Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 33

Morgunblaðið - 19.08.2011, Side 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 ✝ Magnús Al-bertsson fædd- ist í Reykjavík 24. febrúar 1932. Hann lést á Líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 8. ágúst 2011. Foreldrar hans voru Albert Guð- björn Pálsson, f. 11.9. 1893 í Reykjavík, d. 17.11. 1971 og Ragnhildur Sumarlína Magnúsdóttir, fædd á Akranesi 22.10. 1902, d. 4.7. 1967. Systkini Magnúsar eru: Ingibjörg Albertsdóttir f. 29.12. 1930, alsystir. Sam- mæðra eru: Sigurður Kjart- ansson f. 17.6.1928, d. 27.3. 1998, Ágúst Kjartansson, Einar Mýrkjartansson f. 26.5. 1937, d. 11.4. 2000, Ósk Elín Jóhann- esdóttir Birkiland f. 21.2. 1941, Æska Björk Jóhannesdóttir Birkiland f. 21.2. 1941, Unnur Ragnhildur Jóhannesdóttir Birkiland f. 1.4. 1942. Magnús giftist 25.12. 1965 Fanneyju Sigurgeirsdóttur f. 29.5. 1932, d. 2.3. 2010. For- eldrar hennar voru Sigurgeir Björnsson f. 25.10. 1899, d. 18.11. 1943, frá Gafli í Flóa og Fanney Jónsdóttir f. 7.3. 1909, d. 26.10. 1943 frá Bræðr- Osta- og smjörsölunni, Um- búðamiðstöðinni og síðustu ca tíu árin hjá Kassagerð Reykja- víkur en þar lauk hann starfs- ævi sinni 67 ára að aldri. Magnús bjó nær alla sína tíð í Reykjavík, á Sogavegi, í tæp 40 ár í Neðra-Breiðholti og síð- ast í Grafarvogi, að und- anskildum fimm árum á Akra- nesi og áður nefndum tíma á æskuárum í Pétursey og Gröf við Laugarvatn, en bæði þau heimili reyndust honum vel. Magnús var hæglátur maður og tillitssamur. Vildi öllum vel og mátti ekkert íllt sjá. Og gjafmildur með eindæmum. Hann var vinsæll kokkur og eftirsóttur í skipsplássum. Hann bjó til góðan mat og bak- aði mikið. Hann var mjög hreinlegur bæði til sjós og heima og fljótur að vinna verk- in. Magnús elskaði að ferðast um landið. Við 68 ára aldur greindist kona hans með Alz- heimer-sjúkdóminn og annaðist hann þá konu sína mjög vel og hugsaði um heimilishaldið og gerði það vel. Kona hans lést 2. mars á síðasta ári og var andlát hennar honum þung- bært en viss léttir að hún fékk hvíld frá sínum veikindum. Ná- kvæmlega mánuði fyrir andlát sitt greindist Magnús með krabbamein á lokastigi, sem hann hafði að öllum líkindum verið með lengi. Útför Magnúsar Alberts- sonar fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 19. ágúst 2011, og hefst athöfnin kl. 15. arborg, Seyð- isfirði. Magnús og Fanney eignuðust tvö börn. 1) Ásdísi Margréti f. 15.8. 1956, gift Þór Kristjánssyni f. 31.5. 1953, börn þeirra: a) Magnús Kristján f. 23.9. 1976, í sambúð með Ólínu Kristínu Jónsdóttur b) Sol- veig Margrét f. 26.4. 1979, son- ur hennar Ásþór Breki f. 28.4. 2003 c) Fanney Bjarnþrúður f. 11.4. 1984. 2) Ágúst f. 15.7. 