Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 36
36 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Grettir Smáfólk Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand LÍSA, ÞÚ ERT YNDISLEG ERTU EKKI SAMMÁLA GRETTIR? JÚ! HÚN ER ALLTAF MEÐ NAMMI Í VESKINU SÍNU SNOOPY, ERTU TIL Í AÐ KOMA Í SMÁ BOLTALEIK? ÉG KASTA BOLTANUM OG ÞÚ SÆKIR HANN HVAÐ SEGIRÐU UM ÞAÐ? ERTU TIL Í SMÁ BOLTALEIK? ÉG KASTA BOLTANUM OG ÞÚ SÆKIR HANN HANN ER EKKI HEIMA *AND- VARP* EF VIÐ SLEPPUM HÉÐAN ÞÁ ER EITT SEM ÉG MUN ALDREI GERA AFTUR HVAÐ ER ÞAÐ? ÉG MUN ALDREI AFTUR BÚA TIL ENGLA Í SNJÓINN PABBI, RÚNAR ER KOMINN SÆLL RÚNAR! SVONA KOMUM OKKUR SÆLL HERRA ARDIN! ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ ÁVARPA MIG SVONA FORMLEGA SKAL GERT HERRA ARDIN HVER VAR ÞESSI GRÍMUKLÆDDI MAÐUR, SEM BJARGAÐI ÞÉR? VAR ÞETTA OFURHETJA? ÉG VEIT ÞAÐ EKKI EN HANN VAR SVO SANNARLEGA VERNDAR- ENGILL ÉG GET EKKI VERIÐ Í KRINGUM MÖMMU MÍNA ÁN ÞESS AÐ FÁ SAMVISKUBIT MIKIÐ ER ÞETTA FALLEGT HÁLSMEN SEM ÞÚ ERT MEÐ ÞÚ STENDUR Á SÚREFNISSLÖNGUNNI MINNI OOPS! SLÁÐU HENNI BARA GULLHAMRA. ÉG SKAL SÍNA ÞÉR HVERNIG MAÐUR GERIR ÞETTA Meinlokur og misskilningur um vísitölutryggð lán Það er jafnauðvelt að fá meinlokur í stærðfræði og erfitt er að deila við hana. Það er auðvitað andskotalegt að þurfa að borga það sem maður fær lán- að, meðan aðrir, sem fengu miklu meira lánað sleppa við að borga. Jafngreiðslulán er lán þar sem greiðslur (afborganir + vextir) eru jafnar allt láns- tímabilið. Þetta felur í sér að vaxtahluti greiðslunnar er meiri hluti hennar til að byrja með, en fer minnkandi eftir því sem lánið er greitt niður. Síðasta greiðsla er að stórum hluta afborgun, en að litlum hluta vextir. Hægt er að reikna hlut vaxta og afborgunar í hverri greiðslu (jafngreiðslu) og eftirstöðvar lánsins eftir hverja greiðslu miðað við enga verðbólgu (nafnverð). Vísitölutryggð lán eru bundin ákveðinni vísitölu. Þau eru til komin vegna þess að menn borga með minni krónum en þeir fengu lán- aðar. Með því að marg- falda hverja ofan- greindra stærða (greiðslur, afborg- anir, vexti og eft- irstöðvar) með vísi- tölu gjalddaga og deila með grunn- vísitölu lánsins fást framreiknuð gildi á gjalddaga. Einu gildir hvort höfuðstóllinn er upp- færður jafnóðum (á hverjum gjalddaga) eða um leið og hann er greiddur. Skuldarinn kemst aldrei hjá að greiða uppfærðan höfuðstól, hvað sem nafnverði hans líður, hvort sem hann greiðir hann með afborgunum, eða greiðir hann upp. Ég held að Hagsmunasamtök heimilanna ættu heldur að skoða hvort löglegt sé að heimta sér- stakt uppgreiðslugjald á lánum. Þórhallur Hróðmarsson. Ást er… … að elta sólina saman. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Árskógar 4 | Smíði/útskurður kl. 9. Bólstaðarhlíð 43 | Vetrarstarfið hefst 1. september. Dalbraut 27 | Handavinna kl. 8-16. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist FEBK í Gjábakka kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skoð- unarferð í Grasagarð Reykjavíkur kl. 13. Ferðin hefst við aðalinnganginn, Hildur Arna Gunnarsdóttir fræðslustjóri tekur á móti hópnum. Einnig verða með í för Sigurður Albert Jónsson og Theódór Halldórsson sem unnu báðir við upp- byggingu Grasagarðsins. