Morgunblaðið - 14.09.2011, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 14.09.2011, Qupperneq 16
FRÉTTASKÝRING Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þótt efnahagslegur upp-gangur sé oft það fyrstasem kemur upp í hugannþegar minnst er á Kína nú- tímans hafa margir íbúanna áhyggj- ur af andlegri kreppu í landinu. Wen Jiabao forsætisráðherra hefur jafn- vel minnst á þennan vanda, aldraðir kommúnistar segja að í stað marx- ismans hafi komið taumlaus pen- ingatrú og eiginhagsmunasýki. En æ fleiri Kínverjar hafa leitað í kristindóminn eftir andlegri leið- sögn og huggun, tilgangi með lífinu. Í grein Tim Gardans á vefsíðu BBC er sagt að fjölgun kristinna megi líkja við sprengingu; á hverjum sunnudegi sé nú fleira fólk í kirkju í Kína en í kirkjum Evrópu. Oft er sagt að Kínverjar séu al- mennt lítt trúhneigðir, þeir leggi mest upp úr siðaboðskap Konfúsíus- ar og forfeðradýrkun. Stjórnvöld í Peking segja að aðeins séu 25 millj- ónir kristinna í Kína en aðrir heim- ildarmenn segja að sú tala sé út í hött. Raunverulega talan sé a.m.k. 60 milljónir og hugsanlega mun hærri. Ekki hátt hlutfall hjá um 1300 milljóna þjóð. En þá ber að minna á að kristnin var eins og önnur trúar- brögð bönnuð, trúboðar reknir úr landi eftir valdatöku kommúnista 1949 og kristnir reyndar ofsóttir í tíð Mao Zedongs. Enn er nemendum innrætt guðleysi í grunnskólunum. Horfið var frá þessari harðlínu- stefnu á níunda áratugnum, nú seg- ist kommúnistaflokkurinn hafa tekið að sér að „verja og virða trúarbrögð þar til að því kemur að trúin sem slík hverfur“. Eftir sem áður mega þó trúfélög ekki fara yfir ákveðna línu, þau mega eingöngu starfa í húsa- kynnum sínum. Nýlega var lögregl- unni sigað á kristna sem iðkuðu trú sína á götu í Peking. Opinbert og neðanjarðar Mótmælendakirkjur eru mun öfl- ugri en kaþólska kirkjan í Kína, þær starfa nú að hluta til opinberlega. En oft starfa deildir þeirra sjálf- stætt á laun og eru alls ekki á þeim buxunum að hlýða fyrirmælum yfir- manna sinna. Kaþólska kirkjan er í reynd líka tvískipt, annars vegar deild sem fær að vísu að álíta páfann sinn æðsta fulltrúa í andlegum efn- um en sver að öðru leyti flokknum og ríkinu hollustu sína. Hin, sem er stærri, starfar neðanjarðar og í heimahúsum eða leynilegum stöð- um, eins og flestar kirkjur kristinna manna í landinu, lýtur á hinn bóginn Páfagarði í öllu. Að sögn Gardans er munurinn þó ekki eins mikill og menn skyldu halda, á undanförnum árum hafa deildirnar oft viðurkennt biskupa hvor annarrar. Öðru hverju sýnir Pekingstjórnin samt klærnar. Hún hefur nýlega skipað biskupa þvert á skoðanir Páfagarðs sem hefur svarað með því að bannfæra einn þeirra. Kínverskir ráðamenn hafa, sem kunnugt er, beitt liðsmenn líkams- æfinga- og íhugunarhreyfingarinnar Falun Gong mikilli harðneskju gegnum tíðina, látið fangelsa og pynta marga af þátttakendunum. Þar voru innlend samtök á ferðinni, samtök sem sumir töldu að væru með 100 milljónir áhangenda og aug- ljóst að flokkurinn taldi valdaein- okun sinni ógnað. Kínverskir ráða- menn álíta að hættan af kristninni sé minni, kirkjudeildirnar eru margar og þær oft innbyrðis ósammála. Ef til vill verður í fyrstu látið duga að hunsa þær að mestu. En sumar af evangelísku kirkj- unum, með sterkan bakhjarl í Bandaríkjunum, leggja mikla áherslu á að breiða út fagnaðar- erindið. Útilokað virðist að þær geti til lengdar sætt sig við skorðurnar sem þeim eru settar í Kína. Verða Kínverjar að lokum kristin þjóð? Boðskapur Jesú Fagnaðarerindi kristninnar virðist eiga greiða leið í hjörtu Kínverja, hér syngur kór við miðnæturmessu í dómkirkju í Peking. 