1966. Magnús bjó hjá móður sinni og föður til fjögra ára en þá slitu þau samvistum og var hún þá ein með fjögur börn. Hann fer síðan í sveit sjö ára gamall í Pétursey í Mýrdal og er þar til tólf ára er hann fer í Gröf í Laugardal við Laug- arvatn og er til fimmtán ára, en þá fer hann til Reykjavíkur. Magnús hlaut barnaskóla- menntun og fór ungur til sjós eða fimmtán ára. Magnús var háseti og síðar matsveinn á fiskiskipum og strand- ferðaskipum. Hann hætti til sjós rúmlega fimmtugur og fór þá til starfa í landi hjá Græn- metisverslun Landbúnaðarins, Elsku besti pabbi minn. Ég er varla búin að átta mig á að þú sért dáinn. Þetta gerðist svo snöggt, tók aðeins fjórar vik- ur frá þú greindist með krabba- meinið og þar til þú varst dáinn. En nú ertu laus við kvalirnar og kominn til mömmu sem þú sakn- aðir sárt. Ég á margar yndislegar minn- ingar um þig, elsku pabbi minn. Hve þú varst blíður, og hve gott var að skríða í faðminn þinn þeg- ar þú varst í landi. Þú kenndir mér bænirnar, og við fórum með þær saman er ég fór að sofa. Ég var svo hreykin að eiga svona fal- legan og góðan pabba, alltaf í stífpressuðum jakkafötum og frakka sem mamma hafði press- að og vel greiddur, þegar þú og dótlan þín, en það kallaðir þú mig oft og eins Dísina þína, fóru á sunnudögum þegar þú varst í landi, niður á tjörn og bryggju að skoða bátana. Seinna þegar ég var sextán ára að vinna í frysti- húsinu í Grindavík komst þú af sjónum, en þú varst á bát frá Grindavík og heimsóttir mig, Stelpurnar voru mjög forvitnar, hvaða fallegi gæi þetta væri og héldu að þú værir bróðir minn eða kærasti en ekki pabbi minn. Þegar við áttum heima í Mel á Akranesi sá ég þegar báturinn kom í land og hljóp niður á bryggju og um borð. Þar var svo margt að sjá, fullur bátur af þorski. Þá gafstu mér brauð sem þú bakaðir og var bátabragð af því en mér þótti það svo gott. Elsku pabbi, þú elskaðir að ferðast um landið, með fjölskyld- unni, fyrst áttum við tjald, svo hústjaldið og síðan tjaldvagninn og svo ferðabíllinn. Ófáar ferðirn- ar voru farnar á Þingvöll með teppi og vínarbrauðin og snúðana hennar mömmu, fundin falleg laut og sest niður og drukkið kaffi og kakó. Þá fórum við út á árabát á Þingvallavatn sem þú rérir en aldrei var ég hrædd því ég vissi að þú varst svo fær sjómaður. Þú varst mikill sóldýrkandi og sund- garpur og hafðir sundskýluna allt- af með, og syntir í vötnum og ám og meira segja í Norðursjónum er þú varst á síld. Við fórum mikið saman í sund og seinna barna- börnin þín með. Þú varst alltaf á fallegum og vel bónuðum bílum svo þeir glömp- uðu, eins var heimilið ykkar mömmu, og þegar mamma veikt- ist og þú hugsaðir um hana og heimilið var alltaf svo hreint hjá þér og gólfin gljábónuð. Þú varst alltaf að baka og allir minnast góðu formkökunnar þinnar og vafflnanna með rjóma. Alltaf um jólin bjóstu til besta kakó sem við fjölskyldan höfum drukkið og með rjóma út í. En það var búið til úr ekta síríussúkkulaði. Mikið varstu ánægður þegar þú fékkst afastrák og nafna, og ekki síður þegar afa- stelpurnar fæddust, þú varst afa- börnunum þínum góður og líka langafastráknum þínum. Elsku pabbi minn, ég þakka þér fyrir að hafa átt alla elsku þína og væntumþykju. Þakka þér fyrir að vera börnunum mínum svo góður. Ég sakna þín mikið, elsku pabbi minn. Ég kveð þig með versinu sem þú fórst alltaf með, með mér, fyr- ir svefninn er ég var lítil. