Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 11
að fá einhvern til að byggja hús fyrir
sig. Þegar ekki leit út fyrir að hann
fengi lán fyrir slíkum framkvæmdum
segist hann því hafa notað íslensku
aðferðina og bara byggt húsið sjálfur.
Rétt eins og lundinn
Bruce kom fyrst til landsins árið
1993 til að heimsækja Vest-
mannaeyjar og taka þar myndir af
lundum. Síðan þá hefur hann gefið út
nokkrar myndabækur frá Íslandi og
ætlar sér að gefa út fleiri í framtíð-
inni.
„Rétt eins og lundinn hélt ég
áfram að koma til landsins og hef nú
eignast þar marga góða vini sem hafa
heimsótt mig heima í Bandaríkj-
unum. Mér hefði ekki tekist að koma
út bókunum mínum nema með
dyggri aðstoð frá starfsfólki Ferða-
málastofu. Þau hjálpuðu mér þegar
ég kom hingað fyrst árið 1993 til að
taka myndir í fyrstu bókina og það
samstarf hefur haldist æ síðan,“ segir
Bruce
Ömmur á vetrarleikum
Bruce hefur nú gert sjö barna-
bækur sem gerast á Íslandi og þar af
þrjár í samstarfi við Gunnellu.
Fyrstu tvær heita The Problem with
Chickens og How the Ladies Stop-
ped the Wind. En nýjasta afurðin,
Winter Games, segir frá íslenskum
ömmum sem eru búnar að prjóna allt
sem þær geta. Til að láta sér nú ekki
leiðast yfir veturinn ákveða þær að
efna til vetrarleika.
„Það er svo skemmtilegt hjá
okkur að vinna saman að við hlæjum
allan tímann. Í fyrstu var mjög nýtt
fyrir mér að skrifa en smám saman
hef ég æfst og þróað með mér minn
stíl. Bækurnar okkar hafa vakið
lukku og mér fannst afar fyndið að
þegar fyrsta bókin kom út árið 2005
var hún söluhæsta bókin frá Ísland á
Amazon. Þarna voru allar ykkar
helstu bókmenntir, en nei, bókin The
Problem with Chickens var sú sölu-
hæsta,“ segir Bruce og skellihlær.
Safnar málverkum og tónlist
Samstarf Bruce og Gunnellu
hófst upp úr því að Bruce keypti mál-
verk eftir Gunnellu en hann er mikill
áhugamaður um íslenska myndlist og
á nú ein 50 málverk eftir íslenska
myndlistarmenn. Hann segist helst
heillast af náttúrulífsmyndum frá Ís-
landi en annars myndum sem ein-
faldlega heilli augað. Bruce safnar
líka íslenskri tónlist og er ánægður
með að hafa farið í fyrsta sinn á tón-
leika með KK í nýafstaðinni Íslands-
dvöl sinni.
Með greininni fylgir ljóð og
mynd af póstkorti en síðastliðin þrjú
ár hefur Bruce sent vinum sínum ljóð
af ýmsu tagi með mynd frá Íslandi.
Segist hann ætla að setja þau saman í
barnabók einn daginn.
