Eining - 01.08.1947, Page 1
r
5. árg.
Reykjavík, ágúst 1947.
8. tbl.
Alþjóðaþing Góðtemplara í Stokkhólmi
Við fórum þrír, séra Kristinn Stef-
ánsson, Brynleifur Tobiasson yfirkenn-
ari og undirritaður, til Stokkhólms til
þess að sitja alþjóðaþing Góðtemplara
og um leið hið 17. Norræna bindindis-
^ þing. Bæði voru þessi þing fjölsótt og
mjög markverð að ýmsu leyti, en sam-
fara þeim var og mikil viðhöfn og mót-
tökurnar allar af Svíanna hálfu frábær-
lega rausnarlegar.
Frá þessu verður nú ekki sagt nema
lítilsháttar að þessu sinni, en blaðið mun
reyna að gera þingum þessum frekari
skil, eftir því sem hentugleikar leyfa.
^ Ferðafélagar mínir eru enn báðir er-
lendis, þegar blaðið er búið til prent-
unar, en Brynleifur Tobiasson hefur lof-
að að skrifa fyrir blaðið um Norræna
bindindisþingið. Hann hefur verið lengi
í miðstjórn þess og mætti að þessu sinni
sem fulltrúi íslands og ríkisstjórnarinn-
ar, hafði og umboð til þess að bjóða
þinginu heim til Islands 1950. Þetta
vakti mikla eftirtekt hjá þingheimi, eft-
irgrenslanir og spurningar hjá mörgum,
en fyrir okkur hér heima verður þetta
merkisviðburður, en líka vandi og mikil
fyrirhöfn að taka á móti þinginu með
myndarskap og sæmd.
Alþjóðaþingið, eða hástúkuþingið, er
við oft nefnum svo, hófst laugard. 5. júlí
kl. 10 árdegis í Blasieholms-kirkjunni í
Stokkhólmi, en þar eru salarkynni mik-
il, þrílyft, víð og há. Kirkjan var fagur-
lega skreytt fánum margra landa. Við
opnunina voru samankonmir um 3000,
þar af 500 erlendir gestir og fulltrúar.
En alls munu hafa verið um 7000 þátt-
takendur þennan fyrsta dag þingsins.
Stórtemplar Svía, Ruben Wagnsson,
opnaði þingið með stuttu ávarpi og bauð
gesti velkomna. Viðstaddir voru ýmsir
háttsettir menn Svía, þar á meðal biskup
Stokkhólms, Manfred Björkqvist og for-
sætisráðherrann, Tage Erlander. Fyrir
framan altarið sat 38 manna hljómsveit
frá kapellu konungshallarinnar og
hljómsveit borgarinnar, en voldugur
templarakór var einnig til aðstoðar og
virtist mér sem þar mundi vera tölu-
vert á annað hundrað manns. Músik og
söngur var því mikill.
Hátemplar, Oscar Olsson, flutti að-
alopnunarræðuna og fengu þingmenn
hana sérprentaða. Verður hennar getið
síðar. Þá flutti forsætisráðherrann ræðu
og bauð, fyrir hönd ríkisstjórnarinnar,
þingmenn velkomna til staðarins. Um
leið sæmdi hann þrjá menn heiðurs-
merkjum, Karl Blomgren og Jalmar
Furuskog konunglegum heiðursmerkj-
um, en hátemplar, Oscar Olsson, fékk
heiðursmerki, sem af bar og aðeins fáir
Svíar hafa hlotið áður. Það sá ég kallað
„Illis quorum“. Oscar Olsson átti ein-
mitt 70 ára afmæli daginn áður, hann
hefur verið um langt skeið þingmaður
Svía, en auk þess duglegur menningar-
frömuður, áhrifamikill í félagsmálum
Gefstir og fulltrúar háatúkuþingsins ú tröppum Meðborgarhúxsins í Stokkhólmi.
V