Húsfreyjan - 01.03.1957, Page 10

Húsfreyjan - 01.03.1957, Page 10
Norræna bréfið 1957 / ritað af doktor fil. Karin Alardt-Ekelund Á þessu ári eigum við Finnar að minn- ast þess, að 150 ár eru liðin frá fæðingu Frederiku Runeberg. Ásamt þeim Frede- riku Bremer í Svíþjóð, Camillu Collett í Noregi og Mathilde Fibiger í Danmörku myndar hún norrænan fjórblaðasmára, sem norrænu þjóðunum ber að minnast með virðingu og hlýju. Frederika Runeberg dvaldi mestan hluta ævi sinnar í skugga af nafni stór- mennis, en sjálf var hún mikilmenni. Hún er konan, sem vekur í brjósti Johan Lud- vig Runebergs svo sterka kennd, að hún veldur ævilangri ákvörðun hans og þessi kona er þeim vanda vaxin, að vera eigin- kona skáldsins, auk þess sem hún hefur djúp áhrif á manngildi hans og skáld- skap. Við sjáum hana sem móður við uppeldi sonanna sex, sem allir urðu dug- andi menn. En jafnvel hin umfangsmiklu húsmóðurstörf á þessu merka heimili AÐALBJÖRG SIGURÐARDÓTTIR Frh. frá bls. 7. heimilismenningar hljóta að vera mál málanna hjá íslenzkum konum, því að heimilin eiga að vera grundvöllur þjóð- félagsins og hvar er þjóðfélagið statt, ef þau bregðast? Auk allra þessara starfa og þátttöku í mörgum öðrum menningarsamtökum hef- ur frú Aðalbjörg þýtt fjölda bóka, flutt ótal erindi, bæði á fundum og í útvarp, skrifað greinar í blöð og tímarit, verið prófdómari um margra ára skeið auk annarra starfa, sem of langt yrði að telja hér upp. Af því, sem að ofan greinir, má sjá, að frú Aðalbjörgu hafa verið falin margvís- leg vandasöm störf, sem ekki eru öðrum fær en þeim, sem eru miklum hæfileikum hefðu ekki ein getað markað henni rúm meðal þeirra stórmenna, sem mestan þátt áttu í að móta menningu Finnlands á síð- ustu öld. Það eru störf hennar sem blaða- manns, rithöfundar og þjóðfélagsþegns, sem skipa henni sérstakan heiðurssess meðal annarra kvenna þeirra tíma í landi voru. Frederika Tengström, en svo var hið upphaflega nafn hennar, var barn að aldri, þegar foreldrar hennar fluttu úr fæðingarbæ hennar, Jakobstad, til há- skóla- og höfuðborgarinnar Ábo. Hún ólst því upp í hópi hinna mestu gáfu- og menntamanna, sem þá voru uppi í Finn- landi. Einn af þeim, sem um þær mundir höfðu forustu í menningarmálum Finna, var föðurbróðir Frederiku, guðfræðipróf- essorinn og síðar erkibiskupinn Jakob Tengström. Hann flutti kenningar síns mikla meistara og hans tíma til æsku- búnir, enda er hún fluggáfuð kona, vel- menntuð og víðlesin. Hún hefur auk þess þá gáfu í ríkum mæli, að kunna vel að greina milli aðalatriða og aukaatriða, og er hún talar fyrir einhverju máli, er fram- setningin skýr og hnitmiðuð. Frú Aðal- björg nýtur mikilla vinsælda, sem vænta má, enda bráðskemmtileg í vinahóp, en hún er líka vinur í raun. Mun það ekki of sagt, að þeir, sem þekkja hana bezt, meti hana mest, og get ég ekki hugsað mér betri dóm um neinn. Það er ósk mín til Kvenfélagasambands íslands, að það fái að njóta eldlegs áhuga og gáfna frú Aðalbjargar sem lengst. Henni sjálfri og börnum hennar óska ég blessunar Guðs og alls góðs. Guðrún Pétursdóttir. 10 HÚSFREYJAN

x

Húsfreyjan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húsfreyjan
https://timarit.is/publication/831

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.