guðrún og Sigrún. Fyrir fimm árum urðum við þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að kynnast henni Elísu Sól. Hún kom inn í líf okkar sem skær og geisl- andi Sól og lýsti okkur og kenndi okkur svo ótrúlega margt á sinni stuttu ævi. Hugrekki hennar og æðruleysi gagnvart sjúkdómi sín- um var aðdáunarvert. Elísa Sól var ákveðin og vissi hvað hún vildi og alltaf var stutt í glettnina og gleðina hjá henni. Við þökkum fyrir allar yndis- legu stundirnar sem við fengum að eiga með Elísu Sól. Minningar um brosandi, káta stúlku munu ylja okkur um ókomin ár. Elsku Sonja, Tómas, Sandra Ýrr, Lúkas Nói, Karítas Ylfa og aðrir ástvinir, megi góður Guð gefa ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Bylgja, Sveinn, Sóldís, Vigdís og Rósa Dís. Í dag kveðjum við vinkonu okk- ar Elísu Sól, sólina sem lýsti upp umhverfi sitt. Frjáls. Fjötrar horfnir. Friðurinn eini sanni, tekur á móti nýju fallegu ljósi. Geislandi ljós, sem lýsir upp allt í himnasal. Falleg sál með geislandi bros, frjáls ferða sinna. Sálin hleypur, hjólar og dansar í himnasal. Sálin er Sólin, litla fallega Sólin. (Ingunn Erla Ævarsdóttir) Guð geymi þig, elsku Elísa Sól, minning þín lifir í hjörtum okkar. Elsku Sonja, Tómas, Sandra Ýrr, Lúkas Nói, Karítas Ylfa og aðrir ástvinir, okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Megi góður Guð vera með ykkur og styrkja á þess- um erfiðu tímum. Ykkar vinir, Dóra Sif, Elva Eir, Eva Dögg, Harpa, Hólmfríður (Didda), Hrönn, Ingunn, Íris, Rakel, Vigdís og fjölskyldur. Litla fallega Sólin mín. Það er morgunn á Íslandi en sólin er að setjast hérna á Hawaii þegar síminn hringir og ég fæ fréttirnar um að þú sért dáin. Ó hvað það er erfitt að vera svona langt í burtu frá þér núna. En minningarnar streyma og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér, litla hetjan mín. Ég mun aldrei gleyma því hvernig við sungum saman með útvarp Lata- bæ, þegar við fífluðumst í sundi, bökuðum kökur og föndruðum margar klukkustundir í röð. Það hefur gefið mér og allri minni fjölskyldu virkilega mikið að fá að kynnast þér. Þú hafðir þetta fallega bros sem þú notaðir óspart og settir svo líka upp sér- stakt risabros fyrir mig og mömmu og hélst því svo þannig þangað til að allir voru farnir að skellihlæja. Það er líka alveg á hreinu að það mun enginn segja „pulsa“ á mínu heimili eftir miklar málfarsleiðréttingar af þinni hálfu, við fáum okkur bara „pyls- ur“. Það að hafa fengið að fara með þér og systur þinni til Lego- lands í vor var ómetanlegt. Þú varst svo spennt að segja mér frá því að þú værir að fara þangað og þú ljómaðir eins og sólin þegar þú bauðst mér með. Þú varst líka svo glöð að segja mér að þú myndir fermast í sumar og frá ferming- arkjólnum