Morgunblaðið - 14.09.2011, Side 23

Morgunblaðið - 14.09.2011, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 ✝ Elfa Ólafsdóttirfæddist á Laug- arvatni, Árnes- sýslu, 23. janúar 1938. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 3. september 2011. Foreldrar hennar voru Svanborg Þórdís Ásmunds- dóttir húsmóðir, f. 11. febrúar 1905 á Neðra-Apavatni, Gríms- neshreppi, d. 4. apríl 1988 og Ólafur Ketilsson sérleyfishafi, f. 15. ágúst 1903 á Álfsstöðum á Skeiðum, d. 9.júlí 1999. Systkini Elfu eru: 1) Ásrún, f. 11. júní 1931, maki Þórhallur Jónsson, f. 1. október 1927. 2) Katla Kristín, f. 10. október 1934, maki Frosti Bjarnason, f. 21. janúar 1930. 3) Börkur, f. 15. febrúar 1949, maki Marta Karlsdóttir, f. 4. janúar 1963. Proppé, f. 7. nóvember 1968. 3) Sigrún Laufey, f. 21. desember 1972. Hennar sonur er Víðir Davíð Krogsgaard, f. 5. desem- ber 1998. Elfa tók landspróf frá Hér- aðsskólanum á Laugarvatni. Haustið 1955 hóf hún nám við Samvinnuskólann á Bifröst og var í fyrsta árgangi skólans þegar hann var fluttur á Bif- röst. Þaðan útskrifaðist hún 1. maí 1957. Síðan lá leiðin í Hús- mæðraskólann á Laugarvatni og lauk hún þar námi vorið 1958. Hún hélt áfram að mennta sig og sótti ýmis nám- skeið. Þegar hún flutti til Reykjavíkur haustið 1958 hóf hún störf á skrifstofu fjár- máladeildar SÍS. Hún starfaði hjá Norræna húsinu í Reykjavík um árabil. Seinna vann hún sem bókari hjá Kristjáni G. Gíslasyni hf. og bókari hjá Prentsmiðj- unni Eddu. Útför Elfu fer fram frá Ár- bæjarkirkju í dag, 14. sept- ember 2011, og hefst athöfnin kl. 15. Elfa giftist 18. október 1958 Sig- urði Guðna Sig- urðssyni frá Skaga- strönd, f. 31. maí 1936. Foreldrar hans voru Laufey Helgadóttir, f. 6. ágúst 1914 á Há- reksstöðum í Norð- urárdal, d. 4. jan- úar 1983 og Sigurður Hermann Magnússon, f. 25. desember 1902 í Reykjavík, d. 12. janúar 1990. Bróðir Sigurðar er Helgi Ingi Sigurðsson, f. 5. janúar 1941. Börn Elfu og Sigurðar eru: 1) Ólafur Elfar, f. 4. sept- ember 1963, maki Snædís Vals- dóttir, f. 4. desember 1962. Þau eiga tvo syni, Snæbjörn Val, f. 29. september 1992 og Véstein Þrym, f. 17. október 1995. 2) Svanborg Þórdís, f. 5. febrúar 1967, maki Óttarr Ólafur Móðir mín, Elfa Ólafsdóttir, fæddist á Laugarvatni í Árnes- sýslu. Hún ólst upp í Svanahlíð á heimili foreldra sinna þar sem gestum var ætíð tekið opnum örmum. Alltaf var mikið um að vera á heimilinu, erill og gesta- gangur sumar sem vetur. Æsku sinnar minntist hún ætíð með mikilli hlýju. Faðir hennar var þjóðsagnapersóna í lifanda lífi, þekktur fyrir mikið skap en einn- ig góðmennsku og var hann ávallt tilbúinn til að rétta fólki hjálparhönd sem á þurfti að halda. Hann var þekktur fyrir góðlátlega gamansemi, hnyttni og meinhæðin tilsvör sem oft fóru sem eldur í sinu um landið og lifa mörg enn. Móðir hennar var sérlega glæsileg kona, glað- lynd og lífsglöð með mikla kímni- gáfu og stórt hjarta. Gott var að sækja hana heim, syngja með henni og spila spil. Þessa mann- kosti þeirra erfði móðir mín í rík- um mæli og nutu margir góðs af. Móðir mín ólst upp á einu af þeim fáu heimilum á landinu sem hafði framfæri sitt af ferðaþjónustu allt árið um kring en auk þess stundaði faðir hennar umfangs- mikla verktakastarfsemi á sumr- in í formi vega- og jarðvinnu með eigin tækjum. Fjölskyldan var mjög samheldin og tók móðir mín virkan þátt í öllu því sem til þarf til að starfsemi sem þessi blómg- ist. Haustið 1955 hóf hún nám í Samvinnuskólanum á Bifröst og þar kynntist hún föður mínum, Sigurði Guðna Sigurðssyni frá