Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ísland er sem fyrr í hópi þeirra
landa innan OECD sem verja mestu
fé til menntamála þegar á heildina
er litið, samkvæmt skýrslu OECD
um menntamál, sem birt var í gær.
Tölurnar í samanburði OECD eru
frá árunum 2008 og 2009. Ísland er
þó einungis meðal efstu þjóða þegar
litið er til fjárframlaga á barnaskóla-
og unglingastigi. Samanburður á
framlögum til háskóla sýnir að Ís-
land er langt undir meðaltali
OECD-landanna.
Í 17. sæti á framhaldsskólastigi
Ef skoðuð eru útgjöld til mennta-
mála á öllum skólastigum kemur í
ljós að OECD-löndin vörðu að með-
altali 9.873 bandaríkjadölum (rúm-
lega 1.150 þúsund ísl. kr.) á hvern
nemanda á árinu 2008 og voru Ís-
lendingar í ellefta sæti. Útkoman er
hins vegar mjög mismunandi eftir
skólastigum. Íslendingar lögðu sem
samsvarar 10.599 bandaríkjadölum
til hvers grunnskólanemanda og eru
þar í 3. sæti, næst á eftir Noregi og
Lúxemborg. Á framhaldsskólastigi
er Ísland hins vegar eftirbátur
margra annarra landa. Framlög á
hvern nemanda á framhaldsskóla-
stiginu samsvarar rúmlega 9.000
bandaríkjadölum hér á landi, sem
skipar Íslandi í 17. sæti.
Á háskólastigi drögumst við enn
frekar aftur úr í samanburði OECD.
Ísland varði sem svarar til 10.429
bandaríkjadala á hvern nemanda á
háskólastigi og er í 21 sæti. Meðaltal
OECD-ríkjanna þegar skoðuð eru
framlög á hvern nemanda til há-
skólastarfsemi var hins vegar 13.717
bandaríkjadalir.
Svipuð niðurstaða kemur í ljós
þegar útgjöldin eru skoðuð í sam-
hengi við landsframleiðslu landanna.
Þannig voru opinber útgjöld Íslend-
inga til menntamála árið 2008 7,6%
af landsframleiðslu skv. skýrslu
OECD. Eru Íslendingar í 3. sæti yf-
ir hæstu opinberu framlögin, mæld
á þennan mælikvarða, koma næstir
á eftir Norðmönnum og Dönum.
Meðaltalið innan OECD var 5,4%.
Framlög til háskólastarfs hér á landi
sem hlutfall af landsframleiðslu var
hins vegar miklu lægra eða 1,3%.
Yfir 50% ungmenna utan skóla
í OECD-löndum eru án atvinnu
Í kynningu á skýrslu OECD í gær
kom fram að eftir að fjármálakrepp-
an skall á, hefur íbúum landa OECD
sem hafa háskólamenntun, gengið
mun betur að halda í störf sín en
fólki með minni menntun. Atvinnu-
leysi meðal háskólamenntaðra í
löndum OECD var 4,4% að meðal-
tali á árinu 2009 en atvinnuleysi
meðal þeirra sem ekki höfðu lokið
framhaldsskólanámi var 11,5% og
hafði aukist verulega frá árinu á
undan.
Mest er þó atvinnuleysið meðal
ungs fólks sem ekki gengur í skóla.
Rúmlega helmingur allra ungmenna
á aldrinum 15 til 19 ára í löndum
OECD sem ekki eru í skóla voru at-
vinnulaus á árinu 2009.
Neðarlega á lista yfir fé til háskóla
Skýrsla OECD um menntamál var birt í gær Þó að heildarframlög til menntunar séu há hér á landi
eru Íslendingar eftirbátar margra þjóða þegar borin eru saman framlög til framhalds- og háskólanáms
Framlög til háskólamenntunar innan OECD
framlög í dollurum á hvern nemanda
Heimild. OECD
Ísl
an
d
No
re
gu
r
Da
nm
ör
k
Sv
íþj
óð
Fin
nla
nd
Ba
nd
ar
íki
n
Ar
ge
nt
ína
0
8.000
4.000
12.000
16.000
20.000
24.000
28.000
Meðaltal
innan
OECD
Nemendur og starfsfólk Grunnskóla Mýrdals-
hrepps gengu fylktu liði út úr skólanum í gær
þegar þau æfðu viðbragðsáætlun vegna Kötlu-
goss. Íbúar svæðisins eru við öllu búnir, en á
mánudaginn var haldinn íbúafundur í Vík í Mýr-
dal þar sem Magnús Tumi Guðmundsson jarð-
eðlisfræðingur fór yfir skjálftavirkni í Kötlu að
undanförnu, en virkni hefur verið viðvarandi
þar frá því í hlaupinu í Múlakvísl í byrjun júlí.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Mýrdælingar æfa viðbrögð við Kötlugosi
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Nauðsynlegt er að innanríkisráðu-
neytið hlutist til um að reglur um
hleðslu farma á flutningabíla verði
endurskoðaðar, þannig að auðveld-
ara verði að framfylgja þeim. Þetta
kemur fram í nýútkominni skýrslu
Rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Fram kom í Morgunblaðinu í gær að
verulegra úrbóta er þörf til að
tryggja öryggi vegfarenda vegna
mikilla þungaflutninga um þjóðvegi
landsins.