ljósmynd/Bruce McMillan
Réttir Þessa mynd setti Bruce á póstkort og skrifaði skemmtilegt ljóð með.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011
„Uppáhaldskökurnar mínar eru kökupinnar, af því að
það er svo gaman að búa þá til og það reynir á sköp-
unargleðina. Þeir gleðja augað og smakkast vel ef
maður er með góða uppskrift,“ segir Hjördís Dögg
Grímarsdóttir en hún er ein þeirra sem standa fyrir
baksturssíðunni mömmur.is. „Við rákumst á síðuna
hennar Bakerellu sem er fræg kökupinnagerðarkona
og við fórum að prófa okkur áfram. Þetta er rosalega
gaman og skemmtilegt að prófa eitthvað nýtt. Kökup-
inna er mjög auðvelt að búa til og þeir eru fallegir á
veisluborði. Hver og einn getur mótað þá eftir eigin
höfði, bæði að stærð og lögun en best
er að hafa þá aðeins stærri en kúlus-
leikjó, þannig eru þeir temmilegur
munnbiti, rétt eins og konfektmoli,“
segir Hjördís og bætir við að fallegast
sé að láta pinnana standa þegar þeir
eru bornir fram. „Í vefverslun okkar á
mömmur.is fást sérstakir bakkar til
að stinga kökupinnum í en það er líka
hægt að bera þá fram í lágum blóma-
vasa eða fallegum glösum sem hafa
verið fyllt af skrautsandi og stinga
pinnunum þar í. Um að gera að leika
sér með borðskreytinguna.“ Hún seg-
ir möguleikana vera endalausa í kö-
kupinnagerðinni. „Við prófuðum að
gera hráfæðiskökupinna og gerðum
þá súkkulaðið sjálfar, allt voða lífrænt, náttúrulegt og
gott. Við gerðum líka pinnakökur úr Orio-kexi, sem
var æði.“ Kökupinnar eru alls ekki eingöngu fyrir
barnaafmæli heldur ekki síður frábærir í fullorð-
insveislur. „Til dæmis er hægt að vera með fágaða ein-
lita pinna með fiðrildaskrauti í brúðkaupum og fínni
veislum. Útfærslumöguleikar eru óendanlegir, líka
hægt að gera einfalda pinna úr „ræskrispís“ og hjúpa
með súkkulaði. Ég nota alltaf íslenskt hvítt súkkulaði
frá Nóa Síríusi og lita það. Við notum oftast súkku-
laðikökubotn í grunninn, en það er frjálst val. Köku-
skrautið þarf að vera fíngert og í vef-
verslun okkar getur fólk keypt allt
sem til þarf í kökupinna. Við ætlum að
halda námskeið í kökupinnagerð í
Hagkaup núna í október til að sem
flestir geti kynnst þessu.“
Hollustupinnar:
1 bolli haframjöl
½ bolli döðlur
½ bolli rúsínur
3 apríkósur
1 ½ matskeið kókosflögur.
Allt hrært saman í matvinnsluvél og
mótað í kúlur.
Súkkulaðihjúpur: Kókosolía, lífrænt
ræktað kakó og agavesíróp (sjá nánar
á mommur.is).
Kökupinnar eru uppáhaldskökur Hjördísar
Sköpunargleðjandi
Hjördís Dögg Grímarsdóttir
Aðdáendur snillingsins Hugleiks
ættu ekki að láta framhjá sér fara
uppistand hans sem verður í kvöld á
Café Rosenberg við Klapparstíg.
Þar sem viðburðurinn er auglýstur
á Facebook kemur fram að vegna
fjölda áskorana muni Hugleikur
Dagsson flytja fallegt uppistands-
grín. Þar kemur líka fram að einhver
annar muni hita upp og að þetta
verði alveg fáránlegt.
Það er því full ástæða til mæta og
sjá og heyra það sem fram fer.
Vert er að taka fram að viðburður
þessi er bannaður litlum börnum.
Kl. 21:00 - 23:3 og 1000 kall inn.
Endilega...
...farið á uppistand Hugleiks
Morgunblaðið/Ernir
Snillingur
Hugleikur
Dagsson
Réttir
Hoof beats drum,
baa, baa;
hear, they come,
baa, baa;
here they come, baa, baa;
sheep in sight,
baa, baa;
sea of white,
baa, baa;
kid’s delight,
baa, baa.
by Bruce McMillan
Sími 568 5170
KYNNING Í SNYRTIVÖRUVERSLUNINNI
Í GLÆSIBÆ 14. TIL 16. SEPTEMBER
GJAFADAGARNIR ÞÍNIR
Kaupaukinn þinn þegar þú kaupir 2* Lancôme vörur:
- Lancôme taska
- Rénergie Lift Volumetry krem 15 ml
- Rénergie ML dropar 10 ml
- Rénergie augnkrem 5 ml
- Hypnôse Precious cells maskari ferðastærð
- L´Absolue varalitur ferðastærð
- Effacernes baugahyljari 5 ml
Kynnum haustlitina og nýja Hypnôse Doll eyes maskarann.
*
G
ild
ir
á
ky
nn
in
gu
m
eð
an
bi
rg
ði
r
en
da
st
.G
ild
ir
ek
ki
m
eð
B
oc
ag
e
eð
a
bl
ýö
nt
um
.E
in
n
ka
up
au
ki
á
vi
ðs
ki
pt
av
in
.
Verðmæti kaupaukans 18.500 kr.