Skagaströnd. Þar varð ást við fyrstu sýn, hún kom að sunnan, hann kom að norðan og þarna hittust þau á miðri leið. Þau út- skrifuðust 1. maí 1957 og 4. maí settu þau upp hringana. Þau ákváðu að fara saman í gegnum lífið og styðja hvort annað með ráðum og dáð sem og þau gerðu í tæp 53 ár. Foreldrum mínum þótti ákaflega vænt um staðinn Bifröst, þarna hafði ást þeirra blómstrað á sínum tíma og þar eignuðust þau góða ævivini. Í áraraðir leigðu þau þar sumarbú- stað og átti fjölskyldan þar margar góðar stundir. Árið 1957-1958 stundaði hún nám við Húsmæðraskólann á Laugarvatni og bjó í foreldrahús- um í heilt ár. Skólasystur hennar úr Húsmæðraskólanum hafa haldið mjög vel hópinn allar göt- ur síðan. Á meðan hún var í námi á Laugarvatni var faðir minn í Reykjavík, þar sem hann vann hjá Samvinnutryggingum g.t. og fór austur með rútunni á Laug- arvatn um hverja helgi að hitta hana, hvernig sem viðraði. Þann 18. október 1958 giftu þau sig á Laugarvatni og hófu búskap í Reykjavík. Hún hóf störf hjá fjármáladeild SÍS, vann hjá Norræna húsinu og annaðist síðar bókhald hjá heildsölu og seinna hjá prentsmiðju. Eftir að hún hætti á vinnumarkaðnum var hún mjög ötul við að sækja ýmis námskeið og afla sér þekk- ingar og endurmenntunar. Hún grúskaði mikið og las sér til á ensku, dönsku og íslensku. Hún nýtti sér óspart nýjustu tölvu- tækni, nýjungar í ljósmyndun og öðru til að sinna fjölbreyttum áhugamálum sínum. Ég kveð hana með djúpum söknuði. Ólafur Elfar Sigurðsson. Elskuleg móðir okkar, Elfa Ólafsdóttir, er látin eftir langa og hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Móðir okkar var afskaplega lífsglöð kona, síbrosandi, hlátur- mild og umvafði okkur hlýju og kærleika. Það eru forréttindi að hafa átt slíka móður. Faðir okkar sagði það oftar en einu sinni að sín mesta gæfa í lífinu hefði verið þegar hann kynntist henni. Þau voru nánir vinir, mjög samrýmd og kærleikar miklir þeirra á milli. Móðir okkar hafði mikið yndi af barnabörnum sínum og þótti þeim afskaplega vænt um ömmu sína. Hún hafði sérstakt yndi af þjóðlegum fróðleik, sagn- fræði, landafræði, íslenskri menningu, Íslendingasögum og af því að lesa sér til og skoða bækur um land og þjóð. Hún kunni ógrynni vísna og kvæða og söng ósjaldan með útvarpinu. Henni fannst gaman að taka ljós- myndir, lærði útskurð og unni ýmsu grúski. Hún saumaði og prjónaði mikið. Hún hugsaði vel um heilsuna og hafði gaman af að ferðast. Til dæmis heimsóttu for- eldrar okkar oft föðurbróður okkar, Helga Inga, sem búsettur var í Hamborg í Þýskalandi. Þau ferðuðust með honum til nær- liggjandi landa og voru þessar ferðir þeim sérlega ánægjulegar og ógleymanlegar. Í desemberlok 2010 greindist móðir okkar með bráðahvítblæði og hófst þegar mjög erfið ónæm- isbælandi lyfjameðferð. Var hún svo óheppin að fá alvarlega lungnabólgu auk noroveiru sem olli því að hún missti fljótlega meðvitund. Viku síðar var okkur tilkynnt á fjölskyldufundi með læknum að það væru nánast eng- ar líkur á að hún kæmist á ný til meðvitundar. Strax að honum loknum heimsóttum við systurn- ar hana, stóðum hvor sínum meg- in við hana, héldum í hendur hennar og sögðum henni skemmtilegar sögur. Þá gerðist það kraftaverk að móðir okkar opnaði lítillega augun, fór að hlæja með veikum mætti. Krafta- Elfa Ólafsdóttir verkið hélt áfram og náði húnsmám saman það góðri heilsu að hún gat farið í langar gönguferð- ir, heimsótt vini og ættingja og ferðast um. En því miður kom í ljós í sumar að sjúkdómurinn væri óyfirstíganlegur og ákváðum við þá að halda á æsku- slóðir yfir