Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 33

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 33
I Jón fró Pálmholti: Þúngbúinn morgunn. Hann geingur inní verksmiðjuna ásamt gráklæddum félögum sínum. Himinninn er svo lágskýjaður að það gæti farið að rigna hvenær sem er. Rigníngarf jandinn, seigir einn hinna grá- klæddu. Nú er hann bráðum búinn að rigna hálft árið. Djöfuls rigningin. Hann reynir að flauta dægurlag en mistekst. Hann er ekki vel vaknaður. Strax og þeir opna dyrnar kemur hávaðinn á móti þeim. Járni barið við járn. Nú er hann loksins vaknaður. Vélarnar eru komnar í gáng, hjólin snúast. Hann tekur kortið með núm- erinu sínu og stimplar sig inn. Hér eru mennirnir aðeins númer. Ópersónulegar og óþekktar stærðir, hluti af vélasamstæðu. Bili ein lítil vél getur öll verksmiðjan stöðvazt. Maðurinn er hér raunverulega aukaatriði eftir að vélarnar eru komnar í gáng. Hann geingur að sinni vél og byrjar að fægja og smyrja. Vélin þarf sinn morg- unverð. Hann fer höndum um ýrnsa hluta vélarinnar, þreifar eftir lyklum, hnöppum og leiðslum, skrúfar og teingir. Hann flautar lag, en rödd hans heyrist ekki. Umhverfis hann er taktþúngur vélsláttur- inn, sem svelgir í sig mannsraddirnar. Vélarnar blífa. Allt sem skröltir er heilagt. Vélin hinn eini sanni Guð og Hann sem hún sendir: Peníngurinn. Og maðurinn, sem lifir ekki á einu saman brauði, heldur og af sérhverjum hávaða sem framgeing- ur af vélunum, hann brosir varla en tví- stígur einn og þögull. Jafnvel stórir hópar af mönnum, sem liggja á daginn undir sömu vél, gánga hljóðir heim að kvöldi, með dagblað í rassvasanum. Hver um sig einn og hugsandi um ventil eða pakkn- íngu, stimpil eða túrbínu, með gáng vél- arinnar í höfðinu. Snæða einir á fjölmenn- um veitíngastað, bakvið útbreitt dagblað- ið og útvarpið hellir yfir þá vélrænum jasstaktinum. Síðasti dagur útsölunnar - eða leif- að lífi Birtingur 31

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.