Morgunblaðið - 14.09.2011, Page 22

Morgunblaðið - 14.09.2011, Page 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 ✝ Sveinn ÁkiÞórðarson fæddist í Kaup- mannahöfn 1. ágúst 1922. Hann lést 16. ágúst 2011. Hann var sonur hjónanna Þórðar Benediktssonar og Önnu Kamillu Benediktsson, f. Hansen, þau fluttu til Vestmannaeyja þegar Sveinn var á öðru ári. Þau Anna Kamilla og Þórður eign- uðust fimm börn og var Sveinn elstur þeirra. Næst elst var Ásta Benedikta, sem er látin, þá bræð- urnir Björn Víkingur og Baldur, en Regína lést við fæðingu. Sveinn kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Mörthu Sigurð- ardóttur, í Vestmannaeyjum árið 1943 og hófu þau fljótt búskap en fyrstu árin bjuggu þau í Nýjabæ hjá foreldrum Mörtu en fluttu frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur 1951. Börn þeirra Sveins og Mörthu eru: Þórður Ben, fæddur 1945, eig- inkona hans er Kar- ólína Kristinsdóttir. Þau búa í Düssel- dorf í Þýskalandi. Anna, fædd 1950, eiginmaður hennar er Pétur Kristjánsson. Þau eru búsett í Reykjavík. Sveinn eignaðist einnig dótt- urina Ásgerði Hrönn, sem fædd er 1968. Eiginmaður hennar er Vignir Ólafsson og eru þau bú- sett í Reykjavík. Sveinn starfaði hjá Rafmagns- eftirliti ríkisins sem rafmagns- eftirlitsmaður frá 1951 og allan sinn starfsferil eftir það. Úför Sveins fór fram frá Foss- vogskirkju þann 26. ágúst 2011. Ég kynntist Sveini fyrst eftir að við vorum báðir komnir á virðu- legan aldur. Við spiluðum árum saman golf, hópur manna, og Sveinn var sá sem hélt þeim hópi saman. Aldrei bar skugga á þá samveru, ekki einu sinni í hita leiksins, og var það ekki síst Sveini að þakka hve góður félagsskapur það var. Gömlu ævintýrin byrjuðu gjarnan á orðunum: „Einu sinni var“ og þá setti mann strax hljóð- an. Og þannig var það þegar Sveinn talaði, menn lögðu við hlustir. Frásagnir hans höfðu oft yfir sér ævintýrablæ og urðu jafn- an til að skapa skemmtilega stemmningu í hópnum. Sveinn var þó fyrst og fremst góður maður sem lét sér annt um kunningja sína og vini og sýndi þeim ræktarsemi. Þegar ég varð fyrir áfalli á golfvellinum fyrir nokkrum árum urðu árvekni hans og hárrétt viðbrögð til að bjarga lífi mínu, og mátti þar engu muna. Ég kveð Svein í virðingu og þökk og sendi eiginkonu hans og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Sveins Áka Þórðarsonar. Bragi Jónsson. Sveinn Áki Þórðarson ✝ Þorsteinn Þor-valdsson fædd- ist í Reykjavík 12. júní 1943. Hann lést á heimili sínu þann 27. ágúst 2011. Foreldrar Þor- steins voru Þor- valdur Þor- steinsson, f. 6. desember 1917, d. 22. janúar 1998, og Guðrún Tómasdóttir, f. 10. október 1918, d. 25. júní 2000. Systkini Þorsteins eru Halldóra Anna, Guðrún Ragnheiður og Tómas. Eftirlifandi eiginkona Þor- steins er Þorbjörg Birna Valdi- marsdóttir f. 29.11. 1945. For- eldrar hennar voru Valdimar Þórhallur Karl Þorsteinsson f. 2. febrúar 1921, d. 26. október 1981 og Sigrún Guðbjörns- dóttir f. 28. desember 1921, d. 17. apríl 2004. Börn þeirra eru: 1) Þorvaldur Þorsteinsson, f. 11. júní 1963, eiginkona hans er Sonja María Hreiðarsdóttir og eiga þau tvö börn a) Þor- meðan þau bjuggu í Vest- urbænum hóf Þorsteinn bygg- ingaframkvæmdir á lóð við Espilund 5 í Garðahreppi, nú Garðabæ, og flutti fjölskyldan þangað árið 1973. Árið 1972 keypti Þorsteinn Elg hf., sem saumaði herrafrakka fyrir herrafataverslanir í Reykjavík. Sú starfsemi var ekki auðveld á þessum árum eftir að fríversl- unarsamningur EFTA þjóða tók gildi og að lokum breytti Elgur hf. um starfsemi, hætti saumaskap en varð að innflutn- ingsfyrirtæki. Næstu fimmtán árin ráku þau hjónin heild- verslun auk þess að reka versl- un samhliða. Hjónin söðluðu svo um og ráku