Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 12

Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Tíður ofsaakstur á höfuðborgarsvæð- inu að undanförnu veldur bæði lög- reglunni og Umferðarstofu áhyggjum en báðir aðilar benda á að tilvik sem þessi virðist koma í bylgjum. Sé litið til lengri tíma hafi hraðakstursbrot- um almennt fækkað, alvarlegri um- ferðarslysum hafi fækkað og öku- hraði almennt minnkað. Ástæða sé til að halda þessum staðreyndum á lofti þó að upp komi nokkur atvik þar sem hratt er ekið um götur. Þannig var hraðakstur ekki talinn vera aðalorsök þeirra átta banaslysa sem urðu í um- ferðinni hér á landi í fyrra. Engu að síður hafa hraðaksturstil- felli verið nokkuð tíð að undanförnu. Frá 10. ágúst sl. eru skráð vel á átt- unda hundrað slíkra brota á höfuð- borgarsvæðinu, og eru þá hraðamæl- ingar í myndavélum undanskildar. Í mörgum tilvikum hafa kraftmiklir bílar verið á ferðinni en einnig bifhjól á allt að 200 km hraða. Í sumum til- fellum er verið að taka ökumenn í annað og þriðja sinn fyrir sömu brot, og hafa þeir verið á öllum aldri og af báðum kynjum, þó að ungir karlmenn komi oftast við sögu hjá lögreglunni hvað þetta varðar. Vonandi tímabundið ástand Sem kunnugt er varð banaslys á mótum Geirsgötu og Tryggvagötu 12. ágúst sl. þar sem hraðakstur er talinn hafa átt stóran þátt í slysinu. Einnig þykir mildi að ekki hafi farið verr í tveimur óhöppum þar sem hraðakstur kom við sögu, annars veg- ar á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogi 5. september sl. og á Arnarbakka í Reykjavík 23. ágúst. Í fyrrnefnda til- vikinu var ökumaðurinn 67 ára og ungir piltar um tvítugt voru í kapp- akstri á bílum sínum í Arnarbakka. Meðfylgjandi ljósmynd er frá þeim vettvangi. Þessi mál eru til rannsókn- ar hjá lögreglu og rannsóknarnefnd umferðarslysa og ökuhraði bílanna liggur ekki fyrir er slysin urðu. Er of snemmt að segja til um hvort rann- sókn leiði til ákæru á hendur öku- mönnunum á grundvelli hegningar- laga. Fordæmi eru fyrir ákærum og dómum vegna ofsaaksturs þar sem al- mannahætta skapaðist og jafnvel manntjón hlaust af en í flestum til- vikum er beitt sektarákvæðum og ökuleyfissviptingu fyrir hraðaksturs- brot. Upphæðir eru misháar eftir akstri umfram leyfilegan hraða og geta numið allt að 150 þúsund krón- um og sviptingu ökuleyfis í þrjá mán- uði. (sjá töflu). Kristján Ólafur Guðnason, yfir- maður umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir það mat lögreglu að ástandið í umferðinni hafi batnað. Þannig hafi dregið úr ofsa- akstri yfir lengri tíma litið og slysum fækkað. „Hins vegar hafa komið upp nokkur tilvik núna á stuttum tíma sem við höfum áhyggjur af en vonum að þetta sé bara tímabundið ástand sem eigi eftir að fara aftur í betra far,“ segir Kristján. Almenningur andvígur Sigurður Helgason hjá Umferðar- stofu tekur undir með Kristjáni og telur mikinn hraðakstur vera á und- anhaldi. Það sé jafnframt áhyggjuefni ef ofsaakstur á umferðargötum sé að færast í vöxt á ný. Umræða um þessi mál hafi vonandi hamlandi áhrif. „Al- menningsálitið er andvígt þessu at- ferli,“ segir Sigurður og bendir á að fyrir um 30 árum hafi mikið verið tal- að um kappakstur á götunum. Þá hafi akstursíþróttir tekið þetta upp á sína arma og kappakstur nánast horfið af götunum síðan. Það sé óviðunandi ef þetta sé að endurtaka sig. Í frumvarpi til nýrra umferðarlaga, sem er til meðferðar hjá Alþingi, er ekkert sérstaklega tekið á hraðakstri. Stærsta breytingin er hækkun öku- leyfisaldurs um eitt ár, sem mun ger- ast í áföngum á fjórum árum. Sigurð- ur segir að verið geti að sú breyting dragi eitthvað úr hraðakstri, þar sem aldur og þroski ökumanna hafi áhrif, en mestu skipti hins vegar góð öku- kennsla, undirbúningur og gott upp- eldi áður en farið er út í umferðina. Tíður ofsaakstur áhyggjuefni Morgunblaðið/Árni Sæberg Kappakstur Nýlega fóru ungir ökumenn í kappakstur um Arnarbakka sem endaði með árekstri á ljósastaur.  