Mikil umræða varð um nauðsyn
stórátaks gegn lélegum frágangi á
farmi flutningabíla á árunum 2006-
2008, ekki síst eftir fréttir sem birt-
ust í Morgunblaðinu en þá hafði
hvert óhappið rekið annað þar sem
lá við alvarlegum slysum þegar
hlöss duttu af vörubílspöllum. Sett
var ný reglugerð um frágang á
farmi 2008 en nauðsynlegt er að
endurskoða hana að sögn Ágústs
Mogensen, framkvæmdastjóra
Rannsóknarnefndar umferðarslysa.
Þegar breytingar voru gerðar á
reglunum 2008 var áherslu á varnir
fyrir framan og aftan farm flutn-
ingabíla vikið til hliðar fyrir aukinni
áherslu á notkun spennubanda yfir
farminn. Þessu þarf að breyta og
gera meiri kröfur um varnir fyrir
framan og aftan, m.a. til að koma í
veg fyrir afturskrið farmsins, að
sögn Ágústs.
Tilefni gagnrýni rannsóknanefnd-
arinnar er úttekt sem gerð var á
banaslysinu í Langadal í desember í
fyrra, þar sem tengivagn vöruflutn-
ingabifreiðar lenti á vörubifreið sem
kom á móti en ökumaður hennar
lést.
Eins og fram kom í blaðinu í gær
er vegurinn þar sem slysið átti sér
stað aðeins 6 metra breiður. Stein-
rör voru á tengivagni vörubílsins og
kemst rannsóknarnefndin að þeirri
niðurstöðu að hvorki vörubíllinn né
vagninn hafi staðist lágmarkskröfur.
Ágúst segir að vagninn hafi engan
veginn hentað til flutnings á þessum
farmi. Engar styttur voru meðfram
hliðum vagnsins og engin vörn gegn
afturskriði röranna en spennubönd
voru notuð utan um farminn. Auk
þess kom í ljós við rannsókn nefnd-
arinnar að þekking á reglunum frá
2008 er takmörkuð meðal þeirra
sem annast hleðslu farms og farm-
flutninga.
Nauðsynlegt að reglum um
hleðslu á farmi verði breytt
Eftirlit Lögreglumaður athugar
hvort farmur sé rétt festur.
Morgunblaðið/Júlíus
Framkvæmdastjóri RNU vill meiri kröfur um varnir fyrir framan og aftan farm
Samninga-
nefndir Lækna-
félags Íslands og
ríkisins undirrit-
uðu nýjan kjara-
samning hjá rík-
issáttasemjara í
gær. Samning-
urinn nær til
sjúkrahúslækna,
heilsugæslu-
lækna og ung-
lækna, en sérfræðilæknar sem eru
með eigin lækningastofur og skurð-
læknar semja sér.
Sveinn Kjartansson, formaður
samninganefndar lækna, sagði í
samtali við fréttavef Morgunblaðs-
ins, mbl.is, að grunnkaupshækk-
anir séu þær sömu og samið hefur
verið um á vinnumarkaðnum. Í
nokkrum sérmálum hafi aðeins ver-
ið komið til móts við lækna og segir
Sveinn að mesta kjarabótin felist í
ákvæði um fasta yfirvinnu.
Hann telur að þær kjarabætur
sem felast í nýjum samningi dugi
ekki til að lokka unga sérfræði-
menntaða lækna til landsins, eins
og þörf sé á. Hins vegar geti þær
hugsanlega dregið úr uppsögnum
þeirra lækna sem starfað hafa hér
um nokkurt árabil.
Læknar skrifa undir
nýja kjarasamninga
Skurðaðgerð á
Landspítalanum.
Aron og Emilía veltu Alexander og
Önnu af toppnum yfir vinsælustu
nöfn á nýfæddum börn á síðasta ári.
Vinsældir Alexanders og Önnu
dvínuðu töluvert því það fyrra fór
niður í 6.-9. sæti og hið síðara í 4.-6.
sæti. Þetta kom fram hjá Hagstof-
unni í gær.
Þá var Þór langvinsælasta milli-
nafnið hjá drengjum, en þar á eftir
Freyr og Logi. Hjá stúlkum var
María vinsælasta millinafnið og
næst á eftir Ósk.
Aron og Emilía
vinsælustu nöfnin
Samkomulag um lok haustþings
strandar á því að forsætisráðherra
heldur fast við að koma stjórnar-
ráðsfrumvarpinu í gegn, þrátt fyrir
mikla andstöðu í þinginu. Þetta
segir Gunnar Bragi Sveinsson, for-
maður þingflokks framsóknar-
manna.
Þreifingar á milli þingflokks-
formanna stjórnar og stjórnarand-
stöðu báru engan árangur í gær en
samkvæmt starfsáætlun þingsins er
gert ráð fyrir að haustþingi ljúki á
morgun.
Þreifingar um þing-
lok en án árangurs