helgi. Þar áttum við nánasta fjölskyldan saman ljúfar stundir. Þessi ferð var henni ákaflega dýrmæt og er okkur öll- um mjög kær í minningunni. Hetjulegri baráttu hennar við ill- vígan sjúkdóm er nú lokið. Ein- kunnarorð hennar í þessari bar- áttu voru: Aldrei að gefast upp. Hún sýndi aðdáunarvert æðru- leysi í veikindunum. Þessi lífs- kraftur, trúin á lífið, trúin á að sigra vágestinn, var til staðar fram á síðustu stundu. Aldrei var neinn bilbug á henni að finna eða vonleysi, sama hversu þungt veikindin lögðust á hana. Faðir okkar gerði allt sem hann gat til að létta henni sjúkrahúsvistina og sýndi ótrúlegan styrk. Alltaf var hún í góðu skapi, smitandi já- kvæð og þakklát fyrir umönnun og innlit. Þetta lífsviðhorf hennar í veikindunum hafði mikil og já- kvæð áhrif á okkur og hjálpaði okkur með henni í gegnum þetta ferli. Við kveðjum móður okkar með söknuði en líka mikilli aðdáun og þakklæti. Hún var okkur fyrir- mynd og innblástur, góður vinur í gegnum lífið. Svanborg Þórdís Sigurð- ardóttir og Sigrún Laufey Sigurðardóttir. Mágkona mín Elfa Ólafsdóttir er nú horfin úr okkar sjáanlegu veröld, blessuð sé minning henn- ar, minning sem lifir um konu sem ég þekkti yfir 50 ár og að engu nema góðu, hún var létt- lynd, aðsópsmikil persóna, fáguð í framkomu, myndarleg húsmóð- ir, vel upplýst og aldrei minnist ég þess að við höfum nokkru sinni átt í missætti af neinu tagi. Elfa barðist hetjulega við þann sjúkdóm sem síðar hafði yf- irhöndina, gafst aldrei upp og kvartaði aldrei, gerði sér grein fyrir hversu alvarlegur sjúkdóm- urinn var og vissi að ekki yrði langt að leiðarlokum. Talaði um hve þakklát hún væri fyrir þá frábæru umönnun sem hún fékk á Landspítalanum. Þetta var þrautaganga sem nú er liðin og friður ríkti yfir henni látinni. Margs er að minnast á þessum langa tíma þó í raun sé hann stuttur og ekki hægt að rekja það allt. Ljúfur tími var það t.d. þeg- ar þau hjónin komu nokkru sinn- um til Hamborgar er ég bjó þar. Samvistin var mikils virði og gaman í þeim ferðalögum sem við fórum í saman um Þýskaland og víðar og þá oft rifjaðir upp fyrri tímar og ánægjustundir. Kæri bróðir, Ólafur og Snæ- dís, Svanborg og Óttarr, Sigrún, Snæbjörn Vésteinn og Víðir. Ég veit þið hafið misst mikið og votta ykkur mína dýpstu samúð, en veit að minningin um Elfu mun lifa hjá ykkur og verða ykk- ur styrkur í framtíðinni. Systrum Elfu, fósturbróður og fjölskyldum votta ég samúð mína Helgi Ingi Sigurðsson. Með hlýhug og virðingu kveðj- um við skólasystur okkar úr Lindinni á Laugarvatni, Elfu Ólafsdóttur og þökkum allar góðu samverustundirnar. Þá horfði Guð á garðinn sinn, hann greindi auðan reit og sá þitt andlit ofurþreytt er yfir jörð hann leit. Þig örmum vafði hann undurblítt og upp þér lyfti nær, í garði Drottins dýrlegt er því djásnin bestu hann fær. Hann vissi hve þín þraut var þung, hve þjáningin var hörð, þú gengir aldrei aftur heil með okkur hér á jörð. Hann sá að erfið yrði leið og engin von um grið. Með líknarorðum lukti brá og ljúfan gaf þér frið. Þótt sárt í huga sakni þín og syrgi vinur hver við heim til Guðs er heldur þú í hjarta fylgjum þér (Höf. ók.) Kæri Sigurður og fjölskylda, hugheilar samúðarkveðjur til ykkar allra frá saumaklúbbnum. Anna, Guðrún, Guðrún G., Hólmfríður, Ingibjörg, Katrín og Sjöfn. Höggvið er skarð í hópinn okkar sem varð fyrsti árgangur- inn til að útskrifast frá Sam- vinnuskólanum á Bifröst árið 1957. Hún Elfa okkar veiktist al- varlega um síðustu áramót, en við vorum bjartsýn um bata og vonuðum að hún kæmi á okkar mánaðarlegu fundi