Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 11

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 11
Ingvar Orre: Kollektorín fulltrúi safnaði vindum. Að hans áliti var sú grein söfnunar öllum öðrum æðri, og hann var bæði stoltur og glaður yfir að vera einn af þeim fáu sem helga líf sitt slíku. Og þar sem hann hafði á æskuárum sínum sýnt mikla ósérplægni í því að vekja áhuga annara á vindasöfn- un, þá var hann nú heiðursfélagi í ófáum klúbbum safnara, bæði heima og erlendis. Nú leikur ykkur kannski forvitni á að vita, hve merkilegt þetta safn Kollektor- íns var, úr því hann naut svona mikils álits. Og mér er óhætt að segja, að safnið var yfirgripsmikið, g e y s i 1 e g a yfir- gripsmikið. Þar voru um það bil 40.000 vindar af ýmsu tagi og hátt í 2.000 aukaeintök til að láta í skiptum. En hvernig safna menn vindi? spyrjið þið. Ég skal segja ykkur, hvernig herra Kol- lektorín fór að ... En vindarnir eru þó ósýnilegir! segið þið. Hættið að grípa fram í fyrir mér, og þá skal ég skýra málið. Sjáið þið til, herra Kollektorín safnaði ekki heilum vindum, hann lét sér nægja ofurlítinn gust af hverjum um sig, og þennan gust veiddi hann í plastpoka sem festur var á langt skaft. Þegar hann svo hafði með þessari aðferð sinni veitt ofurlítið af vindi, festi hann það með gúmíteygjum á pappaspjald sem var á að gizka einn desímeter á lengd og hálfur desímeter á breidd — teygjurn- ar þurftu að vera úr góðu efni og spjaldið úr hvítum gljápappa. Aftan á spjaldið skrifaði svo herra Kollektorín hið svokall- aða safnnúmer sem skírskotaði til spjald- skrárinnar þar sem gefnar voru nákvæmar upplýsingar um kaupverð og veiðistaði, og fylgdi þá gjarnan mynd af þeim stað þar sem sýnishornið hafði náðst. Hann hafði líka látið smíða handa sér fimmtán geysi- stóra og loftþétta skápa til að geyma í vindana. Margir héldu því fram, að þessir skápar stórspilltu litlu íbúðinni sem herra Kol- Maðurinn sem safnaði vindum Birtingur 9

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.