gistiheimili fyr- ir Guðmund Jónasson hf. í nokkur ár. Síðustu 14 árin starfaði Þorsteinn sem örygg- isvörður í Seðlabanka Íslands. Þorsteinn starfaði innan Lions- hreyfingarinnar og var áður meðlimur í Lionsklúbbnum Ægi og formaður hans 1980- 1981. Útför Þorsteins var gerð í kyrrþey 13. sept. 2011. björgu b) Frey. 2) Margrét Sigrún Þorsteinsdóttir f. 13. maí 1973, eig- inmaður hennar er Arnar Birgisson og eiga þau þrjú börn a) Þorstein Karl, b) Ágústu Ingu, c) Guðrúnu Láru. Þorsteinn ólst upp á Nesveginum í Reykjavík. Þor- steinn var alla tíð KR-ingur í húð og hár og stundaði flestar íþróttir með félaginu og þá sér- staklega skíði með skíðadeild- inni í Skálafelli og badminton. Þegar Þorsteinn var 18 ára fór hann í tveggja ára versl- unarnám til Lundúna. Eftir heimkomuna réð hann sig í Herrabúðina í Austurstræti þar sem hann varð verslunarstjóri. Þorsteinn kynntist eftirlifandi eiginkonu sinni Þorbjörgu strax í barnæsku og giftu þau sig sumarið 1964 og hófu sinn búskap á Grensásvegi. Fluttu þau fljótlega á Lynghaga 16 þar sem þau bjuggu í 8 ár. Á Enginn skal heyra mig kveina eða kvarta, kvöldsólin brýst gegnum skýflóka svarta; huganum lyftir í hæðirnar vorið, hallar til vesturs og léttir mér sporið. Þokunni léttir, nú þekki ég fjöllin, þar sem ég barðist við álfana og tröllin. Villtan og örmagna vinir mig fundu, – í víngarðinn komst ég á elleftu stundu. (K.N.) Ég mun alltaf elska þig, pabbi minn, þín er sárt saknað. Sigrún. Þorsteinn Þorvaldsson eða Steini er í barnsminninu stóri frændinn í hópi frændsystkina okkar sem þá bjuggu á Nesvegin- um og síðar í Arnarnesinu og komu alltaf ásamt föðurfjölskyldunni í pönnukökukaffi upp til guð-ömmu á sunnudögum, ömmu okkar Guð- rúnar Þorgrímsdóttur, sem svo lengi sem hún lifði bjó uppi í sama húsi og við, fyrst í Bröttugötunni og seinna í Skerjafirðinum. Steini frændi var þar, svo kátur alltaf, hlýlegur og notalegur við okkur yngra fólkið og þar að auki svona sætur strákur með dökka liðaða hárið, miklu flottari en þessir út- lensku á leikaramyndunum sem við söfnuðum um tíma og þá feng- ust í frímerkjabúð í Lækjargötu. Á unglingsárunum kynntumst við því einnig hvað hann var dug- legur og samviskusamur í starfi. Hann var þá hægri hönd föður okk- ar, sem á þeim árum rak þrjár herrafataverslanir og snyrtivöru- verslun í miðbænum auk Elgs hf þar sem aðallega voru saumaðir herrarykfrakkar. Ár eftir ár stóð- um við hlið við hlið, oftast í jólaös- inni í Herrabúðinni í Austurstræti, og seldum randsaumaða enska skó og sokka með, vandaða skyrtu og bindi við, stakar buxur og ullar- peysu eða vesti með, stakan jakka eða jakkaföt og þá helst Elgs- frakka yfir. Steini frændi leið- beindi, fylgdist með og sá um að öll herlegheitin pössuðu nú til að við- skiptavinirnir færu ánægðir út og kæmu vonandi aftur. Að föður okkar látnum keypti hann Elg hf og rak ásamt sinni góðu eiginkonu Þorbjörgu, fyrst með svipuðu sniði en síðar um árabil í öðru formi. Við áttum einstaklega góða stund saman eitt fallegt sólskins- kvöld í júlí síðast liðnum, stór hóp- ur úr þessari fjölskyldu, á griða- stað okkar allra í hrauninu sunnan við Þingvallavatn. Þar vorum við samankomin afkomendur ömmu Guðrúnar og afa Tómasar ásamt fjölskyldum okkar. Tómas föður- bróðir okkar nú elstur en við systkinabörnin fulltrúar næst elstu kynslóðarinnar, börnin okk- ar flest löngu fullorðið fólk en önn- ur um eða rétt yfir unglingsald- urinn. Hópur barnabarna eða barnabarnabarna ærsluðust í kvöldkyrrðinni og allir voru ein- staklega ánægðir að hittast loks- ins. Steini frændi, kátur og notaleg- ur að vanda, sagðist njóta þess sérstaklega að vera nú hættur að vinna og hafa meiri tíma til að sinna fjölskyldunni, veiðinni