þínum sem var saum- aður bara handa þér. Elsku Elísa Sól. Ég er svo leið yfir því að geta ekki fylgt þér til hinstu hvílu, en ég mun hugsa til þín og yndislegu fjölskyldunar þinnar og ætíð minnast þín. Ég heimsæki svo fal- lega leiðið þitt þegar ég kem heim og færi þér blóm og kveiki á kerti fyrir þig. Þín vinkona Harpa Björk Hilmarsdóttir. Elsku Elísa Sól mín, takk fyrir allt yndislega spjallið sem við átt- um í vetur. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Guðmunda (Munda ritari.) Þakklæti og virðing er okkur efst í huga þegar við kveðjum elskulegu Elísu Sól hinstu kveðju. Elísa Sól hóf skólagöngu sína í Hraunvallaskóla haustið 2006 þá í 3. bekk og kenndum við henni til vorsins 2009. Hún var einstaklega listræn, glaðlynd og námsfús. Að hafa fengið að kynn- ast henni er okkur dýrmætara en orð fá lýst. Í baráttu sinni við veikindin sýndi hún mikinn þroska og æðruleysi samhliða því sem hún gat gefið af sinni ein- lægni til okkar. Söknuður okkar allra er sár. Elísa Sól kveður umvafin ást- ríkri fjölskyldu, vinum og ein- stökum foreldrum þeim Sonju og Tómasi, missir þeirra er mikill. Fegurðin er frá þér barst, fullvel þótti sanna, að yndið okkar allra varst, engill meðal manna. Hlutverk þitt í heimi hér, þú hafðir leyst af hendi. Af þeim sökum eftir þér, Guð englahópa sendi. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (B.H.) Við vottum Sonju, Tómasi og fjölskyldunni allri innilega samúð og megi Guð færa þeim styrk á slíkri sorgarstund. Hulda Björk og Theódóra. MINNINGAR 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 V i n n i n g a s k r á 16. útdráttur 18. ágúst 2011 A ð a l v i n n i n g u r Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 2 9 7 9 4 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2 9 0 9 2 3 0 7 3 6 6 5 0 8 7 7 0 2 6 1 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 22413 29295 31914 38286 58168 62528 23667 31271 36189 40726 62341 75578 V i n n i n g u r Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur) 4 5 4 1 2 8 1 8 2 0 8 7 2 3 4 6 4 2 4 0 8 3 4 4 9 8 3 9 5 9 8 0 5 7 0 9 1 6 1 9 2 0 1 5 5 1 8 2 3 0 0 4 3 5 0 9 0 4 0 9 0 4 4 9 8 6 7 6 4 0 1 6 7 1 0 1 4 3 9 4 6 1 6 4 1 4 2 3 0 0 8 3 6 6 0 2 4 3 6 1 6 5 0 3 1 9 6 5 6 8 2 7 1 4 8 9 4 4 2 6 1 8 0 4 6 2 6 2 4 5 3 6 6 6 9 4 4 7 1 6 5 2 7 2 8 6 6 2 6 0 7 1 6 8 8 7 3 9 7 1 8 4 6 6 2 7 3 0 6 3 7 3 2 9 4 5 6 2 7 5 2 9 5 1 6 6 5 1 6 7 4 3 8 1 8 1 6 5 1 8 8 7 6 3 0 0 3 3 3 7 3 9 1 4 5 6 8 9 5 5 6 1 4 6 6 6 5 1 7 5 2 7 1 8 7 2 7 2 0 5 2 5 3 0 1 9 4 3 7 4 4 1 4 6 2 4 5 5 6 4 9 2 6 7 0 7 1 7 5 5 5 2 9 3 7 7 2 0 6 2 4 3 1 4 2 8 3 8 1 8 0 4 7 3 6 8 5 7 0 8 4 6 8 2 7 0 7 7 3 4 8 1 0 8 5 7 2 0 7 2 0 3 3 8 5 4 3 9 5 1 1 4 8 6 0 5 5 8 2 8 6 6 9 1 6 2 7 8 1 2 8 1 2 2 