Íslenskt skákblað - 01.10.1925, Page 10
32
ÍSLENSKT SKÁKBLAÐ
borg. Að nokkrum stórmeisturum undanskildum (Rubenstein, Spiel-
mann, Oríinfeld, Vidmar) voru þar allir merkustu og frægustu skák-
meistarar nútímans saman komnir. Tefldu þar hver tvær skákir saman.
í öðru lagi var eftirvænting manna um úrs itin á þessu þingi
mjög mikil, þar seni þar leiddu hesta sína saman skákheimsineist-
arinn Capablanca, fyrverandi heimsmeisfari Dr. Lasker og Aljechine,
sá er búist er við að muni keppa viö Capablanca um heims-
meistaratignina.
Og í þriðja lagi var þar háð barátta urn úrlausn þeirrar spurn-
ingar hvor framar stæði: hinn eldri skóli, sem leggur aðaláhersluna
á eðlilega framþróun skáklistarinnar og hagar leikjum eftir gefinni
taflstöðu, eða hin nýja stefna, sem er hugsæ og byggist á því, að
skákmaðurinn knýr fram taflstöðu, sem svarar til innri hugsjónar
lians um úrslit skákarinnar.*)
Þótt meistarar af hinum eldri skóla tækju á þessu skákþingi I.
og II. verðlaun, er ekki þar með sagt, að stefna þeirra sje hin betri.
Nýi skólinn hefir sýnt það og sannað, að liann á fullan tilverurjett.
En meðal svo »sterkra« keppenda hins gamla skóla á þessu þingi,
virðist sem hin nýja stefna eigi erfitt fyrir, og hefir framfylgjendum
hennar (3, 5, 7, 8) gengið ver seinni umferðin en hin fyrri (sjá
töfluna).
Mesta undrun og sjerstaka aðdáun vakti hinn glæsilegi sigur
Dr. Laskers. Eins og á er drepið á öðrum stað í þessu blaði, liefir
liann aðeins tekið þátt í einu skákþingi (í MáhrisclvOslrau 1923;
vann I. verðlaun) síðan hann misti heimsmeistaratignina 1921. Er
þol hans og þróttur dásamlegur, þegar tekið er tillit til þess, að
hann er kominn hátt á sextugsaldur. Má heimsmeistaranum
Capablanca vera það nokkur huggun, að hann einn hafi unnið
skák af Dr. Lasker á þessu þingi. — Þótt all-mikill sje munur-
inn á Aljechin og hinum tveimur fyrnefndu, sýndi hann þó það,
að hann á rjettinn öðrum frekar til þess að keppa um lieims-
meistaratignina.
Fjórði maðurinn, Marshall, hefir aftur vakið all-mikla eftirtekt á
sjer með frammistöðu sinni á þessu þingi. Bjuggust flestir við því,
að þeir Reti, Bogoljubow og Tartakower mundu verða hlutskarpari
en hann. — Maroczy sýndi þarna, eins og oftar, hetjudug. Hann
er maður liált á sextugsaldri. — Þótt Yates, Edv. Lasker og Ja-
*) Pað sein hjer er iiefnt eldri skóli, er stefna Steinitz í skák og síðar Dr.
Laskers o. fl. Nýju stefnunni fylgja nú að mestu fram Aljechin, Reli o. fl.