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín dótla, Ásdís Margrét. Elskulegi pabbi. Þá ertu far- inn frá mér, ég er eiginlega ekki almennilega búinn að átta mig á því enn, svo stutt síðan ég var með þér uppi á spítala að hjálpa þér eins og ég gat í þessum veik- indum þínum. Ég vildi svo fá að sýna þér hversu vænt mér þætti um þig með, m.a. að sýna þér all- an minn stuðning og vera þér til hjálpar í þessum veikindum. Hafði hugsað mér að sýna þér elsku mína og hjálpa þér ef þú kæmir heim aftur eða þá á líkn- ardeildinni eða ef þú færir á hjúkrunarheimili. En þakka fyrir að fá að hugsa um þig síðustu vikurnar sem þú varst heima. En þú ert verkjalaus og það er mik- ilvægt. Ég var búinn að vonast til þess að fá að vera með þér lengur, þú hefur verið mér svo mikilvægur. En nú ert kominn til mömmu og gott að aðskilnaður ykkar varð ekki langur. Og eftir langan að- skilnað hittirðu á ný mömmu þína og pabba og bræður þína. Ég er þakklátur fyrir að ég fékk að vera hjá þér síðasta sólarhring lífs þíns og halda í hönd þína og strjúka enni þitt. Ég veit að þú og mamma þið vakið núna yfir mér. Þetta hefur verið erfiður tími síðan þú fórst en ég er sterk- ur. Ég er svo þakklátur fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og það var svo mikið, vildir allt fyrir mig gera. Nú ætla ég rétt að fara yfir nokkrar af minningum mínum um þig. Byrjar það á bíltúrum, þegar ég var yngri, niður á höfn að skoða skipin sem hefur ávallt fylgt mér enda fer ég reglulega niður á höfn að skoða skipin. Það var líka eitt af því síðasta sem við gerðum saman þar sem ég keyrði okkur niður að höfn að skoða skipin áður en við fórum upp á spítala um daginn. Þá man ég eftir ferðum á bílasölur að skoða nýjustu bílana, þú hafðir yndi af því og þú fórst með þegar ég fór í að kaupa mér bíl og gafst þín ráð. Man eftir ferðum með þér út á sjó sem krakki og fannst mér það meiriháttar gaman, t.d. á Heklunni og Esjunni og man ég hvað ég var sjóveikur fyrsta dag- inn. Góðu matarlyktinni og því hvað mér fannst ömurlegt að vera sjóveikur og geta ekki borð- að þinn góða mat, en það lagaðist alltaf á öðrum degi og eftir það gat ég borðað þinn góða mat sem þú eldaðir og það var sko góður matur. Heima gerðir þú líka góðan mat og góðar kökur og oft bak- aðirðu í seinni tíð að minni ósk marmaraköku sem er mitt uppá- hald. Þá man maður jólin með þér, jólagjafirnar, jólaboðið þeg- ar þú bauðst fjölskyldunni allri og gerðir þitt góða heita kakó. Þá man ég öll ferðalögin sem við fór- um í, tjaldferðalögin fyrst, svo hústjaldið, svo tjaldvagninn, loks húsbílarnir. Þetta voru allt minn- isstæðar og góðar ferðir og oft með stórfjölskyldunni. Þér fannst svo gaman að ferðast og líka fara í dagsbíltúra út á land. Gaman var að stinga sér til sunds með þér víða í lækjum og ám, erf- itt var það en tókst. Eftir að ég fékk bílpróf var það oft sem þú leyfðir mér að keyra og vil ég þakka þér það og líka þakka hve oft þú lánaðir mér þinn bíl ef ég þurfti á bíl að halda. Þú vildir ávallt hafa bílana þína hreina og nýbónaða og gerðir mína bíla líka oft flotta, takk fyrir það. Þakka þér hvað þú hugsaðir vel um mömmu í veikindum hennar. Guð blessi minningu Magnús- ar Albertssonar. Þinn sonur, Ágúst Magnússon. Elsku afi minn. Nú ertu laus við þennan hræðilega sjúkdóm sem þú greindist með fyrir rúmum 3 vik- um síðan. Ég hélt að þú myndir ekki fara alveg svona fljótt. Ég hélt þú