Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 30

Birtingur - 01.04.1960, Blaðsíða 30
Bjarni Benediktsson: Leiðtogafundinum í París lauk áður en hann hæfist. Fjórmenningarnir voru komnir á staðinn með fríðu föruneyti; en þegar til átti að taka, setti einn þeirra skilyrði fyrir þátttöku í fundinum. Þeim skilyrðum var hafnað, og fundinum þar með slitið um leið og hann var settur. Fjórmenningarnir eru að tínast hver til síns heima, en fólkið í löndunum situr uppi með sárt enni og sviknar vonir. Krústjoff hefur verið skammaður óbóta- skömmum á Vesturlöndum fyrir fram- göngu sína í París. Sá, sem þetta ritai', telur einnig að hann hafi breytt óhyggi- lega; en eigi að síður er unnt að setja sig í spor hans. Svo mikið er víst, að Dwight Eisenhower hefði ekki setzt að samninga- borði við Krústjoff ef sovétstjórnin hefði skömmu áður orðið uppvís að njósnaflugi yfir Bandaríkjunum og Grómíkó utanríkis- ráðherra lýst yfir að því yrði haldið áfram til að tryggja sem bezt öryggi Sovétríkj- anna; Eisenhower hafði jafnvel margsinn- is haft við orð, að hann sæti aldrei nema eina viku á fundinum, af því að hann þurfti að fara að heyja í Gettysburg. En þess ber að gæta, að Krústjoff „átti“ þennan fund frá upphafi. Það var hann sem beitti sér fyrir honum, hann hefur knúið vestrænu leiðtogana einn af öðrum til að ræða við sig; og forustumanni sósíalísks ríkis ætti að vera meira kapps- mál en leiðtoga auðvaldsríkis, að friður eflist og sættir takist með þjóðum. Hvað er það annað en pólitískt fljótræði, að slíkur maður setji á allra seinustu stundu svo harkaleg skilyrði fyrir aðild að jafn- mikilvægri ráðstefnu? Hverskonar fram- ganga er það að hlaupa fyrstur frá þeim dyrum, sem maður hefur sjálfur opnað með ærinni fyrirhöfn? Eftir að Krústjoff birti skilyrði sín í París var komizt svo að orði í heimsfrétt- unum, að bæði hann og Eisenhower væru óvígir og gætu ekki tekið sér neitt fvrir hendur um ráðstefnuna. En halda þeir 28 Birtingur

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.