Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 19.08.2011, Blaðsíða 44
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 231. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Allt brjálað á Camp Nou … 2. Gleymdu barni á gangstétt 3. Mér fannst ég aldrei vera feit 4. Frábær frammistaða hjá Ólafi … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Rökkurró efnir til kveðjutónleika á Faktorý í kvöld þar sem hljómsveitin kemur fram ásamt vel völdum vina- hljómsveitum. Tilefni tónleikanna er brottför söngkonunnar Hildar Krist- ínar Stefánsdóttur til Japans. Rökkurró efnir til kveðjutónleika  Hjálparsam- tökin Veraldar- vinir standa fyrir góðgerðar- tónleikum á Só- dómu Reykjavík í kvöld. Tilgangur tónleikanna er að safna fé sem nýtist starfi samtakana á Tierra Bomba- svæðinu. Fram koma m.a. Bjartmar og Bergrisarnir, Haffi Haff og The Vintage Caravan. Veraldarvinir með tónleika á Sódómu  Leikskólakennarar efna til stór- tónleika á Nasa í kvöld. Allur ágóði af tónleikunum rennur til sveitarfélaganna. Með- al þeirra sem koma fram eru Páll Óskar, Jón Jónsson, Frikki Dór, Dikta, Our- lives, Lára Rún- ars, Valdimar og Mugison. Miðaverð er aðeins 1.000 krónur. Leikskólakennarar með tónleika á Nasa Á laugardag NA 3-10, skýjað með köflum og úrkomulítið. NA 10- 15 og rigning við SA-ströndina. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast SV-lands. Á sunnudag Hæg suðaustlæg eða breytileg átt. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri, skýjað og skúrir, en bjart með köflum V-lands. Vaxandi norðaustanátt og rigning suðaustanlands í kvöld. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast S- og SV-lands. VEÐUR Patrekur Jóhannesson, fyrr- um landsliðsmaður í hand- knattleik, gæti orðið næsti landsliðsþjálfari Austurríkis en samkvæmt öruggum heimildum Morgunblaðsins stendur honum það til boða. Ef Patrekur tekur til- boðinu verður hann annar Íslendingurinn sem er við stjórnvölinn hjá Austurrík- ismönnum en Dagur Sig- urðsson stýrði liðinu í nokk- ur ár við góðan orðstír. »1 Patreki boðið að þjálfa Austurríki Frjálsíþrótta- samband Íslands, FRÍ, hefur ákveðið að senda tvo kepp- endur á HM í frjáls- íþróttum sem hefst í Daegu í Suður-Kóreu 27. þessa mánaðar. Annars vegar er um að ræða spjótkast- arann Ásdísi Hjálmsdóttur og hinsvegar Kristin Torfason lang- stökkvara. »2 Ásdís og Kristinn keppa á HM í frjálsum Ólafur Björn Loftsson, kylfingur úr Nesklúbbnum, lék frábærlega í gær á fyrsta degi Wynham-mótsins sem er hluti af PGA-mótaröðinni í golfi. Hann lék samtals á tveimur höggum undir pari. „Á heildina litið er ég bara mjög sáttur við hringinn og spenntur fyrir degi tvö. Ég ætla mér að gera enn betur þá,“ sagði Ólafur Björn við Morgunblaðið. »1 Ólafur Björn ætlar að gera enn betur í dag ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Kristján Jónsson kjon@mbl.is Blái herinn er ekki vopnaður neinum vígtólum og hefur aldrei meitt nokk- urn mann. Ummerkin eftir hernað hans eru þau að náttúran er hreinni, minna af drasli. Tómas J. Knútsson, kafari í Sandgerði, stofnaði þessi óformlegu samtök en hann rak sportkafaraskóla eftir að hann flutt- ist heim til Ís- lands 1995. Hann fór þá ásamt nemendum sínum að laga til á svæð- um þar sem er- lendir sportkaf- arar hugðust stunda íþróttina á vegum Tómasar. Honum ofbauð sóðaskapurinn í höfnum og víðar og vildi ekki að útlendingarnir „sæju allan viðbjóðinn,“ eins og hann orðar það. Blái herinn hefur á 16 árum náð að hreinsa um 875 tonn af drasli úr nátt- úru landsins, aðallega á Reykjanes- skaganum en einnig í Vestmanna- eyjum og á Akranesi. Helstu styrktaraðilar hersins hafa verið auk Toyota-umboðsins, sem hefur lánað Tómasi pallbíl, Reykja- nesbær, Reykjaneshöfn, Pokasjóður, Alþingi, Hitaveita Suðurnesja og Bláa lónið. Alþingi felldi niður millj- ón króna styrk á fjárlögum eftir að kreppan skall á en Tómas gerir sér vonir um að aftur rofi til. „Sveitarfélögin hafa líka verið dugleg að gauka að mér aurum. Ég reyni að hafa þetta eyrnamerkt ákveðnu verkefni. Svo er ég oft með kerruna aftan í bílnum og tek rúnt eftir fáförnum slóðum, þar hefur fólk oft verið að losa sig við eitthvað. Ef ég sé eitt- hvað kippi ég því upp í kerruna. Oft er ég búinn að fylla hana áður en ég veit af. Mjúkar aðferðir Ef ég sé heilt svæði sem mig lang- ar til að þrífa tek ég myndir af því, sendi viðkomandi umráðaaðila, hvort sem það er sveitarfélag eða eitthvað annað, og bið um leyfi, spyr hvort þeir ætli að hafa þetta svona til fram- búðar. Þetta er í flestum tilfellum samþykkt. Ég reyni að fara mjúklega í þetta og vekja menn til umhugsunar. En ef það dugar ekki, ekkert hlustað á mann lengi, get ég tekið upp á að senda myndir af þessu til birtingar í blöðunum! Það virkar sem hvatn- ing.“ Um 875 tonn af drasli á brott  Blái herinn berst með náttúrunni gegn sóðaskap Morgunblaðið/Tómas J. Knútsson Þarfur trukkur Tómas gerði sjálfur upp þennan gamla og glæsilega hertrukk með bómu að framan og palli og notar hann til að fjarlægja rusl í fjörum. Þá kemur bóman að góðu gagni við að hífa þunga hluti eins og netadræsur upp á bílpallinn. Tómas og liðsmenn hans hafa lagt fram alls um 48 þúsund vinnustundir í sjálfboða- liðavinnu. Fjöldi liðsmanna fer eftir verkefninu, stund- um er þetta bara fjölskyld- an. Á litlu myndinni sjást dóttir Tómasar og eitt af barnabörnunum í fjörunni að safna rusli frá frystitogur- um, plastböndum sem sett eru utan um pappakassa fyr- ir fisk. Eitthvað hefur farið úr- skeiðis og bandaflækju einfaldlega verið fleygt í sjóinn. „Ég fæ oft íþróttafélög í lið með mér, líka sjálfboðaliðafélög eins og Seeds sem fá hingað erlenda krakka til að vinna alls konar sjálf- boðaliðastörf á Íslandi,“ segir Tómas. „Ég er líka að hugsa um að bjóða upp á sérstakar ruslgöngur fyrir áhugafólk sem vill leggja mál- inu lið.“ Boðið upp á ruslgöngur? FJÖLSKYLDAN TEKUR FULLAN ÞÁTT Í HREINSUNARSTARFINU Tómas J. Knútsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.