myndir ná að hitta litla bumbukrílið mitt áður en þú myndir kveðja. En í dag er ég svo fegin að þú fékkst að fara í stað þess að kveljast. Ég veit þú hefur núna hitt hana ömmu og þið vakið yfir okkur hinum. Ég er sest hér niður til að minnast í nokkrum orðum hans besta afa míns sem var alltaf svo góður við mig. Ég man öll skiptin sem ég kom og fékk að gista hjá ykkur ömmu, að við fórum alltaf saman niður á bryggju að skoða skipin. Þér þótti rosalega gaman að bjóða okkur fjölskyldunni til ykkar í kaffi. Og þá fékk maður vöfflur, formköku og heimalagað heitt kakó. Ég mun sakna mikið að fá ekki kakóið þitt og formkökurnar þínar. Þú varst svo duglegur að baka þær og bjóða okkur. Ég man öll ferðalögin með ykkur. Ég sótti mikið til ykkar í húsbílinn og þú gafst stelpunni þinni eitthvað að borða og síðan var oft spilað saman. Þú kenndir mér að leggja kapal enda var það ekki sjaldan sem þú sast heima og lagðir kapal. Þú varst algjör bílakarl og hugsaðir svo vel um bílana þína og bónaðir þá og sjaldan sem bílarnir þínir voru skítugir. Þú varst alltaf á bílasöl- um að skoða bíla. Og þegar við systkinin keyptum okkur bíla þá fékkstu að skoða og prufa þá. Þér þótti líka ósköp gaman að börnum og ég var dugleg að koma í heimsókn með börnin sem ég var að passa til ykkar ömmu. Þú kenndir þeim að spila eins og mér. Á jólunum fékkstu oft bæk- ur og varst ekki lengi að lesa eina bók. Þér þótti svo gaman að lesa skemmtilegar bækur. Elsku afi minn, takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég mun geyma allar minning- arnar um þig og segja litla barninu mínu frá þeim og hversu góður og yndislegur þú vast. Kysstu ömmu mína frá mér og ég skal passa börnin þín, barna- börn, barnabarnabörn og tengdabörn fyrir þig. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. (Bubbi Morthens.) Þitt barnabarn, Fanney Bjarnþrúður Þórsdóttir. Nú er elsku afinn minn farinn. Ekki bjóst ég við að hann myndi fara svona fljótt frá okkur á aðeins 4 vikum. Eftir að við fengum þær slæmu fréttir að þú værir kominn með krabbamein reyndi ég eins og ég gat að koma sem oftast að heilsa upp á þig á spít- alann. Það eru svo margar minning- ar að ég veit hreinlega ekki hvar ég á að byrja. Ég minnist þess þegar ég gisti hjá ykkur ömmu og amma var að vinna og við fór- um að gefa öndunum brauð og niður á bryggju að skoða bátana og þú sýndir mér bátana eins og þú varst á. Ég minnist þess þó mest þeg- ar ég kom alltaf með börnin sem ég var að passa hvað þú tókst alltaf vel á móti þeim og vildir alltaf bjóða þeim upp á kökur sem þú bakaðir og kex. Og þegar kalt var úti þá passaðir þú alltaf upp á að ég klæddi börnin vel áð- ur en ég færi með þau út. Svo man ég hvað mér þótti gaman að fá að gista í ferðabíln- um ykkar ömmu, þegar við vor- um í ferðalögunum með fjöl- skyldunni, en þú naust þess að ferðast um landið, og þegar við fórum að veiða á Eyrarvatni og allar ferðirnar okkar í Skorra- dalinn, þið amma ferðuðust svo mikið með okkur. Minnist þess líka þegar við bjuggum í Dúfnahólum og þú komst alltaf með stórt Sirius- súkkulaði handa mér og systk- inum mínum. Varst alltaf svo rólegur og góður, vildir allt fyrir alla