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna, matur og kaffi, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Félagsvist kl. 13, kaffihlaðborð kl. 14. Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn- arnesi | Kaffispjall í Króknum kl. 10.30, spilað kl. 13.30, jóga kl. 11. Púttvöllur. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9. Skráning er hafin í félagsstarf, hefst: leikfimi 1. sept., myndlist 5. sept., glerlist 6. sept., postulín 8. sept. og tréskurður 28. sept. Púttvöllur er opinn. Hár- greiðslustofa, sími 894-6856, fótafræð- ingur, sími 698-4938. Hraunsel | Brids kl. 13, dagskrá vetr- arins kemur í september, s. 555-0142. Hæðargarður 31 | Hugmyndir í haust/ vetur: Skapandi skrif, myndlist, fram- sögn, leikfimi, línudans, leirmótun, söng- ur, magadans, Baráttuhópur um bætt veðurfar, bókmenntahópur, tálga í tré og bein, refilssaumur, rússneskt prjón, tölvuleiðbeiningar o.fl. Bíó í dag kl. 16: Heimildarmyndin Leitin að Rajev. Vesturgata 7 | Á morgun kl. 13.30 er sungið v/flygilinn við undirleik Sig- urgeirs. Dansað kl. 14.30 undir stjórn Sigvalda. Veislukaffi kl. 14.30. Lax- og silungsveiði ber nú hvar-vetna á góma og úr nógu að moða hér í Vísnahorni. Fyrst kem- ur upp í hugann braghenda Jóns Þorsteinssonar á Arnarvatni, sem aldrei verður of oft kveðin: Flugu minni fleygði ég en fár varð gróði. Á mig leit úr ölduflóði urriði með köldu blóði! Egill Jónasson á Húsavík orti við Laxá: Laxinn á sinn æskudraum, elfar dáir kossa. Laxinn þráir líf og straum, leik við háa fossa. Þessi vísa ber yfirskriftina Leiðsla: Fjalls af leiðum fram að sæ faðmur breiðist landsins. Töfrar seiðir sí og æ sálu veiðimannsins. Grástraumur er veiðistaður í Laxá. Egill kvað: Þegar hvergi er fisk að fá, flest vill benda á dauða Grástraumarnir geta þá glatt hinn vonarsnauða. Alþingismennirnir Ólafur G. Ein- arsson og Lárus Jónsson eru góðir vinir og veiðifélagar í Sandá fyrr á árum. Einu sinni átti ég þar leið framhjá: Hún Sandá var gruggug af surgi og sargi frá Ólafi durgi. Og líkast til var hann Lárus minn þar, en laxarnir? – þeir voru hvurgi! Og þessi: Ólafur fór úr ánni og strax upp með sporðahvini sér úr hylnum lyfti lax líkt og í kveðjuskyni. Einhverju sinni hitti Jóhannes Sigfússon á Gunnarsstöðum Ólaf og Arngrím Jóhannsson flugstjóra í Sandá: Misjafn hefur maður hvur af manndómsþreki vöndu Alltaf fiskar Arngrímur en Ólafur fær ei bröndu. Næsta dag var Jóhannes aftur á ferðinni: Þetta er orðið eintómt baks ellin þessu veldur Arngrímur fékk engan lax. Ólafur ekki heldur. Indriði Þórkelsson á Fjalli orti um aflaklóna: Víst er hann Bjarni veiðinn, þó verði rýrt til bjargar: Drengir tala um dauðan sjó. Dregur hann ýsur margar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hún Sandá var gruggug af surgi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.