Morgunblaðið - 14.09.2011, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 14.09.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Skálavörður í Fimmvörðuskála Úti- vistar gerir athugasemdir við að ekið sé með vísindamenn upp brekku fyrir neðan Fimmvörðuskála áleiðis að Eyjafjallajökli. Hægt sé að fara aðra leið og betri og komast þannig hjá því að spilla ásýnd vinsæls göngulands. Síðast á mánudag var beltabíl Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu ekið með vísindamenn frá Baldvins- skála, sem margir þekkja betur sem Fúkka, upp brattan hrygginn og það- an á Eyjafjallajökul. Sama leið hefur oft verið notuð til að fara með vís- indamenn á jökulinn. Almennur akstur upp á Skógaheiði er bannaður og aðeins einstaka ferðaþjónustufyrirtæki, vísinda- menn, björgunarsveitir og slíkir mega fara þar um. Sigurður Sigurðarson, skálavörður og þaulvanur ferðamaður, bendir á að brekkan sé að öðru leyti nánast ósnortin. Förin sjáist víða að, m.a. af gönguleiðinni um Fimmvörðuháls. Sigurður segir að ekki sé um nein- ar stórkostlegar skemmdir að ræða og þær sé hugsanlega hægt að laga með því að raka yfir þær. Hættan sé sú að förin eftir beltabílinn verði til þess að fleiri fari sömu leið. Smám saman myndist þarna vegur. „Ef við fáum jeppa, beltabíla og hvaðeina trekk í trekk, þá er þetta ekki snið- ugt. Þetta fer bara út í vitleysu.“ Sigurður kveðst auðveldlega hafa getað bent viðkomandi á betri leið þar sem engar skemmdir hefðu orðið og nefnir leið upp skarð austan við skálann, um gil norðan við hann en á þeim slóðum hefði hann getað komist upp á Fimmvörðuhrygg. Leiðin sé fullfær fyrir beltabílinn. „Það er ekki með neinni reiði eða ónotum sem við erum að agnúast út í þetta. Við viljum bara ekki að menn séu að þvælast að óþörfu þar sem þeir eiga ekkert að vera,“ segir hann. Aka stundum að skálanum Enginn vegur liggur upp að skála Útivistar en Sigurður segir að sótt hafi verið um leyfi til að setja veg vestan við skálann. Olía sé flutt að skálanum að vetr- arlagi og þá er einnig seyran úr kamrinum flutt á losunarstað í byggð. Stundum þurfi þó að flytja þangað vistir að sumri, t.d. þegar skálinn verður vatnslaus. Þá sé farið vestan við skálann, utan samþykktra vega, en Sigurður segir að miklum mun minna sjái á landinu en þegar ekið sé um fyrrnefnda brekku. Fyrir nokkrum árum hafi verið hægt að fara á snjó norðan og sunnan við skál- ann en þar sé nú snjólaust og torfært. Því þurfi nú að aka eftir snjólausu landi. Telur hættu á að nýr vegur myndist  Skálavörður segir að hægt sé að fara betri leið á jökulinn Ljósmynd/Sigurður Sigurðarson Villigata Í fyrrakvöld, í niðamyrkri, gengu tvær spænskar konur fram á slóðann og ályktuðu að hann lægi að skál- anum, sem hann gerir ekki. Þær höfðu snúið við þegar fólk í skálanum varð þeirra vart og gat kallað til þeirra. Svanur Lárusson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, segir að leiðin sem um ræðir hafi verið notuð til að flytja vísindamenn upp á Eyjafjallajökul frá því gaus í jöklinum í fyrra. Þarna hafi verið ekið í tugi skipta með vísindamenn. „Þessi för verða farin eftir næstu rign- ingu eða næsta rok,“ segir hann. Aðrar leiðir séu ekki færar, þ. á m. sú sem lýst er hér til hliðar. Sú leið hafi eitt sinn verið fær en sökum þess að snjóa hefur tekið upp í um- ræddu gili sé ekki lengur hægt að aka hana. Svanur segir ekki hættu á að þarna myndist vegur því akstur upp á Skógaheiði sé mjög tak- markaður. Þar að auki liggi öll leyfi fyrir, frá sveitarfé- lagi, landeiganda og lögreglu. Farin eftir næsta rok SEGIR ÞETTA EINU LEIÐINA Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Ný sending af úlpum og kápum St. 36-52 20-60% afsláttur Borgartún 36 105 Reykjavík 588 9747 www.vdo.is HLÍFÐARFÖT AGV HJÁLMAR LAY-Z-SPA SIXSIONE BRYNJUR Nasran fatnaður – jakkar, buxur og vettlingar SixSixOne Peysubrynjur, plastbrynjur, nýrnabelti, vetlingar, olnboga og hnéhlífar AGV hjálmar Lokaðir hjálmar, opnanlegir, vespu- hjálmar, motocrosshjálmar og gler Varahlutir í fjarstýrða bíla Traxxas, GS varahlutir, dekk og felgur60% AFSLÁTTUR VARAHLUTIR Í FJARSTÝRÐA BÍLA 20-40% AFSLÁTTUR INCQC 2012 G05 Á LAXDAL- VETRAKÁPUM- VETRARÚLPUM - ULLARJÖKKUM -PEYSUM OG FL OPIÐ 13-18 HAUSTMARKAÐUR-LAGERSALA Í KJÖRGARÐI 2 HÆÐ. ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR Laugavegi 63 • S: 551 4422 Mikill munur er á verði á ferskum fiski í fiskbúðum og stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt nýrri verðkönnun frá verðlagseft- irliti ASÍ. Lægsta verðið var oftast að finna í Litlu fiskbúðinni Mið- vangi eða í 14 tilvikum af 30. Fisk- búðin Trönuhrauni kom næst eða í sex tilvikum, en verslanirnar eru báðar í Hafnarfirði. Hæsta verðið var oftast hjá Fiskikónginum Soga- vegi eða í sjö tilvikum. Ódýrasti fiskurinn fæst í Hafnarfirði - nýr auglýsingamiðill - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.