gera. Skammaðir okkur aldrei þegar við vorum lítil – varst alltaf svo jákvæður. Þegar þú fréttir að ég væri ólétt varstu svo spenntur að fá lítinn langafaprins loksins. Þið amma sáuð ekki sólina fyrir hon- um. Og þú hafðir oft svo miklar áhyggjur að veikindum hans og vildir alltaf að ég færi strax með litla prinsinn til læknis (það á ekki bíða með að fara með hann til læknis eins og þú orðaðir það). Og eftir amma fékk Alzheim- er-sjúkdóminn, það tók mikið á þig en þú varst alltaf svo dugleg- ur að sinna henni heima og eins þegar hún var kominn á dval- arheimili að heimsækja hana og sinna henni. Það tók mikið á þig að missa hana ömmu. En þú varst duglegur að fara út að rúnta á daginn og kíkja í kirkju- garðinn til ömmu. Elsku afi minn, nú ertu búinn að fá hvíldina þína og amma búin að taka á móti þér og þið búin að hittast á ný. Ég sakna þín svo mikið, elsku afi minn og veit að nú líður þér vel. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Mun alltaf elska þig og minn- ast þín. Elska þig. Þín dótturdóttir, Solveig. Magnús Albertsson Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Dýrahald Yndislegar pomeranina-tíkur, mjög fallegar, til sölu. Ættbók fylgir og örmerktar. Heilsubók fylgir. Uppl. í s. 663 2174 / 776 2174 / 552 2174. Einn yndislegur rakki eftir til sölu. Frábærir fjölskyldu- og veiðihundar. www.leirdals.is Upplýsingar í síma 868-9455. Húsnæði óskast Þriggja manna fjölskyldu vantar íbúð Erum hjón með eina 7 ára að flytja frá Egilsstöðum í nám, vantar 3 her- bergja íbúð á höfuðborgarsvæðinu, helst í nágrenni við Háskóla Reykja- víkur en allt kemur til greina. Reyk- laus og reglusöm. Erum að leita að langtímaleigu. Árni Gissurarson, s. 868 9406. Óska eftir Kaupi silfurVantar silfur til bræðslu og endur- vinnslu. Fannar verðlaunagripir. Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi. fannar@fannar.is - s: 551-6488 KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfur- borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar- leg viðskipti. Aðeins í verslun okk- ar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL! Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða- meistari, kaupi gull, gullpeninga og gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns og fáið góð ráð. Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13 (við Austurvöll). Verið velkomin. Mótorhjól Til sölu Honda Shadow 750 Árgerð 2007, ekið 14 þús. km, með ýmsum aukahlutum. Vel með farið. Tilboð óskast. Upplýsingar í síma 695 5125.HYMER sjálfskiptur Til sölu Fíat Hymer T574GT árg. 2006, ekinn 18 þús. km. Diesel 2,8 sjálf- skiptur. Glæsilegur bíll. LÆKKAÐ VERÐ 8,9 MILLJ. Allar uppl. í síma 431-2622 og 775-8212. Husaberg 450 FE árgerð 2007 Til sölu Husaberg 450 FE nýskráð 2007. Ekið rétt um 3300 km. Topp viðhald. Verð 510 þ. Meiri upp.l: snazzi.mar@gmail.com 846-4771 Húsnæði óskast til leigu 25 ára kona í háskólanámi óskar eftir húsnæði til leigu í Reykjavík eða Kópavogi, greiðslugeta leigu er 100 þús. kr á mánuði. Ég er reyklaus, ábyrg og reglusöm, heiti skilvísum leigugreiðslum og góðri umgengni. Íris, irp1@h.is Húsbílar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.