16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Slagur ríkis-stjórn-arinnar við forsetann heldur áfram. Utanríkis- ráðherrann segir að orðaskipti Ólafs Ragnars og Stein- gríms J. megi rekja til deilna í Alþýðu- bandalaginu sáluga fyrir hart- nær þremur áratugum. Össur var þar líka og þekkir til. En ekki bara hann. Hver og einn ráðherra núverandi ríkis- stjórnar á rót í Alþýðu- bandalaginu nema Jóhanna sem var á næsta bæ, Þjóðvaka, og hefur alþýðubandalags- mann, fyrrum formann Æsku- lýðsfylkingarinnar, sem að- stoðarmann til að bæta það sem upp á vantar til að geta talist fullgildur fortíðarmaður úr Alþýðubandalaginu. En það gamla bandalag, skilgetið af- kvæmi íslenska Komm- únistaflokksins, getur svo sannarlega horft roggið um öxl. Nær allir ráðherrarnir koma þaðan, forseti Íslands kemur þaðan og gamli aðstoð- armaðurinn hans, seðla- bankastjórinn, kemur þaðan og jafnvel landlæknirinn kem- ur þaðan. Þessu hefðu þeir Einar og Brynjólfur aldrei trú- að að hægt væri að ná fram nema með blóðugri byltingu. En þessi stórmerkilega sögulega stað- reynd er einnig nýtileg í nútíman- um. Hún skýrir vel hvernig komið er fyrir íslensku þjóð- lífi og hvers vegna þrengist svo mjög að atvinnuhorfum, fjárfestingum, frumkvæði og áræði með hverjum degi sem líður, undir þessu stjórn- málalega oki. Fortíðardraug- urinn úr Alþýðubandalaginu gamla, sem hvarvetna glittir í, hefur verið sjálfum sér trúr, eins og drauga er háttur. Hvarvetna í víðri veröld þar sem stefna þess háttar flokka setti sitt mark á þróun þjóðlífs fór fljótlega að halla undan fæti. Fyrirtækjarekstur ein- staklinga var litinn hornauga. Heilbrigð fjárfesting fékk sama augnagot, og allt gert til að drepa slíkt í dróma. Ofurtrú á skattpíningu grípur um sig í stjórnkerfinu og þegar hún tekur að hægja á atvinnulífi og draga úr vinnugleði er úrræði trúaðra að bæta úr með því að auka enn á píninguna. Alþýðu- bandalagið lagði upp laupana sem betur fer. En einstæðar aðstæður í landinu veittu því óvænt framhaldslíf eftir dauð- ann, undir nýju nafni og núm- eri. Brátt snýr draugurinn aft- ur í sína dys, en dýrt varð innlit hans í mannheima. Sérhver ráðherra núverandi ríkisstjórnar á rót í Alþýðubandalaginu nema Jóhanna sem var þar nærri} Horfir roggið um öxl Ráðherrar nú-verandi rík- isstjórnar hafa tek- ið upp þann ósið að svara helst engu, veita stundum rangar upplýsingar og í besta falli að veita eins litl- ar upplýsingar og þeir komast upp með. Allt er þetta gert í nafni hinnar gagnsæju stjórn- sýslu sem ríkisstjórnin lagði mikla áherslu á í stefnulýsingu sinni. Í fyrradag innti Ólöf Nordal alþingismaður Jóhönnu Sigurð- ardóttur forsætisráðherra eftir viðbrögðum við aðfinnslum for- seta Íslands við afstöðu og gjörðum ríkisstjórnarinnar í Icesave-málinu. Ólöf spurði þriggja spurninga: Hvaða skoð- un forsætisráðherra hefði á ummælum forseta, hvort for- sætisráðherra teldi forseta hafa farið út fyrir umboð sitt og hvort forsætisráðherra ætlaði að láta það fram hjá sér fara að forseti saki ríkisstjórnina um að gæta ekki hagsmuna þjóð- arinnar eða hvort það sé að meinalausu fyrir ríkisstjórnina að forseti tali svo í hennar nafni utan landsteinanna. Allt eru þetta spurningar sem eðlilegt hlýtur að teljast að for- sætisráðherra svari þinginu, en Jóhanna lét það eiga sig. Hún sagði aðeins að hún hefði sagt fjölmiðlum að hún teldi forsetann hafa vegið ómaklega að stjórnvöldum og að hún mundi ræða það við hann, en neitaði að fjalla efnislega um málið. Engan þarf að undra þegar forsætisráðherra kemur fram af slíkri óvirðingu við þingið þó að stjórnarandstaðan á þingi hafi áhyggjur af frumvarpi for- sætisráðherra sem gerir ráð fyrir að færa völd frá Alþingi til stjórnarráðsins. Þegar þing- menn reka sig ítrekað á að ráð- herrar gera ekkert með fyr- irspurnir þeirra eða óskir um viðveru í þingsal, svo dæmi séu tekin, er eðlilegt að þingmenn hafi varann á þegar forsætis- ráðherra ætlar að sölsa undir sig aukin völd. Forsætisráð- herra