Líf og list - 01.06.1951, Blaðsíða 9
ÚTVARPSAUGLÝSINGAR
berast með hraða rafmagnsins og
áhrifum hins talaða orðs til um
100 þúsund hlustenda í landmu.
Afgreiðsla auglýsinga er á 4. hæð
í Landsímahúsinu. — Afgreiðslu-
tími kl. 9—11 og kl. 16—18
virka daga og kl. 10j/2—1 l og
kl. 16—18 á sunnudögum. —
Afgreiðslusími 1095.
RÍKISÚTVARPIÐ
MÆLIKVARÐI Á MENNINA
Fólk er hvorki vont né gott. Það er annaðhvort leiðin-
legt eða skemmtilegt.
*
(Oscar Wilde)
BÓKMENNTALEG ÚTSKÝRING
Mikil fjarstæða er að segja um bók, að hún sé annað-
hvort siðsamleg eða ósiðsamleg. Bækur cru annaðhvort vel
cða illa skrifaðar. Það er allt og sumt.
(Oscar Wilde)
#
NOKKRAR ÞVERSAGNIR EFTIR DANSKAN
MÁLARA, FREDE CHRISTOFFERSEN:
Aðeins ein regla gildir í allri list — þar gildir nefnilega
engin regla.
*
Öll byrjun er auðveld!
#
Allir málarar níða hver annan niður sem mest þeir mega;
allir ritliöfundar lofa hvcr annan hástöfum. Sannast að segja
tala báðir aðilar aðeins um eitt: sjálfan sig!
#
Stokkhólmi, og dr. Victor Urbancic, sem stjórn-
aði hljómsveitinni. Hefur þar notið kunnáttu af-
burðamanna, hvors á sínu sviði, sem með náinm
samvinnu sín á milli hafa mótað flutning verks-
ins í heild.
Með þessari fyrstu óperusýningu okkar er
brotið nýtt blað í sögu íslenzkrar tónlistarstarf-
semi. Hún hefir fært okkur heim sanmnn um
það, að við höfum hér afl þeirra hluta, sem gera
skal. Nú ættu tónskáld okkar og rithöfundar
ekki að liggja á hði sínu, en hefjast handa um
samningu þjóðlegrar íslenzkrar óperu. Skilyrði til
flutnings hennar eru þegar fyrir hendi, og þjóðin
myndi áreiðanlega meta það starf að verðleikum.
Guðmundur Matthíasson.
Hafið þér nokkru sinni fyrirhitt yfirlýsta listfræðinga og
opinhera listkönnuði, sem tekið hafa ástfóstri við listaverk,
er þeir vita ekki, hver er höfundur að?
#
Aðcins hinir sefasjúku sjá hlutina skýrt.
*
Það, sem sprettur af eðlishvöt mannsins, er bezt, en þó
er ekki þar með sagt, að allar salcrnisteikningar séu góðar.
KJARVAL GERIR BÓKMENNTALEGA UPPGÖTVUN
Þegar bók Thórs Vilhjálmssonar, Maðiirinn er alltaf einn,
kom út í vetur, var eitt hið fyrsta verk höfundarins að gefa
Jóhanncsi Kjarval bókina, áritaða mcð cigin liendi. Kjarval
brá skjótt við, las bókina linnulaust og hætti ekki fyrr en
hann var búinn og varð svo hrifinn, að hann á að hafa
sagt við kunningja sinn: „Jæja, nú veit ég hvcrjir eru mestir
andans menn í bókmenntum heimsins: Það eru séra Bjarni,
Dickens — og Thór VilhjáImsson“.
LÍP 0g LIST
9