og ýmsum öðrum áhugamálum. Sá tími varð því miður styttri en nokkurn grunaði þar. Við munum sakna hans en eiga í minningunni fallega mynd þar sem hann dólar í makindum á bátnum úti á silfur- sléttu vatninu, fylgist með okkur hinum úr fjarska og sér hvort hann verður ekki var. Við sendum öllum hans nán- ustu innilegar samúðarkveðjur. Guðrún og Þórunn Sigríður, Þorgrímsdætur. Kær vinur, Þorsteinn Þor- valdsson eða Steini hennar Tobbu eins og hann var alltaf nefndur í okkar vinahópi, er fallinn frá. Andlát hans bar svo brátt að, að mann setti hljóðan um stund. Fáum dögum áður höfðum við verið í kvöldverðarboði hjá þeim hjónum. Steini var góðum gáfum gædd- ur og áttum við skemmtilegar og gefandi umræður um allt milli himins og jarðar, oftar en ekki heimsmálin eða pólitík. Hann hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum en var réttsýnn og virti skoðanir annarra. Steina verður sárt saknað í okkar hópi þar sem vináttan hefur staðið yfir í nær hálfa öld. Við þökkum yndislegar sam- verustundir sem aldrei hefur bor- ið skugga á. Guð styrki Tobbu, Sigrúnu, Þorvald og þeirra fjölskyldur. Sigurbjörg og Sigurður. Agnar og Ólafía. Það er ótrúlega stutt síðan við heilsuðumst öll, í júlí. Þau innilega kát að koma af velheppnuðu ætt- armóti föðurættar Þorsteins á Siglufirði og við Dónald innilega kát yfir að eiga nokkra sumar- daga með Steina og Tobbu. Já, það var glatt á Karlsrauðatorgi – sól skein í heiði, Látrastöndin geislandi fögur og Eyjafjörðurinn skartaði öllu sínu besta. Við heim- sóttum Árskógsströnd, Hauganes – Hjalteyri og Akureyri. Drukk- um í okkur kaffi og listastrauma í menningarhúsunum Bergi og Hofi. Aldeilis himinsæl með vina- hjónunum okkar kæru. Við Dó- nald erum innilega þakklát for- sjóninni fyrir að hafa fengið á miðjum aldri að kynnast hjónun- um Þorsteini og Þorbjörgu og eiga æ síðan að hjartans vinum. Vitur maður sagði: „Líf án vináttu er einskisnýtt.“ Þorsteinn Þorvaldsson, vinur- inn okkar góði, var mikið glæsi- menni sem tekið var eftir hvar sem hann fór. Alltaf óaðfinnan- lega klæddur, fagurhærður, með sitt karlmannlega yfirbragð, minnti hann um margt á enskan lávarð eða fræga „Holly- woodstjörnu“. Steini var með afbrigðum minnugur og fróður maður, hann las mikið bæði í blöðum og bókum og átti auðvelt með að miðla fróð- leik til okkar hinna. Vakandi um samtímann – ljóðelskur og gat farið á flug þegar góðar vísur og ljóð voru annars vegar. Beittur og beinskeyttur ræddi hann líðandi stund – menn og málefni. Alltaf sannur og trúr sjálfum sér. Þorsteinn var ungur þegar ást- in hans, hún Þorbjörg vinkona mín, kom inn í líf hans. Þau klæddu hvort annað ótrúlega vel, svo skínandi bæði tvö. Þau voru sálufélagar og hjartans vinir. Fal- legra hjónasamband en þeirra er vandfundið. Í lífsins ólgusjó stóðu þau styrk og studdu hvort annað í blíðu og stríðu. Og alltaf lýsti ástin þeim veginn. Gleðigjafarnir þeirra, börnin tvö, Þorvaldur og Sigrún, og fjölskyldur þeirra bera foreldrum sínum einstaklega fag- urt vitni. Þorsteinn vinur okkar var sannarlega hamingjunnar maður. Nú er hann farinn. Við Dónald kveðjum með orðum þjóðskálds- ins Matthíasar Jochumssonar: „Aldrei er svo bjart yfir öðling- smanni að eigi geti syrt eins svip- lega og nú – og aldrei svo svart yf- ir sorgarranni að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“ Guð blessi Þorstein Þorvalds- son. Guð umvefji þá sem hann unni. Helga Mattína og Dónald, Dalvík. Þorsteinn Þorvaldsson Ljúfar stundir bernsku- og æskuáranna rifjast upp þegar heiðurskonan Sigríður Beinteins- dóttir, yndisleg vinkona móður minnar, er kvödd. Mamma og Sigga voru mikið saman – með börnin sín – í saumaklúbb með góðum vinkonum og