Íslenskt skákblað - 01.10.1925, Blaðsíða 5
ISLENSKT SKÁKBLAD
27
í rauninni skákheimsmeisíari, Capablanca eða Dr. Lasker? Mikið
var um þetta rætt fram og aftur og margvíslegar skoðanir látnar
uppi. Pó er eitt víst — eins og áður hefir veiið getið í þessu
blaði — að Capablanca vann sigur sinn um heimsmeistaratignina
rneð fullum sóma. Það er og álit meistara, svo sem Reti’s, Mieses
o. fl., að Capablanca beri með óskoruðum ijetti þessi tign hans-
En eftirtektarvert er þrek og þol Dr. Laskers, þegar tekið er tillit
til aldurs hans (um 58 ára).
Það hefir verið álit margra — og er enn þá, þeirra, er um
þetta mál rita, — að Dr. Lasker hafi og geti enn þá haft dáleið-
andi áhrif á mótstöðumann sinn í skák. Þess vegna sje sigurför
hans öll svo mjög glæsileg. Reti og fleiri stórmeistarar liafa ritað
og rita á þessa leið. En öllum ber þeim þó saman um það, að
snild Dr. Laskers, aðgæini og stilling sje óviðjafnanleg, og að enda-
töfl hans mörg sjeu þau fegurstu og að öllu leyti hin snjöllustu,
sem enn þá hafi tefld verið.
Skákheimurinn bíður nú með eftirvæntingu og óþreyju eftir
nýju einvígi milli Dr. Laskers og Capablanca. En um tign heims-
meistarans er hjer ekki lengur að ræða, því að Dr. Lasker þykist
nú of gamall orðinn til þess að verja þá tign, þótt hann sigraði og
ynni liana aítur, sem mjög væri tvísýnt.
Dr. Lasker, þótt gamall sje, er enn fullur kapps og vinnuþreks.
Ætlar hann nú innán skamms að heyja einvígi við Dr. Vidmar og
bíða skákvinir með óþreyju eftir úrslitum þess.
Að lokum skal þess getið, að Dr. Lasker hefir einnig unnið
sjer frægð og álit með útgáfum ágætra skákrita og sem ritstjóri
skákblaða — bæði í Englandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi. Auk
þessa hefir hann samið merkileg og fræg heimspekirit.
Látum vjer svo þetta nægja að sinni um þennan skákjöfur
vorra tíma. Þótt Dr. Lasker sje hniginn að aldri, er ekki að efa,
að enn á hann eftir að hita mótstöðumönnum sínum í skák og
blað vort að geta lians að maklegleikum.
Að lokum skal bent á, að síðar í þessu hefti verða birtar 4 af
frægustu skákum Dr. Laskers til þess að sýna enn betur skák-
styrk lians. J. H. H.
A L) A D F U N D IJ It
Skáksambands íslands var haldinn á heimili Kristjáns hjeraðslæknis
Arinbjarnarsonar á Blönduósi 23. júní síðastliðinn.