Húsfreyjan - 01.03.1957, Blaðsíða 6

Húsfreyjan - 01.03.1957, Blaðsíða 6
t—--—■—!-> Staka lífsins. Mörg hefur kona vakað við að vanda Iífsins stöku. Aldrei birt fær útvarpið óma þeirrar vöku. HALLA LOFTSDÓTTIR. V________________________________________y um skólamálum. Mér hefur oft virzt, sem mest kapp væri lagt á að gera allt sem íburðarmest og skólunum tækist ekki sem skyldi að greina kjarnann frá hism- inu, en þeir ráða sennilega ekki við þann tíðaranda, sem beinist svo mjög í þessa átt. Skólarnir eru sennilega á þann hátt að reyna að vera í samræmi við hinar miklu kröfur tímans. Og svo er annað: Við leggjum ekki nægilega mikið kapp á að gera skólana þjóðlegri, en orðið hefur. Ekkert er gert í skólunum, eða sárafátt, sem minnir okk- ur á, að við séum íslendingar á Islandi. Einnig hef ég í seinni tíð orðið vör við harða samkeppni milli skólanna. Eins og við vitum, þá eru skólarnir orðnir svo margir, að víða vantar nemendur. Þá er lagt af stað og farið í kapphlaup um þær fáu sálir, sem ef til vill vildu koma. — Þetta fellur mér illa, svona okkar á milli sagt. Skólarnir eiga að vera svo sterkir og heilbrigðir, að þeir mæli með sér sjálfir, án skrums né auglýsinga. Mig langar ákaflega mikið til þess að koma hér upp tóvinnudeild, er legði kapp á að kenna íslenzkan tóskap og gamlar íslenzkar hannyrðir, svo þær gleymdust ekki með öllu. Eitt vandamál skólanna er það líka, hve námsmeyjar eru nú ungar, margar 17—16 og jafnvel 15 ára. En það-má ekkert dragast, því þó þær hafi ekki mörg ár að baki, eru þær trúlofaðar og í gift- ingarhug. Þessir unglingar eru lítt þrosk- aðir, sem eðlilegt er, og ekki auðhlaupið að því að gera þeim skiljanlegt, hverjar kröfur þær verði að horfast í augu við, þegar heimili er stofnað. Námsefni húsmæðraskólanna er mið- að við þarfir heimilanna, þ. e. a. s. mið- að við það, sem álitið er að húsmóðir þurfi að vita sem bezt deili á. Og það er frekar auðvelt að fá ungu stúlkurnar til að sýna áhuga á að búa til ,,skrautlegan“ mat, kökur o. þ. h. Sömuleiðis að sauma fögur klæði og dúka, en svo kemur vand- inn að ganga vel um, hirða sig og hús sín. Vanda háttsemi, orð og gjörðir, og helzt vilja þær ekki líta í bók. Bóklegt nám er heldur ekki neitt, nema í sam- bandi við verklega námið, og svo ís- lenzka, að einhverju leyti. Ég hef heyrt það sagt, að á ýmsum fundum kvenna hafi komið fram raddir um að hætta kennslu í íslenzku í hús- mæðraskólum. Því er ég algjörlega mót- fallin. Auðvitað verður að haga kennsl- unni á annan veg en í barna- og unglinga- skólum, ekki málfræðistagl, en það þarf að láta þær lesa fallegar bókmenntir, benda þeim á útlend orðskrípi og vanda málfarið. Eiginlega ætti að byrja hvern dag á tima í íslenzku. Það minnti okk- ur á, að við værum Islendingar á Islandi. Og svo þarf að reyna að kenna fólkinu að hugsa. Fram að þessu hef ég verið mótfallin því, að nemendur í heimavist- arskóla hefðu ekki frítíma, sem þær mættu ráða yfir sjálfar. En af reynslu síð- ari ára finn ég, að þær eru tæpast fær- ar um, ungu stúlkurnar, að fara með sín- ar frístundir. Er ekki útlit á öðru en að þarna verði að gera breytingu, því mið- ur. Dregur sennilega að því, að kennari verði að fylgja þeim eftir allan námstím- ann, svo tíminn fari ekki meira og minna í súginn. En mér finnst það vantraust á æskufólkinu. Nokkrir alþýðuskólar hafa tekið upp þennan sið, svo sem Skóga- og Núpsskóli, og mér er sagt, að nú sé sá háttur hafður á Reykjaskóla. Hulda Stefánsdóttir. 6 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.