á stórum stundum í fjölskyldunum. Það var alltaf kátt á hjalla í návist Siggu Beinteins – hún var geislandi kona – létt á fæti og létt í lund. Ég sé fyrir mér húsmóðurina Sigríði, brosandi með flotta svuntu í rúm- góða eldhúsinu á Langholtsvegin- um. Alltaf fullt af gestum – kaffi á könnunni og gleðin við völd. Sigga og Valur maðurinn hennar voru falleg hjón og mikið ástríki á milli þeirra. Þau eignuðust fjóra mynd- arsyni. Á heimilinu bjó lengi María – móðursystir Siggu – í mínum huga var hún einskonar „engill“, umvefjandi – þolinmóð og blíð við okkur krakkana. Sigríður Beinteinsdóttir ✝ Sigríður Bein-teinsdóttir fæddist 25. júlí 1913. Hún lést á hjúkrunardeild V2 á Grund 1. sept- ember 2011. Útför Sigríðar Beinteinsdóttur var gerð frá Langholts- kirkju 9. september 2011. Við Óli Már, næst yngsti sonurinn á heimilinu, vorum miklir leikfélagar. Ég elskaði að fara með mömmu til Siggu Beinteins. Leika við Óla Má – hlusta á skemmtilegu kon- urnar í eldhúsinu spjalla saman og toppurinn var þegar þær Sigga og Gunna systir hennar settust við píanóið og léku fjórhent. Systurnar Sigríður og Guðrún voru einstaklega sam- rýmdar í lífi og leik og báðar miklir tónlistarunnendur. Varla var það boð að þær væru ekki beðnar um að spila nokkur lög. Það er ekkert voðalega langt síðan Birna systir mín og ég heim- sóttum Siggu, þessa kæru vinkonu móður okkar, á Elliheimilið Grund. Sigga fullorðin kona, komin á tí- ræðisaldurinn, ótrúlega ungleg – enn með sitt stelpulega yfirbragð – geislandi og brosmild. Hamingju- söm með allt sitt eins og forðum í eldhúsinu á Langholtsveginum. Mikil ættmóðir. Við Birna systir mín þökkum Sigríði Beinteinsdótt- ur fyrir hennar hlut í dásamlegum minningabrotum. Guð veri með Sigríði Beinteinsdóttur. Guð veri með öllum stóra afkomendahópn- um hennar. Helga Mattína Björnsdóttir. Elsku amma Þura, okkur langar að þakka fyrir tímann sem við fengum með þér, það er svo tóm- legt núna þegar þú ert farin því þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur og Þuríður Benediktsdóttir ✝ Þuríður Sig-urrós Bene- diktsdóttir fæddist 4. maí 1915 á Hömr- um í Haukadal. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 31. ágúst 2011. Útför Þuríðar fór fram frá Kvenna- brekkukirkju 10. september 2011. hikaðir ekki við að taka þátt í alls konar ævintýrum með okk- ur. Þó þú værir kom- in yfir árin 70 fórstu með okkur í tjald- ferðalag úti í Svíþjóð, í tívolí, hámaðir í þig stórt candy floss, fórst í parísarhjólið og í ævintýraferð til Danmerkur, alltaf til í tuskið. Já, þú skilur eftir þig skarð en nú hittir þú allt fólkið þitt sem fór á undan. Takk fyrir ljúfar minningar og allt. Kristjana og Kristján. ✝ Okkar ástkæri GUÐJÓN BJARNASON, Snælandi 6, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 12. september. Gunnur Jónasdóttir, Þuríður Guðjónsdóttir, Þórhallur Vigfússon, Daníel Þórhallsson, Elísabet Þórhallsdóttir. ✝ Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, JÓEL JÓNSSON, Lindargötu 57, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi miðviku- daginn 7. september. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 15. september kl. 13.00. Þórdís Elín Jóelsdóttir, Gunnar Gunnarsson, afabörn, langafabörn og langalangafabörn. ✝ Okkar ástkæri STEFÁN GUÐMUNDSSON fyrrverandi alþingismaður, Sauðárkróki, sem lést laugardaginn 10. september, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju mánu- daginn 19. september kl. 15.00. Ómar Bragi Stefánsson, María Björk Ingvadóttir, Hjördís Stefánsdóttir, Kristinn Jens Sigurþórsson, Stefán Vagn Stefánsson, Hrafnhildur Guðjónsdóttir og barnabörn, Margrét Jónsdóttir og synir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.