Húsfreyjan - 01.03.1957, Side 21
MANNELDISÞÁTTUR
Frh. frá bls. 16. '
látin í sósuna eftir smekk. í staðinn fyrir grœn-
meti má borða kartöflur með hrognunum.
STEIKT HROGN OG KARTÖFLUR.
% k|{. soðin lirogn 100 gr. smjörliki
Soðnar kartöflur Salt og pipar
Hrognin og kartöflurnar skorin í sneiðar. Fyrst
eru hrognin brúnuð móbrún á pönnu, salti og
pipar stráð yfir og þau sett é fat. Kartöflurnar
brúnaðar á sama hátt og látnar á fatið með
hrognunum. Saxaðri steinselju stráð yfir.
HROGN MEÐ LAUK.
1 kg. soðin hrogn 1 laukur eða grasl.
2 msk. hveiti 150 gr. smjörlíki
Salt og pipar
Salti og pipar blandað saman við hveitið og
hrognasneiðunum velt þar upp úr. Steikt mó-
brún í smjörinu á pönnunni. Laukurinn einnig
brúnaður. Borðað með grænmetisjafningi eða
kartöflum í jafningi.
STEIKT HROGN.
1 )cg. soðin hrogn 100 gr. smjörlíki
Eggjahvita og 6 sítrónusneiðar
brauðmylsna Síld og kapers
Hrognin soðin, pressuð og kæld. Skorin í 1
cm. þykkar sneiðar, sem velt er upp úr eggja-
hvítu og brauðmylsnu. Brúnuð móbrún í smjör-
líkinu á pönnu. Salti og pipar stráð yfir. Raðað
á fat og smjörinu hellt yfir. í miðjuna á hverri
sítrónusneið er látin beinlaus síld og kapers utan
um. Sítrónusneiðunum er raðað yfir hrognin.
Kartöflur, sem hitaðar eru í smjöri, eru einnig
látnar á fatið. Yfir þær er hellt tómatmauki.
Hafi maður nýja tómata, er þeim raðað utan
með á fatið með grænum salatblöðum.
Sítrónusneiðunum má sleppa.
HROGNA-EGGJAKAKA.
750 gr. soðin hrogn 4 egg
70 —100 gr. smjörl. 50 gr. rifinn ostur
Salt og pipar 50 gr. smjör
1 laukur
Hrognin o(; laukurinn skorin í sneiðar og brún-
uð ljósbrún í 100 gr. af smjörlíki. Salti og pipar
stráð yfir. Eggin eru hrærð með salti og pipar.
Smjör, 50 gr., brúnað á pönnu. Eggjunum er
hellt á pönnuna og steikt við hægan eld, unz
þau hyrja að hlaupa saman. Þá er hrogna- og
lauksneiðunum raðað á, kakan vafin saman og
borðuð strax.
REYKT HROGN.
Ný hrogn eru lögð í mikið salt í 2—3 sólar-
hringa. Tekin upp og þerruð vol og reykt á
venjulegan hátt. Þau eru venjulega borðuð ó-
soðin.
Þessi reyktu hrogn eru ágætis matur ofan á
brauð. Þau eru skorin þunnt, og sérstaklega ljúf-
fengt er að hafa hrærð eða soðin egg með. Einnig
má sjóða hrognin í vatni og borða þau þá með
soðnum kartöflum og hrærðu smjöri.
STEIKT ÞORSKHROGN.
Vatn og salt 50 gr. smjörlíki
% kg. hrogn Salt og pipar
Egg eða dósamjólk . Sítrónusneiðar
og brauðmylsna
Hrognin þvegin, soðin í söltu vatni. Skorin í
1 cm. þykkar sneiðar, þeim velt up úr dósa-
mjólk og brauðmylsnu og steiktar móbrúnar í
smjörinu. Salti og pipar stráð á. Hrognunum
raðað á fat og sítrónusneiðum ofan á. Kartöflu-
salat sett öðrum megin á fatið.
Og að lokum
DANSKT HROGNASALAT:
200 gr. þorskhrogn
Vatn, salt
3 msk. matarolía
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. karrý
Salt, ef þurfa
þykir
Salatblöð, sítrónu-
sneiðar, paprika
Hrognin eru soðin og kæld og himnan tekin
utan af þeim. Þá eru þau hrærð vel með olíu,
sítrónusafa, karrý og salti. Hræran sett á græn
salatblöð eða brauðsneiðar og skreytt með sætri
papriku og sítrónusneiðum.
MEÐ KAFFINU
SKONSUR.
400 gr. hveiti
3 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
2 tsk. sykur
100 gr. smjörlíki
1 egg
2 dl. mjólk
Sáldið saman hveiti, lyftiduft, salt og sykur,
saxið smjörlikið saman við með hnif, vætið í
með egginu og mjólkinni, hnoðið deigið fljótt
saman. Skiptið deiginu í þrjá hluta, fletjið út
í þykkar kökur og skerið þær í fjórðunga. Raðið
fjórðungunum á plötu og bakið þá ljósbrúna við
mikinn hita. Berið skonsurnar fram volgar með
smjöri og marmilaði.
FLJÓTBÖKUÐ
150 gr. sykur
2 egg
1 tsk. vanilla
2 tsk. lyftiduft
SKÚFFUKAKA.
7 msk. mjólk
1 msk. smjörlíki
125 gr. hveiti
75 gr. smjörlíki
125 gr. sykur
—o—
2 msk. mjólk
35 gr. hafragrjón
HÚSFREYJAN 21