Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 35

Morgunblaðið - 19.08.2011, Page 35
DAGBÓK 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Orð dagsins: Ef einhvern ykkar brest- ur visku, þá biðji hann Guð, sem gefur öllum örlátlega og átölulaust, og hon- um mun gefast. (Jak. 1, 5.) Krossgáta Lárétt | 1 afkastamikil, 8 korn, 9 drekkur, 10 fyrir ut- an, 11 afkomanda, 13 fugls, 15 þref, 18 hellir, 21 rödd, 22 smá, 23 báran, 24 þekkingin. Lóðrétt | 2 starfið, 3 dugleg- ar, 4 duglega, 5 niðurgang- urinn, 6 ótta, 7 illgjarn, 12 for, 14 auðug, 15 geta borið, 16 hindra, 17 vitlaus, 18 klettur, 19 rotni, 20 iðju- sama. Lausn síðustu krossgátu Lárétt 1 þukla, 4 bólur, 7 æsing, 8 næpum, 9 apa, 11 arar, 13 garn, 14 ólata, 15 barm, 17 tjón, 20 ham, 22 tolla, 23 áttur, 24 rausa, 25 terta. Lóðrétt 1 þræta, 2 keika, 3 auga, 4 bana, 5 loppa, 6 ráman, 10 plata, 12 róm, 13 gat, 15 bútur, 16 rellu, 18 játar, 19 narra, 20 hala, 21 mátt. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 19. ágúst 1959 Á forsíðu Morgunblaðsins birtust tvær myndir frá lands- leik Dana og Íslendinga í Kaupmannahöfn daginn áður, en leiknum lauk með jafntefli. Þetta voru fyrstu símsendu fréttamyndirnar sem birtust í íslensku blaði. 19. ágúst 1993 Íslenskir togarar hófu veiðar utan 200 mílna landhelgi í svo- nefndri Smugu í Barentshafi. Þar með hófst Smugudeilan við Norðmenn. Áður höfðu færeyskir togarar undir henti- fána stundað veiðar þar og landað aflanum meðal annars hér á landi. Samningar tókust árið 1999. 19. ágúst 2000 Tugir þúsunda manna fylgd- ust með stærstu flugeldasýn- ingu hér á landi en hún var haldin í tilefni aldamótaársins og í tengslum við menning- arnótt í Reykjavík. Skotið var upp fimm tonnum af flug- eldum. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… „Ég ætla að borða með fjölskyldunni og bjóða svo vinum og vandamönnum í veislu – eða meira svona partí um kvöldið,“ segir Daníel Baldursson sem heldur upp á þrjátíu ára afmælið í dag. Daníel er Hafnfirðingur og starfar sem vélvirki hjá verk- taka við álverið í Straumsvík. Aðspurður hvernig fertugsaldurinn legðist í hann svaraði Daníel: „Ég veit það ekki, það fer eftir því hvernig á það er lit- ið. Svolítið skrítin tilfinning en aðallega af hinu góða. Aldur er jú afstæður.“ Daníel er mikill áhugamaður um knattspyrnu og er gallharður stuðningsmaður FH á Íslandi og Arsenal í ensku deildinni. Hann hefur verið virkur í Mafíunni sem er stuðningsmanna- félag Fimleikafélagsins og reynir að fara á flesta leiki félagsins. Daní- el er líka mikill áhugamaður um veiði og reynir að stunda það áhuga- mál af kappi. Eins og fyrr segir stefnir Daníel á að halda upp á afmælið með gleðskap í kvöld. Af þeirri ástæðu býst hann ekki við að hlaupa maraþon í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun þar sem hann reiknar frekar með að sofa út eftir gleði kvöldsins í kvöld. Hann seg- ist þó eflaust ætla að kíkja eitthvað til nágrannasveitarfélagsins Reykjavíkur í tilefni menningarnætur. hjaltigeir@mbl.is Daníel Baldursson vélvirki er þrítugur í dag Skrítin en góð tilfinning (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú verður að leggja af allan ving- ulshátt ef þú ætlar að ná takmarki þínu. Svo koma nýir tímar með nýjum, ekki síður spennandi verkefnum. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þér er ekki eðlislægt að taka nokkra áhættu svo þú skalt láta það eiga sig. Taktu því rólega og komdu jafnvægi á sjálfan þig. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Hlustaðu á þá sem vilja leiðbeina þér og gefa þér góð ráð, því þeir tala af reynslu. Mundu að útlit þitt sendir ákveðin skilaboð út í umhverfið. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi. Haltu þig bara við jákvæða hugsun og þá fer allt vel. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Til þín er leitað með forustu í ákveðnu máli. Náinn vinur eða maki reynir á þol- inmæði þína í dag. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Nú verður þú að láta til skarar skríða á grundvelli þeirrar vitneskju sem þú býrð yfir. Gefðu þér tíma til þess að fara í gegnum mál- in og skipuleggja framgang þeirra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Hafðu samband við þá sem skulda þér peninga eða hafa enn ekki skilað hlutum sem eru í þinni eigu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Eftirtektarsemi þín er með mesta móti núna, ekki síst þegar þú ert innan um fólk sem býr yfir leyndarmáli. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Svörin láta á sér standa þegar þú leitar þeirra. Byrjaðu bara og þú finnur það sem þú hefur þörf fyrir, líka rétta fólkið. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú gætir fundið til óvæntrar löng- unar til að sýna einhverjum ókunnugum góð- vild í dag. Eitthvað óvænt gerist sem mun veita þér mikla ánægju. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Tilboðin sem þér berast eru bæði mörg og margvísleg. Hlutirnir taka óvænta stefnu og áætlanir fara út í veður og vind. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það má alltaf græða á samtali við góðan mann, einkum ef hann deilir áhuga- málum með þér. Hugsaðu vítt. Stjörnuspá Sudoku Frumstig 5 4 1 8 7 9 2 8 7 4 5 2 1 5 2 9 9 5 6 1 7 2 6 4 1 8 5 9 6 1 5 3 6 6 2 8 9 7 6 8 2 2 5 3 1 8 7 6 3 1 9 4 6 5 8 1 7 4 6 1 3 8 4 5 3 9 8 5 6 9 4 9 8 5 1 6 3 7 2 6 1 5 7 2 3 8 9 4 7 2 3 8 9 4 5 1 6 1 4 7 2 3 8 6 5 9 3 6 2 4 5 9 7 8 1 8 5 9 1 6 7 2 4 3 2 7 4 6 8 1 9 3 5 5 3 1 9 7 2 4 6 8 9 8 6 3 4 5 1 2 7 1 4 9 8 6 7 5 2 3 5 3 6 4 9 2 1 7 8 8 2 7 3 1 5 6 4 9 6 7 2 9 5 3 8 1 4 9 5 4 1 7 8 2 3 6 3 8 1 6 2 4 9 5 7 7 9 5 2 4 6 3 8 1 4 6 8 5 3 1 7 9 2 2 1 3 7 8 9 4 6 5 4 1 3 6 5 7 8 2 9 5 7 9 2 1 8 4 3 6 2 8 6 4 3 9 7 1 5 7 9 4 5 2 3 6 8 1 8 5 2 9 6 1 3 4 7 3 6 1 8 7 4 5 9 2 1 3 5 7 8 2 9 6 4 6 4 8 1 9 5 2 7 3 9 2 7 3 4 6 1 5 8 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er föstudagur 19. ágúst, 231. dag- ur ársins 2011 Flestir hundar lifa algjöru hunda-lífi en til eru þeir sem eigend- urnir bera á höndum sér og þykir mörgum gjarnan nóg af hinu góða, svo vægt sé til orða tekið. x x x Kunningi Víkverja sagði sögu affrænkum og frændum. Hún hófst á því að hundamamma sendi annarri hundamömmu sms-skilaboð. Snjólfur segir mamma, sagði í skeytinu. Sú sem fékk skilaboðin var yfir sig hrifin og sagði frá hverj- um sem heyra vildi við misjafnar undirtektir. Þegar hún heimsótti næst frænku sína færði hún Snjólfi bókina Litlu gulu hænuna, kennslu- bók í lestri, frá hundinum Hnoðra með þeirri ósk að honum gengi vel í skólanum. x x x Þegar mamma Snjólfs endurgaltheimsóknina hafði hún með- ferðis bókina