nú í haust, hress og kát eins og ævinlega. Sú von okkar brást og nú eigum við bara minningarnar um góðan og tryggan vin og félaga. Fljótlega eftir að við hófum nám í Bifröst tókust ástir með Elfu og Sigurði Guðna, bekkjar- bróður okkar og varð hann lífs- förunautur hennar. Er óhætt að segja að þar hafi myndast grund- völlur að traustu og farsælu hjónabandi. Samband þeirra ein- kenndist af ástúð, hlýju og gagn- kvæmri virðingu. Við bekkjarsystkinin höfum alltaf haldið vel hópinn og þau hjónin hafa ávallt tekið virkan þátt í öllum ferðalögum og sam- komum okkar og oftar en ekki átt frumkvæðið að þeim fundum. Elfa lét sér annt um velferð okk- ar, við nutum glaðværðar hennar og munum hve fallega brosið hennar og gott viðmót yljaði vel. Við minnumst ferðar á æsku- stöðvar hennar um Laugardalinn sem hún skipulagði og gaf okkur hlutdeild í minningum sínum um staðinn. Við bekkjarsystkinin hugsum nú til Sigurðar og fjölskyldu hans sem mest hafa misst. Við vottum þeim okkar dýpstu samúð. F.h. B-bekkjarsystkina 1955- 1957, Magnea K. Sigurðardóttir. HINSTA KVEÐJA Til ömmu okkar. Vertu blessuð, elsku amma, okkur verður minning þín á vegi lífsins, ævi alla, eins og fagurt ljós, er skín. Vertu blessuð, kristna kona, kærleikanum gafstu mál, vertu blessuð, guð þig geymi, góða amma, hreina sál. (Guðrún Jóhannsdóttir) Snæbjörn Valur og Vésteinn Þrymur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, SVEINN GUÐMUNDSSON rafmagnsverkfræðingur, Aðalstræti 8, Reykjavík, lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi miðvikudaginn 7. september. Útför hans verður frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. september kl. 13.00. Ingrid Guðmundsson, Sólveig Sveinsdóttir, Thierry Clairiot, Guðmundur Sveinsson, Arianne Gähwiller, Sigrún Sveinsdóttir, Yosihiko Iura, Sveinn Ingi Sveinsson, Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir, Ríkharður Sveinsson, Jóna Kristjana Halldórsdóttir, Benedikt Sveinsson, Anna White, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær móðir okkar, DR. SIGRÍÐUR ÞÓRA VALGEIRSDÓTTIR, Klapparstíg 1, Reykjavík, varð bráðkvödd á heimili sínu laugardaginn 3. september. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju mánudaginn 19. september kl. 15.00. Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Sigríður Hjörleifsdóttir, Ingólfur Hjörleifsson og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi, JÓN GUÐLAUGUR ANTONÍUSSON, Barðavogi 5, sem lést á hjúkrunarheimilinu Mörk þriðju- daginn 6. september, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 15. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á styrktarsjóð Skálatúnsheimilisins. Elísabet Jóna Erlendsdóttir, Gerður Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Birna Jónsdóttir, Erlendur Jónsson, Gísli Jónsson, Elísabet Sara Gísladóttir, Arnar Logi Gíslason. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRUNNAR FRIÐRIKSDÓTTUR, Tótu, Hveragerði. Ólafur Kristjánsson, Katrín Snæhólm Baldursdóttir, Hannes Kristjánsson, Hulda Bergrós Stefánsdóttir, Eygló Kristjánsdóttir, Bjarki Þór Magnússon, Björn Kristjánsson, Silvía Björk Birkisdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLS KRISTINSSONAR vélstjóra, Njarðvíkurbraut 32, Innri-Njarðvík. Kristinn Pálsson, Björg Valtýsdóttir, Elín Margrét Pálsdóttir, Sigurður S. Guðbrandsson, Vilhelmína Pálsdóttir, Ingólfur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, "Senda inn minningargrein", valinn úr felliglugganum. Einn- ig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.