Húsfreyjan - 01.01.1950, Qupperneq 27

Húsfreyjan - 01.01.1950, Qupperneq 27
Hraðsuðupottar Vmsar gerðir hraðsuðupotta eru nú komnar á markaðinn hér á landi. Verð, stærð, efni o. s. frv. er oft töluvert mis- munandi. Þar sem konur eru að mestu ókunnar slíkum áhöldum, |ivkir henta að skýrt sé að nokkru frá þeim. Rannsóknarstofnun heimilanna í Dan- mörku hefir undanfarið haft með hönd- um all nákvæmar rannsóknir á notagildi ofi meðferð liraðsuðupotta og fara liér á eftir niðurstöður rannsóknanna í helztu dráttum. Verð pottanna er töluvert hærra en hús- mæður eru vanar að greiða fvrir lieimilis- áhöld, og er því þörf á að tryggja það, að þær kaupi ekki köttinn í sekknum, með því að henda hæði á kosti og galla. Með víðtækum og langvarandi rannsókn- um liefir verið komizt að niðurstöðu um suðutíma, vítamínrannsóknir, notagildi, eldsneytisþörf, þvngd, rúmtak og almennar notkunarreglur. HVAÐ ER HRAÐSUÐUPOTTIIR 'i Hraðsuðupottur er pottur með loki, sem fellur loftþétt, þó að vfirþrýstingur mynd- ist í pottinum. Potturinn er með stilli, sem lemprar þrýsting og öryggisventil. Þegar sýður, lieldur loftþétta lokið gufunni niðri í pottinum, en við það stígur Jirýsting- urinn og suðumark. Þegar þrýstingurinn liefir náð vissu marki, lyftir gufan þrýsti- stillinum, svo að nokkuð af gufunni kemst út. Áframhaldandi upphitun samfara því að nokkuð af gufunni kemst út, heldur þrýsting og hita jöfnum. Það er þessi hái suðuhiti, sem orsakar það, að matur- inn soðnar fyrr, lieldur en við venjulegan hita (100° C), Flestir hraðsuðupottar sjóða við 120 130° C., sem svarar til tveggja loftþyngda, hitun og þrýstingur er ekki hafður meiri, því að þá fær maturinn einkennilegan lit og tapar eðlilegu bragði. Þrýstistillinuin er komið þannig fyrir, að sé liann settur í mismunandi stillingar er liægt að fá hita og þrýsting lægri. Ef þrýstistillir stíflast af froðu eða mat 11. d. graut), stígur hiti og þrýstingur yfir tvær loftþyngdir (120—125° C), en fari þrýstingurinn yfir það, er liætt við að hrað- suðupotturinn sjiringi í loft upp. Slíkt get- ur þó ekki komið fyrir, ef öryggisventill er á pottinum. Oryggisventillinn er lítil gúmmíþynna í loki pottsins, hún rifnar við vissan yfirþrýsting, sem er fram yfir það, sem venjulega er notað við suðu. Þá nær gufan að strevma út, en við jiað fellur hæði jjrýstingur og liiti niður í eina loftþyngd, 100°- C. Orvggisventilinn er einnig liægt að útbúa sem bræðsluöryggi — fatningu , er liann |iá úr inálmi, sem bráðnar við vissan hita, sem er fram yfir Jiað, sem notað er til suðu í hraðsuðupoltinum. Hægt er að sam- eina |)rýstistilli og þrýstiventil svo að að- eins sé eitt gat á lokinu. KOSTIR VIÐ H RAÐSUÐUPOTTA. Kostur við hraðsuðupotta er fvrst og fremst sá, að maturinn soðnar fljótar í j)eim en í öðrum pottum, en það sparar bæði tíma og eldsneyti. Því lengri sem venjulegi suðutíminn er, því meiri er tíma- sparnaðurinn. Almennt er ha)gt að. segja, að það taki um af venjulegum matreiðslutíma að laga mat í liraðsuðupotti. Það er aðeins HÚSFREYJAN 27

x

Húsfreyjan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.