Morgunblaðið - 14.09.2011, Side 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
DÁLKURINN,
„SPURÐU HUND”
„ER ÞAÐ SATT AÐ ÞÚ HAFIR
ORÐIÐ BESTI VINUR MANNSINS
MEÐ ÞVÍ AÐ MÚTA HONUM?,
SPYR KÖTTURINN SEM SITUR
VIÐ HLIÐINA Á ÞÉR”
HANN GEYMDI MEIRA
AÐ SEGJA KVITTUNINA
ÉG ER
BÚIN AÐ
BÚA TIL
LÍMONAÐI
ÞÚ MÁTT VERA SÁ FYRSTI
TIL AÐ SMAKKA
ÉG SKAL BÆTA VIÐ
MEIRI SYKRI
ÞEGAR ÞÚ BÝÐUR TENGDAMÓÐUR
ÞINNI Í MAT Í FYRSTA SKIPTI...
...SKALTU SÝNA HENNI
AÐ HLUTIRNIR HAFI BREYST
ALLS EKKI LEYFA HENNI
AÐ SKERA KJÖTIÐ FYRIR
EIGINMANN ÞINN!
KISI
ÉG ER
BARA AÐ
SETJA
KASSANN
ÞINN Í SMÁ
ILMMEÐFERÐ
EINHVER VERÐUR
AÐ STÖÐVA ÞENNAN
BRJÁLÆÐING
ÉG VAR EKKI AÐ BÚAST
VIÐ ÞVÍ AÐ ÞURFA AÐ
NOTA HANN...
...EN ALLUR ER
VARINN GÓÐUR!
ÞETTA ER YNDISLEGT ELSKAN,
KERTALJÓS, GÓÐUR MATUR, VÍN OG KRAKK-
ARNIR Í PÖSSUN HJÁ FORELDRUM MÍNUM
ÞETTA ER
YNDISLEGT,
ÉG HEFÐI EKKI
GETAÐ BEÐIÐ UM
MEIRA
TAKK
ELSKAN
MÍN
HVENÆR
GETUM VIÐ
GERT ÞETTA
AFTUR?
VIÐ SKULUM
ATHUGA ÞAÐ
EFTIR AÐ ÞESSI
UNAÐSLEGA
KVÖLDSTUND
ER LIÐIN
Réttarhöldin
yfir Geir
Það rifjast upp fyrir
mér við réttarhöldin
yfir Geir Haarde, að
ég var dregin fyrir
dóm í Gautaborg,
ákærð fyrir skattsvik.
Fyrst var ég í yf-
irheyrslu hjá lögregl-
unni í heimabæ mínum
og svo í héraðsrétti í
Gautaborg. Ég gleymi
þessu ekki. Þegar ég
kom inn í réttarsalinn
blasti við bekkur, upp-
hækkaður, og þar sátu
einstaklingar sem ein-
blíndu á mig. Ég hafði vissulega horft
á Perry Mason í sjónvarpinu en mér
varð nú ekki um sel. Maður ávarpaði
mig og spurði um nafn mitt. Þetta
var dómarinn sjálfur, en ekki sagði
hann til nafns. Ég var yfirheyrð og
svaraði eins vel og ég gat. Sagði frá
öllum störfum sem ég hafði unnið
árinu áður, 1967. Ég hafði unnið á
mörgum sjúkrahúsum, bæði í borg-
inni og úti á landi. Ég man hvernig
mér leið þegar ég beið eftir dóm-
inum. Svo fór að fallið var frá ákæru,
ef svo hefði ekki farið hefði ég flutt
frá Svíþjóð. Ég get ekki gert mér í
hugarlund hvernig
Geir Haarde líður og
hvert getur hann flúið?
Hver er saklaus í
þessu máli? Hver er
sekur? Ég upplifði
angist sjúklinga sem
biðu eftir dómi og
fangelsisvist, hún var
stór hluti af refsing-
unni. Svo virðist sem
hér á þessu blessaða
landi sé orðatiltækið
aðgát skal höfð í nær-
veru sálar gleymt.
Björg.
Sessur og njóli
Þar sem margir eru að setja garð-
húsgögnin í geymslu um þessar
mundir langar mig að benda fólki á
að gott er að geyma sessurnar í fata-
pokum, sem fást td. í Ikea, þeir kosta
lítinn pening. Ég vil líka hvetja fólk
til að skera niður njóla í meira mæli
en gert er áður en hann sáir sér, mér
finnst hann fá að vaxa óáreittur allt
of víða.
Guðrún.
Ást er…
… að lána honum
bíllyklana þína.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Skartgripasala kl. 11-14.
Vinnustofa/postulín kl. 9, vatnsleikf. kl.
10.50, útsk./postulín/bíó kl. 13.
Árbæjarkirkja. | Opið hús kl. 13-16.
Fræðsla, samvera, ferðalög, spil og hann-
yrðir.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Heilsugæsla kl. 10.