9 3 2 0 7 4 3 3 4 6 4 1 4 0 4 2 8 4 9 7 2 5 5 9 7 2 0 7 0 3 4 6 7 8 4 6 8 V i n n i n g u r Kr. 9.000 Kr. 18.000 (tvöfaldur) 1 9 7 1 6 3 4 0 2 6 9 5 5 3 5 3 2 4 4 4 7 4 8 5 2 1 3 3 5 9 9 6 8 7 0 3 9 0 2 7 1 1 6 3 6 5 2 6 9 9 4 3 5 5 0 3 4 4 7 6 7 5 2 2 6 3 6 0 4 3 2 7 0 4 1 3 2 9 8 1 6 7 6 8 2 7 0 8 5 3 5 5 1 5 4 4 8 8 8 5 2 3 7 1 6 0 6 5 9 7 0 7 8 3 1 7 7 6 1 6 8 5 2 2 7 1 2 1 3 6 0 0 0 4 4 9 1 3 5 2 7 5 0 6 0 8 9 2 7 1 0 5 2 1 8 9 5 1 7 0 4 8 2 7 2 0 2 3 6 2 2 5 4 4 9 2 6 5 2 9 1 4 6 1 2 1 5 7 1 1 1 2 2 1 4 9 1 7 2 3 5 2 7 2 1 2 3 7 1 8 1 4 5 0 7 6 5 3 0 0 9 6 2 0 4 9 7 1 3 6 9 2 1 5 0 1 8 6 8 6 2 7 2 4 6 3 7 2 7 7 4 5 6 6 0 5 3 0 1 2 6 2 1 6 8 7 1 4 3 1 2 3 7 8 1 9 2 3 8 2 7 3 1 1 3 7 8 8 9 4 6 0 7 4 5 3 2 7 2 6 2 2 7 5 7 1 6 4 5 2 4 1 7 1 9 4 3 2 2 7 7 4 2 3 8 5 9 3 4 6 1 3 3 5 3 4 0 5 6 2 3 9 8 7 2 0 4 1 2 9 3 7 2 0 4 5 3 2 7 8 2 5 3 8 7 2 6 4 6 4 0 0 5 3 9 2 3 6 2 4 7 2 7 2 5 0 1 3 1 2 5 2 0 5 6 0 2 7 9 5 9 3 8 7 3 4 4 6 5 8 9 5 3 9 2 7 6 2 5 4 0 7 2 5 2 2 3 4 3 3 2 1 2 2 8 2 7 9 8 4 3 8 8 4 1 4 6 6 6 3 5 3 9 5 5 6 2 6 1 6 7 2 9 8 1 5 2 2 5 2 1 8 0 0 2 8 6 3 5 3 9 2 1 7 4 6 6 9 3 5 4 1 7 6 6 2 9 0 6 7 3 6 5 4 5 5 4 4 2 2 1 8 5 2 8 7 2 3 3 9 6 3 1 4 6 8 4 6 5 4 3 7 0 6 3 4 5 9 7 3 6 5 8 5 7 4 5 2 2 3 7 0 2 9 1 2 6 3 9 7 5 2 4 6 8 9 7 5 4 6 1 9 6 3 6 1 0 7 5 6 5 6 6 4 2 7 2 2 4 2 6 2 9 1 3 9 4 0 0 6 4 4 7 1 0 0 5 4 6 9 1 6 4 7 2 1 7 5 6 8 7 6 5 3 4 2 2 7 7 5 3 0 3 6 1 4 0 2 9 7 4 7 7 6 2 5 4 7 2 2 6 4 8 1 0 7 5 8 0 4 7 3 2 1 2 2 8 4 7 3 0 5 5 5 4 0 3 5 0 4 8 7 8 9 5 4 8 3 1 6 4 9 8 9 7 6 0 2 1 7 6 3 3 2 3 2 6 6 3 2 1 9 7 4 1 0 7 1 4 8 8 8 6 5 5 0 1 0 6 5 3 8 0 7 6 2 5 6 8 7 3 9 2 3 3 5 0 3 2 3 9 2 4 1 1 2 3 4 9 0 2 4 5 5 7 0 7 6 5 4 9 3 7 6 7 3 8 9 2 6 5 2 3 6 8 2 3 2 4 1 8 4 1 7 1 4 4 9 2 6 7 5 6 0 4 5 6 5 8 5 5 7 7 9 3 7 9 4 0 2 2 3 9 2 0 3 2 9 2 5 4 2 0 1 4 4 9 5 2 5 5 6 4 2 9 6 6 0 3 3 7 7 9 5 9 9 5 5 5 2 4 3 5 9 3 3 1 3 9 4 2 0 3 0 4 9 9 4 1 5 6 7 5 2 6 6 4 3 1 7 8 2 0 8 1 1 0 2 3 2 4 3 7 0 3 3 2 2 8 4 2 3 1 0 4 9 9 8 8 5 7 9 6 2 6 6 8 3 4 7 8 6 8 9 1 1 0 3 4 2 5 3 0 1 3 3 2 5 2 4 2 5 3 9 5 0 0 0 6 5 8 2 4 2 6 7 4 0 8 7 9 1 4 8 1 1 3 0 6 2 5 3 5 2 3 3 3 2 9 4 3 4 9 0 5 0 0 3 4 5 8 3 4 4 6 7 8 7 8 7 9 5 9 5 1 1 5 1 5 2 5 3 8 4 3 3 3 8 4 4 3 8 0 6 5 0 4 1 3 5 8 6 0 3 6 8 0 4 6 1 1 7 8 9 2 5 4 3 0 3 3 3 8 8 4 3 8 9 7 5 0 5 4 0 5 9 0 0 2 6 8 3 1 3 1 2 2 3 6 2 6 1 7 6 3 3 7 5 0 4 3 9 9 5 5 0 5 9 5 5 9 0 0 3 6 8 9 9 1 1 2 3 7 6 2 6 2 6 4 3 3 7 8 9 4 4 1 6 1 5 0 6 9 5 5 9 7 9 3 6 9 2 6 6 1 2 9 6 7 2 6 6 6 1 3 4 3 3 9 4 4 3 4 1 5 0 7 9 9 5 9 8 5 1 6 9 6 0 8 1 3 9 6 0 2 6 6 7 1 3 5 2 2 5 4 4 3 6 0 5 0 8 4 1 5 9 8 7 3 7 0 3 3 6 Næstu útdrættir fara fram 25. ágúst & 1. sept 2011 Heimasíða á Interneti: www.das.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.