Íslenskt skákblað - 01.10.1925, Síða 4
26
i’Slenskt skákblað
14 ára, þegar harrn fór að gefa sig að tafli. Skal hjer til gamans
tekið upp það, sem hann segir sjálfur um upphaf skákiðkana sinna:
»Jeg get alls ekki talist meðal þeirra undrabarna, sem máta
föður sinn og aðra góða skákmenn þegar á fyrstu barndómsárum.
Jeg var fremur seinn að læra frumreglur skáktaflsins og beið oftast
ósigur fyrstu 3 árin. En þegar jeg var búinn að lesa og athuga
gaumgæfilega litlu kenslubókina hans Dufresne’s, þá fór mjer að
ganga betur —.«
Dr. Lasker hlaut þýska skákmeistaratign á þingi skáksambands-
ins þýska í Breslau 1889. Úr því tók hann að gefa sig mjög við
skák. Hann fór til Englands og háði^fnvígi í London við stór-
meistarana Bird og Blackburne og sigraði þá með + 7 : 2 = 3 og
-f- 6 0 = 4. Næsta ár fór hann til Bandaríkjanna og sigraði
þar hvarvetna.
Eins og áður er getið, hlaut liann heimsmeistara nafnbót eftir
sigra sína við Steinilz 1894 og 1896. Síðan varði hann þessa tign
sína í einvígum við efldustu skákmenn heimsins, og má þar til
nefna: Marshall árið 1907, sigraði með +8-+-0 = 7; Tarrasch
1908, sigraði með -f 8 -s- 3 = 5, og affur við sama 1916 og sigr-
aði þá með +5-+-1 = 1; Janowski i París 1909, sigraði með
+ 7-5-1 =2 og í Berlín 1910 með +8-+-0 = 3; Schlechter í
Wien 1910, sigraði með + 1 -+- 1 = 8, og hlaut Schlechter, hinn
nafnkunni austurríski skákmeistari, þar af sinn mesta orðstír. Dr.
Lasker hefir kept á 14 alheims-skákþingum og gengið 11 sinnum
frá borði með 1. verðlaun, en annars hefir hann skift með 2. og 3-
— Eini ósigur hans er, þegar liann varð að bíða lægri hlut fyrir
Capablanca í viðureigninni við hann í Havanna um heimsmeistara-
tignina árið 1921 og tapaði 4 töflum, en gerði 10 jafntefli og misti
með því heimsmeistaratignina.
Eftir einvígið við Capablanca hjelt Dr. Lasker kyrru fyrir í
rúmlega 2 ár. En í júlí 1923 kemur liann aftur fram á sjónarsviðið
og teflir á meistaraþinginu í Márisch-Ostrau. Par vinnur hann 1.
verðlaun án þess að tapa nokkurri skák. Síðan var honum boðið
til skákþingsins mikla í New York í apríl 1924. Þar vinnur hann
einnig 1. verðlaun.*) Næstur honum þar varð Capablanca — skák-
heimsmeistarinn, — síðan Aljechine, skákmaðurinn mikli. Skákheim-
urinn stóð undrandi yfir úrsliíum þessa skákþings. Sigur Dr. Laskers
var hinn stórglæsilegasti. Spurningar voru settar fram: Hvor var
*) Sjá „Skákpingið mikla í New York“ síðar í þessu blaði.