Boðinn | Álfa- og tröllasmiðja kl. 10. Bón-
usrúta kl. 13.30. Vatnsleikfimi kl. 9.15 (lok-
aður hópur).
Dalbraut 18-20 | Handavinna kl. 9, Bón-
usferð kl. 14.40.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í Gullsmára á mán. kl. 20.30 og
Gjábakka á mið. kl. 13 og fös. kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar kl. 10. Söngvaka kl. 14.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðb. í hand-
av. til kl. 15, botsía kl. 9.30/10.30, glerlist
kl. 9.30/13, félagsv. kl. 13, söngur kl. 15.15;
viðtalst. FEBK kl. 15-16.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, ganga kl. 10. Postulín/kvennabrids
kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10, 11, vatns-
leikfimi kl. 12.15/14.15, bútas./brids kl. 13,
miðasala í Þingvallaferð 20. sept. kl.
13.30-15.30 í dag, kr. 3.500, ekki greiðslu-
kort.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ
| Munið ferð 16. sept. farið ma. til Herdís-
arvíkur, Strandakirkju og á veit-
ingastaðnum Við fjöruborðið, Stokkseyri.
Farið frá Hlaðhömrum kl. 13. Uppl. og
skrán. í s. 5868014 kl. 13-16 og s.
6920814.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Leir/mosaík Skólabraut kl. 9.
Botsía í íþróttah. kl. 10. Kaffi í krók kl.
10.30. Kyrrðarstund í kirkju kl. 12. Handav.
kl. 13. Tálgun kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 18.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9. Vatnsleikfimi kl. 9.50. Leikir, söngur,
dans kl. 10, harmonikka. Frá hádegi er
spilasalur opinn.
Grensáskirkja | Safnaðarheimili kl. 14.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Setrið kl. 10. Heitt á könnunni, kl. 11 bæ-
naguðsþj. í kirkju, súpa/brauð kl. 12, brids
kl. 13.
Hraunsel | Pútt kl. 10, bókmkl. kl. 10.30.
Línud. kl. 11, handav. kl. 13, bingó kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30/9.30.
Vinnustofa kl. 9. Samverust. kl. 10.30.
Kynning á vetrarstarfinu kl. 13.30, kaffi/
meðlæti.
Hæðargarður 31 | Hringborðið kl. 8.50.
Framsagnarhópur kl. 9. Leirmótun í dag.
Allir velkomnir að skoða/prófa. Gáfu-
mannakaffi kl. 15.
Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í
Kópavogsskóla byrj. kl. 14.40, framhaldsfl.
kl. 15.30.
Korpúlfar Grafarvogi | Listasmiðjan kl.
13.30 á morgun. Á morgun fim. kl. 10 keila
í Keiluhöllinni Öskjuhlíð. Listasmiðja kl.
13.30 á Korpúlfsstöðum.
Neskirkja | Opið hús kl. 15. Heilsa og líf.
Sigurður Guðmundsson fv. landlæknir.
Kaffiveit. á Torgi.
Norðurbrún 1 | Útskurður kl. 9. Félagsvist
kl. 14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja. Bók-
band og handavinna kl. 9, Bónus kl. 12.20,
framhaldssaga kl. 12.30, dans kl. 14,Vita-
torgsbandið.
Það eru ekki einungis hundarsem eru skáldmæltir eins og
Elvis förunautur Sigurðar Ingólfs-
sonar. Nú bregður svo við að kött-
urinn Jósefína Dietrich yrkir á fés-
bókinni og fer mikinn. Hún bendir á
að í veröldinni sé margt sem undr-
um sætir:
Ein ég lá og út á ská
auga fránu renndi, þá
fugla sá ég fara hjá
flugi á um loftin blá.
Fleira ber til tíðinda í tilveru
Jósefínu, einkum að hundur er
fluttur í húsið: „Hann heitir
Skuggi og er kolsvartur. Ég reyni
að sætta mig við hann en það er
ekki auðvelt. Síðast þegar hann
var með fleðulæti gat ég ekki stillt
mig og mjálmaði á hann efnislega
á þessa leið:
Að þú mér hugnist árans er
enginn, Skuggi, vegur,
því af þér stuggur stundum mér
stendur uggvænlegur.“
Og Jósefína kvíðir ekki kuld-
anum í vetur:
Hvorki nær í trýn né tær
og tæpast hlær á róli sín
gjólan ær með kaldar klær
– ég kúri vær í bóli mín.
Karl í Skuggahverfi sendi kisu
kveðju í tilefni af því að hann hefði
vingast við Krumma Sólan á fés-
bók:
Krummi soltinn kjaft á sér
kannski bara fetti:
Jósefína ekki er
upp í nös á ketti.
Ekki stóð á svari frá Jósefínu:
Hugðist bögga karlinn kött,
kom ég snöggu lagi á hann,
enda röggsöm bæði og brött,
buldu högg og kisa vann.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Jósefínu Dietrich