Húsfreyjan - 01.03.1957, Side 14
Myndofið veggteppi
eftir
Vigdísi
Krist j ánsdóttur.
Málverkum, höggmyndum og listiðnaði
var smekklega fyrirkomið á og meðfram
veggjum salsins. Voru þarna myndir eftir
tíu listakonur. Barbara Árnason, Gréta
Bjömsson, Guðmunda Andrésdóttir, Júlí-
ana Sveinsdóttir, Karen Agnete Þórarins-
son og Nína Tryggvadóttir sýndu olíu-
málverk og vatnslitamyndir, þrjár mynd-
ir hver, og Nína Tryggvadóttir sýndi
einnig mynd (glugga) úr lituðu gleri.
Höggmyndir sýndu Gerður Helgadóttir,
Gunnfríður Jónsdóttir, Nína Sæmundsson
og Ölöf Pálsdóttir.
Vigdís Kristjánsdóttir sýndi mynd-
vefnað, en fjölbreyttur listiðnaður, svo
sem silfursmíði, handmálað postulín, út-
skurður og listbókband var á sýningunni
eftir Ásdísi Thoroddsen, Barböru Árna-
son, Bryndísi Jakobsdóttur, Dóru Jóns-
dóttur, Gróu Dalhoff, Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, Margréti Albertsdóttur, Ólöfu
Pálsdóttur, Rögnu Pétursdóttur, Rósu
Þorleifsdóttur, Soffíu Stefánsdóttur,
Svövu Þórhallsdóttur, Torfhildi Dalhoff,
Unni Briem og Þóru Briem. Var þar margt
fagurra muna og vel gerðra.
Á langborði eftir salnum endilöngum
var raðað yfirgripsmiklu sýnishorni af rit-
um kvenna, gömlum og nýjum: skáld-
sögum, leikritum, æviminningum, ljóðum,
bamabókum og fræðiritum, svo og tíma-
ritum og safnritum. I sýningarskrá sýn-
ingarinnar var heildarskrá yfir bækur ís-
lenzkra kvenna frá því um 1800 fram til
ársins 1956, samin af Valborgu Bents-
dóttur. Voru þar taldar einar 530 bækur
eftir um það bil 215 höfunda og má af
því marka, hve mikið konur hafa lagt til
íslenzkra bókmennta síðast liðin 150 ár.
Þó voru, eins og Valborg Bentsdóttir seg-
ir í formála sýningarskrárinnar, „engin
tök á því að safna skrá yfir þau ritverk
kvenna, sem birzt hafa í blöðum og tíma-
ritum, en allmargar konur hafa birt aðal-
ritverk sín á þeim vettvangi." Af 42
tímaritum og safnritum kvenna, sem tal-
in eru í bókaskránni, koma a. m. k. sjö
út reglulega.
Á sýningunni voru að sjálfsögðu rit
Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, svo sem
Kvennablaðið, er út kom 1895—1919, og
Barnablaðið. En elzta bókin var Einfaldt
matreiðslu vasa-kver fyrir heldri manna
húsfreyjur eftir Mörtu Maríu Stephensen,
konu Magnúsar konferenzráðs Stephen-
sen. Var bókin prentuð í Leirárgörðum
14 HÚSFREYJAN