Lögreglan og Umferðarstofa vona að ofsaakstur að undanförnu sé ekki merki um að brotunum fjölgi  Almennt hefur þessum brotum fækkað  Háar sektir og ökuleyfissvipting fyrir mikinn hraðakstur Hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu - nokkur dæmi Dags. Staðsetning Hraði Hám.hraði Ökutæki Aldur ökumanns 11. sep. Ártúnsbrekka 155 80 Fólksbíll 31 árs 11. sep. Hafnarfjarðarvegur 127 80 Fólksbíll 48 ára 10. sep. Reykjanesbr. Kópavogi 140 80 Fólksbíll 17 ára 10. sep. Sæbraut Rvík 140 60 Fólksbíll 20 ára 8. sep. Hringbraut Rvík 107 50 Fólksbíll 18 ára 5. sep. Hafnarfj.vegur, Kópavogi* ? 80 Fólksbíll 67 ára 30. ágú. Reykjanesbr. Garðabæ 201 60 Bifhjól Fertugsaldri 27. ágú. Suðurlandsvegur 155 80 Fólksbíll Sextugsaldri 23. ágú. Arnarbakki Rvík* ? 30 Fólksbíll 18-19 ára 17. ágú. Reykjanesbr. Garðabæ 155 80 Fólksbíll Þrítugsaldri 12. ágú. Geirsgata/Tryggvagata* ? 50 Fólksbíll Um tvítugt 10. ágú. Nýbýlavegi Kópavogi 124 50 Fólksbíll Þrítugsaldri 6. ágú. Vesturlandsv. v/Höfðabakka 180 80 Bifhjól (x2) Þrítugsaldri Viðurlög við hraðakstursbrotum, sektir í þúsundum wkróna Svipting ökuréttinda í mánuðum * Slys þar sem grunur leikur á að hraðakstur hafi átt sér stað en raunhraði liggur ekki fyrir Hám.hraði 30 35 50 60 70 80 90 36-40 5 41-45 10 5 46-50 15 10 51-55 20 15 56-60 25 20 5 61-65 45 25 10 66-70 55 30 15 5 71-75 70 50 20 10 76-80 55 25 15 5 81-85 70 30 20 10 86-90 40 30 15 10 91-95 50 40 30 20 96-100 60 50 40 30 10 101-110 90 60 50 50 30 111-120 110 80 60 60 50 121-130 130 110 80 80 70 131-140 130 110 110 90 141-150 140 140 130 151-160 150 140 161-170 150 ** ** Sautján ára farþegi lést M æ ld ur H ra ði „Að sjálfsögðu erum við á móti hraðakstri og höfum reynt að vinna að því að koma honum af götunum og inn á lokuð og örugg svæði. Þetta er engan veginn liðið og við tökum hart á því ef upp koma svona mál,“ segir Vilhelmína Eva Vilhjálmsdóttir, formaður bíla- klúbbsins Live2cruize, en klúbb- urinn heldur m.a. úti eftirsóttu spjallsvæði á samnefndum vef þar sem fjallað er um ýmis hugðarefni bílaáhugamanna. Um 16 þúsund manns eru skráð á spjallvefinn en klúbburinn var stofnaður fyrir 10 árum af Vilhelm- ínu og Steven Páli Rogers. Hefur klúbburinn átt samstarf við Um- ferðarstofu um forvarnir gegn hraðakstri og einnig almennt gott samstarf við lögregluna. Þá hefur klúbburinn staðið að minninga- rakstri um þá sem látist hafa í um- ferðinni, eins og eftir banaslys á Sæbraut í mars árið 2006. „Við stöndum ekki fyrir skipu- lögðum spyrnum eða hraðakstri og ef við verðum vör við að menn séu að efna til slíks athæfis eru þeir umsvifalaust teknir út af spjallinu,“ segir Vilhelmína en dæmi um þetta hafa komið upp að hennar sögn. Strax sé tekið á þeim málum. Hún segir þörf á fleiri lokuðum svæðum fyrir ökuþóra að spreyta sig á á kraftmiklum bílum sínum. Aðeins sé um Kvartmílubrautina í Hafnarfirði og akstursíþrótta- svæði AÍH við Krýsuvíkurveg að ræða en einnig sé verið að byggja upp braut á Akureyri. Telur hún vanta sambærilegt svæði innan borgarmarkanna. bjb@mbl.is Engan veginn liðið og hart tekið á málum sem koma upp BÍLAKLÚBBURINN LIVE2CRUIZE UM HRAÐAKSTUR Bílar Frá minningarakstri klúbbsins um Sæbraut í mars árið 2006. Morgunblaðið/Sverrir 771 hraðakstursbrot skráð hjá lögregl- unni á höfuðb.sv. frá 10. ágúst sl. 12.000 hraðakstursbrot skráð í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu árið 2010 500 ökumenn teknir í sama umdæmi 2010 sem áður höfðu misst ökuleyfi 300 ökumenn voru teknir í fyrra sem aldrei höfðu tekið bílpróf 150 þúsund kr. er hámarkssekt fyrir hraðakstur, auk ökuleyfismissis ‹ HRAÐAKSTUR › » „Allmargir öku- menn voru tekn- ir fyrir hrað- akstur á höfuðborgar- svæðinu um helgina. Þeir eru á öllum aldri og af báðum kynj- um. Bílar fimm þeirra mældust á yfir 130 km hraða en í þeim hópi voru 19 ára piltur og kona um þrítugt. Gróf- asta brotið framdi hins vegar karl á sextugsaldri en sá ók Suður- landsveg á 155 km hraða. Ekki var hann samt elsti ökufanturinn sem lögreglan hafði afskipti af um helgina því tveir karlar á sjötugs- aldri voru líka í þessum vafasama hópi fimmmenninga, sem áður voru nefndir.“ Ökufantar á öllum aldri á ferðinni Dagbók lögreglu 30. ágúst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.