Leiðarvísi í ástar- málum eftir Ingimund gamla og var um að ræða gjöf frá Snjólfi til Hnoðra enda frændurnir komnir af gelgjuskeiðinu í hundaárum og farn- ir að líta í kringum sig. Skömmu síð- ar gaf Hnoðri Snjólfi sígildu bókina Sérherbergi eftir Virginiu Woolf í þýðingu Helgu Kress. Í meðfylgj- andi bréfi kom fram að Hnoðri hafði hafið nám í tíkafræði og vildi kynna Snjólfi kynjafræðisviðið með þeirri ósk að frændinn settist í sama bekk til að Hnoðri yrði ekki eini hund- urinn í tíkabekknum. Með fylgdi góð hundakveðja með ósk um samveru snemma á komandi hundaári. x x x Svo fór að Hnoðri og Snjólfur fóruí helgarferðir saman og léku sér saman í sveitinni upp til fjalla. Svo uppteknir voru þeir hvor af öðrum að þeir urðu viðskila við mömm- urnar og fundust ekki fyrr en í skipulagðri leit. Voru þeir þá komn- ir langt frá sveitabænum og langt út fyrir það rými sem þeim var ætlað. Enda fengu þeir að heyra það, voru skammaðir eins og hundar, hafa verið aðskildir síðan og lifað algjöru hundalífi. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Margfaldur misskilningur. V-NS. Norður ♠KD983 ♥G753 ♦108 ♣109 Vestur Austur ♠Á107 ♠G654 ♥D10 ♥864 ♦G43 ♦ÁD96 ♣Á8642 ♣G3 Suður ♠2 ♥ÁK92 ♦K752 ♣KD75 Suður spilar 3G dobluð. Hvernig í ósköpunum er hægt að lenda í 3G á þessa hunda? Það er saga að segja frá því. Spilið er frá úrslitaleik kvennabikarsins í Tórontó og Sabine Auken vakti í vestur á 10-12 punkta léttgrandi – pass og pass til Hjördísar Eyþórsdóttur í suður. Hún doblaði og Sabine redoblaði, sennilega til að segja frá fimm-spila lauflit. En makker henn- ar, Daniela von Arnim, var á annarri bylgjulend og tók út í 2♥ á þrílitinn! Mjög skrýtið og skýringalaust á Bridgebase. Sögnin rúllaði til Valerie Westheimers í norður, sem botnaði ekki neitt í neinu og stökk í 3♠. Hjördís gat ekki annað en breytt því í 3G, og Daniela doblaði auðvitað með sína 8 punkta. Það er svo önnur saga og lengri að Hjördís vann 3G. Reyndar er legan góð, en vörnin var líka pínulítið hjálpleg. Hlutavelta Guðbjörg Óskarsdóttir, syst- urnar Kristín Halldóra og Jón- ína Lilja Atladætur og Sigríður Rósa Atladóttir héldu tombólu við verslun Samkaupa við Byggðaveg á Akureyri. Þær söfnuðu 2.088 krónum sem þær styrktu Rauða krossinn með. Flóðogfjara 19. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.18 0,7 9.24 3,5 15.31 0,9 21.40 3,4 5.31 21.33 Ísafjörður 5.23 0,5 11.19 1,9 17.34 0,7 23.32 1,9 5.24 21.50 Siglufjörður 1.49 1,2 7.43 0,4 14.01 1,2 19.59 0,4 5.06 21.33 Djúpivogur 0.25 0,5 6.31 2,0 12.47 0,6 18.41 1,8 4.58 21.05 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Dxd4 Rc6 5. Bb5 Bd7 6. Bxc6 Bxc6 7. Rc3 h6 8. Be3 e5 9. Dd3 Rf6 10. O-O-O Dd7 11. Rd2 b5 12. Rd5 Bxd5 13. exd5 Be7 14. f3 Db7 15. Re4 Rxe4 16. fxe4 b4 17. Kb1 a5 18. g4 Bg5 19. h4 Bxe3 20. Dxe3 Hc8 21. g5 Dc7 22. Hc1 Dc5 23. Dg3 h5 24. g6 O-O 25. Hhg1 a4 26. Dg5 a3 27. Dxh5 fxg6 28. Dxg6 Hc7 29. Hg3 Staðan kom upp í A-flokki skákhá- tíðarinnar í Pardubice í Tékklandi sem lauk fyrir skömmu. Rússneski stór- meistarinn Viacheslav Zakhartsov (2578) hafði svart gegn heimamann- inum Jan Vrana (2308). 29… Dxc2+! og hvítur gafst upp enda óverjandi mát. Zakhartsov þessi var einn þeirra sem deildu öðru sæti mótsins með Hannesi Hlífari Stefánssyni. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.