Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 29

Morgunblaðið - 14.09.2011, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2011 Galdrakarlinn í Oz – frumsýning á laugardag TRYGGÐU ÞÉR SÆTI! 4 sýningar á 11.900 kr. með leikhúskorti Allar kvöldsýningar hefjast kl. 19.30 Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Hljómsveitin 1860 var stofnuð fyrir réttu ári síðan, en Hlynur Hall- grímsson og Óttar G. Birgisson höfðu áður verið saman í sveitinni The Telepathetics sem gaf út plöt- una Ambulance árið 2006. Sveitin nýja hefur hins vegar lætt frá sér plötunni Sagan, sem út kom fyrir stuttu. Glatað „Við félagarnir komumst svo í samband við hann Kidda píanóleik- ara (Kristján Hrannar Pálsson) og langaði til að vinna örlítið í lögum sem við vorum búnir að vera með í maganum ansi lengi, smíðar sem þóttu of poppaðar fyrir Telepathe- tics á sínum tíma,“ segir Hlynur. – Það er svona „íslenskur“ fílingur í þessu … „Já, við erum allir miklir Spil- verksnördar og Kristján er sér- staklega mikill aðdáandi.“ – Það er Spilverksbylgja í gangi. Moses Hightower, Múgsefjun… „Já, ég held að krakkast sem ólust upp við Nirvana og svo hrikalegheit eins og Limp Bizkit eða Korn séu að fatta þetta núna. Við kunnum ekki að meta þetta á þeim tíma, það er eins og allt sé svo glatað þegar það stendur nálægt manni, sérstaklega þegar maður er ungur.“ Lopapeysur Þeir 1860 menn hafa varið und- anförnum mánuðum í að spila sig saman, bæði í borg og út um bý. – En var endilega málið að henda í plötu? „Jaa …það þróaðist eiginlega þannig. Í upphafi var þetta afsökun fyrir því að koma frá efni sem okkur þótti of poppað þegar við stóðum á tvítugu. Við vorum vanir að setja lögin inn á youtube þegar þau voru svona 70, 80% kláruð. Lögin fengu góð viðbrögð þar og við vorum spurðir hvort að plata væri ekki á leiðinni. Þannig að við slógum á end- anum til.“ – Og það er óneitanlega lopa- peysufílingur í gangi … „(Hlær) Já, við erum ekki feimnir við það. Eins og einn félagi okkar orðaði það þegar við höfðum lokið leik á einhverjum staðnum. „Hvaða krúttlega lopapeysurúnk er þetta á ykkur!“.“ Rætur „Já, við erum allir miklir Spilverksnördar og Kristján er sérstaklega mikill aðdáandi.“ Eigi hræddir við lopapeysur  1860 gefur út plötuna Sagan  Lög sem urðu að komast út Í kvöld, miðvikudaginn 14. september, klukk- an 17:00 fremja listamennirnir Roi Vaara og Magnús Logi Kristinsson Momentum Ep- isodes gjörning á göngu sem hefst við Hlemm og fer um bæinn. Um kl 20:00 munu listamenn- irnir fremja hvor í sínu lagi sjálfstæða gjörn- inga í Nýlistasafninu. Í tilkynningu frá þeim segir: „Sem framhald af sýningunni, Imagine Being Here Now, sem er á þremur stöðum í og í grennd við bæinn Moss í Noregi, teygir Momentum-tvíæring- urinn sig út til áhorfenda víðar um Norð- urlönd. Magnús Logi Kristinsson & Roi Vaara munu í ágúst og september standa fyrir gjörn- ingaferðalaginu Momentum Episodes í höf- uðborgum Norðurlanda utan Noregs, Kaup- mannahöfn, Helsinki, Stokkhólmi og Reykjavík. Gjörningar munu eiga sér stað í ólíku hversdagslegu umhverfi borganna eina eftirmiðdagsstund.“ Roi Vaara er þekktur listamaður frá Finn- landi og Magnús Logi Kristinsson er búsettur í Finnlandi en báðir hafa helgað sig gjörn- ingalist. Þessi svokallaði Norræni tvíæringur gengur út frá þeim útgangspunkti að marg- breytileiki upplifunar í veröldinni byggist á eiginleikum minnis og ímyndunarafls. borkur@mbl.is Eiginleikar minnis  Gjörningalistamenn á Hlemmi í kvöld Gjörningur „Hver einstaklingur skilgreinir sitt hér og nú,“ segir í tilkynningu um verkið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.