Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 19.08.2011, Qupperneq 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 2011 Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Nína Hjördís Þorkelsdóttir er ein listamannanna sem hafa tekið þátt í Listahópum Hins hússins í sumar. Allir hóparnir sem hafa tekið þátt í verkefninu munu koma fram á Menningarnótt núna á laugardag- inn, þann 20. ágúst, fyrir framan Hitt húsið og spila eða leika frá kl. 14 – 17. Nína er aðeins 21 árs og er í námi á þverflautu. „Já, ég kláraði MH á þremur árum og átti ár aukreitis og nennti ekki að hoppa beint í há- skólanám. Ég hef verið að læra á flautu meðfram náminu alveg frá því ég var átta ára og svo æxlaðist þetta þannig að þegar MH lauk fór ég í fullt nám í tónlistinni. Ég er samt ekki búin að ákveða endanlega hvað ég muni gera, ég hef líka áhuga á leiklist, leikstjórn og bókmenntum. Ég geri mér líka fulla grein fyrir því hvað tónlistin er ógeðslega harður bransi, það eru ansi fá störf í boði og margir góðir að berjast um þau. En tónlistin er ástríða mín. Ég er hund- rað prósent í þessu núna og sé svo til með framtíðina. Maður þarf að vera svo agaður, því námið snýst aðallega um það að vera heima hjá sér og æfa sig. Það er ekkert sumarfrí eða jólafrí. Einsog stjúppabbi sagði við mig um daginn; fyrir hvað ertu að æfa? Er ekki frí hjá þér? En þannig er það ekki, það er aldrei frí. Það er ekkert nóg að mæta bara í tíma, það sem þú gerir utan þess er aðalmálið. Fólk þarf að hafa mismikið fyrir þessu, en náttúrulegir hæfileikar eru bara tíu prósent af þessu, þetta er bara æfing og meiri æfing. Það kemst enginn upp með að æfa sig ekki,“ segir Nína. Vestmannaeyjar áhrifavaldur Aðspurð hvað það hafi verið sem olli því að hún fór að læra á flautu segist hún muna hvenær hún féll fyrir flautunni. „Ég var heima hjá langömmu minni og var að horfa alltaf á sama þáttinn á Stöð 2. Þetta var sportþáttur og allt í þættinum var um íþróttir nema stutt móment í lokin. Þar var farið inn í hellinn þarna í Vestmannaeyjum og spilað á flautu í hellinum og ég féll alveg fyr- ir því. Þetta fannst mér flott og lang- aði að læra á þetta hljóðfæri,“ segir Nína. Hún hefur notið sumarsins þar sem hún er ein af þeim sem voru samþykkt inní listahóp Hins hússins og hefur því fengið að sinna ástríðu sinni á launum í allt sumar. „Já, þetta er búið að vera gaman. Ég spilaði fyrst í Landakotskirkju, í Sundhöll Reykjavíkur, Listasafni Ís- lands og síðan á nokkrum elliheim- ilum. Spilaði meðal annars fyrir langömmu. En það er frekar krefj- andi að spila á elliheimilum, því gamla fólkið gerir bara það sem það langar til að gera. Í eitt skiptið stóð einn gamall maður bara upp og sett- ist við píanó sem var þarna og fór að spila með. Það reynir á einbeit- inguna við svona aðstæður. Svo er ég búin að vera mikið undir berum himni. Bara út um allt, á Austurvelli og á Laugaveginum. En þegar ég er úti þá hef ég oft verið með annað hljóðfæri sem heitir Hulusi, sem er kínverskt hljóðfæri, meira í ætt við óbó. Flautan virkar verr utan dyra, vindurinn blæs tónunum í burtu. Fyrsta daginn sem ég spilaði svona úti, þá var líklegast einn mesti rign- ingardagur ársins, fólk stoppaði mikið til að vorkenna mér,“ segir Nína. Sjúklega hallærislegt Aðspurð um áhrifavaldana, segir hún að kennararnir hennar hafi haft mest áhrif á hana. „Síðustu fjórir hafa verið miklir áhrifavaldar, þau Magnea Árnadóttir, Melkorka Ólafsdóttir, Hallfríður Ólafsdóttir og Tristan Cardew. En svo hefur mað- ur líka orðið fyrir áhrifum frá tón- listarmönnum einsog William Ben- net og Manuelu Wiesler, sem er augljóslega einn besti flautuleikari sem uppi hefur verið. Svo eru tón- skáldin miklir áhrifavaldar, einsog Brahms, Beethoven og Bach. Þegar ég var yngri lét ég poppið hafa ein- hver áhrif, ég hlustaði til dæmis mikið á Jethro Tull sem notar flautu og var að reyna að stæla þá sem var allt sjúklega hallærislegt,“ segir Nína og hlær. Það er ekkert frí þegar verið er að flauta  Listahópar Hins hússins sýna listir sínar á Menningarnótt á morgun  Nína Hjördís Þorkelsdóttir þverflautuleikari er einn listamannanna  Agi og einbeiting er það sem þarf í flautunámið Morgunblaðið/Sigurgeir S. Flaut Nína Hjördís leikur á þverflautu en hún er búin að vera að spila fyrir vegfarendur útum allan bæ í allt sumar. H H H H H - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER H H H H H - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI - KVIKMYNDIR.IS H H H H - R.C - TIME H H H H H LARRY CROWNE FRÁBÆR RÓMANTÍSK GRÍNMYND / ÁLFABAKKA LARRY CROWNE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 7 GREEN LANTERN kl. 3 - 5:40 - 8 - 10:20 12 LARRY CROWNE kl. 8 - 10:20 VIP BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L COWBOYS & ALIENS kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 14 BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 3 - 5:30 L HORRIBLE BOSSES kl. 8 - 10:20 12 HARRYPOTTER7-PART2 kl. 8 - 10:40 12 HORRIBLE BOSSES kl. 3 - 5:30 VIP FINAL DESTINATION 5 kl. 10:40 16 CAPTAINAMERICA3D kl. 10:45 12 STRUMPARNIR 3D Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L BÍLAR 2 3D Með ísl. tali kl. 2:30 L STRUMPARNIR Með ísl. tali kl. 2:30 - 5 L BÍLAR 2 Með ísl. tali kl. 2:30 L COWBOYS & ALIENS kl. 5:20 - 8 - 10:30 14 GREEN LANTERN 3D kl. 5:20 12 RISE OF THE PLANET OF THE APES kl. 8 - 10:20 12 HARRYPOTTER7-PART23D kl. 8 12 HORRIBLEBOSSES kl. 8 12 / EGILSHÖLL HHH „ÞÚ FINNUR EKKI BETRI MYND HANDA KRÖKKUNUM ÞÍNUM UM ÞESSAR MUNDIR. SUMIR FULLORÐNIR GÆTU JAFNVEL FENGIÐ SMÁ NOSTALGÍUFIÐRING" -TÓMAS VALGEIRSSON, KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ OG HEYRT SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK RYAN REYNOLDS BLAKE LIVELY MARK STRONG GEOFFREY RUSH Hvar í strumpanum erum við ? HINIR EINU SÖNNU STRUMPAR MÆTA LOKSINS Á HVÍTA TJALDIÐ OG FARA Á KOSTUM Í STÆRSTA ÆVINTÝRI ÁRSINS SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK HHH BoxOffice Magazin á allar sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 3D 1.000 kr. SÝND Í KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.