Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 16

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 16
Borgarsafninu í Amsterdam í janúarmán- uði 1909 ásamt tveim öðrum málurum, Cornelis Spoor og Jan Sluyters. Sluyters hafði hlotið Rómarverðlaunin þegar hann var á Listaháskólanum en hann hafði einn- ig dvalist í París um hríð og snéri þaðan heim fullur metnaðar og bjartsýni fyrir hönd nýrra listviðhorfa. Hann hafði end- urskoðað litastiga sinn rækliega og eink- um orðið fyrir áhrifum af Gauguin og Matisse. Samt var það Piet Mondrian er mesta athygli vakti á sýningunni. Eða réttara sagt: myndirnar hans ergðu alveg sérstaklega bæði almennan áhorfanda og gagnrýnendui'. Þessar myndir þykja ósköp sakleysislegar í dag en árið 1909 skrifaði ritliöfundurinn frægi, Frederik van Eeden, um þær í tímaritsgrein: „Fall Mondrians er átakanlegt og skelfilegt". Og síðar í sömu grein segir hann þegar hann ei* að velta því fyrir sér hver hafi eiginlega dregið Mondrian niður í svaðið: „Það er ekki auðvelt að slá því föstu en líklega hefur það verið Van Gogh“. Annar þekkt- ur höfundur, Israel Qerido, var sammála Van Eeden um, að Mondrian væri sjúk- legur, úrkynja málari. Og Just Havelaar lýsti því yfir að vísu einum þrettán árum seinna, að Mondrian: „hefði aldrei verið annað en slakur máiari“. Þannig kepptust menningarpostular Hollands við að níða Mondrian og spöruðu hvorki stór orð né dýrmætt rúm í ritum sínum en það benti óneitanlega strax til þess að skotspónn þeirra væri að minnsta kosti enginn flag- ari. 1910 tók Mondrian þátt í sýningu Lúmínista. Gagnrýnin lét ekki á sér standa. N. H. Wolf, mikilsvirtur listfræð- ari á þeirri tíð og sem þar að auki kallaði sig vin Mondrians, sagði að þetta væru: „myndir sjúks og afbrigðilegs manns“. Aftur á móti gerðust þau tíðindi, að óþekktur blaðamaður úr þorpinu Shagen tók svari Mondrians á svo myndarlegan hátt, að lengi mun í minnum haft. En voldugasti stuðningsmaðurinn var þó Con-

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.