og flokkur hans hefur löngum talað fyrir því að treysta stöðu Alþingis. Lítils- virðingin gagnvart þingmönn- um og þingstörfunum segir aðra sögu. Forsætisráðherra gerir ekkert með fyrirspurnir þingmanna} Þingið hunsað Þ ó að ég sé bráðungur, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd þekki ég allmarga sem eru á miðjum aldri og á því auðvelt með að setja mig í þeirra spor. Eitt af því sem ég hef tekið eftir í þeirra fari er að eftir því sem árin færast yfir þá verða þeir líka yfirvegaðri og rólyndari og um leið hamingjusamari. Þetta síðarnefnda, að hamingja færist yfir fólk eftir því sem árunum fjölgar, er ekki ný sannindi – þetta er löngu vitað, rannsakað og sannað. Þannig hafa rannsóknir gefið til kynna að fólk verði óhamingjusamara frá barnæsku fram á miðjan aldur, en síðan taki hamingjusólin að rísa og nái hámarki um það leyti sem ævisólin hnígur til viðar. Af hverju málum er svo háttað er ekki eins ljóst, en hugsanleg svör eru legíó. Eitt er það að hamingjan aukist vegna þess að sá miðaldra átti sig á að hann sé ekki eilífur og njóti fyrir vikið betur hvers dags. (Í þessu sambandi læt ég eins og tilgátan um að all- ir séu dauðlegir sé sönn, en eins og almennt er vitað þá er það bara tilgáta sem verður ekki sönnuð fyrr en allir eru dauðir.) Önnur skýring, og kannski nærtækari, gæti verið sú að þegar komið er á miðjan aldur eru hjónin loks laus við uppreisnargjarna unglinga af heimilinu og fátt betur til þess fallið að skapa hamingju en heimilisfriður. Enn hugsanleg skýring gæti líka verið að hinn miðaldra sér fyrir endann á húsnæðisláninu eða er búinn að átta sig á honum endist hvort eð er ekki aldur til að borga af því eða af námslánunum og kærir sig því kollóttan. Segja má að fyrsti hluti ævinnar fari í að reyna að verða eitthvað, annar hlutinn að átta sig á að maður sé orðinn eitthvað og þriðji og síðasti hlutinn að sæta sig við niðurstöðuna. Það má vel vera að ein helsta skýring á aukn- ingu hamingju eftir aldri sé einmitt vegna þess að viðkomandi sé loks búinn að átta sig á því að ekki verður lengra komist upp met- orðastigann og því ekki ástæða til að erfiða meira: Hér er ég og hef það bara fínt, hugsar viðkomandi makindalega með sér og teygir sig í vínarbrauðið eða gulrótina, eftir því sem við á. Ég mun aldrei ná á kirkjuþing, verða Íslandsmeistari í krullu, skrifa metsölu- matreiðslubók eða komast í stjórnlagaráð og er það ekki hið besta mál? Nú verð ég að hryggja þig með því, kæri lesandi, að ef þú ert yngri en fimmtugur ertu enn á leið niður í táradal- inn, þín verstu ár eru framundan. Það er þó ekki ástæða til að örvænta, því þó að þér finnist kannski lítil huggun í því að hugsa til þess að allt fari á betri veg eftir því sem þú eldist þá er sú raunin, bíddu bara. Ef þú ert aftur á móti kominn yfir fimmtugt hefur hamingjuhjólið tekið að snúast þér í hag, þér líður betur og mun líða betur með hverju árinu, nýtur hvers dags eins og hann sé sá síðasti, eða næstsíðasti, og, ef tilgátan er rétt, deyrð síðan saddur lífdaga. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Hamingjuríkt ævisíðdegi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Heimildarmenn segja að mikill innileiki og sönn trúarþörf ein- kenni samkomur kristinna manna í Kína. Fólkið er af öllu tagi, oft ungt og velefnað fólk í borgunum í leit að lífsfyllingu í lífsgæðakapphlaupinu en einnig blásnauðir smábændur úti á landsbyggðinni. Ung og velmenntuð kona sagði Gardan að allir væru svo önnum kafnir í vinnunni, enginn tíma til að eiga mannleg og ein- læg samskipti. „En í kirkjunni finnur fólk hlýju, finnst að það sé velkomið... að fólk elski það í reynd og vill þess vegna verða hluti af þessu samfélagi.“ Finna hlýju og kærleika UNGIR KÍNVERJAR Í KIRKJU

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.